Tíminn - 05.05.1987, Blaðsíða 19

Tíminn - 05.05.1987, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 5. maí 1987 Tíminn 19 LEIKLIST í svelg f rumhvatanna Nemendaleikhúsið: RÚNAR OG KYLLIKKI eftir Jussi Kylátasku í þýð- Ingu Þórarins Eldjárns. Leikstjórn: Stefán Baldursson. Leikmynd og bún- ingar: Gretar Reynisson. Lýsing: Ólaf- ur Örn Thoroddsen. Tónlist: Kaj Chy- denius. Tónlistarstjórn og undirleikur: Valgeir Skagfjörð. Það er býsna sterkur mjöður sem Nemendaleikhúsið blandar okkur sem lokaverkefni þess fólks sem við höfum verið að fylgjast með að undanförnu í Lindarbæ. Leikrit finnska höfundarins Jussi Kylátasku er fullt af því þunglyndi og vægðar- lausu sjálfseyðingu sem tíðum loðir við skáldskap Finna. Þetta er a.m.k. áberandi einkenni á ýmsum þeim verkum Finna sem við þekkjum og höfum fengið að sjá á síðustu árum, - nærtækt að vísa í Dag í Austur- botni, verðlaunasögu Antti Turi. Rúnar og Kyllikki er leikrit sem sagt er gerast á sjötta áratugnum í finnsku sveitaþorpi. Þar grúfir þó yfir eins konar miðaldamyrkur í trúarofstæki, en að öðru leyti stýrist líf fólksins af hömlulausri kynhvöt, grimmd og ofsa, hræsni, fláttskap og tvöfeldni. Ungmennin tvö sem hvort um sig verða bráð þessa sjúka sam- félags eru fulltrúar hreinleikans og veikleikans. Rúnar er niðurlægður, brotinn og bugaður, ónýtur maður í þessu samfélagi, Kyllikki bælir hvat- ir sínar vegna kúgunar, harðýðgi og hrottaskapar föður síns. Fullnæging Rúnars er sú að reka hníf í Kyllikki. Nú beinist hefndarþorsti umhverfis- ins að honum, að lokum snýr móðir hans baki við honum og athvarfið verður snaran í fangaklefa. Þannig er þetta verk, biksvört mannlífsmynd, stúdía í frumhvötum manneskjunnar, dregin grófum dráttum og groddalegum. Það telst til nýlundu að í leikskrá birtist grein um verkið eftir Claes Andersson þar sem hann túlkar það með þrennum hætti, félagssálfræðilega, sálgrein- andi og goðsögulega. Er það skarp- leg greining og skal ekki endursögð hér. En meðal annarra orða - eru fræði Freuds að sækja í sig veðrið í skáldskapnum? Ekki þóttu þau par fín meðan félagsmálaaldan reis sem hæst og átti að túlka alla hluti út frá stéttaandstæðukenningu Marx. Því nefni ég þetta að nú er maður búinn að horfa á tvær býsna magnaðar sýningar í vetur þar sem tortímingar- afl kynhvatarinnar er leitt fyrir sjónir. - Ég á hér við Dag vonar eftir Birgi Sigurðsson og svo þetta leikrit. Jussi Kylátasku er bersýnilega kunnáttumikill höfundur. Texti hans er spennuþrunginn og hann hefur auga fyrir dramatískum senum, þær eru margar í verki hans. Persónu- sköpunin er harla einföld. Þannig sýnir hver persóna á sér eina hlið aðeins og verður ekki sagt að viðhorf höfundar beri miklum húmanisma eða hugsjónum vitni. Frumstæðar hvatir ráða þannig öllu í lífinu og í svelg þeirra drukkna þeir sem ekki hafa til að bera næga hörku, þeir eru auðmýktir og merktir og síðan tor- tímt af fullkominni grimmd. Með þessu verkefnavali hefur bersýnilega verið að því stefnt að gefa leikaraefnunum færi á að takast á við erfitt og krefjandi viðfangsefni í lok náms. Og vissulega leggja leikendur sig alla fram. Sýningin er hröð og snörp frá upphafi til enda. Persónusköpun er nokkuð misjöfn sem vænta má. Langerfiðasta hlut- verkið er Rúnar sem Halldór Björns- son leikur. Hann verður dálítið óljós persóna og er það frá hendi höfund- ar. Veiklyndi hans er nokkuð gagn- gert og ekki nægilega skýrt leitt í ljós það sálræna niðurbrot sem að lokum fær þennan geðslega pilt til að vinna voðaverk. Halldór Björnsson kom vel og drengilega fyrir í hlutverkinu en hann megnaði ekki að vinna úr þessum örðuga efnivið. Leikstjóri virðist ekki heldur hafa lagt jtær línur sem duga mættu. Svipað er að segja um Kyllikki safnaðarsystur sem barin er til hlýðni við guð en látin bæla líkamshvatir sfnar. Ólafía Hrönn Jónsdóttir fer með hiutverk hennar, fallega, en spennu hvatabælingarinnar kom hún ekki til skila. Þessi tvö aðalhlutverk eiga að vera mótvægi við allt hitt, skepnuskapinn, lostann og grimmd- ina. Það mótvægi er í veikasta lagi. Veigamikið hlutverk er Hilkka móðir Rúnars. Hún hefur alið hann upp föðurlausan en brugðist honum um ástúð og umhyggju svo að Rúnar er útskúfaður frá upphafi, á engan samastað í þessum heimi. Ingrid Jóns- dóttir lék hlutverkið af miklum þrótti og komst vel frá hinu við- kvæma lokaatriði þar sem móðirin vitjar sonar síns í síðasta sinn í fangaklefanum. Önnur hlutverk eru einfaldari. Hinn grimmúðugi faðir Kyllikki er skörulega leikinn af Árna Pétri Guðjónssyni, það er blæbrigða- snautt hlutverk frá hendi höfundar. Frumstæða smiðinn Heikki leikur Þórarinn Eyfjörð og kynóðu skræf- una Peltonen bílstjóra Hjálmar Hjálmarsson, vel dregin mannlýs- ing. Kaupmanninn leikur Valgeir Skagfjörð, Eiju afgreiðslustúlku, kynferðisþrælinn, Þórdís Arnljóts- dóttir og prestinn Stefán Sturla Sig- urjónsson. Prestur er hér sem vænta má ákjósanlegt skotmark en hlut- verkið er afkáralegt og ekki við leikara að sakast. Björn Karlsson leikur smið og tveir nemendur í 2. bekk fara með hlutverk lögreglu- manna, Steinn Á. Magnússon og Sigurþór A. Heimisson. Þá eru ótaldir tveir eldri leikarar sem léðu sýningunni aukinn þrótt og raunar nokkurn bakfisk. Þórhallur Sigurðsson var í essinu sínu í hlut- verki kennarans. Það hvarflar að manni hvernig sýning þessa verks hefði getað orðið í meðförum reyndra og þroskaðra listamanna eins og Þórhalls, en slíkt er ósann- gjarnt að krefjast hér. Kerlingar- nornin amma Rúnars var nornarleg í meira lagi í meðförum Sigurveigar Jónsdóttur. Leikmyndin í Iðnó er sérkennileg, leikið er á krossi og á að undirstrika táknrænt gildi, trúarlegan þátt sem Claes Andersson drepur á í grein sinni. Sú túlkun finnst mér raunar hæpin og þar með leikmyndin, til hennar skortir dýpri forsendur í verkinu. En sjónrænt skoðað fór nokkuð vel á þessu. Tónlistin lét vel í eyrum, en er ekki nokkuð hæpið að nota hina rómantísku Finlandiu Sibeliusar þegar dramað magnast? - Þýðing Þórarins Eldjárns er bragð- sterk og lipur. Rúnar og Kyllikki er vissulega viðfangsefni sem er til þess fallið að reyna á þolrifin, raunar bæði í leikendum og áhorfendum. Um ár- angurinn hér má deila en vissulega þarf enginn að dotta í Lindarbæ og öll óskum við leikurunum ungu vel- farnaðar og væntum góðs af starfi þeirra á næstu árum. Gunnar Stefánsson Christa McAuliffe kennslukona fórst með geimferjunni Challen- ger. Nú hafa skólakrakkar haft frumkvæði að því að reisa henni verðugt minnismerki. Börn reisa Christu McAuliffe minnis- merki Allur heimurinn horfði á í for- undran og skelfingu þegar banda- ríska geimferjan Challenger sprakk í loft upp rétt eftir flugtak á Canaveral höfða 28. janúar 1986. Um borð í Challenger var, auk þjálfaðra geimfara, kennslukonan Christa McAuliffe, 37 ára að aldri, gift og tveggja barna móðir. Nemendur hennar höfðu fylgst með undirbúningi geimferðarinnar fullir áhuga og þeir fylgdust líka með geimskotinu og afdrifum Challengers og þeirra sem þar voru innanborðs. Skólakrakkarnir eiga þann draum að nafn kennslukonu þeirra verði eilíft í sögunni og í því skyni lögðu þeir út í fjársöfnun til að reisa henni minnismerki. Margt smátt gerir eitt stórt og ein og hálf milljón senta gerir 15.000 dollara. Með þá upphæð í höndunum gengu krakkarnir á fund myndhöggvar- ans Bill Hopen og fólu honum verkefnið að gera verðuga mynd af kennslukonunni þeirra. Bill Hopen hefur nú lokið verk- inu. Stytta af Christu í meira en líkamsstærð, þar sem hún heldur á penna í annarri hendi og geim- hjálmi í hinni hefur nú verið sett upp fyrir framan stjörnurann- sóknastöð barna í Charleston í Virginia og er henni í og með ætlað að vera leiktæki krakkanna. Sam- kvæmt fyrirmælum myndhöggvar- ans verður ekki amast við því ef krakkar príla um styttuna. Þriðjudagur 5. maí 6.45 Veðurfregnir. Bæn, 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktln - Jón Baldvin Halldórsson og Jón Guðni Kristjánsson. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veðurfregnirkl. 8.15. Tilkynning- ar eru lesnar kl. 7.25,7.55 og 8.25. Guðmundur Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20. Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.05 Morgunstund barnanna: „Veröldln er alttaf ný" eftir Jóhönnu Á. Steingrimsdóttur Hildur Hermóðsdóttir les (2). 9.20 Morguntrimm. Lesið úr forustugreinum dag- blaðanna. Tónleikar. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tið Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.301 dagsins önn - Hvað segir læknirinn? Umsjón: Ulja Guömundsdóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Fallandi gengi" eftir Er- ích Maria Remarque. Andrés Kristjánsson þýddi. Hjörtur Pálsson les (9). 14.30 Tónlistarmaður vikunnar. Chet Atkins. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn Frá Suðurlandi. Umsjón: Hilmar Pór Hafsteinsson. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.05 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. Tilkynningar. 17.05 Síðdegistónleikar. 17.40Torgið - Neytenda- og umhverfismái Umsjón: Steinunn Helga Lárusdóttir. 18.00 Fréttir. Tilkynningar. 18.05 Torglð, framhald. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttlr. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guðmundur Sæmundsson flytur. 19.40 Tónlistarhátiðln í Lúðvíksborgarhöll 1986 a. Píanósónata í h-moll eftir Franz Uszt. Rolf Plagge leikur. b. Serenaða í Es-dúr K. 375 ettir Wolfgang Amadeus Mozart. Blásarasveit Heinz Holligers leikur. 20.40 Höfuðsetið höfuðskáld. Emil Bjömsson segir frá lesandakynnum sínum af Halldóri Laxness. (Siðari hluti). 21.20 Létt tönilst. 20.30 Útvarpssagan: „Truntusól" eftir Sigurð Þór Guðjónsson. Karl Ágúst Úlfsson les. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Laxness á leiksviði Dagskrá á 85 ára afmæli Halldórs Laxness. Fjallað um leikrit Halldórs og leikgerðir skáldsagna, fluttir katlar úr þeim og ennfremur brot úr gömlum útvarps- viðtölum við skáldið, Umsjón: Gylfi Gröndal. (Áður útvarpað á sumardaginn fyrsta, 23. apríl S.I.). 23.20 Islensk tónlist Kammertónlist eftir Hallgrim Helgason. a„Stefjaspil". Gunnar Björnsson og höfundurinn leíka saman á selló og píanó b. Sellósónata. Gunnar Björnsson og höfundurinn leika saman á selló og píanó. c. Þrjú lög fyrir selló og planó. Pétur Þorvaldsson og hðfundur- inn leika. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp á samtengdum rásum tit morguns. 00.10 Næturútvarp Áslaug Sturlaugsdóttirog Bára Halldórsdóttir standa vaktina. 06.00 I bítið Rósa Guðný Þórsdóttir léttir mönnum morgunverkin, segir m.a. frá veðri, færð og samgöngum og kynnir notalega tónlist í morg- unsárið. 09.05 Morgunþáttur i umsjá Kristjáns Sigurjóns- sonar og Siguröar Þórs Salvarssonar. Meðal efnis: Tónlistargetraun, óskalög yngstu hlust- endanna og fjallað um breiðskifu vikunnar og matarhorn með Jóhönnu Sveinsdóttur. 12.20 Hádeglsfréttlr. 12.45 Á milli mála. Leifur Hauksson kynnir létt lög við vinnuna og spjallar við hlustendur. 16.05 Hringiðan Umsjón: Broddi Broddason og Margrét Blöndal. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Nú er iag Gunnar Salvarsson kynnir gömul og ný úrvalslög. (Þátturinn verður endurtekinn aðfaranótt fimmtudags) kl. 02.00). 21.00 Poppgátan. Gunnlaugur Sigfússon og Jónatan Garðarsson stýra spurningaþætti um dægurtónlist. (Endurtekinn þáttur frá laugar- degi). 22.05 Heitar krásir úr köldu strlði Magnús Þór Jónsson og Trausti Jónsson dusta rykið af gömlum 78 snúninga plötum Rikisútvarpsins frá árunum 1945-57. 23.00 Vlð rúmstokklnn. Guðrún Gunnarsdóttir býr fólk undir svefninn með tali og tónum. 00.01 Næturútvarp Ólafur Már Björnsson stendur vaktina til morguns. 02.00 Tilbrlgði. Þáttur í umsjá Hönnu G. Sigurðar- dóttur. (Endurtekinn frá laugardegi). Fréttir eru sagðar kl. 7.00, 8.00, 9.00,10.00, 11.00,12.20,15.00,16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00. Svæðisútvarp virka daga vikunnar 18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrlr Akureyri og nágrenni - FM 96,5 Umsjón: Þórir Jökull Þorsteinsson. Þriöjudagur 5. maí 18.00 Villi spæta og vinir hans. Sextándi þáttur. Bandariskur teiknimyndaflokkur. Þýðandi Ragnar Ólafsson. 19.00 Fjölskyldan á Fiðrildaey. 22. þáttur. Ás- tralskur framhaldsmyndaflokkur fyrir börn og unglinga um ævintýri á Suðurhafseyju. Þýðandi Gunnar Þorsteinsson. 19.25 Fréttaágrip á táknmáli. 19.30 Poppkorn. Umsjón: Guðmundur Bjarni Harðarson, Ragnar Halldórsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Samsetning: Jón Egill Bergþórs- son. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Morðstundin. (Time for Murder) Nvr flokkur - Fyrsti þáttur. Nýr, breskur sakamálamynda- flokkur í sex sjálfstæðum þáttum. Fyrsta morð- gátan gerist að vetrarlagi á afskekktu hóteli I næsta nágrenni við kvennafangelsi. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 21.35Vestræn veröld. (Triumph of the West) 8. Upplýsingaöld. Heimildamyndaflokkur i þrett- án þáttum frá breska sjónvarpinu (BBC). Um- sjónarmaður John Robertssagnfræðingur. Þýð- andi og þulur Óskar Ingimarsson. 22.25 Hvert er förinni heitlð? Þáttur um stöðu og framtíð í ferðamálum á Islandi. Umsjónarmaður Ingvi Hrafn Jónsson. 23.00 Fréttir I dagskrárlok. hefur örlagaríkar afleiðingar I för með sér. Leikstjóri er Paul Schrader og tónlist er eftir Giorgio Moroder og David Bowie. 00.55 Dagskrárlok. 0 (í STÖÐ2 Þriðjudagur 5. maf 17.00 Afleiðing höfnunar (Nobodys Child). Bandarísk sjónvarpsmynd með Marlo Thomas í aðalhlutverki. Mynd þessi er byggð á sannri sögu um Marie Balter, sem af hugrekki og þrautseigju tókst að yfirstíga hina ótrúlegustu erfiðleika. 18.35 Myndrokk._______________________________ 19.00 Vlðkvæma vofan. Teiknimynd. 19.30 Fréttir. 20.00 Návígi Yfirheyrslu og umræðuþáttur í um- sjón fréttamanna Stöðvar 2.___________________ 20.40 Húsið okkar (Our House). Bandarískur gamanþáttur með Wilford Brimley í aðalhlut- verki. 21.30 Púsluspil (Tatort). Félagarnir Thanner og Schimanski eru enn á ferð í þessum þýska sakamálaþætti. 23.05 Kattarfólkið (Cat People). Bandarísk kvik- mynd með Nastassia Kinski og Malcolm McDowell í aðlhlutverkum. Mögnuð mynd um heitar ástríður og losta. Fyrstu kynni ungrar konu (Kinski) af ástinni eru stjórnlaus og yfirþyrmandi. Sú reynsla umbreytir henni og Þriðjudagur 5. maf 07.00-09,00 Á fætur með Slgurði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður litur yfir blöðin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 07.00, 08.00 og 09.00. 09.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar. Afmæliskveðj- ur, mataruppskriftir og spjall til hádegis. Síminn er61-11-11. Fréttir kl. 10.00,11.00. 12.00-12.10 Fréttir. 12.10-14.00 Þorsteinn J. Vllhjálmsson á hádegi. Fréttapakkinn. Þorsteinn og fréttamenn Bylgj- unnar fylgjast með þvl sem helst er I fréttum, spjalla við fólk og segja frá I bland við létta tónlist. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00-17.00 Pétur Stelnn á réttrl bylgjulengd. Pétur spilar slðdegispoppið og spjallar við hlustendur og tónlistarmenn. Forstjórapopp eftlr kl. 15.00 Fréttir kl. 15.00,16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Aata R. Jóhannesdóttlr (Reykjavik afðdegls. Ásta leikur tónlist, litur yfir fréttirnar og spjallar viö fólk sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00-20.00 Anna Björk Blrglsdóttir á flóamark- aðl Bylg|unnar. Flóamarkaður og tónlist. Fréttir kl. 19.00. 20.00-21.00 Vinsældalistl Bylgjunnar. Jón Gúst- afsson kynnir 10 vinsælustu lög vikunnar. 21.00-23.00 Ásgeir Tómasson á þriðjudags- kvöldl. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum áttum. 23.00-24.00 Vökulok. Þægileg tónlist og frétta- tengt efni I umsjá Karls Garðarssonar fréttar manns. Fréttlr kl. 23.00. 24.00-07.00 Næturdagskré Bylgjunnar. Bjami Ólafur Guðmundsson. Tónlist og upplýsingar um veður, flugsamgöngur. Fréttlr kl. 03.00.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.