Tíminn - 05.05.1987, Page 3
(Tímamynd: Pjetur)
Nýlunda á götum borgarinnar:
Þrír smokka-
sjálfsalar
- og fleiri væntanlegir innan tíöar
Þótt það teljist ekki nýlunda úti í
hinum stóra heimi þegar settur er
upp smokkasjálfsali á almannafæri
telst það svo sannarlega í Reykjavík.
Helsta athvarf þeirra borgarbúa,
sem hafa átt bágt með að biðja um
verjur til kaups í apótekum, hefur
verið almenningssalernið í Banka-
stræti, en umboðsmenn smokka á
íslandi hafa loksins ráðist í uppsetn-
ingu á smokkasjálfsölum. Tímanum
og landlæknisembættinu er kunnugt
um þrjá slíka; í Austurveri, Umferð-
armiðstöðinni og í biðskýlinu við
Hlemm. Sjálfsalarnir gleypa við tíu
og fimm krónu myntum.
„Það hefur verið ótrú á sjálfsölum
hér á landi,“ sagði Vilborg Ingólfs-
dóttir, deildarstjóri á Landlæknis-
skrifstofum. „Sennilega er því um
að kenna, að myntbreytingar hafa
verið örar svo og skemmdarfýsn,
sem sögð er landlæg á íslandi. En
þessi rök eru að mt'nu viti hrakin
með því, að nú er stöðugra gengi og
bensínsjálfsalarnir hafa t.d. verið
látnir í friði. Við höfum þess vegna
hvatt smokkaheildsala til að setja
upp slíka sjálfsala sem víðast."
Varðandi skemmdarfýsnina er
hægt að vitna um, að sumir þessara
sjálfsala eru jafn rammgerðir og
kortabankarnir. Reynist sjálfsalarn-
ir vel og skemmdarvargar sjái sér
hag í að skeyta skapi sfnu á öðru en
þeim, eru fleiri væntanlegir á göturn-
ar innan tíðar. þj
Þriöjudagur 5. maí 1987
Nýr framkvæmdastjóri
hjá Marel h.f.
Dr. Geir A. Gunnlaugsson,
verkfræðingur, hefur vertð ráðinn
framkvæmdastjóri Marels h.f. frá
1. maí s.l., en Gylfi Aðalsteinsson,
hagfræðingur, er verið hafði fram-
kvæmdastjóri frá stofnun félagsins
lét af störfum að eigin ósk 1. mars
s.l.
Geir A. Gunnlaugsson stundaði
nám í vélaverkfræði við Háskóla
íslands 1963-66 og Danmarks
Tekniske Höjskole 1966-70. Hann
stundaði síðan framhaldsnám við
Brown University í Bandaríkjun-
um og lauk þaðan doktorsprófi
1973. Hann varð dósent í vélaverk-
fræði við Háskóla íslands 1974 og
prófessor í sömu grein 1975 til
ársloka 1986. Síðastliðin fjögur ár
hefur Geir A. Gunnlaugsson verið
framkvæmdastjóri Kísilmálm-
vinnslunnar hf.
Geir A. Gunnlaugsson erkvænt-
ur Kristínu Ragnarsdóttur, meina-
tækni, og eiga þau þrjú börn.
Rannsóknarlögreglan í Keflavík:
Ránshópur
handsamaður
- en engin lög ná yfir hann
Undanfarna mánuði hefur mikill
innbrotafaraldur geisað um Keflavík
og hefur verið „nánast plága“, segir
Óskar Þórmundsson, rannsóknar-
lögreglumaður. Rannsóknarlögregl-
an hefur nú haft hendur í hári
þjófanna, sem eru sjö talsins, félagar
á aldrinum 14 til 15 ára. „Það ná
engin lög yfir þennan aldurshóp og
þessir piltar ganga á lagið,“ segir
Óskar.
Margir þeirra hafa komið við sögu
lögreglunnar áður. Meðal annars
voru þeir viðriðnir ávísanastuldinn,
sem frægur varð er ávísanir flugu í
tugatali um götur Keflavíkur, og
þeir brutust m.a. inn í félagsheimili
lögreglunnar fyrir ekki alls löngu.
Einnig hefur hópurinn farið inn í
myndbandaleigu og hljómtækja-
verslun, þar sem þeir hafa stolið
tækjum, en bíræfnin er slík, að þeir
fundu sér þar afdrep til að horfa á
sjónvarpið.
Nokkrir unglinganna eru í skóla,
en öðrum hefur verið vísað burt.
„Þessir drengir væru að sjálfsögðu
allir komnir í tugthúsið ef þeir hefðu
aldur til,“ sagði Óskar enn fremur.
Þangaðtil verðuraðbíðaátekta. þj
GRUNNSKÓLAKENNARAR! '
Allir stjórnmálaflokkar lofudu fyrir kosningar að efla lands-
byggðina. Takið þá á orðinu og leggjumst á eitt við að efla
grunnskólana á landsbyggðinni.
A Norðurlandi vestra eru stöður lausar við eftirtalda skóla:
GRUNNSKÓLISIGLUFJARÐAR.
Skólastjóri: Pétur Garðarsson.
Simi 96-71184.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla, erlend mál, iþróttir,
stærðfraeði, raungreinar, samfélagslræði og sérkennsla.
GRUNNSKÓLISAUÐÁRKRÓKS, efra stig.
Skólastjóri: Bjöm Sigurbjömsson.
Simi 95-5385.
Meöal kennslugreina: Danska, stærðfræði og raungreinar.
GRUNNSKÓLI SAUÐÁRKRÓKS, neðra stig.
Skólastjóri: Björn Bjömsson.
Simi 95-5175.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla.
HÉRAÐSSKÓLINN AÐ REYKJUM.
Skólastjóri: Bjarni Aðalsteinsson.
Simi 95-1000.
Meðal kennslugreina: Stærðfræði, enska, samfélagsgrein-
ar, liffræði og viðskiptagreinar.
GRUNNSKÓLISTAÐARHREPPS, V.-Hún.
Skólastjóri: Kristinn Breiðfjörð.
Simi 95-1025.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla og kennsla yngri
barna.
LAUGABAKKASKÓLI.
Skólastjóri: Guðmundur ÞórÁsmundsson.
Simi 95-1901.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla og kennsla yngri
barna.
GRUNNSKÓLI HVAMMSTANGA.
Skólastjóri: Flemming Jessen.
Simi 95-1367.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla og kennsla yngri
barna.
GRUNNSKÓLI ÞVERÁRHREPPS, V.-Hún.
Skólastjóri: PéturE. A. Emilsson.
Simi95-1694.
Meðal kenrislugreina: Stærðfræðiog almenn kennsla.
HÚNAVALLASKÓLI.
Skólastjóri: Jón I. E. Hannesson.
Sími: 95-4370.
Meðal kennslugreina: Stærðfræöi, tónmennt, smiðar og
myndmennt.
GRUNNSKÓLINN Á BLÖNDUÓSI.
Skólastjóri: Eiríkur Jónsson.
Simi 95-4147.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla og sérkennsla.
GRUNNSKÓLI SKAGASTRANDAR.
Skólastjóri: Páll Leó Jónsson.
Simi 95-4642.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla, hand- og
myndmennt.
VARMAHLÍÐARSKÓLI.
Skólstjóri: Páll Dagbjartsson.
Simi 95-6115.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla.
STEINSST AÐASKÓLI.
Skólastjóri: Kristján Kristjánsson.
Sími 95-6029.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla.
GRUNNSKÓLI RÍPURHREPPS.
Skólastjóri: Bjarni Gíslason.
Simi 95-6534.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla.
GRUNNSKÓLINN HOFSÓSI.
Skólastjóri: Svandis Ingimundardóttir.
Simi 95-6346.
Meðal kennslugreina: Kennsla yngri barna, islenska,
tungumál, stærðfræði, iþróttir, mynd- og handmennt.
GRUNNSKÓLI HAGANESHREPPS.
Skólastjóri: Valberg Hannesson.
Simi 96-73240.
Meðal kennslugreina: Raungreinarog tungumál.
Fræösluskrifstofan á Norðurlandi vestra
býður ýmiskonar þjónustu fyrir skóla umdæmisins.
RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA. Þar starfa þrír sálfræðingar, sem eru kennurum og aðstandendum nemcnda til
aðstoðar við úrlausn vandamála, sem upp kunna að koma í skólastarfinu.
KENNSLUGAGNAMIÐSTÖÐ er í uppbyggingu þar sem hægt er að fá iánuð myndbönd, og kynna sér flest
tiltæk kennslugögn. Þar verður einnig aðstaða fyrir kennara til að vinna að námsgagnagerð.
FRÆÐSLUFUNDIR eru skipulagðir í samvinnu við Kcnnarasamband Norðurl. vestra og aðila utan
umdæmisins og eru ýmist haldnir fyrir skólabyrjun að hausti eða á starfstíma skóla.
KENNSLURÁÐGJAFAR munu starfa næsta vetur og verður auk almennrar kennslufræðilegrar ráðgjafar,
sérstök áhersla lögð á kcnnslu yngri bama, móðurmál og raungreinar.
SÉRDEILDIR fræðsluumdæmisins á Egilsá í Skagafirði og á Blönduósi veita þjónustu fyrir þá nemendur
sem ekki geta fylgt venjulegri grunnskólakennslu.
VIÐ LEITUM AÐ GÓÐU FÓLKI með kennslureynslu og menntun sem getur orðið okkur að liði við þessa
þjónustu utan skólanna og vantar einkum SÉRKENNARA og starfsfólk til KENNSLUGAGNA-
MIÐSTÖÐVAR og til KENNSLURÁÐGJAFAR.
FRÆÐSLUSTJÓRI NORÐURLANDS VESTRA
Guðmundur Ingi Leifsson
Kvennaskólanum, 540 Blönduósi.
Simar 95-4209 og 4369.