Tíminn - 05.05.1987, Qupperneq 5

Tíminn - 05.05.1987, Qupperneq 5
Þriðjudagur 5. maí 1987 Tíminn 5 Um 4 þúsund beyglaðir eða ónýtir bílar á 3 mánuðum: Slasaðir í umf erð- inni helmingi fleiri - en á síðasta ári Um helmingi fleiri slösuðust í umferðinni fyrstu 3 mánuði þessa árs heidur en á sömu mánuðum í fyrra og sömuleiðis heldur en að meðaltali á sömu mánuðum síð- ustu 4 ár á undan. Til viðbótar tók umferðin 7 mannslíf þessa 3 mán- uði. Á skrár Umferðarráðs komust 238 slasaðir í umferðarslysum á fyrsta fjórðungi þessa árs, en voru 122 á sama tímabili 1986 og að meðaltali 127 á árunum 1983-1985. Lægst var tala slasaðra á þessu árabili 93 árið 1983 þannig að hlutfallslega eru slasaðir nú 156% fleiri en þá. Á síðasta áratug hefur fjöldi slasaðra í einhverjum þessara þriggja mánaða aðeins einu sinni farið yfir 60 manns, það var í mars 1985. Nú slösuðust 102 í janúar (33 í jan. í fyrra) og 80 í mars (39 í mars í fyrra). Fjölgun slasaðra er því gífurleg á hvaða samanburðar- tölur sem litið er. Þar sem þeim sem hafa slas- ast hefur fjölgað miklu meira en umferðaróhöppum og slys- um virðist það benda til að á- rekstrar hafi nú verið harðari en á undanförnum árum. Um- ferðarslys og umferðaróhöpp með eignatjóni eingöngu eru skráð tæplega 2.100 þessa fyrstu 3 mán- uði ársins, samanborið við um 1.760 á sömu mánuðum í fyrra. Líklegt er að þetta þýði hátt i 4 þúsund beyglaða eða ónýta bíla sem á skrár hafa komist á þessum eina ársfjórðungi auk allra þeirra beyglna sem menn hafa samið um á staðnum án þess að blanda lög- reglu og tryggingafélögum í málin. I árslok 1985 voru skráðir rúm- lega 117 þús. bílar í landinu. Á síðasta ári bættust við tæplega 16 þús. bílar og væntanlega nær 7 þús. það sem af er þessu ári. Það gerir samtals um 140 þúsund bíla. Þá tölu er eftir að lækka um afskráða bíla frá ársbyrjun 1986. Afskrán- ingar ónýtra bíla hafa verið að meðaltali um 4 þús. á ári þennan áratug. Hafi þeim ekki fjölgað því meira má áætla að um 133-134 þús. bílar séu í landinu. Vantar því ekki orðið mjög mikið á að bílafjöldi nái fjölda landsmanna sem náð hefur bílprófsaldri. -HEI Skipulagsbreytingar boðaðar hjá Útvegsbankanum hf.: Valddreifing innan marka hertra útlánareglna - hvert útibú skal vera sjálfstæð arðbær eining. Gæti þýtt breytingar á útlánum til „erfiðra" viðskiptavina bankans Útvegsbankinn hf. hóf starfsemi sína í gær og efndi bankaráð Útvegs- bankans í því tilefni til blaðamanna- fundar. Lýsti bankaráðið þar bjart- sýni með áframhaldandi rekstur bankans og boðaði breytingar á skipulagi og rekstri bankans, sem felast í aukinni sjálfstjórn deilda og útibúa bankans. Eru þessar hug- myndir reyndar framhald hugmynda sem fyrrum bankastjórar Útvegs- banka íslands höfðu verið að vinna að undangengna mánuði. Sagði Guðmundur Hauksson, ný- ráðinn bankastjóri að ætlunin væri að gera hverja starfseiningu bankans arðbæra og leiddi því framtíðin í ljós hverjar einingar gæfu af sér arð. Ef ákveðin útibú skiluðu ekki arði, yrði að taka rekstur þeirra til endur- skoðunar og hugsanlega að segja starfsfólki upp. Yrði ákvarðanatöku innan bankans dreift meira en nú er, en á sama tíma gæfi yfirstjórn bank- ans miklu harðari línu varðandi útlánareglur. Aðspurður um hvort það væri þá í valdi útibússtjóra úti á landi, sem væri nú lagðar þær línur að útibú hans sem sérstök starfseining ætti að skila arði, að ákveða að hætta að lána til illa statts frystihúss svo dæmi sé tekið, eða hvort það væri mál bankastjórnar í Reykjavík, sagði bankastjórinn að um þetta atriði væri ekki hægt að gefa ákveðið svar. Það færi eftir aðstæðum hverju sinni. Kom fram hjá bankaráðsmönnum að í bígerð væri að stofna veðdeild, auk þess sem hugsanlega tæki bank- inn þátt í verðbréfamarkaðsvið- skiptunum. Gísli Ólafsson, formaður banka- ráðs sagði að vinna ráðsins hefði að mestu farið í þessi skipulagsmál og hefði því ákvörðun um ráðningu annars bankastjóra þurft að bíða og væri bankaráðið sammála í þeirri ákvörðun. Um kaup aðila í sjávarútvegi og annarra sem áhuga kynnu að hafa, á hlutabréfum í bankanum sagði Gísli að það væri ljóst að hugsanlegir kaupendur héldu að sér höndunum þar til ljóst verður hvernig rekstur hins nýja banka kemur til með að ganga. f dag á ríkissjóður um 76% hlutabréfa og Fiskveiðasjóður 20%, en einkaaðilar afganginn. í lögum um hið nýja hlutafélag er gert ráð fyrir að bankinn njóti ríkis- ábyrgðar á erlendum lánum næstu tvö ár frá stofnun hans. Aðspurðir hvort erlent fjármagn yrði ekki bankanum dýrara þegar ríkisábyrgð- inni sleppir, töldu bankaráðsmenn það ólíklegt, það færi þó eftir því hvernig til tækist um reksturinn á næstunni. Aðspurður um hvort Útvegsbank- inn hf. ætli sér að losa sig við einhverja af sínum „erfiðari" við- skiptavinum, sem margir hverjir eru stórfyrirtæki, sagði Guðmundur Hauksson, bankastjóri að svo gæti vel farið, eftir að einstök mál hefðu verið skoðuð í ljósi útlánastefnu bankans. Næsti fundur bankaráðs Útvegsbankans hf. verður 26. maí næstkomandi. -phh Formaður bankaráðs og bankastjóri Útvegsbankans hf. undir staðlaðri ímynd af tengslum bankans við sjávarútveginn. Er hugsanlegt að þessi tengsl kunni að breytast með nýjum herrum og nýjum tímum ? Tímamynd Brein. Akstur á vegum ríkisins á síðasta ári: Um 50 hringferðir á dag Níu af 56 bílum Flugmálastjórnar 30 ára eða eldri Áætlað er að ríkisstarfsmenn hafi á síðasta árið ekið rúmlega 25 milljónir kílómetra, en það sam- svarar því að um 50 bílar hafi ekið hringinn í kringum landið hvern einasta dag ársins, helga jafnt sem rúmhelga. Ríkissjóður greiddi starfsmönn- um sínum rúmlega 144 milljónir króna fyrir samtals um 11,3 milljón kílómetra akstur á þeirra eigin bílum á árinu. ( skýrslu Bíla og vélanefndar er síðan áætlaður 15.000 km akstur að meðaltali á hvern þeirra 913 bíla sem ríkið á, eða um 14 millj. kílómetrar. Sam- tals gerir þetta rúmlega 25 milljón kílómetra akstur á vegum ríkisins, eða um 104 kílómetra akstur í þágu hvers íbúa í landinu. í skýrslu nefndarinnar vantar þó greiðslur fyrir leigu- og bílaleigubíla. Ríkissjóður keypti 126 bíla á síðasta ári fyrir samtals 93,3 millj. króna. Kaupin fóru fram eftir útboð. Með því fékkst um 13,5 millj. króna verðlækkun frá venju- legu kaupverði sem ella hefði num- ið 106,8 millj. króna. Greiðslur fyrir starfsmannabíla eru lang mestar á vegum heilbrigð- is- og tryggingaráðuneytisins, um 40,5 millj. fyrir 3,3 milljón kíló- metra akstur. Þar er fyrst og fremst um greiðslur til starfsfólks Ríkis- spítalanna og héraðslækna og heilsugæslustöðva að ræða. Næst í röðinni er samgönguráðuneytið með 34,4 millj. króna greiðslur, fyrst og fremst til starfsmanna Vegagerðarinnar. Um 19 millj. króna greiðslur eru fyrir starfs- mannabíla á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og þar eru prestarnir hæstir á blaði. Ríkisbílar voru sem fyrr segir 913 talsins um síðustu áramót. Stærsti bílaflotinn er á vegum Pósts og síma, 188 bílar, þá koma 168 bílar hjá lögreglu, fógetum og sýslumönnum. Þriðja í röðinni er Vegagerðin með 152 bíla, þá RARIK með 124 bíla og Flugmála- stjórn fimmta með 56 bíla. Flug- málastjórnarmenn virðast vera „góðir“ við bílana sína. Athyglis- vert er að af þessum 56 bílum hennar eru 9 bílar 30 ára eða eldri, þ.e. af árgerðum 1952-1957, en aðeins 16 af árgerð 1980 eða yngri. Bílafloti allra annarra ríkisstofn- ana er að yfirgnæfandi meirihluta af árgerðum 9. áratugarins, þótt finna megi einstöku dæmi um eldri bíla en 1970. -HEI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.