Tíminn - 21.02.1987, Page 16
Kosningaskrifstofa
Framsóknarfélaganna í Reykjavík er í Nóatúni
21 og er opin kl. 9.00-17.00 virka daga.
Síminn er 24480.
Kosningástjóri er Eiríkur Valsson.
Lítiö inn hjá okkur - þaö er alltaf heitt á
könnunni.
Framsóknarfélögin í Reykjavík.
Reykvíkingar
Guömundur G. Þórarinsson veröur með viö-
talstíma miövikudaginn 24. febrúar kl. 10.00-
12.00 í Nóatúni 21.
Framsóknarflokkurinn.
Reykjanes
Kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi er
í Hamraborg 5, Kópavogi.
Skrifstofan er opin alla daga frá 9.00-18.30.
Kosningastjóri er Hermann Sveinbjörnsson.
Símar skrifstofunnar eru 91 -41590 - 40225 -
40226.
Verið velkomin.
Hafnarfjörður - framsóknarvist
Þriggja kvölda spilakeppni hefst í félagsheimilisálmu íþróttahúss
Hafnarfjaröar föstudaginn 27. febrúar kl.20.30. Seinni kvöldin veröa
13. og 27. mars.
Góö kvöld- og heildarverðlaun.
Allt spilafólk velkomiö
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
Vestfiröir
Kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins aö Hafnarstræti 8 ísafirði er nú opin daglega.
Síminn er 94-3690. Kosningastjóri er Geir.Sigurðsson.
Framsóknarflokkurinn
Austurland
Kosningaskrifstofa
Kjördæmissambands framsóknarmanna á Austurlandi er aö Lyngási
1, Egilsstöðum, sími 1584. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl.
9 til 17.
Kosningastjóri er Skúli Oddsson.
Norðurland vestra
Skagfirðingar -
Sauðárkróksbúar
Komið í morgunkaffi með Stefáni ( Framsókn-
arhúsið laugardaginn 21. þ.m. kl. 10-12 f.h. og
sþjallið um pólitík og kosningar.
Framsóknarfélagið.
Suðurland
Kirkjubæjarklaustur og nágrenni
Jón Helaason ráðherra, Þórarinn Sigurjónsson alþingismaöur ásamt
Guöna Agústssyni og Unni Stefánsdóttur verða til viðtals og ræða
þjóðmálin í félagsheimilinu laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00.
Allir velkomnir
Hella- og nágrenni
Jón Helgason ráðherra og Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður
ásamt Guðna Ágústssyni og Unni Stefánsdóttur verða til viðtals og
ræða þjóðmálin í grillskálanum á Hellu þriðjudaginn 24. febr. kl. 21.00.
Allir velkomnir
Kosningaskrifstofa
Kjördæmissambands framsóknarmanna á Suðurlandi Eyrarvegi 15
Selfossi er oþin alla virka daga frá kl. 9.00 til 12.00, sími 99-2547.
Ein'nig er skrifstofa Þjóðólfs ogin á sama tíma sími 99-1247.
Alltaf heitt á könnunni.
DAGBÓK
Laugardagur 21. febrúar 1987
80 ára cr í dag, laugard. 21. febrúar,
Ingileif YViium frá Fagradal í Vopnafirði,
til heimilis að Hveramörk 8, Hveragerði.
Hún er í dag stödd á heimili sonar síns að
Fremra-Nýpi í Vopnafirði.
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sunnudaginn
22.febr.1987.
BIBLÍUDAGURINN
Tekið á móti framlögum til Biblíufélags-
ins í messunum.
Árbæjarprestakall
Barnasamkoma í Foldaskóla í Grafar-
vogshverfi laugardag kl. 11 árdegis,-
Barnasamkoma í safnaðarheimili Árbæj-1
arsóknar sunnudag kl. 10.30 árdegis.
Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 14
Organisti Jón Mýrdal. Foreldrum vænt-
anlegra fermingarbarna sérstaklega boðið
til guðsþjónustunnar. Samvera í safnað-
arheimilinu eftir messu. Fjallað um ferm-
ingarundirbúning og framkvæmd ferm-
inga í vor. Kaffiveitingar í boði kvenfé-
lagsÁrbæjarsóknar. Sr. GuðmundurÞor-
steinsson.
Áskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtsprestakall
Barnaguðsþjónusta í Breiðholtsskóla kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Tekið við gjöf-
um til Hins fsl. biblíufélags. Organisti
Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja
Barnasamkoma kl. 11. Guðrún Ebba
Ólafsdóttir og Elín Anna Antonsdóttir.
Guðsþjónusta kl. 14. Helgi Elíasson
bankaútibússtjóri flytur stólræðu. Organ-
isti Guðni Þ. Guðmundsson. Fundurmeð
foreldrum fermingarbarna eftir messuna.
Konukvöld bræðrafélagsins kl. 20.30.
Bræðurnir baka og bera fram veitingar.
Óskar Magnússon flytur ræðu. Æskulýðs-
félagsfundur þriðjudagskvöld. Félagsstarf
aldraðra miðvikudagseftirmiðdag. Sr.
Ólafur Skúlason.
Digranesprestakall
Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
Dómkirkjan
Laugardag: Barnasamkoma í kirkjunni
kl. 10.30. Sönghópur úr Álftamýrarskóla
kemur í heimsókn. Egill og Ólafía. Messa
kl. 11. Sr. Hjalti Guðmundsson. Messa
kl. 14. Sr. Þórir Stephensen. Dómorgan-
istinn leikur á orgel kirkjunnar í 20 mín.
fyrir messuna kl. 11.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Árelíus Níels-
son.
Fella- og Hólakirkja
Laugardag: Barnasamkoma í Hóla-
brekkuskóla kl. 14. Sunnudag: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Rangheiður Sverr-,
isdóttir djákni. Kór Ölduselsskóla
syngur. Organisti Guðný Margrét Magn-
úsdóttir. Fundur í æskulýðsfélaginu
mánudagskvöld kl. 20.30. Sr. Hreinn
Hjartarson.
Fríkirkjan í Reykjavík >
Laugardag 21. jan.: Samvera fermingar-
barna kl. 14. Sunnudag: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðspjallið í myndum.
Barnasálmar og smábarnasöngvar. Af-
mælisbörn sérstaklega velkomin. Fram-
haldssaga. Við píanóið Pavel Smid.
Bænastundir á föstunni verða í kirkjunni
þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og
föstudaga kl. 18. Sr. Gunnar Björnsson.
Grensáskirkja
Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14.
Biblíudagurinn. Friðrik Schram guð-
fræðingur prédikar. Skátar koma í heim-
sókn og taka þátt í messunni. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Fimmtudag: Messa
í Furugerði 1 kl. 18. Sr. Halldór S.
Gröndal.
Hallgrímskirkja
Barnasamkoma og messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Þriðjudag: Fyrirbæna-
messa kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Fimmtudag: Opið hús fellur niður en
aukasýning á Kaj Munk verður fyrir
aldraða ogöryrkja í staðinn kl. 16. Uppl.
gefur safnaðarsystir í síma 39965.
Landspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
' Háteigskirkja
Messa kl. 10. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 14. Sr.
Arngrímur Jónsson. Organleikari Ort-
hulf Pruhnner.
Kársnesprestakall
Fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11 árdegis. Kór Kársnesskóla
syngur. Stjórnandi Þórunn Björnsdóttir.
Biblíulestur í safnaðarheimilinu Borgum
n.k. miðvikudagskvöld kl. 20. Sr. Arni
Pálsson.
Langholtskirkja
Kirkja Guðbrands biskups. Óskastund
barnanna kl. 11. Söngur, - sögur, -
myndir. Þórhallur Heimisson og Jón
Stefánsson sjá um stundina. Guðsþjón-
usta kl. 14. Prestur sr. Pjetur Maack.
Organisti Jón Stefánsson. Sóknamefndin.
Laugarneskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14 með þátttöku yngri og eldri skáta
úr Laugarneshverfi. Einnig kemur skáta-
félag frá Sólheimum í Grímsnesi í heim-
sókn. Mánudag: Æskulýðsstarf kl. 18.
Fundur með foreldrum og/eða forráða-
mönnum fermingarbarna verður kl.
20.30. Þriðjudag: Bænaguðsþjónusta kl.
18. Laugardag 28. febr.: Síðdegiskaffi
með fjölbreyttri dagskrá kl. 14.30. Sókn-
arprestur.
Neskirkja
Laugardag: Félagsstarf aldraðra kl. 15.
Valgarð Runólfsson skólastjóri Gagn-
fræðaskólans í Hveragerði segir frá skáld-
um og fleiru frá heimabæ sínum. Einnig
verða sýndar litskyggnur frá félagsstarf-
inu í vetur. Þá verður sýnd mynd Osvald-
ar Knudsen, „Þórsmörk", þar sem Jó-
hannes skáld úr Kötlum les kvæði sitt um
Þórsmörk. Sr. Frank M. Halldórsson.
Sunnudag: Barnasamkoma kl. 11. Munið
kirkjubílinn. Guðsþjónusta kl. 11. Ath.
breyttan tíma. Dr. Sigurður Örn Stein-
grímsson prófessor prédikar. Sr. Frank
M. Halldórsson. Mánudag: Æskulýðs-
starfið kl. 19.00. Þriðjudagogfimmtudag:
Opið hús fyrir aldraða kl. 13-17. Mið-
vikudag: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Frank M. Halldórsson. Fimmtudag:
Biblíulestur kl. 18.30. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
Seljusókn
Skátaguðsþjónusta í Ölduselsskóla f sam-
vinnu við skátafélagið Segul kl. 11.00.
Barnaguðsþjónusta í Seljaskólanum kl.
10.30. Guðsþjónusta í Ölduselsskóla kl.
14. Gísli H. Friðgeirsson eðlisfræðingur
og Vilborg R. Schram fóstra ræða um
efnið: Hvers virði er Biblían mér. Altaris-
ganga. Þriðjudag: Fundur í æskulýðsfé-
laginu Sela Tindaseli 3, kl. 20.30. Sóknar-
prestur.
Seltjarnarneskirkja
Barnaguðsþjónustakl. 11.00. Eirný og
Solveig Lára tala við börnin og stjórna
söng. Messa kl. 14. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Organisti Sighvat-
ur Jónasson. Aðalfundur Biblíufélagsins
veðrur haldinn í kirkjunni eftir messu.
Selkórin syngur við upphaf fundarins.
Opið hús fyrir unglingana mánudags-
kvöld kl. 20.30. Opið hús fyrir 10-12 ára
þriðjudagkl. 17.30. Sóknarprestur.
Frikirkjan í Hafnarflrði
Barnasamkoma kl. 11. Sr. Einar Eyjólfs-
son.
Félag eldri borgara:
„Opið hús“ í Sigtúni
Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni hefur „Opið hús“ í Sigtúni við
Suðurlandsbraut laugardaginn 21. febrú-
arkl. 14.00-19.00. Haraldur Steinþórsson
skýrir frá tilboðum í utanlandsferðalög
fyrir félaga FEB. Ólafur Þórðarson flytur
kveðskap og gamanmál.
Laugardagskaffi á Víkinni
Kvennalistinn verður með laugardags-
kaffi á Hótel Vík í dag laugardaginn 21.
febrúar frá kl. 14.00. Þar talar Hellen
Gunnarsdóttir, félagsfræðingur um inni-
hald lestrarbóka og viðhorf skólabarna til
kynhlutverka. Að sjálfsögðu verður heitt
kaffi á könnunni og allir velkomnir.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík stend-
ur fyrir félagsvist í dag, laugardaginn 21.
febrúar kl. 14.00 í félagsheimilinu Skeif-
unni 17. Allir velkomnir.
Tónleikar í
Tónlistarskóla Keflavíkur
í dag, laugard. 21. febrúar kl. 16.00
munu Nora Kornblueh sellóleikari, Ósk-
ar Ingólfsson klarinettuleikari og Snorri
Sigfús Birgisson píanóleikari halda tón-
leika í Tónlistarskóla Keflavíkur.
Á efnisskrá tónleikanna eru einleiks-
og kammerverk eftir Lautoslawski,
Webern, Schumann, Stravinsky og Beet-
hoven. Auk þess flytur Snorri Sigfús
nokkur lög úr barnalagaflokki sem hann
samdi haustið 1984.
Árshátíð
Átthagafélags Ingjaldssands
Átthagafélag Ingjaldssands heldur árs-
hátíð sína laugardaginn 28. febrúar kl.
19.00 að Ármúla 40.
Mímir:
Fyrirlestur um íslensk fræði
Mímir, félag stúdenta í íslensku við
Háskóla íslands, hefur í vetur staðið fyrir
röð fyrirlestra um íslensk fræði. Félagið
hefur fengið valinkunna fræðimenn til að
greina frá rannsóknum sínum á ýmsum
sviðum fræðanna. Næsti fyrirlestur í þess-
ari röð verður næstkomandi laugardag,
21. febrúar, í stofu 101 í Odda. Að þessu
sinni verður fjallað um málfræðileg efni,
Sigurður Konráðsson cand. mag. flytur
fyrirlestur sem hann nefnir: Um hljóð-
skipun.
Fyrirlesturinn hefst kl. 14.00 og er
öllum opinn.
Kynning á tillögum að
skipulagi Vesturfoæjar
íbúasamtök Vesturbæjar gangast um
þessar mundir fyrir kynningu á tillögum
að skipulagi Vesturbæjarins.
Kynningunni átti að Ijúka sl. fimmtu-
dag með fundi, en samþykkt var að
framlengja sýningu á tillögunum og er
sýningin því enn opin í dag í Hlaðvarpan-
um í stóra salnum kl. 15.00-18.00. Á
sýningunni má sjá teikningar, módel og
4«jrt, þar sem bæði eru úttekt á hinum
ýmsu þáttum í skipulagi hverfisins og
deihslcipulagi. Teiknistofa Guðrúnar
Jónsdóttur arkitekts hefur gengið trá
þessu á sýninguna.
Fræðslufundur FAAS
Félag aðsíandenda Alzheimersjúkl-
inga, FAAS, gengst fyrir fræðslufundi í
Hlíðarbæ, Flókagötu 53, Reykjavík, n.k.
laugardag, 21. febrúar. Húsið eropið frá
kl. 13.00 til 18.00.
Erindi verða flutt um sjúkdóminn,
umönnun sjúklinga, meðferð, félagslega
þjónustu, þjálfun o.fl.
Alzheimersjúkdómur (hcilabilun) er
algengastur þeirra sjúkdóma, sem valda
alvarlegum elliglöpum. en getur einnig
lagst á fólk á miðjum aldri. Þeim sem hafa
áhuga á þessum málum er velkomið að
mæta á fundinn í Hlíðarbæ. sem eins og
áður greinir hefst kl. 13.00 n.k. laugar-
dag.
Keflavíkurkirkja
Biblíudagurinn. Sunnudagaskóli kl.
11.00. Muniö skólabílinn. Guðsþjónusta
kl. 14.00. Skátar koma til kirkju í tilefni
af Baden Powell-degi. Sóknarprestur.
Félagsvist
Skagfirðingafélagsins
Skagfirðingafélagið í Reykjavík heldur
félagsvist í Drangey, Síðumúla 35, á
sunnud. 22. febrúar kl. 14.00.
Aðalfundur Kattavinafélagsins
Aðalfundur Kattavinafélags íslands
verður haldinn í félagsheimilil Óháða
safnaðarins Háteigsvegi, sunnudaginn 22.
febrúar og hefst kl. 2 (kl. 14.00). Stjórnin.
Félagsvist
Breiðfirðingafélagsins
Spiluð verður félagsvist í Sóknarsalum
Skipholti 50A sunnudaginn 22. febrúar
kl. 14.30. Kaffiveitingar á eftir. Verðlaun
verða afhent, bæði fyrir keppni dagsins
og heildarverðlaun fyrir þriggja daga
keppnina. Allir eru veíkomnir.
„Fávitinn“ eftir
Dostoévskí í MÍR
Á morgun, sunnud. 22. febr. kl. 16.00,
verður kvikmyndin „Fávitinn“ sýnd í
bíósal MÍR að Vatnsstíg 10, en hún er
gerð eftir samnefndri skáldsögu Fjödors
Dostoévskí. Myndin er frá árinu 1958 og
leikstjóri Ivan Pyriev, en með aðalhlut-
verkin fara J. Jakovlév, J. Borisova, N.
Podgorní og R. Maksimova. Skýringar-
textar með myndinni á íslensku.
Aðgangur að kvikmyndasýningum
MÍR er ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir.
Hið íslenska náttúru-
fræðifélag:
Fyrirlestur um eldvirkni á Jan
Mayen og fslandi
Mánudagskvöldið 23. febrúar kl. 20.30
flytur Páll ímsland jarðfræðingur fyrir-
lestur um eldvirkni á Jan Mayen og
íslandi á vegum Hins fslenska náttúru-
fræðifélags, uppruna og þróun virkninnar
í Ijósi óstöðugra rekbelta á Norður-
Atlantshafssvæðinu, frá því landrek hófst
þar fyrir um 60 milljón árum, en þá
skildust Noregur og Grænland að og haf
varð til á milli þeirra. Virku svæðin eða
rekbeltin hafa í tímanna rás flust til innan
svæðisins rekur Páll hver áhrif þeir flutn-
ingar hafa haft á eldvirkni á Jan Mayen
og fslandi.
Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu
101 f Odda, hugvísindahúsi Háskólansog
hefst kl. 20.30.
Félagsvist
Kvenfélags Kópavogs
Spiluð verður félagsvist n.k. mánudag,
23. febrúar kl. 20.30 f félagsheimilinu.
Allir velkomnir.
Fundur
Prestafélags Suðurlands
Prestafélag Suðurlands heldur fund í
safnaðarheimili Hveragerðiskirkju mánu-
daginn 23. febrúar kl. 20.30. Fundarefni:
Hirðisbréf biskups. Frummælendur eru
sr. Sigurður Sigurðarson og sr. Þorvaldur
Karl Helgason.
Skemmtikvöld Rangæinga
félagsins
Rangæingafélagið í Reykjavík heldur
skemmtikvöld þriðjud. 24. febrúar í Ár-
múla 40. Spiluð verður félagsvist, Sævar
Kristinsson stjórnar. Karlakvartett fé-
lagsins syngur undir stjórn Njáls Sigurðs-
sonar. Þórður Tómasson, safnvörður i
Skógum flytur ávarp.
Sunnudagsferðir Útivistar
1) Kl. 13.00 Þjóðleið mánaðarins: Lága-
skarð - Raufarhólshellir. Skemmtileg
gönguleið suður frá Hveradölum. Skoðað
verður mynni Raufarhólshellis, en þar
eru oft ísmyndanir á þessum tíma árs.
2) Kl. 13.00 Skíðaganga um Hellis-
heiði. Gott skíðagönguland. Brottför
verður frá BSÍ, bensínsölu. (600 kr.) Frítt
er fyrir börn með fullorðnum.
Ath. Öskjur fyrir ársritin eru komnar.
Góuferð verður í Þórsmörk 13.-15. mars.
Útivist, ferðafélag.
Sunnudagsferð F.í.
Kl. 13.00 Jósepsdalur göngu- og skíða-
ferð. Ekið verður að kaffistofunni og
gengið þaðan í Jósepsdal á skíðum - eða
fótgangandi. Þægilegt gönguland er í
Jósepsdal og við allra hæfi. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni austanmegin. Far-
miðar við bíl (400 kr.) Frítt er fyrir börn
í fylgd fullorðinna.
Ath. Kvöldvaka um eyðibýlin á Jökul-
dalsheiði verður miðvikud. 25. febrúar.
Ferðafélag íslands.