Tíminn - 21.02.1987, Side 11
10 Tíminn
lllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR
Laugardagur 21. febrúar 1987
Laugardagur 21. febrúar 1987
(ÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllll
Tíminn 11
Yerð
HUSGÖGN OG ■**
INNRETTINGAR co cq
SUOURL ANDSBRAUT 18 V/O Oí/
rúmsamstæður
Dýnustærð: 90x200 cm.
Hún er alltaf laus
og býöurþér
ArsAvöxtun
20.4%
★ Haa vexti frá fyrsta innborgunardegi
★ Vexti sem færðir eru á höfuðstói
tvisvar á ári
★ Hávaxtaauka reynist verðtryggð
kjör betri
Ísland-Júgóslavía:
Stærsti viðburður
ársins í handknatt-
leiknum hérlendis
Pað leikur lítill vafi á að heim-
sókn Júgóslava hingað til lands er
stærsti viðburður á handknatt-
leikssviðinu hérlendis í ár, það
eina sem gæti slegið henni við
væri ef heimsliðið kæmi hingað til
lands eins og menn hafa látið sig
dreyma um. Það er ekki á hverj-
um degi sem heimsmeistararnir
sjálfir gera sér ferð til íslands.
Það er reyndar merki um styrk
íslensks handknattleiks að þeir
skuli yfirleitt hafa áhuga á að leik
hér. Júgóslavar skipuleggja
leikjaplanið langt fram í tímann
og spila ekki á móti eins sterku
liði og ísland er nema í mjög
góðu formi.
Einn sigur
fslenska landsliðið í hand-
knattleik hefur aðeins unnið
heimsmeistara Júgóslava einu
sinni af þeim 15 skiptum sem
liðin hafa mæst. Þá voru þeir líka
teknir í bakaríið, 20-13 í Laugar-
dalshöll fyrir tveimur árum eins
og allir handknattleiksunnendur
muna. Tvisvar hefur orðið jafn-
tefli en Júgóslavar hafa unnið 12
sinnum. Markatalan er 274-329.
Leikur nr. 444
Leikur íslendinga og Júgósiava
á mánudaginn verður 444. lands-
ieikur íslands í handknattleik í
meistaraflokki karla. í þessum
443 leikjum hafa þeir sigrað 177
sinnum, gert 42 jafntefli og tapað
224 sinnum. Þeir hafa skorað
8895 mörk en fengið á sig nokkuð
færri, 8838. Fyrsti landsleikurinn
var í Lundi í Svíþjóð árið 1950, á
HM. Hann tapaðist reyndar7-15.
Kristján markahæstur
Kristján Arason er markahæst-
ur íslensku leikmannanna, hann
hefur skorað 711 mörk í 137
leikjum eða rúmlega 5 mörk að
meðaltali í leik. Næstur kemur
Sigurður Gunnarsson með rúm 3
mörk í leik, 343 mörk alls og
Sigurður Sveinsson hefur skorað
tæp 3 mörk í hverjum leik að
meðaltali, 304 mörk alls. Bjarni
Guðmundsson hefur hinsvegar
skorað næst flest mörk alls, 496 í
199 leikjum.
Forsaia á morgun
Forsala á leikina hefst á morg-
un kl. 13.00-16.00 í Laugardals-
höll en síðan verður byrjað að
selja miða kl. 17.00 leikdagana.
Leikirnir hefjast mánudag og
þriðjudag kl. 20.30.
Bjarni leikur sinn
tvöhundraðasta lands-
leik á mánudaginn
Bjarni Guðmundsson leikur í ís-
lenska landsliðsbúningnum í hand-
knattleik í 200. skipti á mánudags-
kvöldið. Móthcrjarnir eru ekki af
verri sortinni eins og fram hefur
komið, heimsmeistararnir sjálfir
Júgóslavar.
Bjarni er leikjahæstur allra íslend-
inga fyrr og síðar og gildir það jafnt
um handknattleik sem aðrar greinar.
í þessum 199 landsleikjum sem að
baki eru hefur Bjarni skorað 496
mörk. Það vita sjálfsagt allir að
Bjarni leikur í horninu en hann er
einnig þekktur fyrir gífurlegan
spretthraða sem kemur að góðum
notum í hraðaupphlaupum. Bjarni
leikur í V-Þýskalandi með Wanne-
Eikel í 2. deild.
Þorbjöm kemur næstur
Þorbjörn Jensson er næst leikja-
hæsti leikmaðurinn, með 157 leiki.
Þá kemur Kristján Sigmundsson
með 141, Kristján Arason með 137,
Þorgils Óttar Mathiesen með 136,
Einar Þorvarðarson með 134, Páll
Ólafsson með 125, Guðmundur
Guðmundsson með 121, Sigurður
Gunnarsson með 110 og Sigurður
Sveinsson með 102. Alls eru þetta 10
leikmenn með yfir 100 landsleiki
auk þess sem Alfreð Gíslason leikur
sinn 100. leik á mánudag. Liðið er
gífurlega leikreynt og má til saman-
burðar nefna að leikjahæsti Júgósl-
avinn sem kemur hingað er mcð 86
leiki að baki.
Meðaltalið yfir 100
í framhaldi af þessu er gaman að
leika sér að því að reikna út meðal-
talslandsleikjafjölda liðsins í heild.
Þegar 18 manna hópurinn sem valinn
hefur verið og sagt var frá í blaðinu
í gær er tekinn kemur út merkileg
tala, tæplega 105. Efafturerskoðað
líklegt byrjunarlið á mánudaginn
hækkar talan enn og fer í tæplega
134. Til samanburðar er meðaltalið
í 14 manna hóp Júgóslavanna tæpir
35 leikir. Búast má við að hver
leikmaður bæti við sig milli 40 og 50
leikjum fram yfir ólympíuleikana í
Seoul og svo geta menn dundað sér
við að reikna hvað þá kemu út. Svo
mikið er víst að það er liðin tíð að
íslenska landsliðið í handknattleik
tapi vegna reynsluleysis.
“Heyrðu dómari, Alli er fyrir innan,“ segir Ámi Friðleifsson Víkingur. Aðalsteinn Jónsson lítur á aðstæður, sannarlega virðist þarna
vera einhverskonar lína
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Guðmundur á útopnu
gegn sterkum Blikum
- Víkingar sigruðu Breiðabliksmenn 27-21 í toppuppgjöri 1 .deildarinnar
íslandsmótið í handknattleik, l.deild:
Valsmenn sigruðu
slaka Akureyringa
Valsmenn áttu ekki í miklum
erfiðleikum með að sigra KA frá
Akureyri í l.deildarleik í handbolta
í gærkvöldi. Valsarar yfirgáfu Laug-
ardalshöllina glaðir í bragði eftir að
hafa unnið með 33 mörkum gegn 27.
Staðan í hálfleik var 18-13 fyrir
Reykjavíkurliðið.
Leikurinn var jafn til að byrja
með en í síðari hluta fyrri hálfleiks-
ins fór að skilja að með liðunum.
Akureyringarnir neituðu hinsvegar
að gefast upp í síðari hálfleiknum,
náðu að minnka muninn í eitt mark
24-23 en betri endasprettur Vals-
manna tryggði þeim sanngjarnan
sigur.
Jakob Sigurðsson var bestur
Valsmanna, skoraði 8 mörk en þeir
Stefán Halldórsson, Þorbjörn
Guðmundsson og Júlíus Jónasson
skoruðu 5 mörk hver. Stefán átti
góða spretti í leiknum.
Hjá KA voru Jón Kristjánsson og
Pétur Bjarnason bcstir og einnig
markahæstir. Jón skoraði 7 mörk,
Pétur 6 og Guðmundur Guðmunds-
son skoraði 5 mörk.
Varnir beggja liða voru lélegar í
gærkvöldi og markvarslan kannski
þar af leiðandi lítil.
Guðmundur Guðmundsson fyrirliði Vík-
inga var á útopnu í síðari hluta leiks Víkings
og Breiðabliks, toppliðanna í l.deild ís-
Bjarni Guðmundsson gerir sig líklegan til að skora eitt af 496 landsleikjamörk-
um sínum.
Staöan:
Staðan í 1. deild karla á íslandsmótinu
í handknattleik eftir leikina í gærkvöldi:
Vikingur-Breiðablik.............. 27-21
Valur-KA......................... 33-27
Víkingur.......... 13 11 1 1 312-266 23
Breiðablik......... 13 8 2 3 300-290 18
FH ............... 12 8 1 3 300-269 17
Valur.............. 13 7 2 4 326-293 16
Stjarnan........... 12 5 2 5 306-285 12
KA ................ 13 5 2 6 300-310 12
Fram .............. 12 5 0 7 283-279 10
KR ................ 12 4 1 7 237-263 9
Haukar............. 12 2 2 8 252-292 6
Ármann............. 12 0 1 11 235-304 1
landsmótsins í handknattleik. Hann skoraði
hvert markið á fætur öðru og tryggði öðrum
fremur Víkingi sigur á Kópavogsbúunum.
Leikurinn fór 27-21 fyrir Reykjavíkurpilt-
ana eftir geysiskemmtilega viðureigá þar
sem bæði liðin gerðu sinn skammt af
mistökum en bættu það upp með skemmti-
legum fléttum á milli.
Leikurinn var í járnum fyrstu tuttugu
mínúturnar en þá sigu Víkingar fram úr og
leiddu í hléi 14-9. Breiðabliksmenn komu
ákveðnir til leiks í síðari hálfleik, léku af
skynsemi og minnkuðu muninn jafnt og
þétt. Þeir tóku mann úr umferð hjá Víkingi
og er síðari hálfleikur var hálfnaður var
staðan aftur orðin jöfn 17-17. Þessu náðu
Kópavogsbúarnir ekki að fylgja eftir, lykil-
leikmennirnir Björn og Aðalsteinn Jóns-
synir greinilega orðnir þreyttir og Víkingar
gengu á lagið. Enginn þó sem Guðmundur
Guðmundsson besti hornamaður fslend-
inga. Hann fór á kostum, skoraði á alls
konar hátt og er flautað var til leiksloka
hafði hann gert 10 mörk alls, sannarlega
besti maður vallarins.
Víkingar virðast æ líklegri til að næla sér
í íslandsmeistaratitilinn. Kristján Sig-
mundsson var góður í markinu, varði m.a.
3 vítaskot. Karl Þráinsson og Árni Friðleifs-
son, ásamt Bjarka Sigurðssyni og Einari
Jóhannssyni í vörninni léku allir vel.
Enginn skar sig úr í Blikaliðinu, Guð-
mundur Hrafnkelsson lék þó mjög vel í
markinu í síðari hálfleik. Aðalsteinn skor-
aði mest, 5 mörk en Svafar Magnússon og
Jón Þórir Jónsson skoruðu 4 mörk hvor.
Knattspyrna:
Boca gengur
vel eftir að
Menotti kom
Stórliðinu argentínska Boca
Juniors hefur sannarlega gengið
allt í haginn í knattspyrnunni þar
í landi st'ðan Cesar Luis Menotti
tók þar við stjórninni fyrir
skömmu.
Menotti, sem þjálfaði lið Arg-
entínumanna er varð heimsmeist-
ari árið 1978, hefur stjörnað lið-
inu í fjórum dcildarleikjum og
hefur liðið unnið þá alla, skorað
átta mörk í þcim en aðeins fengið
á sig aðeins eitt.
Boca hefur ekki unnið titil
síðan Diego Maradona hjálpaði
þeim að vinna dcildarmcistaratit-
ilinn árið 1981. Nú gæti hinsvegar
orðið breyting á, þökk sé Menotti'
og hæfileika hans að stjórna og
öðlast virðingu leikmanna sinna.
Þetta stórlið argentínskar knatt-
spyrnu er nú aðeins nokkrum
stigum á eftir þeim liðum er leiða
deildina.
Evrópukeppni B-þjóða u-16 ára í badminton:
ísland í tíunda sæti
fslenska landsliðið í badminton
varð í 10. sæti af 12 í Evrópukeppni
B-þjóða undir 16 ára aldri í badmint-
on. Keppnin fór fram í Strassbourg
í Frakklandi um síðustu helgi.
fslenska liðið var í riðli með
Austurríkismönnum og Svisslend-
ingum. Leikurinn gegn Austurrík-
ismönnum tapaðist stórt en gegn
Sviss var tapið mjög naumt, 4-3 og
voru tapleikirnir þrír allir oddaleik-
ir, þ.e. þrjár lotur þurfti til að fá
úrslit.
Fyrirkomulagið á keppninni var
þannig að sigurvegarar hvers riðils
kepptu um 1.-4. sætið, næstu lið um
5.-8. sæti og botnliðin um 9.-12.
sæti. ísland keppti því um 9.-12.
sætið. Þar vannst stórsigur á ítölum
og Spánverjum en í síðasta leik
sigruðu Frakkar 5-2 og 10. sætið
varð því hlutskipti íslendinga.
Austurríkismenn höfnuðu í 3.
sæti, á eftir Pólverjum og Sovét-
mönnum sem voru með langsterk-
ustu liðin. Svisslendingar urðu í 5.
sæti, þeir unnu sína leiki um 5.-8.
sætið alla 7-0.
Jóhann Kjartansson landsliðs-
þjálfari sagði í spjalli við Tímann að
raunhæft hefði verið að íslenska
liðið endaði í 6. eða 7. sæti, þeir
hefðu verið óheppnir með riðil eins
og sjá mætti á árangri Svisslendinga
sem íslenska liðið tapaði mjög
naumt fyrir. Hann gæti því ekki
verið ánægður með 10. sætið en
hinsvegar væri þátttaka á svona móti
mjög góð reynsla fyrir krakkana.
Jón Zimsen náði bestum árangri
íslcnsku keppendanna og vann alla
sína leiki í einliðaleik. Hann var í
hópi sterkustu leikmannanna á mót-
inu. Bróðir hans, Óli Björn Zimsen
var aftur á móti yngsti keppandinn,
aðeins 13 ára og vakti hann athygli
fyrir góða tækni.
íþróttaviðburðir
helgarinnar
Handknattleikur
ÍSLAND-JÚGÓSLAVÍA Laugardalshöll
mánuda}> kl. 20.30
1. deild karla:
Haukar-Stjarnan (S) Id.
KR-FH (L) sd.
1. dcild kvenna:
Stjarnan-KR (D) Id.
Fram-ÍBV (L) Id.
Ármann-Víkingur (L) Id.
Valur-FH (L) sd.
2. dcild karia:
Fylkir-ÍBV (B) Id.
ÍR-HK (B) Id.
Atturelding-ÍA (V) Id.
ÍBK-Rcynir (K) sd.
kl. 14.00
- 20.00
- 15.15
- 14.(K)
- 15.15
- 15.15
- 14.00
- 15.15
- 14.00
- 14.00
kl. 14.00
- 20.00
15.30
L=Laugardalshöll, S=Strandgata Hafnar-
firði, D=Digranes Kópavogi, B=Seljaskóli
Breiðholti V=Varmá K=Keflavík.
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild:
KR-ÍBK (H) sd.
Valur-Fram (B) sd.
1. dcild kvcnna:
KR-ÍR (H) sd.
1. deild karla:
Þór-DMFG (A) Id. - 14.00
UBK-ÍS (D) sd. - 20.00
H=Hagaskóli, B=Seljaskóli Breiðholti,
A = Akurcyri, D=Digranes Kópavogi.
Blak
1. dcild karla:
ÍS-Þróttur N. (H) Id.
Fram-KA (H) Id.
1. deild kvcnna:
ÍS-Víkingur (H) Id.
kl. 14.CK)
- 15.15
16.30
Glíma
Körfuknattleikur:
Tap hjá ÍS
ÍBK sigraði ÍS með 61 stigi gegn
40 í leik liðanna í 1. deild kvenna í
körfuknattleik í fyrrakvöld. ÍBK
hefur þar með náð 2. sætinu í
deildinni af ÍS en KR er í efsta sæti
og hefur þegar sigrað í deildinni.
Bikiirglíma Islands vcröur háð t íþrótta-
húsi Kennaraháskólans í dag og hefst kl.
15.00. Kcppcndur eru 21 og keppa þcir í
tveimur flokkum, 20 ára og cldri og yngri cn
20 ára.
Skíði
Einar ólafsson kcppir í 50 km göngu á
HM í Oberstdorf í dag.
Visa-Bikarmót SKÍ verður á Akureyri um
hclgina og verður keppt í göngu. Kcppni
hcfst báða dagana kl. 11.00. Þá verður og
kcppt í alpagrcinum á Akureyri, mótið scm
átti að vcra á Dalvík hefur vcrið fært þangað
vcgna snjóleysis.
Badminton
Unglingamcistaramót TBR vcrður í gangi
alla helgina í TBR húsinu við Gnoðarvog.
Sund
Sundmót Aspar hcfst í Sundhöllinni í
Reykjavík í dag kl. 17.00. Kcppcndur verða
allt bcsta sundfólk landsins, fatlað scm
ófatlað þar á mcðal A-landsliðið.
Knattspyrna
Kcppni í þýsku 1. dcildinni í knattspyrnu
hcfst að nýju í dag eftir 11 vikna hlc. Mcðal
lcikja má ncfna viðureignir Baycr Ucrding-
cn og Homburg annarsvegar og Stuttgart og
Waldhof Mannhcim hinsvegar.
„CABÍNA“
GETUR Dll AN HEWNflR