Tíminn - 21.02.1987, Side 2

Tíminn - 21.02.1987, Side 2
r r r > \ ' 'i > 2 Tíminn Laugardagur 21. febrúar 1987 Albert Guömundsson um stækkun álversins í Straumsvík: Við erum að reyna að selja umframraforku - Ríkiö hefur ekki áhuga á eignarhlut í stækkun og hækkun raforkuverðs „tómt mál“.- Hluthafa leitaö í Þýskalandi og Austurríki „Það er talin hagkvæmari rek- strareining ef Álverið verður stækkað. Það er verið að leggja niður álver víða um heim, fyrir utan það að við leggjum áherslu á að selja sem mest af þeirri umframorku sem við eigum til að bjóða. Við leggjum ekki áherslu á að stækka til að eiga í því hlut sjálfir," sagði Albert Guðmundsson, iðnaðarráðherra þegar Tíminn innti hann eftir af hverju íslensk stjórnvöld hefðu áhuga á að stækka álverið í Straums- vt'k. - En er þá ekki fyrst og fremst verið að leita að hagkvæmri lausn fyrir Aluswiss með þessu ? „Nei,nei, ekkert sérstaklega. Við erum bara að reyna að selja rafork- una sem við eigum umfram. Við tökum ekki að okkur fjárfestingu að neinu leyti." - Þannig að þetta er fyrst og fremst leið til að losna við auka- raforku ? „Já, þess vegna erum við nú að leita að stóriðju til að selja þeim raforkuna. En eitt er víst að þeir hjá Aluswiss vilja stækka verksmiðjuna en hafa ekki bolmagn til þess sjálfir og þess vegna var verið að leita að einhverjum öðrum aðila til að stækka hana og okkar áhugi er að finna þann aðila til að geta selt meira rafmagn. Ég reikna með að það fari mjög ■fljótlega af stað könnunarviðræður við nýja aðila. Hingað til hefur þetta verið meira og minna í höndum Aluswiss, en nú er þetta orðið fyrir okkur að finna nýja aðila. En Alu- swiss er opið fyrir að fá nýjan hluthafa þarna inn.“ - En hvaða aðilar eru í sigtinu? „Það er nú of snemmt að segja Söfnun Kiwanis fyrir brunavarnarkerfi Kópavogshæli: Mikill afgangur af söf nunarfénu - Ráðstafað til kaupa á sundlaugarlyftu og sérhönnuöu baðkeri Kópavogshæli var gefið bruna- varnarkerfi, en Kiwanis hreyfingin stóð fyrir stöfnun meðal landsmanna í fyrravetur í framhaldi af brunan- um, sem kom eins og reiðarslag yfir þjóðina. Tveir sjúklingar fórust af völdum eldsins og ákváðu Kiwanis félagar að grípa til einhverra þeirra ráða svo afstýra mætti að slíkir atburðir gerðust aftur. Fjársöfnun tókst mjög vel og voru gerð fullnað- arskil á reikningum í gær. Mikill afgangur varð af söfnunarfé, þegar brunavarnarkerfið hafði verið keypt og sett upp, og var honum varið til kaupa á sérstakri lyftu við sundlaug hælisins til að auðvelda sjúklingum afnot af lauginni og auk þess keypt setbaðkar, sem kemur að góðum notum við böðun þeirra sem geta með illu móti notað venjuleg ker, svo sem sjúklingar í hjólastól. Enn var afgangur af fénu, kr. 20.194, og var Birni Gestssyni, forstjóra Kópa- vogshælis, fenginn hann í hendur. Mæltust Kiwanisfélagar til þess, að féð yrði notað til kaupa á einhverju smávægilegu til að gleðja þá sjúkl- inga sem misstu allt sitt í brunanum. Fleiri lögðu hönd á plóginn. Fyrir- tækið A. Karlsen hf. gaf afslátt af álagningu sinni á þeim tækjum, sem keypt voru til hælisins. Ennfremur fékkst afsláttur á flutningsgjöldum og þvílíku. „Ekki síst viljum við þakka landsmönnum góða þáttöku í söfnuninni,“ segir í tilkynningu Kiw- anis. Reikningar söfnunarinnar voru lagðir fram til endurskoðunar af löggiltum endurskoðanda. Að auki er rétt að geta þess, að af tölum heilbrigðisráðuneytisins er það rakið, að öll sú umræða sem fram fór samhliða söfnuninni hafi valdið því að fleiri sjúkrastofnanir eru nú á fjárlögum með framlög til aukinna brunavarna en verið hefur áður. Þannig er óbeinn árangur af þessari söfnun jafnvel enn meiri en menn þorðu að vona í fyrstu. þj fyrir um það, en ég hef trú á því að það sé rétt að leita í Evrópu og þá sérstaklega í Þýskalandi, Austurríki og kannski í Frakklandi. Ég hef ekki hugmynd um hvort álverksmiðjur vestan hafs eru tilkippilegar, en það þarf að þreifa á þessu víðsvegar um heim.“ - Er þá gengið út frá sama raforkuverði og Aluswiss fær? „Já ég held að það sé tómt mál að tala um hærra raforkuverð til viðbót- arframleiðslu þarna. En hitt er ann- að mál að það yrði ekki lækkað. Stækkunin kallar hvorki á breytingu á hafnarskilyrðum né rekstri, því það yrði þá samrekstur þarna, og reksturinn myndi þá bara bæta við sig. Þetta yrði eitt fyrirtæki. Þess vegna er þetta talið ódýrara en að byggja nýja verksmiðju." - Én eru hugmyndir um aðrar álverksmiðjur á landinu lifandi enn þá? „Ekki svo ég viti til, það hefur ekkert verið talað við mig um það og ég veit ekki um neinn aðila sem hefur á þessari stundu áhuga á að byggja nýtt álver á íslandi," sagði Albert Guðmundsson. - phh Flugleiðir: Aukin umsvif og betri af koma - félagið minnist 50 ára afmælis samfellds atvinnuflugs á árinu í ár minnast menn þess að 50 ár eru liðin frá- því að samfellt atvinnuflug hófst hér á landi er Flugfélag Akureyrar, forveri Flugfélags fslands var stofnað. Flugieiðir ætla að minnast þessa með ýmsum hætti og m.a. sténdur til að gefa út bók unt sögu atvinnu- flugs á landinu og efnt verður til flugsýningar í haust. Á afmælisárinu hefur verið hann- að nýtt merki sem notað verður á árihu og einnig verður starfað und- ir nýju kjörorði Flugleiðir - fyrir Þ'g; Á fréttamannafundi sem for- ráðamenn félagsins héldu kom fram að nýlega hefur verið hrundið af stað miklu námskeiðahaldi hjá félaginu. Námskeið þessi má rekja tii svipaðra námskeiða sem SAS flugfélagið hélt fyrir sitt starfsfólk og miðaði að því að bæta þjónustu fyrirtækisins. Á námskeiðum Flug- leiðamanna verður einnig lögð á það áhersla að kynna markmið og stefnu fyrirtækisins. Alls munu um 1800 manns sækja námskeiðin, starfsfólk Flugleiða hérlendis og erlendis. Það er Stjórnunarfélagið sem sér um þessi námskeið en leiðbeinandi á þeint verður Haukur Haraldsson. í máli Sigurðar Helgasonar for- stjóra kopt fram að afkoma félags- ins á árinu 1986 hefði verið mjög góð. Endanlegar tölur lægju ekki fyrir en allt útlit væri fyrir að hagnaður ársins yrði meiri en 1985, en þá var hann um 200 millj. króna. Þessi bætta staða hafi leitt til þess að félagið væri farið að hugaaðflugvélakaupum. Þærvélar sem helst kbma til greina eru Boeing 737-200, -300 eða -400 eða þá Airbus A320. Boeing vélarnar eru til afgreiðsiu á árunum!988- 1989 en Airbus ekki fyrr en 1992. Allar eru þessar vélar tveggja hreyfla og nota um 35-50% minna eldsneyti á hvern sætiskílómetra en þær sem nú eru notaðar í Evrópufluginu. Þá verður unnið að könnun valkpsta í endurnýjun innanlandsflotans, en á maricað eru að koma vélar sem þar koma lii álita. Bókanir það sem af er árinu benda til meiri umsvifa hjá félaginu en nokkru sinni áður. Hafa Flug- leiðir verið í sókn á öllum markaðs- svæðum að sögn Sigurðar og hefur vcrið tekin á leigu Boeing 727-200 vél frá 1. júní og verður félagið með 13 vélar í rekstri í sumar, Ferðatíðni verður víða aukin á árinu bæði í innan- og-utanlands- fluginu. Þannig verða þrjár ferðir frá Evrópu til Orlando í viku og áætlunarflug til Boston mun hefjast innan skamms. Þá verða fleiri ferð- ir milli Færeyja og Glasgow, auk þess sem flug verður hafið milli Færeyja og Bergen. -RR Björn Gestsson, forstöðumaður Kópavogshælis, við nýju lyftuna sem Kiwanismenn gáfu hælinu fyrir afgang söfnunarfjárins. Hún gerir mönnum auðveldara fyrir að komast ofan í sundlaugina í glæsilegum húsakynnum hælisins. (Tíminn/Pjétur) Um 63 millj. gróði á Sementsverksmiðjunni Sementsverksmiðja ríkisins skil- aði nær 63 milljóna króna hagnaði árið 1986 - en árið 1985 var niður- staða rekstrarreiknings yfir 46 millj- óna króna tap. Sölutekjur verk- smiðjunnar voru rúmlega 441 millj. króna, sem var hækkun um 72 milljónir milli ára. Framleiðslukostnaður var um 300 millj. króna, sem var aðeins um 5% hækkun milli ára. Flutnings- ogsölu- kostnaður var nokkru lægri en árið áður, um 13% hækkun á stjórnunar- kostnaði og rekstur fasteigna svipað- ur. Fjármagnskostnaður var um 33,5 millj. króna, sem var 9 millj. króna lækkun frá 1985. Gengis- og vísitölu- hækkun tekinna lána og tekjufærsla vegna verðbreytinga stóðust nokk- urn veginn á en árið áður var það um 16 millj. kr. neikvæður jöfnuður. Alls seldi verksmiðjan 111,477 tonn af sementi á árinu, sem var 2.634 tonnum minna en 1985. í ársskýrslu segir að sala á sementi til íbúðabygginga hafi dregist nokkuð saman en sala til Keflavíkurflugvallar hins vegar orðið meiri en nokkru sinni fyrr. Um 72% af sementinu voru seld frá Reykjavík. Sala á sckkjuðu sementi minnkaði úr 31 þús. í 26 þús. tonn. Verð á sementi hækkaði einu sinni á árinu, um 15,8%. Fastráðnir starfsmenn verksmiðjunnar voru 153 íárslok-ófærrienáriðáður. -HEI Bjóöa Vinstri sósíalistar fram? Ákvörðun tekin í dag - á Hótel Borg. Hugmyndir uppi um útvarpsstöö Vinstri sósíalistar, sem eru sam- tök baráttufólks á vinstra kanti stjórnmálanna hafa undanfarnar vikur rætt þann möguleika að bjóða fram í komandi þingkosning- um. Héldu samtökin í því tilefni ráðstefnu þann 24. janúar sl. þar sem þessi mál voru rædd. Voru uppi skiptar skoðanir fundar- manna um hvort samtökin væru í stakk búin til að fara út í kosninga- baráttu, þar sem slíkt kostar pen- inga, tíma og skipulagningu. Éjóst væri að ef farið yrði af stað í slíka baráttu án þess að þessum frum- forsendum væri fullnægt, yrði jafn- vel betur heima setið en af stað farið. Þessi mál hafa nú verið til um- ræðu innan samtakanna og verður í dag kl. 14.00 haldinn fundur á Hótel Borg þar sem ákvörðun um framboð verður endanlega tekin. Þá verða á fundinum kynntar hug- myndir um útvarpsstöð samtak- anna og starf þeirra almennt kynnt. Fundurinn er öllum opinn. - phh

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.