Tíminn - 17.03.1987, Side 17
Þriðjudagur 17. mars 1987
Tíminn 17
Kristinn Finnbogason, framkvæmdastjóri Tímans. Á honum hvíla öll meiriháttar fjármálaumsvif og daglegur
rekstur fyrirtækisins. Hann á einnig sæti í stjórn Blaöaprents, en nú er verið að búa það nýjum tækjakosti
og byggja yfir fyrirtækið. Einnig er verið að reisa hús yfir starfsemi Tímans og þeirra blaða sem hafa samvinnu
um rekstur Biaðaprents.
Steingrimur Gíslason, auglýs-
ingastjóri, ásamt vösku starfsliði
sínu. Að baki honum eru Sigurrós
Kristinsdóttir, sölumaður, Sigríð-
ur Hulda Sveinsdóttir, ritari, Unn-
ur Ágústsdóttir, sölumaður, Þór-
unn Helga Guðmundsdóttir, sölu-
maður og Steinþóra Sigurðar-
dóttir, ritari.
áður en einu tölublaði lýkur og
er sent út til kaupenda, er vinna
hafin við næsta blað og jafnvel
fleiri tölublöð fram í tímann.
Þetta er eins og hringrás en samt
er hver dagur engum öðrum
líkur og langt því frá að tvö blöð
séu eins, þótt svipmót sé hið
sama.
Á Tímanum í dag er starfstil-
högun deildaskipt og hefur hver
deild og hver starfsmaður sín
verkefni, en samt verða allir að
vinna sem ein heild.
Útgefandi Tímans er Fram-
sóknarflokkurinn og Framsókn-
arfélögin í Reykjavík og hefur
sú tilhögun staðið í aðeins rúmt
ár, en lengst af hefur Framsókn-
arflokkurinn einn verið útgef-
andi blaðsins.
Stjórn útgáfufélagsins fer með
æðstu völd og allar mikilsháttar
ákvarðanir um stefnu og rekstur
blaðsins eru teknar á stjórnar-
fundum. Blaðstjórn ræður rit-
stjóra og ákveður umfangsmikl-
ar breytingar á útgáfunni þegar
svo ber undir. Hún skiptir sér
ekki af daglegum rekstri né
ráðningu annarra starfsmanna
Svanhildur Karlsdóttir, gjaldkeri.
Sigurbjörg Tómasdóttir, ritari og Kristín Haraldsdóttir, dreifingarstjóri.
Sverrir Sverrisson, bílstjóri og sendiherra.
Friðrikka Selma Tómasdóttir, bókari.
Kristín Guðmundsdóttir, sendiherra.
Helga Sigurðardóttir og Þórdís Linda Guðjónsdóttir, símaverðir.