Tíminn - 21.02.1987, Page 19
- *
Laugardagur 21. febrúar 1987
lllllllllllllllliilll ÚTVARP/SJÓNVARP
Læknamistök í
Eldlínunni
Kl. 20.15
á mánudagskvöld
verður þátturinn í
Eldlínunni á Stöð 2 og verður þá
fjallað um mistök laekna, en oft
standa sjúklingar í þeirri trú að
þeir hafi verið fórnarlömb
mistaka lækna og sömuleiðis að
tilgangslaust sé að sækja rétt
sinn til þeirrar stéttar.
í þættinum verður rætt við fólk
sem telur sig hafa verið
fórnarlömb læknismistaka.
Einnig verður rætt við lækna og
aðra sérfræðinga sem málinu
tengjast.
Islendingurinn
Pétur
Guðmundsson
erlendis
Kl. 20.40
_ annað kvöld heilsar
^ Hans Kristján
Árnason öðru sinni upp á
þekktan íslending erlendis á
Stöð 2. Nú er það
körfuboltamaðurinn Pétur
Guðmundsson sem búsettur er í
Los Angeles um þessar mundir.
Það vakti ekki litla athygli
þegar Pétur var fenginn til liðs
við hið þekkta körfuboltafélag
Los Angeles Lakers og þar var
hann starfandi þegar þátturinn
var gerður. Síðan hafa orðið þau
umskipti að Pétur, sem verið
hefur á sjúkralista að
undanförnu, var seldur til San
Antonio Spurs í Texas.
Pótur Guðmundsson
körf uboltamaður er heimsóttur
á Stöð 2 annað kvöld kl. 20.40.
Utrás á vegum MH
Kl. 10.00
á mánudagsmorgun
taka nemendur
Menntaskólans við Hamrahlíð
völdin á útvarpsstöð
framhaldsskólanema, ÚTRÁS
sem sendir út á FM 88,6.
Lagningardagar MH eru einmitt
í næstu viku.
Dagskráin stendur yfir frá kl.
10 á morgnana til miðnættis.
Hún er hin veglegasta og
kennir þar ýmissa forvitnilegra
grasa. Er hér með vísað til
prentaðrar dagskrár sem birtist
í blaðinu. Fréttir eru á
klukkutíma fresti fram til kl. 20.
Amma Jose er staðráðin í því að láta hann fá menntun svo að hann
þurfi ekki að þræla á sykurekrunum ævilangt eins og hún.
SVERTINGJAGATAN
A MARTINIQUE
Kl. 21.45
1 á mánudagskvöld
sýnir Sjónvarpið
frönsku verðlaunamyndina
Svertingjagatan, sem gerist á
eynni Martinique í Vestur-
Indíum á fjórða áratugnum.
Sykurreyrinn umlykur
Svertingjagötuna. Þar búa
negrarnir sem vinna á
sykurekrum hvítu mannanna.
Drengurinn Jose býr hjá ömmu
sinni sem tók hann að sér þegar
hann missti foreldra sína.
Amman elur drenginn upp
með blíðu og góðum aga, en hún
er ákveðin í því að Jose skuli fá
skólagöngu svo að hann þurfi
ekki að þræla á sykurekrunum
ævilangt. Og Jose, sem er
námfús drengur, uppfyllir óskir
ömmu sinnar. Leið hans liggur
til höfuðborgarinnar og smám
saman opnast augu hans fyrir
raunverulegu ástandi á
Martinique.
Höfundur sögunnar, Joseph
Zobel ólst sjálfur upp á
Martinique en hefur um langt
skeið búið í Frakklandi. Ólöf
Pétursdóttir er þýðandi
myndarinnar.
Þegar megrun verður sjúkleg
Kl. 22.30
á mánudagskvöld
verður þáttur um
lystarstol í umsjá Önnu G.
Magnúsdóttur á Rás 1.
ímynd kvenlegrar fegurðar er
tággrönn og að sjálfsögðu leitast
flestar konur við að uppfylla þá
ímynd. En sumar þeirra, og þó
aðallega ungar stúlkur missa
stjórn á megruninni og ganga
svo langt að alvarlegur
næringarskortur hlýst af og
Sunnudagskaffi
á Akranesi
Kl. 15.10
fylgjast hlustendur
Rásar 1 með því
þegar Ævar Kjartansson
drekkur sunnudagskaffi með
útgerðarmönnum á Akranesi
og konum þeirra í
veitingahúsinu Stillholti.
jafnvel lífshætta.
Anorexia Nervosa, sem er
lystarstol, eða sjálfssvelti af
geðrænum toga, er sjúkdómur
sem hefur einmitt þessi
einkenni, samfara því að
sjúklingarnir hafa brenglaða
mynd af eigin útliti, ímynda sér
að líkami þeirra sé mun meiri
umfangs en hann raunverulega
er. Sjúkdómurinn hefur þekkst
lengi en verið talinn fremur
sjaldgæfur. Hins vegar hefur
tilfellum fjölgað mjög á
Vesturlöndum á undanförnum
árum, og ýmislegt bendir til að
svo sé einnig hér á landi.
í þættinum verður leitast við
að fá skýringar á orsökum þessa
sjúkdóms, útbreiðslu hans hér á
landi og möguleikum á
lækningu. Gestir þáttarins eru
Ingvar Kristjánsson geðlæknir
og Sigrún Júlíusdóttir
félagsráðgjafi. En þar að auki
heyra hlustendur frásögn
fertugrar konu sem átti við
þennan sjúkdóm að stríða um tíu
ára skeið.
Tímino 19.
Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
„ÁFRAM7
VEGINN“
- sagan um Stefán íslandi
©Kl. 14.00
á mánudag hefst
lestur nýrrar
miðdegissögu á Rás 1. Það er
Áfram veginn, sagan um Stefán
Islandi. Indriði G. Þorsteinsson
skráði eftir frásögn Stefáns
sjálfs. Sigríður Schiöth les.
Stefán íslandi er vafalaust
ástsælastur íslenskra söngvara,
hin bjarta og tæra tenórrödd
hans hefur yljað þjóðinni í meir
en hálfa öld. Stefán komst með
ævintýralegum hætti til
söngnáms á Ítalíu og söng eftir
það í óperuhúsum víða um heim.
Hann var fastráðinn söngvari
við Konunglega leikhúsið í
Kaupmannahöfn til 1966, að
hann fluttist heim til íslands.
Saga Stefáns, skráð af
sýslunga hans, Indriða G.
Þorsteinssyni, kom út hjá
Bókaforlagi Odds Björnssonar á
Akureyri 1975. Inn í lestur
Sigríðar verður fléttað dæmum
um söng Stefáns og í fyrsta lestri
mun hljóma ökuljóðið Áfram
veginn, þar sem raddfegurð
söngvarans nýtur sín hvað best.
Indriði G. Þorsteinsson skráði
söguna um Stefán íslandi,
Áfram veginn.
BARNA-
FRÉTTIR
_. i á Stöð 2
A/ Kl. 10.30
í morgun verður fyrsti
fréttatíminn fyrir
börn og unglinga á Stöð 2. Hann
hefur hlotið nafnið Fréttahornið
og er umsjónarmaður hans
Sverrir Guðjónsson.
Laugardagur
21. febrúar
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur“ Pétur Pét-
ursson sér um þáttinn.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 I morgunmund. Þáttur lyrir börn í tali og
tónum. Umsjón: Heiðdís Norðfjörð. (Frá Akur-
eyri)
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morguntónleikar. Fiðlukonsert í G-dúr
K.216 ettir Wolfgang Amadeus Mozart. Frank
Peter Zimmermann leikur á fiðlu með Fílharm-
oníusveit Berlínar; Hanns Martin Schneidt
stjórnar.
11.00 Vísindaþátturinn Umsjón: Stefán Jökuls-
son.
11.40 Næst á dagskrá Stiklað á stóru i dagskrá
útvarps og sjónvarps um heigina og næstu viku.
Umsjón: Trausti Þór Sverrisson.
12.00 Hér og nú. Frénir og fréttaþáttur i vikulokin
i umsjá fréttamanna útvarps.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Hér og nú, framhald.
13.00 Tilkynningar. Dagskrá. Tónleikar.
14.00 Sinna. Þáttur um tistir og menningarmál.
Umsjón Þorgeir Ólafsson
15.00 Tónspeglll. Þáttur um tónlist og tónmenntir
á liðandi stund. Umsjón: Magnús Einarsson og
Ólafur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Framhaldsleikrit barna og unglinga:
„Ævintýri Múminpabba" eftir Tove Jansson
17.00 Að hlusta á tónlist. 20. þáttur: Hvað er
sónata? Umsjón: Atli Heimir Sveinsson.
18.00 Islenskt mál Ásgeir Blöndal Magnússon
flytor þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Á tvist og bast. Jón Hjartarson rabbar við
hlustendur.
20.00 Harmonfkuþáttur. Umsjón: Einar Guð-
mundsson og Jóhann Sigurðsson. (Frá Akur-
eyrl).
20.30 „Okunn afrek - kvenhetja Ævar R. Kvaran
segir frá.
21.00lslensk einsöngslög. Ásta Thorstensen
syngur lög eftir Gunnar Revni Sveinsson.
21.20 Á réttri hillu Umsjón: Orn Ingi. (Frá Akur-
eyri)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma. Andrés Björnsson les
6. sálm.
22.30 Mannamót Leikið á grammófón og litið inn á
samkomu. Kynnir: Leifur Hauksson.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn Marin-
ósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 tll kl. 03.00.
9.00 Óskalög sjúklinga Helga Þ. Steph ensen
kynnir.
10.00 Morgunþáttur í umsjá Ástu R. Jó-
hannesdóttur.
12.00 Hódeglsútvarp meö fréttum og léttri tónlist
t í umsjón Margrétar Blöndal og Bjarna Dags
1 Jónssonar.
13.00 Listapopp í umsjá Gunnars Salvarssonar.
15.00 Við rásmarkið. Þáttur um tónlist, íþróttir og
sitthvaö fleira. Umsjón: Sigurður Sverrisson
ásamt íþróttafréttamönnunum Ingólfi Hannes-
syni og Samúel Emi Erlingssyni.
17.00 Savanna, Ríó og hin tríóin. Svavar Gests
rekur sögu íslenskra söngflokka í tali og tónum.
18.00 Hlé
20.00 Kvöldvaktin - Gunnlaugur Sigfússon.
23.00 Á næturvakt meö Siguröi Gröndal.
03.00 Daqskrárlok.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar
18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5 MHz.
Um að gera. Þáttur fyrir unglinga og skólafólk
um hvaöeina sem ungt fólk hefur gaman aö.
Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugsson.
Laugardagur
21. febrúar
14.55 Enska knattspyrnan - Bein útsending.
Bikarkeppnin: Tottenham - Newcastle.
16.45 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
18.05 Spænskukennsla: Hablamos Espanol.
Fimmti þáttur. Spænskunámskeið í þrettán
þáttum ætlaö byrjendum og Spánarförum. Is-'
lenskar skýringar: Guðrún Halla Túliníus.
18.30 Litli græni karlinn SögumaðurTinna Gunn-
laugsdóttir.
18.35 Þytur í laufi þriöji þáttir. Breskur brúðu-
myndaflokkur, framhald fyrri þátta um Móla
moldvörpu, Fúsa frosk og félaga þeirra. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
18.55 Háskaslóðir. (Danger Bay) Annar þáttur.
Kanadískur myndaflokkur fyrir börn og unglinga
um ævintýri við verndun dýra í sjó og á landi.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmóli.
19.30 Smellir Þungarokk II Umsjón: Trausti
Bergsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Lottó.
20.35 Fyrirmyndarfaðir (The Cosby Show) - 9.
þáttur. Bandarískur gamanmyndaflokkur með
Bill Cosby í titilhlutverki. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
21.05Gettu betur - Spurningakeppni fram-
haldsskóla Bein útsending: Fyrsta viðureign í
annarri umferð. Stjórnendur: Hermann Gunn-
arsson og Elísabet Sveinsdóttir. Dómari Steinar
J. Lúðvíksson.
21.35 Löggulíf - Fyrri hluti Nýjasta gamanmyndin
um ævintýri Þórs og Danna sem ganga nú til
liðs við verði laganna. Leikstjóri Þráinn Bertels-
son. Aðalhlutverk Eggert Þorleifsson og Karl
Ágúst Úlfsson.
22.20 Vals nautabananna (Waltz of the Torea-
dors) Breskbíómynd í léttumdúrfráárinu 1962.
Leikstjóri John Guillermin. Aðalhlutverk: Peter
Seliers, Dany Robin, Margaret Leighton, John
Frazer og Cyril Cusack. Fyrn/erandi herforingi
á að baki marga sigra í ástamálum ekki síður
en á vígvellinum. Sá gamli er enn við sama
heygarðshornið en verður loks að láta í minni
pokann fyrir yngri manni. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
00.10 Dagskrárlok.
Laugardagur
21.febrúar
8.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir. Valdís leikur
tónlist úr ýmsum áttum, lítur á það sem
framundan er hér og þar um helgina og tekur á
móti gestum.
Fréttir kl. 8.00 og 10.00.
12.00-12.30 í fréttum var þetta ekki helst. Rand-
ver Þorláksson, Júlíus Brjánsson, ofl. bregða á
leik.
12.30-15.00 Jón Axel á Ijúfum laugardegi.
Fréttir kl. 12.00 og 14.00.
15.00-17.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi
Rúnar Óskarsson leikur 40 vinsælustu lög
vikunnar.
Fréttir kl. 16.00.
17.00-19.00 Ásgeir Tómasson á laugardegi.
Léttur laugardagur með Ásgeiri, öll gömlu
uppáhaldslögin á sínum stað.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-21.00 Rósa Guðbjartsdóttir líturyfir atburði
síðustu daga leikur tónlist og spjallar við gesti.
21.00-23.00 Anna Þorláksdóttir í laugardags-
skapi. Anna trekkir upp fyrir kvöldið með tónlist
sem engan ætti að svikja.
23.00-04.00 Þorsteinn Ásgeirsson nátthrafn Byl-
gjunnar heldur uppi stanslausu fjöri.
4.00- 8.00 Næturdagskró Bylgjunnar. Harald-
ur Gíslason leikur tónlist fyrir þá sem fara seint
í háttinn og hina sem fara snemma á fætur.
Laugardagur
21. febrúar
09.00 Lukkukrúttin. Teiknimynd.
09.20 Högni hrekkvísi og Snati snarráði. Teikni-
mynd.
10.00 Penelópa puntudrós. Teiknimynd.
10.30 Herra T. Teiknimynd.
10.30 Fréttahornið Nú fá börn og unglingar sinn
eigin fréttatíma. Umsjónarmaður er Sverrir
Guðjónsson.
10.40 Prinsessa Fyrirliðanna. (Quarterback
Princcss.) Bandarísk sjónvarspmynd frá CBS
með Helen Hunt og Don Murray i aðalhlutverk-
um. Ung stúlka veldur miklum usla í heimabæ
sínum þegar hún gerist bakvörður amerísks
fótboltaliðs.
12.00 Hlé.____________________________________
16.00 Hitchock. Ung hjón flytja í nýtt hverfi og
komast að því að ungi drengurinn í næsta húsi
bruggar þeim banaráð.________________________
16.45 Heimsmeistarinn að tafli. Fyrsti þáttur af
sex. Hinn ungi snillingur, Nigel Short og heims-
meistarinn Garry Kasparov heyja sex skáka
einvígi fyrir sjónvarp á skemmtistaðnum Hipp-
odrome i London. Friðrik Ólafsson skýrir
skákirnar.
17.05 Ástarþjófurinn. (Thief of Hearts) Bandarísk
kvikmynd frá 1984.
18.35 Myndrokk.______________________
19.00 Gúmmibimimir. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
19.55 Undirheimar Miami (Miami Vice). Crockett
og Tubbs kljást við vopnasala sem er ekki allur
þar sem hann er séður._______________________
20.45 Teddy. Bandarísk bíómynd, byggð á sann-
sögulegum atburðum, með Craig T. Nelson og
Susan Blakely í aðalhlutverkum. Magnþrungin
mynd um Teddy Kennedy yngri, son öldungar-
deildarþingmannsins bandaríska.
22.40 lllur fengur (The silent partner). Með aðal-
hlutverk fara Elliot Gould, Christopher Plummer,
Susanne York. Maður nokkur gerir sig líklegan
til að ræna banka. En yfirgjaldkeri bankans deyr
ekki ráðalaus og ákveður að stinga vænni fúlgu
undan sjálfur.
00.25 Skókmót IBM Friðrik Ólafsson skýrir
skákirnar
00.40 í fótspor Flynns (In Like Flynn). Ung kona
nýtur vaxandi vinsælda sem spennubókahöf-
undur. I leit sinni að söguefni lendir hún (
ýmsum ævintýrum en hún gefuröðrum harðjöxl-
um ekkert eftir.
02.10 Myndrokk
03.00 Dagskrárlok.