Tíminn - 21.02.1987, Side 3

Tíminn - 21.02.1987, Side 3
Laugardagur 21. febrúar 1987 Tíminn 3 Menntamálaráðuneytiö: Heildarúttekt gerð á fræðsluskrifstofunum - í kjölfar umræðna að undanförnu Menntamálaráðuneytið hefur á- kveðið að láta fara fram heildarút- tckt á stöðu fræðsluskrifstofa lands- ins og samskiptum þeirra við mennta- málaráðuneytið. Markmið úttektar- innar er að fá heildarmynd af starfs- háttum og samskiptum þeirra er með fræðslumál fara í fræðslu- umdænrum og fjármálalegri stöðu einstakra fræðsluumdæma. Þessi ákvörðun er tekin í kjölfar umræðna sem fram hafa farið að undanförnu urn samskipti fræðslu- yfirvalda í Norðurlandsumdæmi eystra og menntamálaráðuneytisins. Ráðuneytið hefur farið þess á leit við fræðsluumdæmin að þau skipi tvo fulltrúa til samstarfs við fulltrúa ráðuneytisins, en þeir eru Helgi Ólafsson og Kristjón Kolbeins. Niðurstöður úttektarinnar eiga að liggja fyrir um miðjan apríl n.k. -ABS Þessi mynd var tekin þegar eignaraðilum að Lottói 5/32 var afhentur ágóðahluti í fyrsta skipti. Frá vinstri: Þórður Þorkelsson, stjórnarformaður fslenskrar Getspár, Arnþór Hclgason, formaður Öryrkjabandalags íslands, Pálmi Gíslason, formaöur Ungmcnnafélags íslands og Sveinn Björnsson, forseti íþróttasambands fslands. Lottó 5/32: 137 milljónir á 12 vikum - eignaraðilum úthlutað gróða íþróttasamband íslands, Öryrkja- bandalag fslands og Ungmennafélag íslands, sem eru eignaraðilar ís- lenskrar Getspár sem rekur Lottó 5/32 fengu úthlutað ágóðahlut sínum í fyrsta sinn eftir að lottóið hófst, þann 29. nóvember. Komu 24 milljónir til skipta milli sambandanna þriggja og var upp- hæðinni deilt eftir eignarhlut hvers og eins. Þannig komu 11,3 milljónir króna í hlut ÍSÍ, 9,6 milljónir í hlut Öryrkjabandalagsins og tæplega 3,2 milljónir króna í hlut Ungmennafé- lags íslands. Ef fram heldur sem horfir má gera ráð fyrir að ÍSÍ fái 90 m.kr. á árinu, Öryrkjabandalagið um 80 m.kr. og Ungmennafélag fslands um 26 m.kr. Gera forráðamenn eignaraðila sér að vonum, góðar vonir um að fé þetta megi nýtast þeim hið besta. Mun Öryrkjabandalagið t.d. nú sjá fram á að geta reist og rekið íbúðar- húsnæði fyrir öryrkja og renna 80% af peningum þeim sem koma inn fyrir lottóið, til Hússjóðs Öryrkja- bandalags íslands. - phh Borgames: Ósamkomulag í sveitarstjórn - um skuldir sveitarstjórnar og ráöningu félagsmálastjóra f nýjasta fréttabréfi Borgarnes- hrepps er staðhæft að skuldir sveit- arsjóðs væru rúmar 60 milljónir króna og er þar m.a. kennt urn illum skilum fyrri sveitarstjórnar- meirihluta, þ.e. framsóknarmanna og sjálfstæðismanna. Nú eru aftur á móti Alþýðubandalag og óháðir í meirihluta. Tíminn hafði samband við Gísla V. Halldórsson fulltrúa Framsókn- arflokksins í sveitarstjórn og sagði hann þessar tölur rangar. Eftir því sem hann kæmist næst væru nettó- skuldir sveitarsjóðs röskar 43 millj- ónir króna. Mismunurinn væru úti- standandi tekjur sveitarsjóðs, svo sem útsvör, vangoldin framlög ríkissjóðs og fleiri gjöld sem gengi misjafnlega að innheimta en óeðli- legt að afskrifa. „Það er alveg á hreinu að Borg- arncshreppur stcndur ekki illa í samanburði við önnur sveitarfé- lög," sagði Gísli. En það er fleira sem sveitar- stjórnarmenn í Borgarnesi eru ekki á sama máli um. Sl. miðvikudag var ráðinn félagsmálastjóri í Borg- arnesi, Brit Bieltved, en hún er með B.A. próf í félagsráðgjöf. Ráðningin er þriggja mánaða rcynsluráðning. Gísli sagði að framsóknarmönn- um hefði ekki fundist það samræm- ast launakjörum annarra starfs- manna sveitarfélagsins að greiða hinum nýja félagsmálastjóra 12 launaflokkum hærri laun en æsku- lýðsfulltrúanum í Borgarnesi og þrcmur launaflokkum hærri laun cn skrifstofustjóra hreppsins. Að- spurður um hvcr laun félagsmála- stjórans væru sagði Gísli að þau samsvöruðu 145. launaflokki BHM, en æskulýðsfulltrúinn væri í 66. flokki BSRB og þaðsamsvaraði 12 launaflokka mun. Ennfremur væru allar líkur á að þessi ráðning- arsamningur yrði til frambúðar því ekki væri vaninn að leggja störf niður sem stofnuð hefðu verið. Gísli sagði cinnig aðspurður að urn þessar mundir væri unniö að starfsmati hjá Borgarneshreppi og búist við að laun starfsmanna breytist í kjölfar þess. „Við fram- sóknarmcnn styðjum það, að sam- ræmi komist á laun starfsfólks sveitarfélagsins, en við teljum að þarna sé verið að raska því tölu- vcrt.“ -ABS Launareikningur er kjarabot fyrir launþega Við bjóðum þeim fjölda einstaklinga sem leggja reglulega inn fé, nýjan tékkareikning sem sameinar kosti veltureiknings og sparireiknings. Launareikningur er með 4% lágmarksvöxtum, en fari innstæðan yfir 12.000 krónur, reiknast 10% vextir af því sem umfram er. r. I stað þess að reikna vexti af lægstu innstæðu á 10 daga tímabili, eru reiknaðir vextir af innstæðunni eins og hún er á hverjum degi. Handhafar tékkareiknings geta breytt honum í Launareikning án þess að skipta um reikningsnúmer. Umsóknareyðublöð liggja frammi á öllum afgreiðslustöðum bankans. ' * 'Xy '' *r. • | m ■ ,, * ' * -'i INlNLÁNSVIÐSiaPTI - LEIÐ TIL LÁNSVIOSKIPTA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.