Tíminn - 09.01.1987, Síða 16
Borgnesingar!
Fundur verður haldinn í Snorrabúð sunnudaginn
11. nóv nk. kl. 16.00.
Fundarefni: Málefni Borgarneshrepps, önnurmál.
Framsóknarfélag Borgarness
Hveragerði og nágrenni
Jón Helgason ráðherra, Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður og
Guðni Ágústsson verða til viðtals og ræða þjóðmálin í verkalýðssaln-
um Austurmörk 2, Hveragerði mánudaginn 12. janúar kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Selfoss og nágrenni
Jón Helgason ráðherra, Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður og
Guðni Ágústsson verða til viðtals og ræða þjóðmálin í Inghól Selfossi
þriðjudaginn 13. janúar kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Vestfirðingar
Aukakjördæmisþing framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið
á Hótel ísafirði föstudaginn 16. janúar n.k. kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Uppstilling á framboðslista flokksins fyrir næstu alþingiskosningar.
2. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Ólafur Þ. Þórðar-
son alþingismaður ræða stjórnmálaviðhorfin.
3. Önnur mál.
Formenn félaganna eru hvattir til að kjósa fulltrúa á þingið sem
fyrst.
Stjórn kjördæmasambandsins.
16 Tíminn -
DAGBÓK
RFÖ-RI AFIIRi
'élagsrlt Bindindlsfélags okuman
BFÖ-blaðið
Félagsrit Bindindisfélags ökumanna
Brynjar Valdimarsson, forseti Bindind-
isféiags ökumanna og framkvæmdastjóri
Templarahallar Reykjavíkur skrifar:
Varúð í vetrarumferð. Sr. Karl Sigur-
björnsson, sóknarprestur í Hallgríms-
sókn í Reykjavík skrifar jólahugvekju:
Glaðst á jólum, og á forsíðu blaðsins er
mynd af Hallgrímskirkju. Sagt er frá
ráðstefnu tryggingafélaganna um umferð-
armál, sagt frá fatasöfnun Ingþórs Sigur-
björnssonar málarameista, sem sendir
pólskum börnum fatnað. Ýmsar fréttir
eru um félagsstarfið o.fl.
SKINFAXI
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.... 91-31815/686915
AKUREYRI:...... 96-21715/23515
BORGARNES:............ 93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969
SIGLUFJÓRÐUR:........ 96-71489
HÚSAVÍK:....... 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ......... 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: ... 97-3145/3121
i FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ........ 97-8303
interRent
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Sefning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIDJAN
H F.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMl45000
Hestur tapaðist
í lok nóvember sl. tapaðist frá Kaldaðarnesi í Flóa
leirljós hestur, rúmlega í meðallagi á vöxt, fín-
byggður. Lítt eða ekki markaður. Þeir sem hafa
orðið hestsins varir vinsamlega hafi samband við
Pál Lýðsson, hreppstjóra í Litlu-Sandvík, sími
99-1040 eða Atla Frey í síma 91-12334.
5. tbl. 77. árg. er nýkomið út. Skinfaxi
er gefinn út af Ungmennafélagi Islands.
Fyrsta greinin í blaðinu er: íslenskar
getraunir flytja í eigið húsnæði og fylgja
margar myndir. Þá er Skák-þáttur. „Þá
fór allt í steik“ heitir spjall við Leif
Harðarson blakmann. Mikil gróska hjá
GLÍ - Fréttir frá starfi Glímusambands
íslands. Grein er um Karate II - Kihon
eftir Stefán Alfreðsson. Þá er Vísnaþáttur
Skinfaxa. Kynnt er Lottó 5/32, Þorsteinn
Einarsson skrifar: Hugleiðing um fugla
fyrir göngufólk og fylgja margar myndir.
Ennfremur eru margar félagsfréttir og
íþróttafréttir í blaðinu, og þar eru einnig
Landsmótsfréttir og sagt frá 25. Sam-
bandsráðsfundi Ungmennafélags íslands.
Ritstjóri er Guðmundur Gíslason.
SKINFAXI
6. tbl. 77. árgangur
Þetta er jólablað Skinfaxa. 1 því er m.a.
viðtal við Hallmar Frey Bjarnason, for-
mann íþrf. Völsungs á Húsavík: „Þá
ÁSKRIFTASÍMI 68 63 00
VERTU I TAKT VIÐ
hoppaði ég hæð mtna í loft upp“. Viðtalið
1 tók Guðmundur Gíslason ritstjóri Skin-
faxa. Þá er Skákþáttur eftir Jón L.
Ámason: Arabísk ólympíuskák. Einnig
! er Brids-þáttur eftir Guðmund Pál Araar-
' son. Sagt er frá úrslitum í Unglingasundi
HSK á Selfossi og Kristján Kristjánsson
sér um Poppfaxa. Sagt er frá íslenskum
! getraunum og Lottó 5/32, Vinsældarvali
Poppfaxa og plötulisti er birtur í blaðinu.
Sveitaglíma Islands 1986 var haldin að
Skjólbrekku í Mývatnssveit og eru birt
úrslit og myndir í blaðinu. Einnig er sagt
fráglímuþjálfaranámskeiði.
Utgefandi er Ungmennafélag íslands. 1
Kirkjuritið
Desemberhefti 52. árg. Kirkjuritsins
hefur sem aðalefni umfjöllun um fjöl-
miðlasiðfræði.
Halldór Reynisson, sóknarprestur og rit-
stjóri blaðsins skrifar forustugrein: Ytt úr
vör og undirfyrirsögn er Fjölmiðlar og
siðfræðin. Þórir Oddsson skrifar grein:
Fjölmiðlasiðfræði og Halldór Reynisson:
Fjölmiðlafár og fjölmiðlasiðfræði. Lúð-
vík Geirsson blaðamaður skrifar: Þrýst-
ingur og þrýstihópar. Ómar Valdimars-
son, form. Blaðam.fél. íslands skrifar
grein - Af rannsóknarblaðamennsku, og
tekur m.a. fyrir myndbirtingar og fleira.
Birgir Guðmundsson, fréttastjóri á
Tímanum skrifar: Áhrif aukinnar sam-
keppni á blaðamennsku - með sérlegu
tilliti til siðfræði. Sr. Jón Bjarman, sjúkra-
húsprestur og áður fangaprestur, skrifar
grein sem nefnist:“Hann var fyrirlitinn og
menn forðuðust hann“. Sr. Bernharður
Guðmundsson, fréttafulltrúi þjóðkirkj-
unnar, skrifar: Veruleiki fjölmiðlanna og
sr. Gunnar Kristjánsson: Risarnir tveir í
guðfræði tuttugustu aldar: Karl Barth og
Paul Tillich.
Lárus H. Blöndal hefur þýtt Bæn eftir
J. Newton, sem birtist í þessu hefti ásamt
frumsömdu Ijóði hans eða sálmi, sem
nefnist Bænarstef. Marteinn Lúther og
páfadæmið er grein eftir sr. Magnús
Guðmundsson. Þá er helgisaga: Söngur
sveinsins unga og grein um Endurmennt-
un og námskeiðahald, bókafréttir o.fl. Á
forsíðu er mynd af fréttamönnum
Sjónvarps, Ólínu Þorvarðardóttur og
Helga H. Jónssyni.
Útgefandi er Prestafélag Islands.
BÓKAVARÐAN
-VAMl** tt A At'R »; WJA
VATNSSTlG 4 - REVKJAVlK - SlMI 29720
iSLAND
BÓKAVARÐAN
Bóksöluskrá
Bókavarðan, Vatnsstíg 4 í Reykjavík
gefur reglulega út bóksöluskrár með ný-
jungum sem eru á markaðnum í forn-
bókasölu. Nú er nýútkomin bókaskrá,
þar sem m.a. er vakin áthygli á eftir-
greindum bókum:
Annálar 1400-1800 1.-5. bindi, Annáll
19. aldar eftir sr. Pétur Guðmundsson,
tímaritið Birtingur 1.-14. árg. (komplet),
Brandsstaðaannáll tímaritið Gandur
(með Ástu Sigurðar og Jóhanni Péturs-
syni), íslcnzk orðtök eftir dr. Halldór
Halldórsson, tslensk miðaldakvæði útg.
Jóns Helgasonar, Konungsskuggsjá (útg.
Finns Jónsson.), Minjar og menntir,
rit til dr. Kristjáns Eldjárns, íslenskar
gátur, þulur og skemmtanir eftir Ólaf.
Davíðsson og Jón Árnason I-IV bindi,
komplet frumútg. með kápum, Rauðir
pennar 1.-4. bindi, Rímnasafn, útg. Finn-1
ur Jónsson, Hrynjandi íslenzkrar tungu,
eftir Sig Kr. Pétursson, Willard Fiske,
Life and Correspondence eftir Hooratio
White, fágætt verk, Lestrarbók Ögmund-
ar Sívertsen, Kh. 1833, einstakt fágæti,
Die Stellung der freien Arbeiter in Island,
doktorsrit Þorkels Jóhannessonar, f lofti,
bók dr. Alexanders um íslensk flugmál,
blaðið ísland með vasabók Eysteins Jóns-
sonar (blaðið, sem lögregluyfirvöld gerðu
upptækt), Almanak Olafs Thorgeirssonar
1898-1954, frumútgáfan í fínu skinnb-
andi, Dropar 1-2, tímarit kvenna, Tíma-
ritið Dvöl.Iðnsaga fslands 1.-2. bindi,
tímaritið Heima er bezt, gamla Iðunn og
nýja Iðunn, Kulturhistorisk leksikon for
nordisk middelalder l.-ll. bindi, Laxa-
mýrarættin, Ættir Síðupresta, Skútu-
staðaættin, Dalamenn 1.-3. bindi og ýms-
ar fleiri ættarskrár, Sögur úr Keldudal,
eftir Gunnar Benediktsson, Heimsljós
eftir Laxness, frumútg. 1.-4. bindi, Mínir
vinir, hin fræga „Reykjavíkur“-skáldsaga
Þorláks Ó. Johnson, Pétur Gautur, þýð-
ing Einars Ben.
Föstudagur 9. janúar 1987
1927-60 ára-1987
Frá Ferðafélagi íslands:
, Sunnudag 11. janúar kl. 13.00 er
gönguferð umhverfis Elliðavatn, létt og
skemmtileg ganga við allra hæfi.
Einnig er kl. 13.00 sama dag - skíða-
gönguferð frá Lækjarbotnum. Brottför
frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Farmiðar við bíl (350 kr.) Frítt fyrir börn
í fylgd fullorðinna.
Ath.: Munið eftir fyrsta myndakvöldi
ársins miðvikudaginn 14. janúar.
Ferðafélag fslands
Útivistarferðir:
Nýjársferð að Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd
Sunnudagsferð: Sunnudag 11. janúar.
kl. 10.30 verður ekið í Hvalfjörðinn og
farið í stutta gönguferð og síðan hlýtt á
helgistund hjá séra Jóni Einarssyni sókn-
arpresti og fræðst um séra Hallgrím
Pétursson. Brottför frá BSl bensínsölu.
Farmiðar við bíi (650 kr.). Frítt er fyrir
börn með fullorðnum.
Myndakvöld - Myndir úr aðventu- og
áramótaferðum úr Þórsmörk, frá Ungl-
ingadeild og ferðamyndir frá Indlandi.
Tunglskinsganga og fjörubál verður
föstudag 16. jan. kl. 20.00. Þorraferð og
þorrablót Útivistar verður í Borgarfirði
helgina 23.-25. janúar. Pantið tímanlega.
Símar: 14606 og 12732.
Gallerí Svart á hvítu
við Óðinstorg:
Höggmyndasýning
Laugardaginn 10. janúarkl. 14.00verð-
ur opnuð í Gallerí Svart á hvítu sýning á
höggmyndum Jóns Sigurpálssonar. Sýn-
ingin er opin kl. 14.00-18.00 alla daga
nema mánudaga og stendur til 18. janúar.
Nýlistasafnið:
„Inferno 5“ skemmtir og dansar
Á morgun, laugardaginn 10. jan. kl.
20.00 frumflytur spænsk-íslenski dans- og
skemmtiflokkurinn „Inferno 5“ verkið
„Klumbudansinn í Hruna" í Nýlistasafn-
inu við Vatnsstíg 3b. Auk þess mun
spænski gítarleikarinn Conrado de Costa
leika.
Minningarkort Áskirkju
Minningarkort Safnaðarfélags
Áskirkju hafa eftirtaldir aðilar til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir. Austurbrún 37,
sími 681742, Ragna Jónsdóttir, Kambs-
vegi 17, sími 82775, Þjónustuíbúðir aldr-
aðra, Dalbraut 27, Helena Halldórsdótt-
ir, Norðurbrún 2, Guðrún Jónsdóttir,
Kleifarvegi 5, sími 681984, Holts apótek,
Langholtsvegi 84, Verslunin Kirkjuhúsið,
Klapparstíg 27.
Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman-
gengt, kostur á að hringja í Áskirkju,
síma 84035 á milli kl. 17.00 og 19.00 á
daginn og mun kirkjuvörður annast send-
ingu minningarkorta fyrir þá sem þess
óska.
Rafmagn, vatn, hitaveita
Ef bilar rafmagn, hitaveita eða vatnsveita ma
hringja í þessi símanúmer:
Rafmagn: I Reykjavík, Kópavogi og Seitjarn-
arnesi er sími 686230. Akureyri 24414, Keflavík
2039, Hafnarfjörður 51336, Vestmannaeyjar.
1321.
Hitaveita: Reykjavík sími 82400, Seltjarnarnes
sími 621180, Kópavogur 41580, en eftir kl. 18.00
og um helgar í síma 41575, Akureyri 23206,’
. Keflavík 1515, en eftir lokun 1552. Vestmann-
aeyjar sími 1088 og 1533, Hafnarfjörður 53445.
Sími: Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnárnesi, Ak-'
ureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í
símaOö !
Bilanavakt hjá borgarstofnunum (vatn, hita-
veita o.fl.) er í síma 27311 alla virka daga frá kl.
17.00 til kl. 08.00 og á helgum dögum er svaraðj
. allan sólarhringinn. Tekið er þar við tilkynningum
á veitukerfum borgarinnar og.í öðrum tilfellum,
þar sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð
borgarstofnana.
8. janúar 1987 kl. 09.15
Kaup Sala
Bandaríkjadollar.....40.170 40.290
Sterlingspund........58,921 59,097
Kanadadollar.........29,3010 29,388
Dönsk króna.......... 5,4784 5,4947
Norskkróna........... 5,4280 5,4442
Sænsk króna.......... 5,9104 5,9281
Finnsktmark.......... 8,3915 8,4165
Franskur franki...... 6,2318 6,2504
Belgískur franki BEC .. 0,9963 0,9993
Svissneskur franki...24,7124 24,7862
Hollensk gyllini.....18,3844 18,4394
Vestur-þýskt mark....20,7479 20,8099
ftölsk líra.......... 0,02946 0,02955
Austurrískur sch..... 2,9439 2,9527
Portúg. escudo....... 0,2738 0,2747
Spánskur peseti...... 0,3030 0,3039
Japansktyen.......... 0,25338 0,25414
írskt pund...........55,977 56,144
SDR (Sérstök dráttarr. „49,1236 49,2708
Evrópumynt...........42,9616 43,0902
Belgískur fr. fin.... 0,9820 0,9850