Tíminn - 21.02.1987, Qupperneq 4
4 Tíminn
Laugardagur 21. febrúar 1987
SPEGILL
Astrid Lindgren virðist líka hafa gaman af
lesa bækurnar sínar! Hér er hún að líta í
Ronju ræningjadóttur sem hefur verið
kvikmynduð og mun sú mynd vera eina
leikna kvikmyndin sem sett hefur verið ís-
lenskt tal á til sýningar í kvikmyndahúsum
hér.
Lína langsokkur skipar heiðurssess á heim-
ili Astrid Lindgren. Nú er verið að gera
kvikmynd í Bandaríkjunum um þá
skemmtilegu og óvenjulegu stúlku.
Hin eina og sanna
Dynasty-leikkona
Linda Evans. Það
er ekki leiðum að
líkjast !
Vera Safro, 48 ára
læknisfrú í Houst-
on er iðulega tckin
fyrir lcikkonuna
Lindu Evans
vonsviKinn a svip, þa var hann
elskulegur við okkur.
Eitt sinn er við vorum að borða
á fínum matstaö í Beverly Hills
kom George Hamilton inn í salinn
með gesti og veifaði til mín bros-
andi. Litlu seinna settist Cher rétt
hjá okkur og brosti til mín um leið.
Dóttir mín heyrði að Cher sagði
við herrann sem hún var með:
“Þarna er Linda Evans að borða
með einhverju fólki sem cg ekki
kannast við“. Við hlógum öll að
þessu, - en satt best að segja verð
ég að viðurkcnna, að ég er töluvert
upp með mér af því að vera tekin
fyrir Lindu Evans .“
„Hef ekki
tíma til að
verða gömul“
Tvífari
Lindu
Evans
VE ERA Safro, húsmóðir í
'Houston í Texas, er svo ná-
kvæmlega lík lcikkonunni
Lindu Evans. að meira að segja
samstarfsfólk leikkonunnar villist
á þeim.
Þegar Vera Safro er á ferð, hvort
heldur er á flugvöllum eða í versl-
unarferðum, skal það ekki bregð-
ast að Ijósmyndarar hópast að
henni og rithandasafnarar koma
og biðja hana að skrifa nafn sitt,
Vera Safro segir að sér hafi
brugðið þegar hún sá Lindu Evans
fyrst í sjónvarpinu: „Almáttugur,
hún er alveg eins og ég, - við erum
nákvæmlega eins!“
Vera er ljóshærð og bláeygð, vel
vaxin, herðabreið eins og Linda og
kunnugir segja þær ótrúlega líkar.
Sjálf segir Vera, að hún hafi eitt
sinn verið í lyftu, þegar maður
ávarpaði hana sem Lindu Evans en
hún mótmælti því að hún væri
leikkonan. Þá sagði stúlka, sem
var í lyftunni með þeim: „Ég ætlaði
ekki að ónáða þig neitt Linda, en
manstu ekki eftir mér þegar ég
vann í búningsklefunum og fata-
geymslunum hjá 20th Century-
Fox?“
Vera Safro sagðist alls ekki vera
Linda Evans. Þá sagði stúlkan:
„Ég þekki þig, og meira að segja
man ég eftir tveimur stórum ljósum
freknum á annarri kinn þinni, - og
þarna eru þær!“
Ekki hefur Vera Safro fengið
það staðfest að þær ljóskurnar
báðar séu með eins bletti á kinn.
Vera Safro er þriggja barna
móðir og hún er gift kvensjúk-
dómalækni í Houston. Þau áttu
heinta í Suður-Afríku en fluttust til
Bandaríkjanna 1977. Hún sagðist
ekki hafa horft á sjónvarp svo
nokkru næmi, og því ekki séð
Dynasty-þættina með Lindu Evans
fyrr en þau hjón fóru í frí til
Acapulco fyrir 4 árum. „Þegar við
komum í anddyri hótelsins varð
mikið um að vera. Ljósmyndari
kom hlaupandi og smellti af okkur
myndum og fólk safnaðist að. Þá
kom hótelstjórinn og bauð okkur
velkominn og dreif okkur með sér
út úr kraðakinu. Hann fylgdi okkur
til herbergja okkar og sagði að sér
væri heiður að því að hafa Lindu
Evans leikkonu sem gest á hótel-
inu. Ég útskýrði fyrir honum að ég
væri alls ekki Linda og þrátt fyrir
að aumingja hótelstjórinn yrði hálf
-seg i r Astrid Lindgren sem er að verða áttræð!
ASTRID Lindgren, besti
vinur barna á öllum
t aldri í a.m.k. 56 lönd-
& um verður áttræð á
þessu ári en hefur ekki einu sinni
látið sér detta í hug að tími sé
kominn til að setjast í helgan stein!
„Ég er alltaf full af hugmyndum og
hefengan tímatilað verðagömul,"
segir hún.
Astrid er síung í anda og sískrif-
andi. Hún leitar þó gjarna að efni
í eigin æskuminningum og lætur
þess getið að Börnin í Ólátagarði
eigi uppruna sinn í hennar eigin
föðurgarði. „Þar bjuggum við við
það besta atlæti sem börn geta
fengið, öryggi, frelsi og mikinn
kærleika," segir hún. Hún segist
ekki sækja hugmyndir til barna-
barnanna sinna 7, en þau séu hins
vegar fyrst til að heyra nýju sögurn-
ar sem stöðugt streyma fram úr
penna hennar.
íslensk börn í margar kynslóðir
hafa haft góð og skemmtileg kynni
af bókum Astrid. Lína langsokkur,
Emil í Kattholti, Bróðir minn
Ljónshjarta, Ronja ræningjadótt-
ir, Börnin í Ólátagarði og áfram
mætti telja upp, sögur af ólíku tagi,
hreinar skemmtisögur og sögur
með dýpra ívafi, allar ná til lesend-
anna. Ög það er langt í frá að
íslenskir lesendur séu þeir einu
sem fá að njóta þess að lesa sögur
Astrid Lindgren á móðurmáli sínu,
þær hafa verið þýddar á 56 tungu-
mál!
SVEITASTJÓRNARMÁL
Málefni Hitaveitu
Akraness
og Borgarfjarðar
Um miðjan janúar var haldmn
sérstakur fundur í bæjarráði
Akraness um málefni Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar, eink-
um með tilliti til nýsamþykktrar
hækkunar á gjaldskrá veitunnar.
Á fundinum voru einnig bæjar-
stjóri, hitaveitustjóri, formaður
stjórnar HAB og hreppsráð Borg-
arness. Á fundinum var eftirfar-
andi samþykkt gerð:
„Sameiginlegur fundur bæjarráðs
Akraness og hreppsráðs Borgar-
ness, haldinn á Akranesi 11. janúar
1987, fagnar þeirri samþykkt Alþing-
is við afgreiðslu lánsfjárlaga að
heimila fjármálaráðherra að semja
við Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjarðar um ráðstafanir til aö bæta
fjárhag veitunnar.
Með vísan til tilmæla ríkisstjórnar-
innar um aðhald í gjaldskrárhækk-
unum sem og þess, að málefni HAB
eru nú til umfjöllunar hjá fulltrúum
forsætis-, fjármála- og iðnaðarráðu-
neyta, mælist fundurinn til, að störf-
um verði hraðað svo sem frekast er
kostur þannig að lækka megi sem
fyrst óæskilegan húshitunarkostnað
notenda veitunnar.
Jafnframt beinir fundurinn þeim
tilmælum til ríkisstjórnarinnar, að
hún hlutist til um að hækkun
gjaldskrár HAB verði frestað frá 1.
júní til 1. mars 1987, meðan unnið
er að lausn áfjárhagsvanda veitunn-
ar.“
Borgarafundur um HAB
í bæjarstjórn Akraness var eftir-
farandi tillaga samþykkt í kjölfar
umræðna um málefni HAB:
„Bæjarstjórn Akraness samþykkir
að halda almennan borgarafund um
málefni Hitaveitu Akraness og Borg-
arfjarðar.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra,
Ingimundi Sigurpálssyni, að boða
hlutaðeigandi aðila á fund í bíóhöll-
inni Akranesi á heppilegum tíma og
sjá um framkvæmd fundarins."
Sala á eignarhlutum
Akraneskaupstaðar
Eins og greint var frá hér í dálkn-
um í haust var gerð úttekt á eignar-
hluta Akraneskaupstaðar í hluta- og
sameignarfélögum. Þá var hér um
daginn sagt frá samningi um sölu á
hlut bæjarsjóðs í Nótastöðinni hf.
En i framhaldi af framlagningu grein-
argerðar um framangreinda úttekt,
hefur bæjarráð lýst yfir áhuga að
selja eignarhlut bæjarins í eftirfar-
andi fyrirtækjum:
Krossvík hf., Síldar og fiskimjöls-
verksmiðju Akraness hf., Verkfræði-
og teiknistofan sf., og Vélsmiðjunni
hf.
Bæjarstjóra hefur verið falið að
ræða við forsvarsmenn hlutaðeig-
andi fyrirtækja.
Breytingar á eignarhlut
í dvalarheimilinu Höfða
Fyrir nokkru kynnti bæjarstjóri
Akraness stjórnarmönnum dvalar-
heimilisins Höfða hugmyndir um
hugsanlega breytingu á eignarhlut-
deild eignaraðila, en hrepparnir
sunnan Heiðar hafa farið fram á
þær, með tilliti til breytts íbúafjölda
á hverjum stað. Eignarhlutdeild
Akranesbæjar er nú 87,5%, en
hreppanna 12,5%. Vegna fjölgunar
íbúa á Akranesi miðað við hrepp-
anna eru uppi hugmyndir á að
breyta hlutföllunum í 90% hlut Akra-
ness og 10% hlut hreppanna.
Mál þetta er nú I athugun.
Þá hefur bæjarráð heimilað stjórn
Höfða að láta vinna fullnaðarteikn-
ingar á grundvelli fyrirliggjandi bygg-
ingarnefndarteikningar 2.áfanga
heimilisins. Samþykktin takmarkast
þó við ráðstöfunaríé framkvæmdar-
og fjáröflunarnefndar. -HM