Tíminn - 21.02.1987, Blaðsíða 5

Tíminn - 21.02.1987, Blaðsíða 5
Laugardagur 21. febrúar 1987 Tíminn 5 Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri um nýbúgreinar: Hlutverk leiðbeininga- þjónustunnar mikilvægt Staða ráðunauts í fiskeldi hefur verið auglýst Á ráðunautafundi sem haldinn var fyrir skemmstu á Hótel Sögu hélt Atkvæöagreiðsla í HÍK um verkfallsheimild: Förum í hart efþörfkrefur - segir Kristján Thorlacius, formaöur HÍK. Krafa um 45 þúsund króna lágmarkslaun „Ég á von á því að verkfalls- heimild verði samþykkt, þó það sé auðvitað ekki hægt að segja fyrir um það. Við gerum kröfu um 45 þúsund króna lágmarks- laun fyrir okkar félagsmenn, bæði í grunnskólum og framhaldsskól- um. Okkur finnst þessi krafa ekki óbilgjörn og það er auðvitað ekki um annað að ræða en að fara í hart með þetta ef að við fáum ekki neins konar leiðréttingar," sagði Kristján Thorlacius, for- maður, Hins íslenska kennara- félags, í samtali viðTímann í gær. Félagsmenn HÍK greiddu at- kvæði í gær um hvort afla ætti félaginu verkfallsréttar og verður þeirri atkvæðagreiðslu framhald- ið á mánudaginn. Hins vegar er ekki búist við að talning geti hafist fyrr en á laugardaginn í ntestu viku. öflun verkfalls- heimildar miðast við verkfalls- boðun þann 16. mars n.k. - phh Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri er- indi um þátt leiðbeiningaþjónustu landbúnaðarins í eflingu nýgreina. Jónas gerði m.a. að umtalsefni hvernig staðið var að loðdýrarækt- inni í byrjun. Byrjað hafi verið á loðdýrarækt án þess að nokkur ráðu- nautur vær starfandi en síðan hafi fljótlega verið sendur einn maður til að „kynna sér loðdýrarækt“. Sá maður starfaði síðan einn í 10 ár þrátt fyrir stöðuga fjölgun loðdýra- búa. Fyrsta loðdýraræktarnámskeið var síðan haldið á Hólum fyrir héraðsráðunauta þegar refaræktinni fór að vaxa fiskur um hrygg. Upp frá því hafi ráðunautarnir stöðugt verið að afla sér reynslu og þekkingar bæði innanlands og utan og miðlað þeirri þekkingu til bænda. Samhliða því hafi verið tekin upp kennsla í loðdýrarækt og sérstakir ráðunautar séu nú starfandi í greininni. Þess má geta að nú er áætlað að um 230 bændur stundi loðdýrabú- skap. Flest búin eru á svæðinu frá Fnjóskadal til Svarfaðardals, á svæð- inu kringum fóðurstöðina á Sauðár- króki og á svæði kringum fóðurstöð Selfoss, en einnig eru nokkur fjöldi búa á Austurlandi. Jónas sagði að nú væri brýnt verkefni að þétta loðdýrabyggðina innan hvers fóðurstöðvasvæðis, þannig mætti bæta rekstrarmögu- leikana og ekki síður að bæta rekst- urinn með betri stjórn og skipulagi og síðast en ekki síst að bæta fóðurframleiðsluna og gera hana tryggari þannig að ekki eigi sér stað slys í fóðurframleiðslunni. Eins og sjá má af framangreindu komu leiðbeiningar varðandi loð- dýrarækt bæði seint og voru of litlar, þótt nú hafi verulega verið bætt úr. Hins vegar megi ýmislegt af þessu læra. Sú nýbúgrein sem einna mestar vonir eru bundnar við nú, utan loðdýraræktarinnar er fiskeldi. Jónas telur að heildarmöguleikar til fiskeldis hérlendis séu meiri en í nokkurri annarri búgrein. Hins veg- ar væri allt óljóst hvar og hvernig fiskeldi verður stundað og hverjir standi að baki því, þá m.a. með tilliti til byggðar. Á síðustu fjárlögum var samþykkt að veita fé til ráðningar ráðunauts í fiskeldi á vegum Búnaðarfélags fs- lands og. hefur staða hans þegar verið auglýst. í hans verkahring kemur að at- huga möguleika til fiskeldis í ein- stökum héruðum og á einstökum býlum og leiðbeina um framkvæmd- ir, t.d. með gerð kostnaðaráætlana, öflun leyfa og rekstraráætlanagerð og margt fleira. Fiskeldisráðunautur myndi hafa samvinnu með bygginga- og vatnsvirkjaráðunautum Búnaðar- félagsins. Ekki eru tiltækar tölur um fjölda þeirra bænda sem þegar eru farnir út í fiskeldi en víða eru menn að byrja og hafa það meðfram öðrum búskap, ýmist einir eða fleiri saman. Það er því ákaflega mikilvægt að þeir hinir sömu hafi sem allra fyrst aðgang að leiðbeiningaþjónustunni því með því móti er hægt að koma í veg fyrir óþarfa kostnað og fyrirhöfn. „Ef fiskeldi á annað borð getur spjarað sig hér, sem við bindum miklar vonir við, þá er enginn vandi að lifa af því eingöngu," sagði Jónas í samtali við Tímann. ABS Hópatríði úr Aida. Fádæma vinsæl óperusýning: Nýtt fólk tekur við söng í Aida Óperan Aida hefur verið sýnd við fádæma vinsældir í rúmar fjórar vikur hjá íslensku óperunni. Uppselt hefur verið á hverja sýningu og pantanir fram í tímann verið langt umfram það sem venja er. Um þessar mundir eru að verða nokkrar breytingar á hlutverkaskip- an og flytjendum. Þannó. febrúarsl. tók Robin Stapleton við hljómsveit- arstjórn af Gerhard Deckert. Stapleton er breskur og velþekktur hljómsveitarstjóri erlendis. Hann hóf æfingastjórn í Covent Garden aðeins 20 ára gamall og hefur enginn annar gegnt þeim störfum svo ungur sem hann var þá. Hljómsveitarstjórn í Covent Garden hóf hann svo fyrir fjórum árum og hefur um árin stjórn- að mörgum fremstu söngvurum og hljómsveitum heims. Tveir nýir söngvarar eru nú að taka við stórum hlutverkum. Eiður Á. Gunnarsson er nýkominn til landsins til að syngja hlutverk kon- ungsins sem Hjálmar Kjartansson söng áður. Er þetta í annað sinn sem Eiður tekur þátt í óperuuppfærslu hér á landi en hann er fastráðinn við óperuna í Aachen. Anna Júlíana Sveinsdóttir mun um næstu helgi taka við hlutverki Amnerisar af Sigríði Ellu Magnúsdóttur. Hún ætti að vera íslenskum óperuunnendum vel kunn af mörgum óperuhlutverk- um sem hún hefur haft með höndum á sviði Gamla bíós á liðnum árum. Illllllllllllllllllllllllll SKÁK Ofurmót IBM: Vel teflt og illa Tal og Jóhann áttu fallega skák, Short og Kortschnoi Ijóta Önnur umferð IBM ofurmótsins varð geysispennándi og framan af var mest gaman að því að fylgjast með framvindu mála á skákborð- inu á milli Jóns L. Árnasonar og Margeirs Péturssonar. Annars mátti sjá bæði fallega taflmennsku í gær sem og forljóta. Ljótt á að horfa Hinn ungi Nigel Short háði viðureign við Viktor Kortschnoi og virtist Kortschnoi hafa betur með hvítt. Tefld var frönsk vörn, en í henni er Kortschnoi snillingur og hefur gripið til hennar í árarað- ir. En Short fylgir ekkert endilega kokkabókunum og kemur and- stæðingnum oft í opna skjöldu. Svo var í þetta sinn og komu báðir skákmenn öllum áhorfendum í opna skjöldu með lélegri tafl- mennsku, - altént óskiljanlegri. Þá Kortschnoi taldi sig hafa vaðið fyrir neðan sig missti hann af leik, sem lá beint við að leika og spjótin tóku að snúast. Short flengdist fram og aftur borðið með drottn- inguna án sýnilegrar ástæðu ann- arrar en að tefja fyrir andstæðingn- um, sem var í tímahraki. Að lokum lék Kortschnoi eftir tals- verða umhugsun af sér manni og gaf skákina. „Þessi skák er sú vitlausasta sem ég hef séð lengi,“ varð Guðmundi Sigurjónssyni, stórmeistara, að orði. Short sjálfur var miður sín þrátt fyrir sigurinn. „Ég lék hræðilega í dag. Ég veit ekki hvernig stóð á þessu." Jafntefli strax Stystu skákinni í II. umferð lauk eftir aðeins 15 leiki. Þar sömdu Helgi Ólafsson og Lev Polúgaév- skíj um jafntefli. Ekki að sakast við Helga meðan hinir íslend- ingarnir tapa, sögðu gárungar, og að Polú, sem hann yfirleitt er kallaður, vilji fara sér að engu óðslega eftir sigur hans á Jóhanni Hjartarsyni í I. umferð. Úrslitin komu ekki á óvart, því teflt var gamalt j afnteflisafbrigði af Drottn- ingarindverskri vörn. Skákin var því spennusnauð og leiddi aðeins til eins. Portisch sótti þungt Agdestein frá Noregi og Ung- verjinn Portisch tefldu Drottning- arbragð og ósköp hefðbundið þar að auki, svokallað Tartakower af- brigði. Hún byrjaði þunglamalega en varð ekki logmmolluleg, svosem skák Helga og Pólú. Portisch náði frumkvæði í miðtafli og þyngdi þá sóknina. Agdestein varðist í 30 leiki en varð varnarlaus eftir snilld- Eftir II. umferð arfórn Portisch fyrir skiptamun. Yngsti stórmeistari heims um þess- ar mundir stóðst ekki „vinnuhest- inn frá Búdapest" snúning og gaf skákina. Simen Agdestein hefur engan vinning fengið enn sem kom- ið er. Biðskákin Aðeins ein skák fór í bið. Þar tókust á Hollendingurinn Jan Timman og Ljubomir Ljubojévic frá Júgóslavíu, sem beið ósigur gegn Short í I. umferð. Sérfróðum þótti sýnt að biðin væri Ljubojévic aðeins gálgafrestur, - að hann væri örugglega búinn að tapa annarri skák sinni í þessu ofurmóti. Þeir tefldu franska vörn og var skákin mjög þung allt að endatafli. Ðræður berjast Sem fyrr segir var mest gaman að fylgjast með viðureign landanna tveggja, Jóns L. Árnasonar og Margeirs Péturssonar. Jón Loftur er frægur fyrir djarfleika í sókn og að víla ekki fyrir sér að fórna telji hann sig vinna betri stöðu. í þetta sinn sýndi hann á sér aðra hlið. Mikið bar á hve örugglega Jón tefldi og áhættulaust, enda átti Margeir í mestu vandræðum frá fyrsta leik til hins síðasta. Jón með hvítt byrjaði á gömlu afbrigði af sikileyskri vörn , sem ekki er talið hættulegt. En Margeir þekkti það illa og Jón hefur vitað að hann hefur ekki teflt það áður. Jón sótti sífellt á og átti marga stórhættulega möguleika. í skákskýringarstofu dunduðu menn sér lengi við að máta Margeir á ýmsan hátt. Jón L. gjörsigraði Margeir í skemmtilega tefldri skák. Fallegust hjá Tal Það er kunnugra en frá þurfi að segja að Tal er frægur fyrir gull- fallegar leikfléttur og snjalla tafl- mennsku. Þá hliðina sýndi hann á sér í gær í skák við Jóhann Hjartar- son. Þeir léku Tchigorin afbrigði af spænskum leik. Þar fór hörkuskák, svo sem við var að búast, en Tal læddist lymskulega að Jóhanni. Leikni hans á borðinu er ekki viðbrugðið. Sú skák fylgir í heild sinni hér á eftir, en Jóhann gaf gjörtapaða skák. TAL-JÓHANN 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 0-0 8. c3 d6 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12. Rbd2 Bd7 13. Rfl cxd4 14. cxd4 Hac8 15. Re3 Rc6 16. d5 Rb4 17. Bbl a5 18. a3 Ra6 19. b4 g6 20. Bd2 axb4 21. axb4 Db7 22. Bd3 Rc7 23. Rc2 Rh5 24. Be3 Ha8 25. Dd2 Hxal 26. Rxal f5 27. Bh6 Rg7 28. Rb3 f4 29. Ra5 Db6 30. Hcl Hg8 31. Dc2 Rce8 32. Db3 Bf6 33. Rc6 Rh5 34. Db2 Bg7 35. Bxg7 Kxg7 36. Hc5! Da6 37. Hxb5 Rc7 38. Hb8 Dxd3 39. Rce5 Ddlt 40. Kh2 Hal 41. Rg4+ KI7 42. Rh6t Ke7 43. Rg8t svartur gaf Hl 1111 1111 ^llllll S8 i. ■ III i III ■1 i lllllllllll 1 111 A 1 ■4 10 1111! A ■I 1 1 111 H A H III 10 AÍS 1 illllllllll Wllllll 11111 III. umferð hefst á morgun klukk- an 16:30. Eftirtaldir eru mótherjar og fyrrtaldir hafa hvítt: N.Short- Jón L. Árnason, Margeir Péturs- son- Helgi Ólafsson, J.Timman- V.Kortschnoi, L.Portisch-L.Lju- bojevic, Jóhann Hjartarson- S.Ágdestein, L.Polugaévskij- M.Tal Biðskákirnar Eins og mönnum þótti sýnt í fyrradag þegar skák Margeirs Pét- urssonar og Viktors Kortschnois í I. umferð fór í bið gaf Margeir eftir fáa leiki. Eins fór um biðskák Timmans og Ljubojevic að sá síðarnefndi gaf. þj 1. JónLÁrnason 2. Margeir Pétursson 3. Short 4. Timman 5. Portisch 6. Jóhann Hjartarson 7. Polugaevsky 8. Tal 9. Agdestein 10. Ljubojevic 11. Korchnoi 12. Helgi Ólafsson 1 2 3 4 6 8 9 10 11 12 vinn röð II 1 'h 1 'h 0 0 0 1 1 2 1 2 'h 1 1 Vfc 3 0 0 1 'h 1V6 V •z 1 V/z 0 0 0 0 0 1 o • § 1 'k h III 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.