Tíminn - 05.05.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 5. maí 1987
FRÉTTAYFIRUT
GENF - Yuly Vorontsov,
helsti samningamaöur Sovét-
stjórnarinnar, sagðist búast viö
ao risaveldin tvö kæmust aö
samkomulagi um aö fjarlæga
allar meðaldrægar kjarnorku-
flaugar sínar frá Evrópu í af-
vopnunarviðræðum þeim sem
nú standa yfir í Genf.
JÓHANNESARBORG
- Óeirðalögregla réðist með
kylfum að þusundum stúdenta
á lóð háskólans í Jóhannesar-
borg í gær og foringi í öryggis-
lögreglunni varaði blökkumenn
vio því að efna til óeirða fyrir
kosningarnar á morgun þar
sem hvíti minnihlutinn gengur
að kjörborðinu.
NÝJA DELHI - Forseti
Indlands neitaði fréttum um að
hann hygðist koma Rajiv
Gandhi forsætisráðherra frá
völdum. Neitunin dró þó ekki
úr sögusögnum um að valda-
togstreita væri nú á æðstu
stöðum innan indversku stjórn-
arinnar.
MANILA — Skæruliðar
kommúnista á Filippseyjum
hótuðu að hefna sín á nokkrum
yfirmönnum stjórnarhersins og
stjórnmálamönnum fyrir ao
gera vinstrisinnuðum fram-
bjóðendum erfitt fyrir að kynna
málstað sinn fyrir þingkosnin-
garnar í landinu sem fram fara
i næstu viku.
NEW YORK - Reagan
Bandaríkjaforseti hélt uppi
vörnum fyrir stefnu stjórnar
sinnar í málefnum Mið-Amer-
íku og sagði að stuðningur við
Contra skæruliðana í Nicarag-
ua hjálpaði til við að varna
útbreiðslu sovéskra áhrifa á
þessu svæði.
TEL AVIV — (búar ísraels-
ríkis héldu upp á 39. þjóðhátíð-
ardag sinn í gær og Shamir
forsætisráðherra hvatti til að
frestað yrði að reyna að skipu-
leggja alþjóðlega friðarráð-
stefnu um málefni Mið-Austur-
landa.
RÓM — Stjórn Muammar
Kaddafis í Libýu neitaði á-
sökunum stjórna Ástralíu og
Nýja Sjálands um að hún væri
að skipta sér af málefnum
Suður Kyrrahafssvæðisins.
WASHINGTON — Banda-
rfska stórblaðið The Washing-
ton Post sagði að leiðtogar
Sýrlands og Trans, sem lengi
hafa átt í huamyndafræðileg-
um erjum, hefðu átt leynilegar
viðræour í síðustu viku og
hefði Hussein Jórdaníukon-
ungur verið gestgjafi þeirra í
Amman. Jórdanskur ráðherra
sagðist hinsvegar ekkert vita
af slíkum viðræðum.
ÚTLÖND
Hllllllllllli
llllllllllllllllllllli
Hlllllllllll
Bandaríkin:
Iranshneykslið inn á
heimili sjónvarpsáhorfenda
Washington-Keuter
Sjónvarpsútsendingar frá yfir-
heyrslum í bandaríska þinginu vegna
íransmálsins hefjast í dag. Margir
telja að þær geti átt eftir að draga að
nýju úr vinsældum og áhrifum Reag-
ans Bandaríkjaforseta.
Reagan hefur verið að rétta úr
kútnum síðustu tvo mánuðina eftir
að vinsældir hans hröpuðu mjög í
kjölfar uppljóstrana í sambandi við
vopnasöluna til Irans og það að hluti
ágóðans af þeirri sölu var sendur til
Contra skæruliðanna í Nicaragua.
Ráðamenn í Hvíta húsinu eru nú
áhyggjufullir vegna sjónvarpsút-
sendinganna því þar fær almenning-
ur í fyrsta skipti að heyra sögurnar
um vopnaviðskiptin beint frá lykil-
mönnum í málinu á borð við Richard
Secord, fyrrum yfirmann í flughern-
um, John Poindexter, fyrrum þjóð-
aröryggisráðgjafa, og jafnvel frá að-
stoðarmanni hans Oliver North.
Helst vonast embættismenn í
Hvíta húsinu að allt fari sem eðlileg-
ast fram og engin ný vitneskja komi
í ljós sem komi sér illa fyrir forset-
ann. Þetta er þó hæpið að gerist og
sérfræðingar spá að spurningum, um
hversu mikið Reagan hafi vitað um
vopnasöluna og mál tengd henni,
muni fjölga og þær gerast ágengari
þegar líður á vitnayfirheyrsluna sem
bandaríska þjóðin fær tækifæri til að
fylgjast með.
Það er sosum ekki ólíklegt að
eitthvað meira eigi eftir að koma
upp á yfirborðið í yfirheyrslunum.
Þær verða nefnilega haldnar í frægu
herbergi þingsins þar sem hneykslis-
mál á borð við Watergate og Titanic
sjóslysið hafa verið krufin til
mergjar.
Líbanon:
Karami
segir
af sér
Beirút-Reuler
Rashid Karami forsætisráðherra
Líbanons, sem er sunni múslimi,
tilkynnti um afsögn ríkisstjórnar
sinnar í gær, tíu manna „þjóðeining-
arstjórnar" sem skipuð var fyrir
þremur árum til að reyna að binda
enda á hið tólf ára gamla borgara-
stríð í Líbanon.
Karami sagði, eftir að hann til-
kynnti um afsögnina, að hann væri
sannfærður um að allt sem væri að
gerast í landinu nú stæði gegn hags-
munum fólksins. Hann sagði það
vera skyldu sína að segja af sér þar
sem hann hefði ætíð viljað starfa í
þágu hagsmuna fólksins.
Múslimar í stjórn Karamis hafa
ekki virt skipanir hins kristna forseta
landsins, Amin Gemayels, síðan í
janúar árið 1986 þegar honum mis-
tókst að koma í gegn friðartillögum
sem Sýrlendingar höfðu lagt fram.
Karami og átta aðrir ráðherrar
hittust í Mansourhöll fyrir tveimur
vikum til að ræða versnandi efna-
hagsástand í landinu. Það var raunar
fyrsti fundur stjórnarinnar í sjö mán-
uði og á honum var ljóst að sam-
komulagið hafði ekki batnað milli
múslima og kristinna manna innan
hennar.
Síðan þeim fundi lauk hafa her-
sveitir kristinna manna hvað eftir
annað krafist afsagnar Karamis og
auk þess hefur Walid Jumblatt, leið-
togi drúsa, gagnrýnt hann fyrir að
samþykkja fjárveitingar til líbanska
hersins en sveitir hans berjast við
bardagamenn drúsa í hlíðunum í
grennd við Beirút.
Hin svokallaða þjóðeiningar-
stjórn Karamis er því ekki lengur
nein þjóðeiningarstjórn og það
viðurkenndi forsætisráðherrann er
hann tilkynnti um afsögn sína: .
Við höfum komist að því, sérstak-
lega eftir síðustu tilraun okkar í
Mansourhöll sem ekki stóð lengi, að
ekki er hægt að ná sáttuni milli
austur- og vesturhluta Beirút," sagði
Karami.
Það voru Sýrlendingar sem studdu
stjórn Karamis er hún settist að
völdum þann 30. apríl árið 1984.
Litið var á „þjóðeiningarstjórnina"
þá sem síðasta tækifærið til að koma1
á sáttum milli hina stríðandi fylkinga
kristinna manna og múslima í Líban-
on og binda þannig enda á borgar-
arstríð síðustu tólf ára.
&
SPENNUM t
BELTIN ‘|
sjállra okkar !
vegna!
Frá Líbanon: Engin leið til að koma á friði?
Bæjaraland í Vestur-Þýskalandi:
Fimbulveður veldur dauða
Múnchen - Rcuter
Að minnsta kosti tveir menn létu
lífið og tveggja er enn saknað í
Bæjaralandi en þar geisuðu snjó-
stormar og miklar rigningar um
helgina.
Annar þeirra sem lést var bóndi,
56 ára gamall. Hann lét lífið eftir að
hlið hafði feykst upp og lent á
honum. Hinn var fimm ára gamall
snáði sem dó úr kulda eftir að hafa
dottið í vatn í höfuðborg Bæjara-
lands, Múnchen.
Mikið rigndi á láglendi en hærra
uppi fylltist allt af snjó. f Allgaeu
héraðinu vestur af Múnchen var t.d.
komið um 20 sentimetra þykkt snjó-
lag síðla á sunnudagskvöldið.
BLAÐAMAÐUR.u
Stríð tamila og sin-|
halesa á Sri Lanka!
ergrimmilegt ogá-
tökin blóðug.
Skæruliðar tamila
eru margir þjálfað-
iráSuður-Indlandi
og hluti þeirrar
þjálfunar er að
stökkva yfir eld,
það gerir þessi tam-
ili og dregur hvergi
afsér. Þetta varein
myndanna sem
birtist nú nýlega í
riti fréttaljósmynd-
ara yfir bestu
myndir síðasta árs.
Dans með
skilyrðum
Pekíng - Reuter
Fólk í Pekíng má dansa svo
lengi sem ljósin eru kveikt, ekk-
ert áfengi er selt á dansstaðnum
og hljómsveitin sem leikur undir
kunni að minnsta kosti tvö lög og
meðlimir hennar eigi fjóra jakka,
alla eins.
Pað var hin opinbera frétta-
stofa í Kína sem skýrði frá þessari
reglugerð ríkisstjórnarinnar um
dans er tók gildi þann 1. maí.
Fréttastofan sagði að hótel,
veitingastaðir og viðskiptamenn
þyrftu að sækja um dansleyfið
bæði hjá menningarmálaráðu-
neyti landsins svo og hjá iðnaðar-
og viðskiptaskrifstofunni.
Samkvæmt reglugerðinni verð-
ur ljósmagnið að vera fimm wött
eða meira á hverjum fermetra
dansstaðarins og ekki má ráða
þjónustufólk til að selja drykki.
Hljómsveitarmeðlimirnir
verða að vera eins klæddir, kunna
að minnsta kosti tvö lög og aðeins
spila þau lög sem lögleg eru.