Tíminn - 21.02.1987, Blaðsíða 7

Tíminn - 21.02.1987, Blaðsíða 7
Tíminn 7 Laugardagur 21. febrúar 1987’ Mario Cuomo ríkisstjóri í New York: Ætlar ekki í forsetaslag Forsetakosningar veröa í Bandaríkjunum á næsta ári: Cuomo kom á óvart - Lýsti yfir í gær að hann myndi ekki leita eftir útnefningu demókrata sem forsetaframbjóðandi Reuter - New York, Washington Mario Cuomo ríkisstjóri í New York kom heldur en ekki á óvart í gær þegar hann tilkynnti í útvarpi að hann myndi ekki berjast fyrir að hljóta útnefningu demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjun- um árið 1988. Cuomo var á beinni Ifnu í útvarps- þætti einum er hann lýsti þessu yfir: „Ég nota þetta tækifæri til að gera afstöðu mína Ijósa: Ég mun ekki verða frambjóðandi", sagði ríkis- stjórinn. Flestir stjórnmálaskýrendur höfðu búist við því að Cuomo færi í forsetaslag og töldu að hann yrði helsti keppinautur Gary Harts, fyrr- um öldungardeildarþingmanns frá Cólarado, sem þykir líklegastur um þessar mundir til að hljóta útnefn- ingu demókrata. Víst er að með þessari ákvörðun hefur Cuomo, sem er frjálslyndur demókrati af gamla skólanum, opn- að leiðina fyrir marga óþekktari og yngri frambjóðendur flokksins. Meðal þeirra má nefna Richard Gephardt frá Missouri sem gat ekki leynt ánægju sinni er hann frétti af ákvörðun Cuomos og mun líklegast verða á mánudaginn fyrsti demókr- atinn til að tilkynna formlega að hann sækist eftir útnefningu flokksmanna sinna. Gephardt og aðrir minna þekktir frambjóðendur þykja þó ekki líkleg- ir til að sigra Hart. Hinsvegar gæti svarti baráttumaðurinn Jesse Jack- son vel velgt Hart undir uggum en hann fékk mikinn fjölda atkvæða hjá demókrötum í forsetaslagnum árið 1984. Hjá repúblikunum fóru hlutirnir einnig að skýrast í gær. í*á setti varaforsetinn George Bush á stofn kosninganefnd sem safna á pening- um og vinna fyrir hann í komandi kosningaslag. Bush hefur ekki form- lega skýrt frá því að hann leiti eftir útnefningu repúblikana en myndun kosninganefndarinnar í gær bendir ekki til annars en að varaforsetinn leiti eftir því að taka við af yfirmanni sínum Rónald Reagan í byrjun árs 1989. Aðrir sem líklega munu leita. eftir að hljóta útnefningu repúblik- ana eru Robert Dole leiðtogi repú- blikana í öldungadeildinni, Jack Kemp fulltrúadeildarþingmaður og Pat Robertson er stýrir trúarþáttum í bandarísku sjónvarpi við miklar vinsældir. ÍSLENSKAR ÆVISKRAR ómissandi uj^flettirit á þorraí Með flBviágripum n«r 8000 íslendinga frá landnámstímum til ársloka 1965 eru þflBr í sex bindum eitt viðamesta safn um íslenska flBttfrflsði og persónusögu. Æviskrámar eru í samantekt Ráls Eggerts Ólasonar með viðaukum eftír Jón Guðnason og Olaf Þ. Kristjánsson Verð aðeins kr. 4.375,- Til sölu í helstu bókaverslunum. HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG ÞINCHOl TSSTR*TI J PÓSTHÓLF 1252 121 REYKJ AVlK Auglýsing um atkvæðagreiðslu um samein- ingu allra sveitarfélaga í Austur- Barðastrandarsýslu í eitt sveitar- félag. Atkvæðagreiðsla um sameiningu allra sveitarfé- laga í Austur-Barðastrandarsýslu í eitt sveitarfélag mun fara fram 14. og 15. mars n.k. Kosið verður á þingstöðum allra hreppanna. Kjörfundir hefjast þar ofangreinda daga kl. 13.00 og lýkur kl. 17.00. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fer fram hjá hreppstjórum viðkomandi hreppa og hjá sýslu- manni Barðastrandarsýslu á venjulegum skrif- stofutíma frá 9. mars til og með 13. mars. Kjörskrár munu liggja frammi á venjulegum stöð- um frá 23. febrúar til og með 28. febrúar. Kærur vegna kjörskrárskulu berasttil oddvita viðkomandi hreppa eigi síðar en viku fyrir fyrri kjördag. Atkvæðagreiðsla verður að öðru leyti nánar aug- lýst í viðkomandi sveitarfélögum. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Barðastrandarsýslu. Norrænn styrkur til bókmennta nágrannalandanna Ráöherranefnd Noröurlanda hefur skipað sérlega nefnd til að ráðstafa fé því sem árlega er veitt til að styrkja útgáfu á norrænum bókmenntum í þýðingu á Norðurlöndunum. Fyrsta úthlutun nefndar- innar á styrkjum í þessu skyni 1987 fer fram í maí. Norræn styrkur til þýðinga á bókmenntum nágrannalandanna Þá mun nefndin einnig í maí úthluta styrkjum til þýðinga á árinu 1987. 75.000 danskar krónur eru til umráða, er þeim fyrst og fremst ætlað að renna til þýðinga úr færeysku, grænlensku, íslensku og samísku á önnur Norðurlandamál. Umsóknarfrestur fyrir báða þessa styrki rennur út 1. apríl 1987. Umsóknir sendist til: Nordisk Ministerrád Store Strandstræde 18 DK-1255 Kopenhavn K, Danmark. ffi^l FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ [lOCIJ Á AKUREYRI Hjúkrunarfræðingar Laus er til umsóknar staða hjúkrunardeildar- stjóra á Speglanadeild F.S.A. Staðan veitist strax eða eftir samkomulagi. Um er að ræða 60% starf á dagvinnutíma. Umsóknum skal skilaðtil hjúkrunarforstjóraog/eða hjúkrunarframkvæmdastjóra, sem veita allar nán- ari upplýsingar í síma 96-22100. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. rml LAUSAR STÖEMJR HJÁ W REYKJAVIKURBORG Fóstrur eða annað starfsfólk með aðra uppeldis- lega menntun óskast til starfa á leikskólann/skóla- dagheimilið Hálsakot, Hálsaseli 29 og Hraunborg Hraunbergi 10. Upplýsingar gefur umsjónarfóstra á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277 og 22360 og forstöðumaður viðkomandi heimilis. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Auglýsingadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Okeypis þjónusta

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.