Tíminn - 09.01.1987, Page 19
Tíminn 19
Föstudagur 9. janúar 1987
llllllllllllllilllllllllllll HELGIN FRAMUNDAN llllllllllllllllllllllllllllll
Þjóðleikhúsið um helgina:
r
Aurasálin
Aurasálin
Gamanleikurinn Aurasálin eftir
skopsnillinginn Moliere var frum-
sýndur í Þjóðleikhúsinu á annan
dag jóla og hefur verið uppselt á
fyrstu fimm sýningarnar. Sveinn
Einarsson þýddi og leikstýrði
þessum 300 ára gamanleik.
Finnski listamaðurinn Paul Suom-
inin hannaði leikmynd og bún-
inga. Jón Þórarinsson samdi tón-
list við verkið og æfingastjóri tón-
listar var Agnes Löve. Ljósa-
hönnuður Ásmundur Karlsson,
sýningarstjóri Jóhanna Norðfjörð
og aðstoðarmaður leikstjóra Þór-
unn Magnea Magnúsdóttir.
Bessi Bjarnason leikur aurasál-
ina Harpagon en í öðrum hlutverk-
um eru: Pálmi Gestsson, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Jóhann
Sigurðarson, Guðlaug María
Bjarnadóttir, Gísli Alfreðsson, Sig-
ríður, Þorvaldsdóttir, Sigurður
Sigurjónsson, Randver Þorláks-
son, Þórunn Magnea Magnús-
dóttir, Jón Símon Gunnarsson,
Emil Gunnar Guðmundsson, Flosi
Ólafsson, Júlíus Hjörleifsson og
Hákon Waage.
Aurasálin verður sýnd á stóra
sviði Þjóðleikhússins í kvöld
-1 smásjá
(föstudag) og á sunnudagskvöld
kl. 20.00.
Á laugardagskvöld verður
aukasýning á gamanleiknum
Aurasálin eftir Moliere kl. 20.00,
en þá hafði verið ráðgert að sýna
Uppreisn á í safirði, en þeirri sýn-
ingu varð að aflýsa vegna veik-
inda.
í smásjá
Nýtt leikrit var frumsýnt í árslok
á Litla sviðinu, nýju leiksviði
Þjóðleikhússins, sem er til húsa að
Lindargötu 7 bakvið Þjóðleikhús-
ið. Það var í smásjá eftir Þórunni
Sigurðardóttur í leikstjórn Þór-
hafls Sigurðssonar. Gerla hannaði
leikmynd og búninga. Leikritið
fjallar um líf og dauða og margt
þar á milli. Sögupersónurnar eru
tvenn hjón, þar af þrír starfandi
læknar. Einn þeirra fær alþjóðlega
viðurkenningu í upphafi leiks, en
þegar óvænt örlög breyta lífi
þeirra, þurfa þau að endurmeta
bæði líf sitt og starf. Arnar
Jónsson, Anna Kristín Arngríms-
dóttir, Sigurður Skúlason og
Ragnheiður Steindórsdóttir fara
með hlutverkin. Sýningar verða í
kvöld (föstudag) og sunnudag kl.
20.30.
Frederick
Marvin heldur
fyrirlestur
og tónleika
Próf. Frederick Marvin frá
Syracuse-háskólanum í
Bandaríkjunum, sem heldur
fyrirlestra-tónleika í sal Tón-
listarskólans í Reykjavík laug-
ardaginn 10. janúar kl. 10.30
um tónskáldið Jan Ladislav
Dussek og sunnudaginn 11.
janúar kl. 17.00 um Padre
Antonio Soler, mun halda op-
inbera tónleika að Kjarvals-
stöðum mánudaginn 12.
janúar kl. 20.30.
Samhliða glæsilegum ferli
sem píanóleikari hefur próf.
Marvin einnig lagt stund á
fræðistörf og eru rannsóknir
hans á hinu lítt þekkta,
spænska tónskáldi, Padre Ant
onio Soler, þekktar meðal tón-
listarfólks. Hefur hann gefið út
fjölmörg verk þessa athygl-
isverða tónskálds. Þá er hann
og þekktur fyrir kynningu sína
á lítið þekktum píanóverkum
Dusseks.
Fyrirlestra-tónleikar hans í
Tónlistarskólanum í Reykjavík
eru opnir öllurn píanókennur-
rm, píanónemendum og öðrum
ahugamönnum.
Guðný
Guðmundsdóttir
og Philip
Jenkins
Á morgun, laugardag 10. janúar
halda þau Guðný Guðmundsdótt-
ir konsertmeistari og Philip Jenk-
ins píanóleikari tónleika á vegum
Tónlistarfélagsins í Austurbæjar-
bíói kl. 14.30. Þetta eru síðustu
tónleikarnir á fyrri hluta starfs-
vetrar.
Báðir þessir listamenn eru
löngu landsþekktir, Guðný fyrir
starf sitt sem konsertmeistari,
einleikari og kennari og Philip fyrir
starf sitt hér á meðan hann bjó á
Akureyri, og hann hefur haldið
tengslum við landið og íslenska
tónlistarmenn æ síðan hann flutt-
ist aftur burt.
Á efnisskránni á laugardag eru
sónötur eftir Beethoven, Jón
Nordal, Brahms og Edward Elgar.
Leikfélag Reykjavíkur um helgina:
Dagur vonar eftir
Birgi Sigurðsson
- frumsýning á sunnudag
Á föstudagskvöld verður sýning á leikritinu Vegurinn til Mekka kl.
20.30 í Iðnó, og Land míns föður er sýnt á laugardagskvöldið á venju-
legum tíma, 20.30.
Sunnudaginn 11. janúar er Leikfélag Reykjavíkur 90 ára. Þá um kvöld-
ið er frumsýnt leikrit Birgis Sigurðssonar „Dagur vonar“. Leikarar eru:
Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigurður Karlsson, Valdimar Örn Flygen-
ring, Þröstur Leó Gunnarsson, Sigríður Hagalín og Guðrún S. Gísladóttir.
Leikstjóri er Stefán Baldursson.
Gallerí Svart á hvítu við Óðinstorg:
Höggmyndasýning
Ámorgun, laugardag 10. janúar
kl. 14.00 verður opnuð sýning á
höggmyndum Jóns Sigurpálsson-
arí „GalleríSvart áhvítu" við Óð-
instorg.
Jón er fæddur árið 1954. Hann
nam við Myndlistarskólann i
Reykjavík 1974-'78 og í Hollandi
frá 1978-'84. Jón Sigurpálsson er
nú búsettur á ísafirði þar sem
hann er safnvörður og er í forsvari
fyrir Slunkaríki, galleríi ísfirðinga.
Verkin á þessari sýningu voru
sýnd í Gallerí Magstræde í Kaup-
mannahöfn s.l. haust.
Sýningin eropinkl. 14.00-18.00
alla daga nema mánudaga og
stendur til 18. janúar.
Skemmtifundur
Félags
harmonikuunnenda
Nú eru skemmtifundir Félags harmonikuunnenda að hefjast á ný.
Þeir verða í Templarahöllinni við Skólavörðuholt kl. 15.00-18.00 á
sunnudögum. Fyrsti fundurinn eftir áramótin verður nú sunnudag
inn 11. jan. Þar verður fjölbreytt dagskrá, góðar veitingar og dansað
í lokin. Skemmtinefndin hvetur til að félagar mæti vel og stundvís-
lega, og allir eru ávallt velkomnir. Góð skemmtun fyrir alla fjölskyld-
una.
Skemmtinefndin.
Ljósmyndasýning
á Mokka
Rétt fyrir jól opnuðu myndlistarmennirnir Magnús S. Guðmunds-
son og Tryggvi Þórhallsson litljósmyndasýningu á Mokka við Skóla-
vörðustíg.
Á sýningunni eru 178 myndir unnar með blandaðri ljósmynda-
tækni, og eru þær allar til sölu. Sýningin stendur til 15. janúar.
Föstudagur
9. janúar
6.45 Veöurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin - Jón Baldvin Halldórsson,
Sturla Sigurjónsson og Guðmundur Benedikts-
son. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
7.20 Daglegt mál Erlingur Sigurðarson flytur
þáttinn. (Frá Akureyri)
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna: „Hanna Dóra“
eftir Stefán Jónsson. Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir les (5).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
9.35 Lesið úr forustugreinum dagblaðanna.
Tónleikar.
10.00 Frettir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Sögusteinn. Umsjón: Haraldur Ingi Haralds-
son. (Frá Akureyri).
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur Umsjón: Sigurður Einarsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Menningarvitarnir“ eftir
Fitz Leiter Þorsteinn Antonsson les þýðingu
sína (6).
14.30 Nýtt undir nálinni Elín Kristinsdóttir kynnir
lög af nýjum hljómplötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Landpósturinn Lesið úr forustugreinum
landsmálablaða.
16.00 Fróttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Stjórnendur: Kristín Helg-
adóttir og Vemharður Linnet.
17.00 Fréttir.
17.03 Sfðdegistónleikar „LaCarillon“, balletttónl-
isteftir Jules Messenet. „Nationar-fílharmóníu-
sveitin leikur; Richard Bonynge stjómar.
17.40 Torgið - Menningarmál. Umsjón: Oðinn
Jónsson.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Erlingur Sigurðarson flytur. (Frá Akureyri)
Tónleikar.
20.00 Lög unga fólksins. Björn Valtýsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka. a. Ljóðarabb. Sveinn Skorrí
Höskuldsson flytur. b. Úr Mímisbrunni. Þáttur
íslenskunema við Háskóla íslands: Rithöf-
undurinn Kristín Sigfúsdóttir. Umsjón: Ragnhild-
ur Richter. Lesari: Soffía Auður Birgisdóttir. c.
Annáll ársins 1986. Sigurður Kristinsson tekur
saman þátt úr dagbókum Sæbjarnar Egilssonar
á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal.
21.30 Sígild dægurlög.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Vísnakvöld. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
sór um þáttinn.
23.00 Andvaka Þáttur í umsjá Pálma Matthíasson-
ar. (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
00.10 Næturstund í dúr og moll með Knúti R.
Magnússyni.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á RÁS 2 tii kl.03.00.
ras
Föstudagur
9. janúar
9.00 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur og Kristjáns Sigurjónssonar. Meðal efnis:
Spjall við hlustendur á landsbyggðinni, vinsæld-
alistagetraun og fleira.
12.00 Hádegisútvaip með fréttum og léttri tónlist
í umsjón Gunnlaugs Sigfússonar.
13.00 Bót í mátl Mergrót Blöndal les bróf frá
hlustendum og kynnir óskalög þeirra.
15.00 Sprettur Þorsteinn G. Gunnarsson kynnir
tónlist úr ýmsum áttum og kannar hvað er á
seyði um helgina.
17.00 Fjör á öðrum degi jóla með Bjarna Degi
Jónssyni og Emu Arnardóttur.
18.00 Hlé.
20.00 Tekið á rás Ingólfur Hannesson og Samúel
örn Erlingsson lýsa fyrri leik Víkings og pólska
liðsins Gdansk í Evrópukeppni meistaraliða í
handknattleik í Laugardalshöll.
22.00 Kvöldvaktin Andrea Jónsdóttir.
23.00 Á næturvakt með Vigni Sveinssyni og
Þorgeiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskrárlok
Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00,
12.20,15.00,16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar
17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og
nágrenni -FM 90,1.
18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni -FM 96,5.
Föstudagsrabb Inga Eydal rabbar við hlust-
endur og les kveðjur frá þeim, leikur létta tónlist
og greinir frá helstu viðburðum helgarinnar.
Föstudagur
9. janúar
18.00 Litlu Prúðuleikararnir (Muppet Babies) 24.
þáttur. Teiknimyndaflokkur eftir Jim Henson.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
18.25 Stundin okkar. Endursýndur þáttur frá 4.
janúar.
18.55 Skjáauglýsingar og dagskrá
19.00 Á döfinni.
19.10 í deiglunni. Stutt mynd um Helga Gíslason
myndhöggvara og list hans. Helgi hlaut nýlega
verðlaun fyrir tillögu sína að listaverki við nýja
Útvarpshúsið við Efstaleiti.
19.30 Spítalalíf (M*A*S*H) Fjórtándi þáttur. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar
20.35 íþróttir.
21.10 Rokkarnir geta ekki þagnað - Annáll
ársins 1986. Stjórn upptöku: Ðjörn Emilsson.
2l.50Sá gamli (Der Alte) 29. Þýskur
sakamálamyndaflokkur. Aðalhlutverk Siegfried
Lowitz. Þýðandi Þórhallur Eyþórsson.
22.50 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Um-
sjónarmaður Helgi E. Helgasson.
23.25 Seinni fréttir
23.30 Paradine-málið. (The Paradine Case)
Bandarísk bíómynd frá árinu 1948. Leikstjóri
Alfred Hitchcock. Aðalhlutverk Gregory Peck,
Ann Todd og Charles Laughton. Sakborningur
í morðmáli er ung kona sem verjandinn i málinu
verður ástfanginn af. Honum er því venju fremur
mikið í mun að fá skjólstæöing sinn sýknaðan
af ákærunni. Þýðandi Stefán Jökulsson.
00.35 Dagskrárlok._
STÖD TVÖ
iStENSKA SjOnvaRPSFEláGiO
Föstudagur
9. janúar
17.00 Myndrokk. Bandaríski vinsældarlistinn.
Stjórnandi er Simon Potter.__________________
18.00 Teiknimynd. Gúmmíbirnirnir (Gummi
Bears).
18.30 Einfarinn. (Travelling Man). Á leiðinni að
húsbát sínum sem er bundinn nálægt bóndabæ
í Cheshire, þá rekst Lomax á menn sem eru að
.flytja nautgripi niður ána. En áður en hann
kemst að því hvað þeir eru raunverulega að
gera er hann sleginn í rot.
19.30 Fréttir.
19.55 Um víða veröld. Fréttaskýringaþáttur í um-
sjón Þóris Guömundssonar.____________________
20.15 Einstök vinátta. (Special Friendship). Ný
bandarísk sjónvarpskvikmynd með Tracy Boll-
an og Akosua Busia í aðalhlutverkum. Mynd,
byggð á sannsögulegum atburðum sem gerist i
borgarastyjöldinni í Bandaríkjunum.
<í2.10 Þrumufuglinn II. (Airwolf II). Bandarísk
kvikmynd með Jan Michael Vincent, Ernest
Borgnine og Alex Cord í aðahlutverkum. Hawk
er sendur til Zimbabve á Þrumufuglinum. Þar
hittir hann fyrrum yfirmann bróður síns, sem
týndist í Vietnam-stríðinu. Sovéskir njósnarar
beita síðan öllum brögðum til þess að ná
Þrumufuglinum.
23.45 Benny Hill. Breskur gamanþáttur sem farið
hefur sigurför um allan heim.
00.10 Stjörnuvíg III. (Star Trek III). Bandarísk
kvikmynd með William Shatner og Deforest
Kelley í aðalhlutverkum. Myndin gerist á 23.
öldinni. Plánetan Gepesis hefur orðið til en hún
kostaði mikið, líf kafteins Spock. Saavik liðsfor-
ingi og Davis læknir fara í rannsóknarleiðangur
og komast að því að plánetan hefur þróast á
mjög óvenjulegan og ófyrirsjáanlegan hátt. En
það eru fleiri sem hafa áhuga á Genesis og
meðal þeirra er orrustuforinginn Kruge, sem er
valdagráðugur og svífst einskis til þess að ná
henni á sitt vald. Leikstjóri er Leonard Nimox.
01.50 Myndrokk. Gestir, viðtöl, tíska, tónlist og
fleira. Stjórnandi er Amanda.
04.00 Dagskrárlok.
Föstudagur
9. janúar
7.00- 9.00 Á fætur mei SigurSi G. Tómassyni.
Fréttir kl. 7.00,8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum.
Fréttir kl. 10.00,11.00 og 12.00.
12.00-14.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu
Harðardóttur. Fréttapakklnn. Flóamarkaður-
inn er á dagskrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00-16.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd.
Fréttir kl. 15.00,16.00 og 17.00.
17.00-19.00 Hallgrlmur Thorsteinsson I Reykja-
vik síðdegls.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-20.00 Þorstelnn J. VHhjálmsson.
22.00-03.OOJón Aael Ólafsson.
03.00-08.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Harald-
ur Glslason leikur tónlist.