Tíminn - 10.02.1987, Page 7

Tíminn - 10.02.1987, Page 7
Þriðjudagur 10. febrúar 1987 Tíminn 7 Framkvæmanlegasta leiðin Mér finnst ekki úr vegi, eins og málum nú er komið að rifja upp efni greinar, sem ég birti í Tíman- um 1. ágúst síðastliðinn. Þar sagði á þessa leið: „Það er ljóst, að Hafskipsmálið hefur komið Útvegsbankanum í mikinn vanda. Eins og er, þá er bankinn ekki fær um að gegna því mikilvæga hlutverki í þágu at- vinnuvega landsins, sem hefurhvíit á honum um langt skeið. Ef bank- inn verður að hætta starfsemi sinni veldur það mörgum mikilvægum atvinnufyrirtækjum miklum vanda, jafnvel óleysanlegum. Þess vegna verður annað hvort að gerast: Endurreisa bankann eða finna annan aðila eða aðra aðila til að taka við hlutverki hans. Ein hugmyndin er sú, að ríkið takið að sér að greiða skuldir Útvegsbankans að miklu leyti, en síðan verði hann sameinaður Verzlunarbankanum og Iðnaðar- bankanum og stofnaður einn öflug- skylt að þjóna því hlutverki, sem hvílt hefur á Útvegsbankanum, heldur fremur ýmsum brasksjónar- miðum. Það ber einnig að minnast þeirrar reynslu, að eini bankinn, sem hér hefur farið á hausinn, var einkabanki. Önnur hugmynd er sú, að Út- vegsbankinn verði sameinaður Búnaðarbankanum, sem nú er traustur banki. Fjarri ferþóþví, að Búnaðarbankinn sé fær um að taka að sér alla þá jrjónustu við atvinnu- lífið, sem Útvegsbankinn hefur því kapphlaupi gæti lyktað. Það gæti því orðið hlutskipti hins nýja banka að fara sömu leið og Útvegs- bankinn. Báðar þær leiðir sem hér eru nefndar hafa augljósa ókosti og hættur í för með sér. Ýmsar aðrar leiðir koma til at- hugunar, en hafa vart verið kann- aðar enn sem skyldi. Ein er sú, að fara svipaða leið og þegar íslands- bankinn var endurreistur og styrkja Útvegsbankann til að halda áfram starfsemi sinni. Það gafst lífga Útvegsbankann. Vitanlega má ekki ganga fram hjá því, að uppi hafa verið háværar kröfur um sameiningu banka. Sam- eining Búnaðarbanka og Útvegs- banka væri ekki fjarlægur draumur undir þeim kringumstæðum, að Útvegsbankinn væri búinn að rétta sig við aftur. Eðlilegust væri þó sameining einkabankanna, t.d. Verzlunarbanka og Iðnaðarbanka og Samvinnubanka og Alþýðu- banka. En þetta þarf að eiga sína eðlilegu þróun. Þess verður líka heyri undir Alþingi líkt og ríkis- endurskoðun, cn allir flokkar hafa nú fallist á tillögur Halldórs Ás- grímssonar í þeim efnum. Alþingi á ckki aðeins að annast lagasetn- ingu, heldur á það líkt og banda- ríska þingið að fylgjast ekki síður með framkvæmd laganna, því að annars geta þau orðið dauður bók- stafur. Bankarnir eru svo valda- miklar stofnanir og þó einkum Seðlabankinn, að það er ekki minni þörf á því að þingið fylgist nteð þeim en ríkinu. vel að gæta, að mörgum myndi þykja þröng fyrir dyrum, ef ekki væri hægt að leita til nema tveggja banka." Við þetta má bæta því, að eftir að Útvegsbankinn er orðinn hluta- félagsbanki, er sameining hans og Búnaðarbankans fjarlægari en áður. Hins vegar gæti komið til greina að sameina Landsbankann og Búnaðarbankann og aðcins verði þvf einn sterkur ríkisbanki, en einkabankarnir komi svo til viðbótar. Þetta er hins vegar mál, sem ekki verður leyst í fljótræði á skömmum tíma. Bankaeftirlitið Við þessar hugleiðingar þykir rétt að bæta nokkruni orðum unt bankaeftirlitið, en nokkuð hefur verið rætt um það að undanförnu og þó ekki rninnst það undir hvaða aðila það eigi að heyra, en nú heyrir það undir Seðlabankann. Það er vitanlega meðöllu óeðlilegt, að það heyri undir einn af bönkun- um. í Seðlabankanum hafa safnast saman svo mikil völd, að með öllu er óafsakanlegt að hafa hann ekki undir eftirliti eins og hina bankana. Mér virðist eðlilegt að bankaeftir- litið verði sjálfstæð stofnun, sent Þórarinn Þórarinsson: Bankaeftirlitið á að heyra undir Alþingi líkt og ríkisendurskoðun Seðlabankinn þarfnast ekki síður eftirlits en viðskiptabankarnir Stjórnarflokkarnir hafa náð sam- komulagi um þá bráðabirgðalausn Útvegsbankamálsins, sem er fram- kvæmanlegust undir ríkjandi kringumstæðum. Þessi leið er gagnrýnd af sumum vegna þess, að henni fylgja mikil framlög af hálfu ríkisins. Þess er þá ekki gætt, að aðrar leiðir, sem helst hefur verið rætt um, hefðu ekki reynst ríkinu hagkvæmari eða a.m.k. hafa ekki verið færð haldbær rök að því. Það er rétt, sem haldið hefur verið fram af Þorsteini Pálssyni, að þessa leið hefði strax mátt fara fyrir ári og að tap Útvegsbankans hefði þá orðið mun minna. Það var hins vegar ekki gert og málinu skotið til athugunar og umsagnar hins almáttuga Seðlabanka. Tillög- ur þær, sem hann hefur haft fram að færa, hafa verið til meðferðar síðan og valdið töfum í marga mánuði. Það er þó bót í máli, að tap ríkisins þarf ekki að verða eins mikið og þær tölur, sem helst eru nefndar í þessu sambandi benda til. Seðlabankinn hefur grætt stórar upphæðir á vaxtaviðskiptum sínum við viðskiptabankana. Eðlilegt er, að hann endurgreiði Útvegsbank- anum gróða sinn á viðskiptunum við hann. ur einkabanki. Þetta er eðlilega draumur Sjálfstæðisflokksins, því að ýmsir aðalstólpar hans myndu fá öll ráð yfir þessum banka. Hug- mynd þessi er þó ekki aðeins fordæmanleg frá pólitísku sjónar- miði. Það er engin trygging fyrir því, að slíkur banki myndi telja sér veitt. Engin trygging er heldur fyrir því, að þeir sparifjáreigendur, sem hafa skipt við Útvégsbankann, færi sparifé sitt yfir í hinn nýja banka. Vafalaust munu aðrirbank- ar reyna að lokka þá til sín, ef Útvegsbankinn hyrfi úr sögunni. Ómögulegt er að sjá fyrir hvernig ekki illa. Þegar óhappið með Haf- skip er undanskiliö hafa ekki verið færð rök að því, að Útvegsbankinn hafi verið illa rekinn, eða a.ni.k. ekki verr en hinir bankarnir. Að dómi sumra kunnugra manna, myndi það hafa minnsta röskun í för með sér fyrir ríkið, að endur- Athugasemd frá Matthíasi Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, vegna leiðara Tímans, laugardaginn 7. febrúar 1987: f leiðara Tímans sl. laugardag er fullyrt, að undirritaður hafi á Al- þingi „varið“ þær gjörðir Banda- ríkjamanna, „að hefja að nýju kjarnorkuvopnatilraunir með til- raunasprengingu sinni í Nevada- eyðimörkinni fyrr í vikunni“. Með því, að í þessari setningu er rangt með farið, vil ég koma eftirfarandi á framfæri: í umræðum þeim, sem fram fóru á Alþingi fimmtudaginn 5. febrúar um tilraunasprengingar Banda- ríkjamanna, lét ég í ljós von um, að árangur í samningaviðræðum risaveldanna í Genf myndi leiða til niðurskurðar kjarnavopna og alls- herjarbanns við slíkum sprenging- um undir raunhæfu eftirliti. í þeim viðræðum hafa Sovétmenn ekki reynst reiðubúnir að samþykkja eins tryggar eftirlitsráðstafanir og Bandaríkjamenn hafa krafist. Ég skýrði sprengingar Bandaríkja- manna út frá varnarstefnu Atlants- hafsbandalagsins, en hún hvílir á svokallaðri „fælingu", þar sem kjarnavopn gegna lykilhlutverki. Það væri mat Bandaríkjamanna, að á meðan kjarnavopn hafa þýð- ingu fyrir varnir Vesturlanda verði þeir að framkvæma slíkar tilraunir. Þetta er staðreynd, sem ég útskýrði í ræðu minni, en að ég hafi lýst stuðningi við kjarnasprengingum, það er rangt. Það er síðan til að kóróna þenn- an málflutning, að segja, eins og leiðarahöfundur Tímans gerir, að munur á stefnu Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks komi fram í þvf, að „Framsóknarflokkurinn vilji frið í heiminum“, og að fram- sóknarmenn séu þeirrar skoðunar, „að best færi á því að öllum kjarnavopnum væri útrýmt“. Að sjálfsögðu er enginn ágreiningur um þetta efni meðal íslendinga, en það er eins og endranær deilt um leiðir, líkt og ég benti á í nefndri ræðu á Alþingi. Þess má að lokum geta, að Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, sagði í sinni ræðu við þetta sama tækifæri, að hann gerði enga athugasemd við ræðu utanríkisráðherra, en hann bætti því síðan við, að persónulega for- dæmdi hann slíkar sprengingar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.