Tíminn - 09.01.1987, Page 9
Föstudagur 9. janúar 1987
Tíminn 9
VETTVANGUR
!l!!llllllllll!l!ll!lllllllllllllll!ll
lllllllll!ll!llllllll!llllllll!lllllli11
Bjarni Hannesson:
i£Minnisvarðinn!?íf
Prófkjörsmál hafa komið allmik-
ið við sögu nú undanfarið og er það
ekki að ástæðulausu vegna afar
sérkennilegra aðferða við að semja
reglur um þau og ekki síst vegna,
að mínu mati, mjög alvarlegrar
misnotkunar á þessari þörfu og
lýðræðislegu hugmynd og er það
að fenginni reynslu jafnvel látið í
ljós af ýmsum aðilum í stjórnmál-
um að hætta beri algerlega við
prófkjör.
Prófkjör hafa gefist misvel og
jafnvel afleitlega vegna þess að
reglur um þau hafa stundum verið
afar vanhugsaðar og jafnvel
„heimskulegar" hjá sumum aðilum
sem hafa látið framkvæma þau, og
aðalgalli að mínu mati er að reynt
hefur verið að „opna“ leiðir fyrir
óflokksbundið fólk og það valdið
: hálfgerðum „pólitískum mafíu-
vinnubrögðum" og þau hafa skotið
vafasömum „guðfeðrum" upp í
efstu sæti á listum nú nýverið.
Ég hef verið að vinna að hug-
myndum um skynsamleg vinnu-
brögð við samningu reglna um
prófkjör, er hefðu sem megin-
markmið að hlynna að betra hlut-
skipti og hlutdeild kvenna í stjórn-
málum, ásamt „skynsamlegum
lýðræðisreglum" og hindra jafn-
framt sem mest líkur á að hægt sé
að beita hverskyns pólitískum
„mafíuvinnubrögðum" við fram-
kvæmd þeirra. Tel ég rétt að setja
fram þessa hugmyndir að próf-
kjörsreglum áður en lengra er
haldið.
Meginreglur
Framkvæmdastjórn flokks
„flokksráð" kjördæmisráð og/eða
almennur fundur flokksmanna,
skal eigi síðar en 6 mánuðum fyrir
áætlaðar kosningar láta kjósa
minnst 7 manna Uppstillingar-
nefnd, láti framkvæmdastjórnin
flokksráðið eða kjördæmisráðið
einhverra hluta vegna þessa fram-
kvæmd farast fyrir getur , skal
almennur fundur flokksmanna
kjósa Uppstillingarnefnd. Megin-
reglur um framkvæmd skulu vera
þessar.
1. Uppstillingarnefnd skal innan
mánaðar vera búin að ganga
frá flokksfélagaskrá sem al-
mennir flokksmenn hafa að-
gang að til athugunar.
2. Uppstillingarnefnd skal síðan
vera búin innan sama mánaðar
að stilla upp lista með minnst
5 mönnum og 5 konum sem
frambjóðendum til prófkjörs.
3. Uppstillingarnefnd geturvalið
um að raða í sæti eða vera
með óraðaðan lista sem þá
raðast á í sæti eftir úrslitum í
prófkjöri.
4. Enginn sem ekki hefur greitt
flokksgjald og er skuld-
ug>ur vegna fastra flokksgjalda
frá fyrri árum svo og nýskráðir
mega greiða atkvæði í próf-
kjöri nema að vera búnir að
greiða þau gjöld mánuði fyrir
boðað prófkjör, nýskráðir
skulu greiða minnst 1. árgjald
fyrirfram.
5. Uppstillingarnefnd skal jafn-
framt á þessum eina til tveim-
ur mánuðum vera búin að
ganga frá inntöku nýrra
flokksfélaga skrá þá ásamt
öðrum fyrri félögum og skal
sú endaniega kjörskrá gilda til
prófkjörs.
6. Flokksbundnir félagar skulu
síðan hafa aðgang að endan-
lega gildri kjörskrá og hafa
síðan 14 daga frest til að
ákveða hvort þeir vilja til-
nefna aðra aðila innan flokks-
ins en tilnefndir hafa verið af
Uppstillingarnefnd og ef þeir
safna undirskriftum minnst
5% flokksfélaga um stuðning
við aðra aðila, en Uppstill-
ingarnefnd hefur ákveðið,
eiga þeir fulltrúar rétt á að
taka þátt í prófkjöri sem fram-
bjóðendur á lista, en tilnefna
verður jafn marga aðila af
hvoru kyni fyrir sig.
7. Frambjóðendur samkvæmt
5% sérreglunni mega velja
hvort þeir bjóði sig fram í
ákveðin sæti eða ekki, en hafi
Uppstillingarnefnd sett fram
óraðað í sæti, en frambjóð-
endur samkvæmt 5% reglunni
velja að bjóða sig fram í
ákveðin sæti, þá eiga fram-
bjóðendur Uppstillingar-
nefndar rétt á, ef þeir vilja, að
bjóða sig fram í ákveðin sæti.
8. Ef almennir flokksfélagar nýta
ekki rétt til framboðs og Upp-
stillingarnefnd hefur valið að
setja fram lista þar sem raðað
er í sæti, þá er listinn sjálfkjör-
inn og prófkjör óþarft.
9. Hvert atkvæði skal vera ein-
ungis 1 eining við talningu í öll
sæti og aðrar merkingar og
talningarreglur skulu vera sem
einfaldastar, auðskiljanlegar
og rækilega kynntar minnst
einum mánuði fyrir prófkjör.
10. Trygging kynjajafnréttis í
kjörreglum fer fram á þann
veg að hvort kyn fyrir sig hefur
eigin töluröð frá einum að
þeirri tölu er við á, miðað við
fjölda kjördæmiskosinna
þingmanna og verður kjörseð-
ill ógildur ef ekki er merkt við
jafnmarga aðila af hvoru kyni
fyrir sig og þegar talið er, er
atkvæðum hvers kyns haldið
sér og sérraðað eftir kynjum.
10 l.(Meðfylgjandi skýringar-
dæmi no. 1 og 2 eiga að sýna
Hér verða sett upp 2 dæmi um hvemig úrslit í prófkjöri gætu orðið.ef eftir tillögu
yrði farið.miðað er við þingkosningar og 5 þingmanna kjördæmi og 500-700
manna þáttöku í prófkjöri.
Dæmi 1.
Tillaga Flokkstjórnar.Flokksráðs og / eða Uppstillingamefndar flokksins eftir að
gengið hefur verið frá gildandi flokksfélagaskrá sem allir fullgildir flokksfélagar
hafa aðgang að.
Einar Guðmundsson Ásgerður Sigurjónsdótlir
Jón Jónsson Halldóra Ásgeirsdóttir
Njáll Einarsson Hildur Halldórsdóttir
Páll Pálsson Sigrún Sigurðardóttir
Jón Einarsson Steinunn Jónsdóttir
Tilnefndir af flokksmönnum samkvæmt minnihlutarétti 5 % til 1% af
skráðum félögum samkvæmt gildri flokksfélaga- / prófkjörskrá.
Geir Amason
Halldór Ásgeirsson
Magnús Sigurjónsson
Ásrún Sigurðardóttir
Ásta Þorgeirsdóttir
Jónína Jónsdótlir
Atkvæði falla á eftirgreindan hátt.
Jón Einarsson 425 Steinunn Jónsdóltir 420
Jón Jónsson 410 Ásrún Sigurðardóttir 390
Geir Ámason 370 Sigrún Sigurðardóttir 369
Njáll Einarsson 365 Hildur Halldórsdóttir 361
Einar Guðmundsson 351 Ásta Þorgeirsdóttir 337
Magnús Sigurjónsson 297 Ásgerður Sigurjónsdótlir 299
Halldór Ásgeirsson 258 Halldóra Ásgeirsdóttir 270
Páll Pálsson 231 Jónina Jónsdóttir 268
Endanleg röðun á lista.
l.SætiJónEinarsson 425
2.Sæti.Steinunn Jónsdóttir 420
3. Sæti.Jón Jónsson 410
4.Sæti.Ásrún Sigurðardóltir 390
5.Sæti.Gcir Ámason
ó.Sæti. Sigrún Sigurðardóttir 369
7.Sæti.NjáU Einarsson
8.Sæti.Hildur Halldórsdóttir 361
9.Sæti.Einar Guðmundsson 351
lO.Sæti.Ásta Þorgeirsdóttir 337
Dæmi 2.
Atkvæði falla á eftirgreindan hátt.
370
365
Jón Einarsson
Jón Jónsson
Geir Ámason
Njáll Einarsson
Einar Guðmundsson
Magnús Sigurjónsson
Halldór Ásgeirsson
Páll Pálsson
425 Steinunn Jónsdóttir
410 Ásrún Sigurðardóttir
370 Sigrún Sigurðardóttir
365 Hildur Halldórsdóttir
351 Ásta Þorgeirsdóttir
.297 Ásgerður Sigurjónsdóttir
258 Halldóra Ásgeirsdóttir
231 Jónina Jónsdóttir
Endanleg röðun á lista.
l.Sæli. Steinunn Jónsdóttir 450
2.Sæli.Jón Einarsson 425
3.Sæli.Ásrún Sigurðardóttir 430
4.Sæti Jón Jónsson 410
5.Sæti.Sigrún Sigurðardóttir 420
6.Sæti.Geir Ámason 370
7. S æti. Hildur Halldórsdóttir 361
8.Sæti.Njáll Einarsson 365
9.Sæti.Ásta Þorgeirsdóttir 337
10.SætLEinar Guðmundsson 351
450
430
420
361
337
299
270
268
hvernig þessi regla yrði í fram-
kvæmd en hún krcfst þess að
kjörseðill sé með tvöfaldri
nafnaröð með reitum fyrir
númer.)
11. Prófkjör fari síðan fram alls
eigi síðar en þrem mánuðum
fyrir hinn opinbera kjördag
hinna almennu kosninga.
Heimilt er þó að víkja frá
tímasetningum ef kosningar
verða óvænt vegna þingrofs
eða annarra ófyrirsjáanlegra
atvika.
12. Reglur um endanlega röðun á
lista skal vera sú að sá aðili
karl eða kona er fær flest
atkvæði í fyrsta sæti fær efsta
sæti lista en í næsta sæti verði
aðili af gagnstæðu kyni er fékk
flest atkvæði þess kyns í fyrsta
sæti og þannig verði raðað í öll
sæti listans.
12 1. (Athugið dæmi 1 og 2 til
skýringar.)
13. Séu tveir aðilar efstir eða fleiri
með jafnmörg atkvæði skal
varpa hlutkesti um efsta sæti,
fyrst milli samkynja aðila og
síðan milli kynja. Heimilt er
þó að víkja frá þessu ef fullt
samkomulag er fyrir því af
hálfu efstu aðila.
Ég tel óþarfa að rökstyðja þessa
hugmynd hér nánar vegna þess að
tími prófkjöra á þessum vetri er
liðinn og reynslan af þeim mörgum
vond en til þess er ill reynsla að
læra af henni og skapa eitthvað
nýtilegt, og að öðrum hugmyndum
lítt löstuðum, þá tel ég þessa hafa
algerða yfirburði, þær tryggja
nauðsynlegan flokksaga, tryggja
minnihlutarétt allvel, bæta réttar-
lega stöðu kvenna í stjórnmálum
og síðast en ekki síst, eru reglur
no.l no. 4 og no. 5 verulegar
hindranir fyrir pólitíska „huldu-
heri“ til að skjóta inn efsta manni
í einu kjördæmi hjá tveim til þrem
flokkum samtímis, svo sem reynsl-
an í vetur „sannaði" þó að endan-
lega sé ekki frá listum gengið og
vona ég að til þess kjörnir aðilar
verði menn til að henda því póli-
tíska rusli úr efstu sætum hið fyrsta.
Niðurstaða
Ég lenti í því í mínu kjördæmi
að vinna að því að ógilda heimsku-
legt prófkjör og er ekki enn séð
fyrir endann á því máli eða hvort
það næst fram, en þar var mjög
heimskulega staðið að því að raða
í 3. og 4. sæti á listann.
Þar átti og á mjög efnilegur
kvenmaður í raun allan siðferðis-
legan og stjórnmálalegan rétt á að
fá 3. sæti en með pólitískum bola-
brögðum var karlmaður settur í
það sæti en konan í 4. þá og ef hún
þiggur það, en endanlega er ekki
búið að samþykkja neitt af réttum
aðilum þ.e. kjördæmisráðinu.
Til þess að reyna að setja þetta
mál ekki opinberlega í hart þá
talaði ég við karlmanninn sem
„taldi sig kjörinn í 3. sætið“ og fór
fram á það við hann að hann „gæfi
eftir þriðja sæti“ sem hann komst í
með afar vafasömum hætti og færi
í 4. sæti, það sæti sem hann á með
réttu, sé og ef eitthvað hafi verið
„rétt“ staðið að einhverju í þessu
prófkjöri.
Þessi aðili tók þannig undir
málaleitan mína að ef og þegar
þarf að reisa minnisvarða um
„dauðan Framsóknarflokk," þá
mun ég gera það að tillögu minni,
að tekin verði afsteypa af þessum
manni og hún sett á stall sem
pólitískt „nátttröll“ því slík voru
viðbrögð þessa manns, að verði
þau víðtækari, mun flokkurinn
vera verr en „dauður“, enn er tími
hinnar endanlegu ákvörðunar um
prófkjörsmál, þarog annarsstaðar
ekki upp runninn, en fróðl'egt er að
vita hvort framsóknarmenn munu
veðja á lífið eða dauðann á lands-
vísu, ég mun sjá fyrir „skolla
þessum" nú eða síðar og þó fleiri
verði, en tímafrekt og langætt mun
það „stríð“ verða ef „ruslinu" sem
flaut sumarstaðar upp hjá Fram-
sókn verður ekki fleygt áður en
endanlega verður raðað á listana.
Með takmörkuðum nýársheilla-
óskum til framsóknarmanna.
Ritað 7.11987
Bjarni Hannesson
framkvæmdastjóri
Rannsóknarstofnunar Gefjunar