Tíminn - 05.05.1987, Side 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 5. maí 1987
SPEGILL
'zmMm.
Heimsókn Hófíar til munaðarleysingja í El Salvador:
Áhrifaríkasti
viðburður
fegurðar-
drottningar-
ársins
á barnaheimilinu í El
Það var mikil hátíð hjá börnunum
til hjálpar bágstöddum börnuni, og þetta barnaheimili í El Salvador hefur notið góðs
af þeirri starfsemi.
Hún segir svo frá:
„Hofi var þarna orðin guðmóðir litlu stúlkunnar og hún fékk að fara með litlu
stúlkuna með sér heim á hótelherbergi part úr degi til að kynnast henni betur og
hugsa um hana. En það má segja að Hofi hafi eignast þarna um 600 vini, því börnin
dáðu hana. Kölluðu hana á sínu máli “Miss Mundo“ (Ungfrú heimur) og sögðu að
hún væri „engill með gullhár". Það var átak fyrir okkur að kveðja börnin, en hópur
þeirra fékk að fylgja okkur á flugvöllinn og þar sungu þau kveðjulög ásamt
nunnunum, sem sjá um barnaheimilið.
Við vorum þarna á hættulegum slóðum, því að skæruliðar höfðust við í nágrenninu,
en þetta gekk allt vel. í borginni stóð Hofi fyrir tískusýningu í fjáröflunarskyni fyrir
börnin og komu inn yfir 20.000 sterlingspund," sagði Julia Morley.
Hún bætir því við, að allir hafi hrifist af Hófi, fegurð hennar og hlýlegri framkomu.
Stóra stundin - þegar Hólmfríður
hlaut titilinn, en það var ekki alltaf
glcði og glaumur sem fylgdi þeim
heiðri. Mikil og erfíð ferðalög voru
líka nauðsynlcg til að afla fjár til
Hófí í heitu löndunum. Hún tekur
sig vel út í sólfötum eins og öllu
öðru.
Það varð að sjálfsögðu mikil gleði og stolt sem
greip um sig á íslandi vegna kosningar hinnar ungu
íslensku stúlku, Hólmfríðar Karlsdóttur, sem
fegurstu stúlku heims. Þegar Hófí hlaut titilinn
„Miss World ’86“ kepptust auðvitað blöðin um að
birta sem flestar myndir af henni og dást að
„Hófí", sem öllum landsmönnum þótti sem þeir
ættu svolítið í.
Tíminn birti auðvitað iíka myndir af hinni
fslensku fegurðardrottningu, en þegar mesti fjöl-
miðlaæsingurinn hafði gengið yfir barst okkur hér
í hendur enskt blað, þar sem sagt er frá heimsókn
„Miss World ’86“ eða Hófí til hins stríðshrjáða
lands E1 Salvador. Það er haft eftir henni og Juliu
Morley, stjórnanda Miss World-keppninnar, að
þetta hefði verið áhrifamesti viðburður ferðalags
fegurðardrottningarinnar um heiminn.
Hér á eftir fer útdráttur úr frásögn blaðsins:
„Hún er svo falleg... svo falleg, má ég taka hana
upp?“ sagði Hofi Karlsdóttir, Miss World, þegar
hún sá litluþriggjamánaðastúlkuna ábarnaheimil-
inu fyrir munaðarlaus börn. Þessi litla stúlka hafði
verið yfirgefin á víðavangi til að deyja, en var
bjargað á barnaheimilið.
Þarna myndaðist sterkt samband, milli íslensku
22 ára fegurðardrottningarinnar og litlu telpunnar,
sem engan átti að.
Telpan var nú skírð Maria Hofi de Los Angeles.
„Ég átti bágt með að halda aftur af tárunum",
sagði Julia Morley, en hún hefur skipulagt ferðir
fegurðardrottninga um heiminn til þess að safna fé
Salvador þegar „Miss Mundo“ kom í hcimsókn.
hvar sem var og þá ekki síst þar
sem börn áttu í hlut.
Við hringdum til Hólmfríðar
Karlsdóttur til að forvitnast um
hvort hún hefði frétt frá börnunum
í El Salvador. Hún sagði að mjög
erfitt væri að ná sambandi þangað.
Þar hefðu nýlega geisað miklir
jarðskjálftar og hrundu þá til
grunna bæði barnaheimilið og
barnaspítalinn. - Jú, litla Maria
Hofi de Los Angelcs komst lífs af
og öll börnin á barnaheimilinu, en
einhver dauðsföll urðu á barnaspít-
alanum.
Hólmfríður sagðist þó hafa feng-
ið bréf frá barnaheimilinu, og hún
sagðist fá fréttir í gegnum skrifstof-
una í London, þaðan sem Miss
World- keppninni er stjórnað. Jul-
ia Morley framkvæmdastjóri hefur
haft santband við Hólmfríði. Hún
segir að hjálp hafi m.a. verið send
frá Bandaríkjunum til að byggja
upp og gera við byggingar barn-
aheimilisins og spítalans," því það
hrundi allt í rúst, - en ástandið var
þó nógu slæmt fyrir", sagði Hólm-
fríður Karlsdóttir, fegurðardrottn-
ing, sem nú vinnur á barnaheimili
í Garðabæ.
Þær nöfnur Hófí Karlsdóttir og
Maria Hófí de Los Angeles, í El
Salvador. Nú er litla Hófí komin á
annað ár.
Driföxlar, hlífar
og hjöruliðir
í landbúnaðartæki
ágóðu verði
Járnhálsi 2. Sími 673225
110 Rvk. Pósthólf 10180
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:. 91-31815/686915
AKUREYRI:... 96-21715/23515
BORGARNES: ........ 93-7618
BLÖNDUÓS:..... 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: . 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:...... 96-71489
HÚSAVÍK: .. 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ..... 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: . 97-3145/3121
FASKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: .. 97-8303
interRent
[&EIÍI
Jámhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
Hvenær
byrjaðir
þú "