Tíminn - 05.05.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Þriöjudagur 5. maí 1987
Salmonella sýkingin í Dölum:
Á fjórða tug
nú smitaðir
- gæti hafa komiö úr kjúklingi
Salmonellasýklarnir í Dölum gera
það ekki endasleppt og hafa nú á
fjórða tug manna smitast. Að sögn
Sigurbjörns Sveinssonar, heilsu-
gæslulæknis í Búðardal hefur ræktast
sýkill úr kjúklingum úr veitingasöl-
unni sem seldi þennan ólukku ferm-
ingarmat, en enn á eftir að tegundar-
greina salmonelluna, þ.e. hvort um
sé að ræða sama sýkil og angrað
hefur héraðsbúa.
Salmonella typhimurium nefnist
sá skæði sýkill sem Iagði á þriðja tug
manna í 3 fermingarveislum á
dögunum, en fleiri hafa lagst, því nú
hafa á fjórða tug manna smitast.
Höfðu þeir fengið mat úr veitinga-
sölunni í millitíðinni sem fermingar-
veislurnar voru og sýkingin uppgötv-
ast, en það var um vikutími.
Pó nokkur röskun hefur átt sér
stað á Búðardal og í nágrenninu, og
ennfremur hefur sýkingin valdið
miklu tjóni. Veitingasalan kemur
t.d. til með að skaðast mikið á
þessum veikindum, og en'nfremur
vitað um tilfelli á íslandi um að hann
hafi lagt nokkurn að velli. En það er
vitað að einkenni þessa salmonella-
sýkils eru svæsin ". -SÓL
Gleðiauki atvinnulausra námsmanna:
Atvinnumiðlunin
í Félagsstofnun
- milliliður stúdenta og atvinnurekanda
Atvinnumiðlun námsmanna hef-
ur tekið til starfa og er þetta 10.
starfsárið. Hún mun starfa út júní
mánuð og er þegar orðin viður-
kennd stofnun á atvinnumarkaðin-
um og gegnir mikilvægu hlutverki
eins og reynsla undanfarinna ára
sýnir. Mikill fjöldi námsmanna og
atvinnurekenda hafa í gegnum árin
leitað á náðir Atvinnumiðlunar og
flestir fengið farsæla úrlausn sinna
mála.
í fyrra skráðu tæplega 600 náms-
menn sig hjá miðluninni og má
búast við verulegri aukningu í ár.
Tveir starfsmenn munu starfa
við Atvinnumiðlunina í sumar og
er hún í Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut og er sfminn 621080 og
27860. SÓL
hefur mikil röskun átt sér stað hjá
Kaupfélagi Hvammsfjarðar og að
sögn Ólafs Sveinssonar hefur fjöldi
manns verið frá vinnu þar síðustu
viku og er það fólk í banni frá vinnu
næstu 3 vikurnar. Þurfti að ráða 1
manneskju í matvöruverslunina og í
bakaríinu þurfti að skipta algerlega
um starfsfólk.
Nokkuð víst er að sýkillinn hafi
komið með aðkeyptum hráefnum,
þannig að uppruninn sé ekki í
Dölum.
Sigurbjörn Sveinsson, heilsu-
gæslulæknir kvað sýkilinn mann-
skæðan í vissum tilfellum, en ekki er
Hraðsveitakeppni B.R.
Atlantik efst
Nú er lokið 6 umferðum af 9 í hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Efstu sveitir eru:
1. Atlantik................................ 125 stig
2. Einar Jónsson........................... 108 stig
3. Guðmundur Sveinsson...................... 95 stig
4- Delta..........................................94 stjg
Prjár síðustu umferðirnar verða spilaðar miðvikudaginn 6. maí og lýkur
þar með spilamennsku vetrarins.
Stjóm Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka og dómnefnd sjóðsins rannsakar hin ýmsu handrit og gefur viðeigandi
einkunnir. F.v.: Sigrún Klara Hannesdóttir, lektor, Ármann Kr. Einarsson, rithöfundur, Hildur Hermóðsdóttir,
nemi, Ragnar Gíslason, útgáfustjóri og Ólafur Ragnarsson, forstjóri.
NTUNARSIMI
91-651414
daga vikunnar kl. 9.00-22.00.
Póstverslunin Príma
Barnabókaverðlaun veitt í annað sinnr
Verðlaun veitt
um miðjan maí
- og bókin út
Dómnefnd á vegum Verðlauna-
sjóðs íslenskra barnabóka vinnur
um þessar mundir að því að velja
verðlaunahandrit til útgáfu í kjölfar
samkeppni sem sjóðurinn efndi til á
síðasta ári.
Islensku barnabókaverðlaunin
eru nú veitt í annað sinn, en í fyrra
hlaut Guðmundur Ólafsson verð-
launin fyrir bók sína Emil og Skundi.
Búist er við að niðurstaða dóm-
nefndar liggi fljótlega fyrir og er
stefnt að því að verðlaunabókin
komi á markað um miðjan maí. Alls
bárust um 30 handrit í samkeppnina
að þessu sinni.
Verðlaunasjóðurinn var stofnaður
1985 í tilefni af 70 ára afmæli barna-
bókahöfundarins vinsæla Ármanns
Kr. Einarssonar. Lögðu fjölskylda
Ármanns og Bókaútgáfan Vaka
fram stofnfé sjóðsins. Tilgangur
hans er að örva fólk til að skrifa
bækur fyrir börn og unglinga og
stuðla jafnframt að auknu framboði
Páll Lýðsson
í Litlu-Sandvík
- tekinn við formennsku í
Sláturfélagi Suöurlands
Páll Lýðsson bóndi í Litlu-Sand-
vík hefur verið kosinn formaðui
Sláturfélags Suðurlands. Formaðui
félagsins var áður Gísli Andrésson á
Hálsi í Kjós, en hann lést í bílslysi i
marsbyrjun í vetur.
Eftir fráfall Gísla tók Sigurður
Jónsson á Kastalabrekku í Rangár-
vallasýslu við formannsstarfi hans.
Sigurður var áður varaformaður fé- .
lagsins, en við varaformennskunm
tók þá Páll Lýðsson. 80. aðalfundur
á sama tíma
íslensks lesefnis fyrir áðurnefnda
aldurshópa á öðrum tíma árs en fyrir
jól.
Höfundur besta handritsins að
mati dómnefndar hlýtur 50.000
króna verðlaun að viðbættum höf-
undarlaunum samkvæmt samningi
Rithöfundasambands íslands og Fé-
lags íslenskra bókaútgefenda.
Sérstaða þessarar samkeppni er
að úrslit verða ekki tilkynnt fyrr en
verðlaunabókin er tilbúin til útgáfu.
Þessi háttur vakti töluverða athygli í
fyrra og hlaut verðlaunabók Guð-
mundar mjög góðar viðtökur í fyrra,
þrátt fyrir útgáfu á öðrum tíma árs
en hefðir hafa verið fyrir hér á landi.
íslensku barnabókaverðlaunin
verða þess vegna veitt sama dag og
bókin kemur út um miðjan maí.
Vaka-Helgafell gefur bókin út í
kiljuformi með það fyrir augum að
hægt verði að stilla verði hennar í
hóf. -SÓL
Páll Lýðsson í Litlu-Sandvík.
Sláturfélagsins var haldinn í Reykja-
vík á föstudag, en á stjórnarfundi að
honum loknum baðst Sigurður mjög
eindregið undan kjöri sem formaður
félagsins. Var Páll Lýðsson þá kos-
inn formaður í hans stað. -esig