Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 16. júlí 1987 Ráðningamál ríkisstofnana: Aðeins 2 öryrkjar af 260 fá atvinnu Aðeins tveir öryrkjar af tvö- hundruð og sextíu sem sótt hafa um aðstoð ráðningarskrifstofu Reykjavíkurborgar við starfsút- vegun, hafa verið ráðnir til ríkis- stofnana og ríkisfyrirtækja í gegn- um öryrkjadeild ráðningarskrif- stofunnar. Þetta kom fram í árs- skýrslu öryrkjadeildar ráðningar- skrifstofu Reykjavíkurborgar fyrir árið 1986. Þetta gerist þrátt fyrir að í lögum um málefni fatlaðra er tekið fram, að þeir sem notið hafa endurhæ- fingar eigi öðrum fremur rétt á atvinnu hjá ríki og sveitarfélagi, ef hæfni þeirra til starfs er meiri eða jöfn hæfni annarra sem um starfið sækja. Virðist því vera allnokkur tregða hjá forstöðumönnum rtkis- fyrirtækja að fylgja eftir þessum lögum, enda.kemur fram í skýrsl- unni að öryrkjadeild ráðningar- skrifstofunnar hafi leitað öllu minna til ríkisins á síðasta ári en áður vegna þessarar tregðu. f skýrslunni kemur einnig fram að nokkuð sé farið að gæta þreytu hjá sumum þeim atvinnuveitend- um sem ráðið hafa fatlaða til sín, sérstaklega eftir að lágmarkslaun hækkuðu til muna. Komi það til vegna þess að þó margir fatlaðir séu afbragðs vinnukraftar, þá sé því ekki að neita að margir geti ekki talist fullgildir vinnukraftar vegna fötlunar. Því er í skýrslunni lögð áhersla á að sett verði ný og rýmri reglugerð um öryrkjavinnu svo Tryggingastofnun ríkisins geti komið til móts við atvinnurekend- ur við að koma á fót „skýldum störfum" eða „vernduðum hornum" þar sem fólk nyti meira öryggis á vinnustað en gengur og gerist. -HM ■r'ísv 70.alþjóðaþing Lionshreyfingarinnar: Svavar Gests í alþjóða- stjórn Svavar Gests hefur verið kjörinn sem fulltrúi Norðurlandanna í al- þjóðastjórn Lionshreyfingarinnar næstu tvö árin. Með því er Svavar orðinn æðsti maður Lionshreyfing- arinnar á Norðurlöndum sem telur um 70 þúsund félaga. f alþjóðastjórninni eru 28 meðlim- ir víðs vegar að úr heiminum og ber hver þeirra ábyrgð á starfi Lions- hreyfingarinnar á sínu umdæmi- ssvæði. Svavar hlaut kosninguna á 70. þingi Lionshreyfingarinnar sem haldið var á Taiwan í byrjun júlí. Á sama þingi var gerð sú lagabreyting að konur hefðu jafnan rétt og karlar að taka þátt í störfum hreyfingarinn- ar. Því er Lionshreyfingin ekki leng- ur eingöngu karlahreyfing og því farið að fjúka í flest skjól fyrir karlpeninginn. -HM Nýja ráðhúsið: Borgarstjórinn er plássfrekur Ef marka má teikningar af nýja ráðhúsinu er gert ráð fyrir að borgar- stjóri Reykjavíkur sé mun plássfrek- ari en aðrir embættismenn borgar- innar. Gert er ráð fyrir að borgar- stjórinn þurfi alls 130 fermetra undir sig, ritara sinn og þá er bíða eftir viðtali. Hins vegar er gert ráð fyrir að annar háttsettur embættismaður borgarinnar borgarritari, ritari hans og þeir sem eftir honum bíða, geti látið sér nægja rúmlega helmingi minna pláss eða 60 fermetra. Ekki er enn búið að taka ákvörðun um hvort og þá hvenær hafist verður handa við byggingu hins nýja ráðhúss, sem fyrirhugað er að standi við suðvesturhorn Tjarnarinnar. Framkvæmdir gætu þess vegna hafist á þessu ári því við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1987 voru 60 milljónir lagðar til hliðar í sérstakan ráðhússjóð ef ákveðið yrði að hefja byggingu á þessu ári. Ljóst er að ef af byggingu ráðhúss- ins verður mun mikil röskun verða á Tjörninni á meðan framkvæmdum stendur þar sem gert er ráð fyrir þremur hæðum neðanjarðar fyrir bílastæði. Því eru líkur á að borgar- stjórn muni leggja áherslu á að bygging ráðhússins taki eins stuttan tíma og mögulegt er ef af fram- kvæmdum verður. -HM Félagsmálastofnun: Barn tekið af heimili Lögreglan varð á þriðjudag að koma Félagsmálastofnun til að- stoðar við að færa 11 daga gamalt barn af heimili þess í Breiðholti,. þar sem eftirlit stofnunarinnar hef- ur leitt í ljós að ekki hafi verið nægilega að því hlynnt. Frá fæðingu barnsins hefur móð- ir þess misnotað áfengi í þeim mæli að Félagsmálastofnun mátti til að skerast í leikinn og taka barnið í sína umsjá. Til þess þurfti að kalla á lögreglu til hjálpar. Lögreglan verst allra frétta af þessu máli og hjá Félagsmálastofn- un fengust ekki aðrar upplýsingar en að mál af þessu tagi heyri sem betur fer til undantekninga. þj Skilvindur borga sig - en aðeins ef smjörið er selt á svörtum Skilvindur voru hér í eina tíð til á hverjum bæ- og notaðar til að skilja að rjómann og undanrenn- una. Rjóminn varsíðan strokkaður og búið til smjör. Það er síðan komið í verkahring afurðastöðva í mjólkuriðnaði að vinna mjólkur- vörur úr nýmjólk sem mjólkur- tankbíllinn sækir heim í mjólkur- hús bændanna. En þegar fullvirðisréttur er upp- urinn - hvað gera bændur þá? Flestir halda áfram að leggja mjólkina inn í afurðastöðvarnar eftir sem áður, en aðrir bregða á það ráð að reyna að nýta mjólkina heima. Kálfar njóta góðs af henni en sumir fægja gömlu skilvinduna og strokkinn, það er að segja hafi slík tól verið notuð á fyrri tíð. Yngri bændur sem ekki geta fengið þetta lánað hafa samband við bú- véladeild Sambandsins og viti menn - þar eru skilvindur til sölu. Þær hafa verið til í gegnum tíðina og aðallega seldar á afskekktari staði en síðustu ár hafa þær einnig verið seldar til stórbænda sem ekki búa afskekkt. En nú vantar strokkinn til að strokka smjörið og þá fer í verra því strokkar fást aðeins af þeirri stærð sem mjólkurstöðvarnar nota. Hins vegar má nota venjulegan bor með aukahlut, líkt og gerist með hrærivélar, til að strokka smjör. Á öxul borvélarinnar er settur diskur með boxi fyrir rjómann. Diskurinn er settur skakkur á til I Skilvindur eru bæði til handsnúnar (sjá ör á mynd) eða með rafmagns- mótor. Þær hafa einkum selst á afskekktari staði síðustu árin en einnig til þeirra bænda sem farið hafa fram úr fullvirðismarki sínu og fá ekki greitt eyri fyrir umfram- mjóikina. þess að boxið sé skakkt en þá gengur strokkunin betur. Þetta fyrirbæri hefur verið selt hjá Sam- bandinu, ekki í miklum mæli þó. Á síðasta sumri seldust tíu skil- vindur og það sem af er þessu ári hafa selst 3 til 4 skilvindur. Handknúin skilvinda sem getur afkastað 100 lítrum á klukkustund ef handaflið er nóg, kostar 31 þúsund krónur. Rafknúin skilvinda sem afkastar 225 lítrum á klukku- stund kostar 60 þúsund. Úr 100 lítrum af meðalmjólk sem gefur tæplega 4% fitu, má gera ráð fyrir að fá ca. 89 lítra af undanrennu og 11 lítra af rjóma. Þessir 11 lítrar af rjóma verða síðan að 4,6 kg af smjöri en afgangurinn er áfir. Einn lítri af rjóma í lausu máli kostaði 1. júní 238 krónur í heild- sölu. Hvert kg. smjörs kostaði á sama tíma 244 krónur í heildsölu og eru niðurgreiðslur til bænda þá ekki með í tölunni, en með þeim tvöfaldast heildsöluverðið til bænda á hvert kg. Bóndi sem hefur 20 kýr sem mjólka að meðaltali 15 lítra á dag hefur 300 lítra mjólkur á dag. Geti hann selt heimatilbúið smjör á heildsöluverði án niðurgreiðslna í einn mánuð, (414 kg af smjöri), gæti hann haft um 100 þúsund brúttó fyrir mánuðinn eða um 3.360 krónur á dag. Hann fengi hins vegar 264 þúsund brúttó fyrir sama magn, væri mjólkin innan fullvirðisréttarmarkanna. En þessir smjörútreikningar eru nú kannski meira til gamans því ekki er leyfilegt að selja mjólkuraf- urðir nema ákveðnum heilbrigðis- kröfum sé fylgt svo sem að geril- sneyða mjólk og svo framvegis og hvar skyldi síðan finnast markaður fyrir allt þetta smjör? ABS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.