Tíminn - 09.01.1987, Side 6
c
I
6 Tíminn
FRETTAYFIRLIT
BEIRÚT — Fallbyssukúlum
var skotið á flugvöllinn í Beirút
og kviknaði í einni Boeing 707
flugvél i eigu líbanska Mið-
Austurlandaflugfélagsins. Þá
létust að minnsta kosti fimm
manns og tíu særðust í stór-
skotaárásum á tvö hverfi krist-
inna manna í Beirút.
BEIRÚT — Fyrrum óþekktur
skæruliðahópur kristinna
manna í Líbanon sagðist hafa
staðið að tilrauninni i fyrradag
til að ráða Camille Chamoun
fyrrum forseta af dögum.
WASHINGTON - Reagan
Bandaríkjaforseti, sem er við
góða heilsu eftir uppskurð og
krabbameinsrannsókn, snéri
aftur af sjúkrahúsi til Hvíta
hússins í dag. Hans bíða tvö
óskemmtileg mál, annarsveg-
ar deila við þingið út af fjár-
lagafrumvarpi og hinsvegar
Iransmálið.
KUWAIT — Dagblað í Kuw-
ait sagði Kaddafi oa stjórn
hans í Líbýu vera að endur-
skoða stuðning sinn við iran í
Persaflóastríðinu við Iraka
vegna vopnaviðskiptanna við
Bandaríkjastjórn.
LUNDÚNIR — Líbýustjórn
neitaði fréttum frá París um að
hún hefði sent herflugvélarsín-
ar í árásarferð til Kouba
Olanga sem er sunnan við
sextánda breiddarbaug. Hann
skilur að suðurhluta Chad þar
sem hin lögbundnu stjórnvöld
ráða ríkjum og norðurhlutann
sem uppreisnarmenn og Lí-
býumenn ráða yfir.
HAAG — Hersveitir í Súri-
nam, fyrrum nýlendu Hollend-
inga, eiga nú í hörðum bardög-
um við uppreisnarmenn í aust-
urhluta þessa Suður- Ameríku-
ríkis.
PARÍS — Samningaviðræð-
ur um að binda enda á verkfall
járnbrautarstarfsmanna í
Frakklandi hófust að nýju í
gær. Verkfallið hefur nú staðið
a fjórðu viku og hefur haft mjög
alvarleg áhrif víðsvegar um
landið. Jacques Chirac for-
sætisráðherra hefur frestað
fyrirhugaðri ferð sinni til Kan-
ada vegna ástandsins heima
fyrir.
Föstudagur 9. janúar 1987
iiiiiiiiiiw utlond iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iii;ii:!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMi[iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii]iiiiiiii
Kólumbía:
Bandaríska sendiráðið
opnar aftur þrátt fyrir
árásarhug eiturlyfjakónga
Zimbabwe:
Skæruliði
vissi ekki
að stríðið
væri búið
Hafðist við í helli í átta ár
Bogota-Rcufer
Bandaríska sendiráðið í Bogota,
höfuðborg Kólumbíu, var opnað
aftur í gær fyrir almenning eftir að
hafa verið lokað í 36 klukkustundir.
Lokunin kom til vegna frétta um að
eiturlyfjasmyglarar hygðust gera
árás á bygginguna.
Talskona sendiráðsins sagði liina
rammgerðu byggingu í miðborg
Bogota hafa verið opnaða á hádegi
en hinsvegar neitaði hún að gefa
nánari upplýsingar um hvernig ör-
yggismálum væri háttað í sendiráð-
inu.
Blöð í Bogota sögðu lögreglu hafa
Berlínarmúrinn: Staðfestir stirða sambúð
Samskipti þýsku ríkjanna stirö:
Austur-Þjóðverjar
saka Kohl um lygar
og ábyrgðarleysi
Austur Berlín-Rcuter
Opinbert dagblað í Austur-
Þýskalandi birti í gær bréf frá
lesendum þar sem þeir saka Hel-
mut Kohl kanslara Vestur-Þýska-
lands um að sýna ábyrgðarleysi og
dreifa hatri með því að saka austur-
þýsk stjórnvöld um að hafa í haldi
pólitíska fanga og reka einangrun-
arbúðir.
Bréfin voru birt í blaði kommún-
istaflokksins „Nýja Þýskaland" og
á undan þeim var dulítill leiðari
þar sem Kohl var sagt að gera sér
íjóst að Austur-Þýskaland væri
sjálfstætt ríki og yrðu ábyrgir þjóð-
arleiðtogar að virða rétt þess og
koma heiðarlega fram við ráða-
menn þess.
Jafnaðarmenn í Vestur-Þýska-
landi hafa einnig gagnrýnt Kohl
harðlega fyrir þá fullyrðingu hans
að um tvö þúsund pólitískir fangar
séu í haldi í Austur-Þýskalandi.
Stjórnvöld austan megin hafa neit-
að þessum fullyrðingum kanslarans
sem koma nú þegar stutt er í
kosningar í Vestur-Þýskalandi.
Orð Kohl voru sögð vera „skipu-
legar hatursofsóknir“ gagnvart
hverjum einasta íbúa Austur-
Þýskalands í einu bréfanna í „Nýja
Þýskalandi" sem undirritað var af
doktor Klaus Hardenberg.
í öðru bréfi var fullyrðing Kohls
sögð vera þáttur í að snúa Vestur-
Þjóðverjum algjörlega til hægri í
stjórnmálum.
komist á snoðir um áætlanjr eitur-
lyfjamafíunnar um að ráðast á sendi-
ráðið, líklega í hefndarskyni fyrir
framsal Bandaríkjamanna á Kól-
umbíumönnum sem grunaðir eru
um eiturlyfjasmygl.
Allir almennir starfsmenn sendi-
ráðsins voru sendir heim til sín er því
var lokað. Þetta voru uni 450 manns,
þar af um 200 Bandaríkjamenn.
Fréttir um hefndaraðgerðir eitur-
lyfjamafíunnar fylgdu í kjölfar her-
ferðar kólumbísku stjórnarinnar
gegn eiturlyfjasmyglurum sem stað-
ið hefur yfir síðustu þrjár vikurnar.
í þeirri herferð hafa meira en 600
manns verið handteknir og eru sex
af þeim taldir vera í hópi helstu
eiturlyfjakónga landsins.
Eiturlyfjasmyglararnir hafa einnig
verið reiðir vegna samkomulags sem
stjórnvöld í Bogota og Washington
gerðu með sér og felur í sér framsal
hugsanlegra smyglara.
Sprengja sprakk fyrir utan banda-
ríska sendiráðið í Bogota í nóvem-
ber árið 1984 og lést einn kólumbísk-
ur borgari af völdum hennar.
Harare-Rcuter
Skæruliði í Zimbabwe sem lif-
að hefur í helli síðustu átta árin
er kominn fram úr felustað sínum
til að uppgötva að Zimbabwe er
orðið sjálfstætt ríki.
William Jimu Bonga, einnig
þekktur undir nafninu „Stórslys",
var einn tugþúsunda skæruliða
sem börðust undir stjórn Roberts
Mugabe núverandi forsætisráð-
herra gegn stjórn hvíta mannsins.
í Ródesíu. Frelsisstríðið bar
árangur árið 1980 er Mugabe
varð æðsti maður landsins og
Ródesía varð að Zimbabwe.
Bonga sagði fréttamönnum að
hann hefði tapað vopnum sínum
í rigningarstormi er hann var á
vakt í austurhluta Zimbabwe árið
1978. Hann faldi sig í helli þar til
í nóvember á síðasta ári að fólk í
nágrenninu uppgötvaði að þar
væri maður og lét lögreglu vita.
„Ég hafðist við í hellinum
hvern dag og fór aðeins út á
næturnar til að leita matar og
vatns. Ég hélt að stríðið stæði
enn yfir...,“ sagði Bonga.
■
Norðurlanda-
kuldi í metham
Stokkhólmur-Reuter
Kuldinn í Svíþjóð cr nú að nálgast
met og í Finnlandi hefur ekki verið
kaldara síðan í hinu svokallaða
vetrarstríði mflli Finna og Sovét-
manna árið 1940.
í Noregi búast veðurfræðingar við
að hundrað ára frostamet verði sleg-
ið á næstu dögum í hinni norðlægu
Finnmörk sem liggur að sovésku
landamærunum. Þar fór hiti niður í
mínus 46 Celsíusstig í fyrradag og
vantaði aðeins fimm stig upp á að
kuldinn næði því sem hann hefur
mest verið mældur á þessu svæði.
Rafmagnsnotkun í Stokkhólmi
hefur aldrei verið meiri en hiti er þar
um mínus 21 stig á Celsíus. í norður-
héruðum Svíþjóðar hefur hiti hins-
vegar farið niður í mínus 52 Celsíus-
gráður og eru glóðarker úti á stöðum
eins og í hafnarborginni Luleu til að
vegfarendur geti ornað sér.
Mikil truflun hefur orðið á járn-
brautarsamgöngum í Svíþjóð vegna
kuldanna og á síðustu dögum hafa
sum pósthús orðið að loka. Fólki er
ráðlagt að þvo sér ekki með sápu eða
raka sig til að viðhalda náttúrulegu
fitumagni andlitshúðarinnar og
þannig verja sig kuldanum.
Vitað er um tvo menn sem dáið
hafa í Helsinki vegna kuldanna en
þar hefur hitastig komist niður í
mínus 30 Celsíusgráður.
Þrátt fyrir hroðalega kulda á
Norðurlöndum benda veðurfræðing-
ar á það jákvæða. Hlutirnir hafa jú
oft verið verri. Árið 1595 og aftur
árið 1638 fraus t.d. sjórinn við
frönsku hafnarborgina Marseilles
við Miðjarðarhafið og árið 1602
fraus vatn í ánni Guadalquivir í
grennd við spænsku borgina Seville,
sem er í héraðinu Andalúsíu á
Suður-Spáni.
ÚTLÖND
UMSJÓN:
Heimir
Bergsson
BLAÐAMAÐUR
Japönsk flugvél á leið frá íslandi til Alaska:
í FYLGD MED FLJUGANDIFURÐUHLUT?
Reyndur japanskur flugmaður
sagði það stærra en allt annað sem
vitað er að getur flogið. Það flaug
hratt, a.m.k. nógu hratt til að fylgja
Boeing 747 flutningaþotu eftir í
hálftíma þar sem hún flaug yfir
óbyggðum Alaska. Tveir minni hlut-
ir fylgdu þeim stærri eftir og saman
mynduðu þeir einkennilegt mynstur
gulra og grænna lita. Allt líkist þctta
mjög sögum um fljúgandi furðuhluti
utan að- hluturinn sást nefnilega
líklegast í ratsjá japönsku flutninga-
vélarinnar sem og á jörðu niðri.
Það var vikuritið Newsweek sent
skýrði frá þessum atburði nú í vik-
unni en japanska flutningavélin var
á venjulegri flugleið frá Keflavík til
Anchorage í Alaska þann 17. nóv-
ember á síðasta ári er flugstjórinn
Kenjyu Terauchi og tveir aðstoðar-
menn hans sáu óþekkta hlutinn
fljúga við hlið þeirra rétt undan
ströndum Norður-Alaska.
Terauchi gat staðsett hlutinn með
hjálp veðurratsjár flugvélar sinnar
og flugmálastjórnir á jörðu niðri
sögðust hafa greint í skamman tíma
bergmál sem gæti hafa komið frá
hlut í nánd við japönsku vélina.
Rannsókn á þessum fljúgandi
furðuhlut hefur nú verið hætt enda
ekkert að rannsaka eða eins og Paul
Steuckc talsmaður flugmálayfir-
valda í Anchorage segir: „Stjórnandi
vélarinnar sá það sem hann sá... það
gæti hafa verið óþekktur hlutur eða
hugsanlega herflugvél frá Banda-
ríkjunum, Kanada eða öðru landi."
Terauchi er hinsvegar ekki í vafa
um að hluturinn sem hann sá þessa
heiðskýru nóvembernótt hafi verið
frá öðrum hnetti þar sem menning
væri á mun hærra stigi en gerist á
jarðarkringlunni. Terauchi segir
brosandi að einungis það gcti útskýrt
áhuga hinna óþekktu á farminum
sem japanska flugvélin flutti á leið
sinni frá íslandi til Alaska; kassa af
frönsku Beaujolais víni.
(Byggt á Newsweek)
i