Tíminn - 21.02.1987, Page 1
í STUTTU MÁLI...
ÍSLENSKUR gæöafiskur hf. í
Njarövík hefur á undanförnum vikum
flutt roöflett tindabikkjubörö til Belgíu.
Þaö er út af fyrir sig e.t.v. ekki svo
fréttnæmt, nema hvaö belgíska fyrir-
tækiö N W Peters í Brugge sem sér
um dreifingu á tindabikkjuböröunum,
er jafnframt 49 % eigandi í íslenskum
gæðafiski, skv. heimildum Fiskifrétta.
SJÓVEIKI er vandamál er hrjáir
marga. Nú eru hins vegar komin á
markað erlendis sérstök teygjubönd
sem smeygt er upp á báöa úlnliði og
eiga þau aö losa menn viö veikina. Er
byggt á kenningum nálastungumanna
í Kína og er lítil kúla á armbandinu
sem þrýstir laust á ákveðinn „Nei-
kuan“- punkt á innanverðum hand-
Ieggnum. Þessi uppfinning kemur frá
Bandaríkjunum og hafa þar veriö seld
ein þrjúhundruö þúsund armbönd, eöa
svo segja Fiskifréttir.
VIRKI HF. hefur aukiö hlutafé sitt
til muna. Einnig hefur hluthöfum fjölg-
aö mjög verulega. Gengiö var frá
þessu á fundi þann fimmta febrúar.
Fjöldi starfsmanna og einstakra sér-
fræðinga sem standa aö VIRKI hf. eftir
fjölgun er yfir 300 manns. Ætlunin með
stækkuninni er að efla til muna starf
VIRKIS á erlendum vettvangi en fyrir-
tækið starfaði í Kína, Grikklandi, Tyrk-
landi og fleiri löndum í fyrra.
SKAGAMENN geta fariö í
tívolí á morgun. Miöað viö reynslu fyrri
ára munu margir notfæra sér þaö.
Skátar á Skaga hafa lagt nótt við dag
síðustu vikur til aö klára aö smíöa
tækin og leggja síðustu hönd á undir-
búning. Tívolíið er sett upp í íþrótta-
húsinu viö Vesturgötu og verðuropnað
klukkan 12. Heimir Janusson, einn af
aðstandendumtívolísins, sagöi í sam-
tali við Tí mann að þetta væri sennilega
glæsilegasta tívolíið frá upphafi á
Skaga.
BÚNAÐARÞING hefst næst- jj
komandi mánudag og stendur út fyrstu
vikuna í mars. Á þingingu veröur kosin
ný stjórn Búnaöarfélags íslands og nýr
formaður félagsins þar sem núverandi
formaður Ásgeir Bjarnason gefur ekki
kost á sér áfram.
p
i
i
Tímamynd Sverrir
FÉLAGAR úr klúbbnum 4x4 /
héldu á um eitt hundraö bifreiöum |
sínum yfir Sprengisand í gær á leið til :
Akureyrar. Þar er ætlunin aö halda j
bílasýningu á sunnudaginn og rennur
hluti aögangseyris til bílaklúbbsins.
KRUMMI
“Þá eru þeir Jón
Oddur og Jón
Bjarni aftur komnir
út í kuldann! “
Hallarbylting í Æskulýðsfylkingu Alþýðubandalagsins í Reykjavík:
HANDALÖGMÁL
Á ADALFUNDI
- burtreknir en flokksdyggir félagar smöluðu liði og hentu róttæklingunum út.
Það dró heldur betur til tíðinda
á aðalfundi Æskulýðsfylkingar Al-
þýðubandalagins í Reykjavík sl.
fimmtudagskvöld. Þá ruddist ritari
Alþýðubandalagsins, Pálmar Hall-
dórsson inn á nýsettan fund, með
lið úr Iðnnemasambandinu sem
ekki var í ÆFR sér til fulltingis, og
veittist að formanni ÆFR, Sigurði
Einarsyni í ræðustól. Samkvæmt
heimildum Tímans urðu þar tölu-
verðar ryskingar sem fleiri manns
blönduðust í, þar sem fundarmenn
freistuðu þess jafnframt að varna
innrásarmönnum inngöngu.
Forsaga þessa máls er sú, að
innan ungliðahreyfingar Alþýðu-
bandalagsins eru tvær fylkingar,
önnur sem þykir holl undir flokks-
forustuna og má þar nefna Pálmar
Halldórsson, Önnu Hildibrands-
dóttur, Sölva Ólafsson og Ragnar
Þórsson og síðan stjórn ÆFR sem
hefur viljað halda sjálfstæðri stefnu
gagnvart flokknum. Deilur þessara
fylkinga hafa síðan kristallast í
deilum um ágæti Guðrúnar Helga-
dóttur annars vegar og Ásmunds
Stefánssonar, hins vegar. Ætlaði
Stjórn ÆFR að birta auglýsingu
þar sem fólk var hvatt til að stroka
Ámund Stefánsson út af lista.
'Þessu vildu Ásmundarmenn ekki
una og freistuðu þess í gær að taka
yfir stjórn félagsins.
Mættu því á aðalfundinn
Pálmar, Anna Hildibrandsdóttir,
Sölvi og Ragnar, en þau þrjú
síðastnefndu voru rekin úr ÆFR í
vetur, ásamt fjölda iðnnema sem
margir hverjir voru ekki í ÆFR og
því án félagsskírteina. Var þeim
því meinuð innganga á fundinn.
En samkvæmt heimildum Tím-!
ans hleypti Pálmar Halldórsson
þeim er úti stóðu inn og upphófust
þá ofangreind handalögmál. Ætl-i
aði Sigurður Einarsson, formaður
þá að slíta fundi, en „innbrots-
menn“ hótuðu þá að setja nýjan
fund og kjósa nýja stjórn. Var þá
friðmælst og settust menn rjóðir og
heitir í sæti sín. Var ætlunin að
halda fundi áfram eftir fyrirfram
ákveðinni dagskrá, en þá bar Krist-
inn Einarsson, einn úr „Ásmundar-
liði“ ÆFR fram dagskrártillögu
sem gerði ráð fyrir að kosið yrði til
stjórnar strax, þar scm nokkrir
félagar hans voru á leið úr salnum.
Áður hafði verið ætlunin að taka
fyrir lagabreytingar, m.a. um
breytingar á stjórn.
Þegar dagskrártillagan var síðan
samþykkt með eins atkvæðis mciri-
hluta, gekk Sigurður Einarsson og
stjórn ÆFR ásamt stuðningsfélög-
um út úr salnum, en það lið sem
eftir sat kaus nýja stjórn. Hafa
stjórnarmenn ÆFR nú sagt sig úr
ÆFR og Alþýðubandalaginu og er
von á að fjöldauppsögnum eftir
helgina.
-phh
Um þessar mundir eru nemendur 9. bekkja grunnskóla víða um land ■ starfskynningu. Er það afar
misjafnt hvað unglingarnir hafa áhuga á og hvað þeir vilja helst kynna sér í atvinnulífinu.
Tíminn hitti 2 hressa stráka úr 9. bekk Gagnfræðaskólans á Selfossi, en þeir voru í starfskynningu í
Vcitingahöllinni, þá Kára Örlygsson og Andrés Jóakimsson. Þeir sögðu að þetta hefði verið „bara gaman“,
eins og þeir orðuðu það. Voru þeir að skera grænmeti í kjötsúpu þegar við komum að þeim, og líkaði þeim
það ágætlega. Þeir sögðu okkur enn fremur að margir í þeirra skóla hefðu valið að kynna sér störf
matreiðslumanna, og væru þeir nemendur á hinum ýmsu veitingastöðum.
Diðrik Ólafsson í Veitingahöllinni sagði að það væri greinilega mikill áhugi fyrir þessum störfum og væru
nemendur í starfskynningu tíðir gestir í Veitingahöllinni.
SBS/Starfskynning.
Tímamynd Svcrrir
Fulltrúaráösfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Þungar áhyggjur vegna
stadgreiðslukerfisins
Fulltrúaráð Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, sem í eiga
sæti 35 fulltrúar sveitarfélaga í
öllum landshlutum, þingar nú í
Borgarnesi. Aðalmál fundarins
hefur verið frumvarp ríkisstjórn-
arinnar um staðgreislu opinberra
gjalda og fyrirhugaðar breytingar
á skatt- og tekjustofnalögum í
tengslum við það.
Það kom fram í máli Björns
Friðfinnssonar formanns Sam-
bandsins að sveitarstjórnarmcnn
telja mörgu ábótavant varðandi
staðgreiðslukerfið og fyrirhugaða
framkvæmd þess. Sá flýtir sem
viðhafður er við afgreiðslu máls-
ins geti leitt af sér að nýja kerfið
verði mcin gallað. Þá kontu fram
miklar áhyggjur fundarmanna
vegna þess að lítil fámenn dreif-
býlis sveitarfélög sem hefðu
marga einstaklinga með tekjur
undir skattleysismörkum myndu
hrapa í tekjum við breytinguna.
Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra sagðist hafa upp-
lýsingar sem sýna alveg hið gagn-
stæða. Tekjur þessara tilteknu
sveitarfélaga af útsvörum myndu
cinmitt aukast verulega. Það staf-
ar af því að ríkið mun greiða
útsvör þeirra aðila sem cru undir
skattleysismörkunum.
Þá komu frarn áhyggjursveitar-
stjórnarmanna yfir skilum út-
svarstekna til sveitarfélaganna.
Frumvarpið tæki ekki nægjanlega
vel á þeim málurn. Ennfremur
kom fram gagnrýni á þá fyrirætl-
an að táka 1% af tekjum sveitar-
félaga til að standa straum af hinu
nýjainnheimtukerfi. Töldu menn
þetta enn eitt dæmið um hvernig
ríkið tæki sífellt meira fjármagn
frá sveitarfélögunum.
Fjallað verður um stað-
greiðslukerfið í nefndum í dag.
Fulltrúarnir munu einnig ræða
þar frumvarp menntamálaráð-
herra um framhaldsskóla, en það
gæti sparað sveitarfélögum um-
talsvcrt fé og einnig verður „hér-
aösncfnda" fyrirkomulagið rætt eins
og það er skilgreint í hinum nýju
sveitarstjórnarlögum. -ÞÆÓ