Tíminn - 05.05.1987, Blaðsíða 13

Tíminn - 05.05.1987, Blaðsíða 13
Tíminn 13 Þriðjudagur 5. maí 1987 lllllllllllllllllllllllllH ÚTLÖND íil Japanski forsætisráðherrann: Stund milli stríða - Söng ástarsöngva á Hawaii - Fær tæp- lega Ijúfar móttökur á þingi Hawaii-Reuter Yasuhiro Nakasone forsætisráð- herra Japans naut lífsins og raulaði ástarsöngva á Hawaii áður en hann hélt heim á leið til að koma í gegn áætlunum sínum um að auka neyslu og örva efnahagslífið heima fyrir. Búist er við harðri andstöðu innan þingsins gegn áætlunum japanska forsætisráðherrans. Nakasone kemur til Tokyo í dag en hann hefur þegar lýst yfir að hann muni framlengja þinghaídi ef nauð- syn krefur til að koma tillögum sínum í gegn. Engin harka var þó á svip Nakas- one í fyrrakvöld þegar hann skemmti sér í garðveislu sem haldin var við Maui Prince hótelið á Hawaii. Þar dansaði forsætisráðherrann maga- dans á sviði, raulaði ástarsöng á frönsku og annan á japönsku sem kallast „Fuglinn einmana'*. Ekki var öllum hleypt inn í garð- veisluna en talsmaður forsætisráð- herrans sagði hann hafa verið af- slappaðan eftir viðræður við banda- ríska ráðamenn síðustu daga, þar á meðal við Reagan forseta. Nakasone lofaði í viðræðum sín- um í Bandaríkjunum að koma fram með tillögur er miðuðu að því að opna markaði að auka neyslu heima fyrir og opna þannig möguleika á aukinni eftirspurn eftir bandarískum vörum. Viðskiptajöfnuður Bandaríkja- manna við Japana er gífurlega óhag- stæður, nam um 58,6 milljörðum dollara á síðasta ári og virðist ekki ætla að minnka á þessu ári. Það er ólíklegt að japanskir þingmenn dotti mikið næstu daga enda ekki allir á eitt sáttir um að opna markaði heima fyrir og auka neysluna þar Dóttir Deng Xiaoping ræöir um fööur sinn í blaðaviðtali: Fótboltasjúkur óperuaðdáandi Hong Kong-Rcuter Deng Xiaoping leiðtogi Kína seldi sum föt sem hann átti til að geta fylgst með knattspyrnuleik á náms- árum sínum í Frakklandi. Þetta var haft eftir dóttur leiðtogans aldna. Það var dagblað eitt í Hong Kong, sem hlynnt er kínversku ríkisstjórn- inni, sem birti í gær óvenjulegt viðtal við Deng Lin. Þar sagði dóttir hins 83 ára gamla leiðtoga að bridge, fótbolti og Pekíngóperan væru helstu áhugamál föður síns. Deng Xiaoping sagði börnum sín- um að hann hefði meira að segja selt föt af sér til að geta fylgst með knattspyrnuleik þegar hann var við nám í París í byrjun þriðja áratugar- ins. Karlinn er enn við sama hey- garðshornið, hann situr sem límdur við sjónvarpsskerminn í hvert skipti sem sýnt er frá knattspyrnuleik. Dóttirin sagði að Deng hefði hægt um sig heima hjá sér og léti konu sinni, Zhuo Lin, eftir að stjórna þar. Samkvæmt kínverskri venju býr öll fjölskylda Dengs undir sama þaki, alls þrjár kynslóðir, utan einn sonur hans sem vinnur í Bandaríkjunum. Deng Lin er málari og meðlimur listaakademíunnar. Hún sagðist fá sömu laun og annað samstarfsfólk sitt, fjárupphæð sem samsvarar um 1200 íslenskum krónum á mánuði, og nyti engra sérfríðinda þótt faðir- inn væri leiðtogi landsins. Spennum beltin ALLTAF Deng Xiaoping Kínaleiðtogi: Ósköp venjuleg áhugamál. Breskt blaö birti viðtal við Klaus Barbie: Rannsókn á „undraverðu einkaviðtali“ Lyon-Reuter. Frönsk fangelsisyfirvöld hófu í gær rannsókn á hvernig bresku frétta- blaði tókst að ná í viðtal við þýska striðsglæpamanninn Kláus Barbie. Hann er nú í frönsku fangelsi og bíður þess að réttarhöld hefjist í máli hans. Það var vikublaðið Mail on Sunday sem birti viðtalið um helg- ina og kallaði það „ótrúlegt einka- viðtal“. Talsmenn blaðsins sögðust hafa smyglað inn spurningalista til hins 73 ára gamla fyrrum foringja í Gestapó, þýsku leynilögreglunni. Fangelsisyfirvöld munu hafa hug á því að vita hvort fangaverðir hafa hjálpað til í þessu viðtali. Mjög ströng öryggisgæsla hefur verið þar sem Barbíe, „Slátrarinn frá Lyon“, er í haldi. Réttarhöldin yfir Barbie hcfjast í Lyonborg í suðaustur Frakklandi í byrjun næstu viku og þar mun hann þurfa að svara fyrir mörg iliverk sem hann bar ábyrgð á er hann var yfirmaður Gestapó þar á árunum milli 1942 og 1944. í viðtalinu sem Mail on Sunday birti sagðist Barbie mundu íhuga hvort hann ætti ekki að nefna nöfn franskra borgara sem hefðu unnið fyrir Gestapó í síðari heimsstyrj- öldinni. Landbúnaðarvélartil sölu Tilboð óskast í eftirtaldar vélar: Ferguson 178 árg. 71 Ferguson 185 árg. 75 með ýtutönn, vökvalyftri. Jarðtætari 60 tomma, Howard. Vélarnar eru yfirfarnar og til sýnis á vélaverkstæði Guðmundar og Lofts, Iðu, Biskupsstungum. Tilboðum sé skilað til Braga Þorsteinssonar, Vatnsleysu fyrir 15. maí, sem gefur nánari upplýsingar í síma 99-6897. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Utboð Slitlög 1987, malbikun í Reykjanesumdæmi Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Malbikun og olíumalarlögn 61.000 ferm. Verki skal lokið fyrir 15. ágúst 1987. j Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í wpflAfíPRniM1 ReykJ'avík (aöalgjaldkera) frá og með 5. maí. viTAjMLatntJiiM Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00þann 18.maí 1987. Vegamálastjóri Útboð Slitlög 1987, klæðingar í Reykjanesumdæmi Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Yfirlagnir 127.000 ferm. V^pr Verki skal lokið fyrir 15. ágúst 1987. VEGAGERÐIN Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. maí. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þann 18. maí 1987. Vegamálastjóri Tónlistarskóli Miðneshrepps Staða skólastjóra Tónlistarskóla Miðneshrepps er laus til umsóknar og staða kennara sem getur tekið að sér píanó- og forskólakennslu. Umsóknum sé skilað til skólanefndar Tónlistar- skólans, Tjarnargötu 4, Sandgerði fyrir 5. júní n.k. Skólanefnd Aðalfundur Aðalfundur Límtrés hf., verður haldinn að Brautar- holti, Skeiðum, þriðjudaginn 12. maí 1987 kl. 21.00. Dagskrá samkvæmt félagssamþykktum. Stjórnin. Jörð óskast Félagasamtök í Reykjavík óska eftir jörð til kaups innan ca. 300 km frá Reykjavík. Upplýsingar í síma 33147 (Hanna) og 82205 (Jóhann). Lausar stöður Eftirtaldar stöður í tannlæknadeild Háskóla íslands eru lausar til umsóknar: Staða lektors I tannfyllingu og tannsjúkdómafræði. Staða lektors í tannholsfræði. Stöðunni fylgir einnig kennsluskylda í vefjafræði munns og kjálka. Lektorsstaða í bitfræði. Stöðunni fylgir einnig kennsluskylda í formfræði tanna. Hlutastaða lektors (50%) í tannvegsfræði. Hlutastaða lektors (37%) í meinafræði munns og kjálka. Hlutastaða lektors (37%) í almennri lyflæknisfræði. Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar frá 1. september 1987 til þriggja ára nema síðasttalda hlutastaðan, sem veitt verður til fimm ára. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir svo og námferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní- n.k. Menntamálaráðuneytið, 28. apríl 1987

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.