Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 16. júlí 1987 4 Tíminn Iðntæknistofnun: Samræmdur staðall við stærðarmælingu á húsum Til þessa hefur gætt mikils ósam- ræmis í mælingum á stærð bygginga hérlendis og mismunandi reiknis- reglur notaðar. Þetta hefur verið öllum sem nálægt fasteignamarkað- inum koma, til mikilla vandræða og ágreiningur verið manna á milli um stærðir eigna. Nú hefur Iðntæknistofnun íslands gefið út bækling um íslenskan staðal, sem koma á í veg fyrir þetta ósam- ræmi í mælingu. Þeir sem unnið hafa að endurskoðun íslensks staðals eru þeir Gunngeir Pétursson skrifstofu- stjóri Byggingarfulltrúa Reykjavík- urborgar, Hafsteinn Pálsson deildar- stjóri Rannsóknarstofnunar bygg- ingariðnaðarins og Stefán Ingólfsson fyrv.deildarstjóri Fasteignamats ríkisins. Á blaðamannafundi sem Iðn- tæknistofnun efndi til, kom fram að hingað til hafa 9 aðilar á landinu fengist við útreikninga á stærðum bygginga og engin fengið sömu út- komu og því verið þjóðarbúinu dýrt að ekki skuli hafa verið til ákveðnar reglur um útreikninga. Áætlaði Stefán Ingólfsson að um það bil þrjár milljónir króna myndu sparast á ári með útkomu bæklings- ins þ.e.a.s. ef allir koma til með að nota þennan staðal. Bæklingurinn er mjög einfaldur og ætti að koma öllum þeim sem vilja reikna út íbúðarstærð sína að miklu gagni. Einnig ætti að vera úr sögunni að sama íbúðin sé auglýst misstór hjá fasteignasölum. í bæklingnum kemur fram að um sameign, svalir og stigauppganga gildir ákveðinn staðall til útreikn- inga, en það er einmitt það sem hvað oftast hefur valdið ágreiningi um stærðir íbúða. Bæklingin geta menn nálgast hjá Byggingafulltrúa Reykjavíkurborg- ar og Byggingaþjónustunni Hall- veigarstíg. - BD 20 milljónir teknar inn á C-gíró Höfundar bæklings um stærðarmælingu bygginga. F.v. Hafsteinn Pálsson deildarstjóri, Stefán IngóIfsson,verkfræðingur, Gunngeir Pétursson, skrif- stofustjóri. Tímamynd: Brein Við borgum um 20 milljónir á ári fyrir C-gíróþjónustu Pósts- og síma- málastjórnar eftir að hún hækkaði um 33% við síðustu mánaðamót. Veitt hafði verið 9,5% meðaltals- hækkun á þjónustu stofnunarinnar. Vegna þess að gjald fyrir almennar bréfasendingar hækkaði ekki nema um 8,3%, úr 12 kr. í 13 kr., var gripið til þess ráðs að ná inn mismun- inum með því að hækka til muna gjaldið fyrir C-gíróþjónustuna. Þetta kom fram í svari Guðmundar Björnssonar framkvæmdastjóra fjármáladeildar er Tíminn leitaði eftir skýringum á þessari miklu hækkun, úrl5kr. í20kr.,semmætir nú viðskiptavinum banka, spari- sjóða og pósthúsa. Guðmundur tók fram að seðlarnir hefðu ekki hækkað síðastliðin ár og á sama tíma hefði kostnaður aukist smátt og smátt. Samningur Pósts og síma við prentsmiðjuna er bundinn við verðhækkun pappírs og launa. Langstærsti hluti greiðslunnar er engu að síður þjónustugjald en ekki efniskostnaður. Þessu þjónustu- gjaldi skipta bankar, sparisjóðir og pósthús á milli sín samkvæmt nánari ákvörðun Samstarfsnefndar um gíróþjónustu. KB Frá afhendingu fyrsta leiðakortsins. Til vinstri eru Þórarinn Jón Magnússon rítari ferðamáianefndar og Páll Pálsson formaður ferðamálanefndar. Til hægri eru JC- félagarnir Guðni Gunnarsson fráfarandi formaður JCH, Svava H. Svavarsdótttir og Ægir Björgvinsson. Upprennandi ferðamannabær Fimm manna ferðamálanefnd í Hafnarfirði áætlar nú hvernig hentugast muni að gera bæinn að ferðamannabæ. Fyrir fáeinum dög- um var tjaldstæði tekið í notkun á Víðistaðasvæðinu þar sem unnið er að miklu útivistarsvæði samkvæmt nýsamþykktu skipulagi. Við opnun tjaldstæðisins notaði JC- Hafnar- fjörður tækifærið og afhenti fulltrú- um ferðamálanefndar fyrsta kortið af Hafnarfirði sem prentað er fyrir ferðamenn. Það er á ensku, en næsta sumar verður einnig prentuð íslensk útgáfa af kortinu. Blómabúðin Burkni hefur tekið að sér að starfrækja upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og er það í fyrsta skipti, sem slík þjónusta er í Hafnar- firði. Einnig er nýtt gistihús að opna í Hafnarfirði. Jafnframt liggur fyrir hjá bæjaryfirvöldum ósk um leyfi til að reisa mótel við Reykjanesbraut í tengslum við veitingahús, sem á að fara að reisa þar innan skamms. Umferðarráð: BÖRN í BÍL ÞURFA VÖRN Að undanförnu hafa Umferðar- ráði borist fjölmargar ábendingar frá fólki víðsvegar að af landinu um að setið sé undir smábörnum í framsætum bíla.segir í fréttatilkynn- ingu sem Umferðarráð hefur sent frá sér. Þrátt fyrir þá staðreynd að öryggisbúnaður fyrir alla aldurshópa sé til.eru alltaf einhverjir trassar á ferð, segir jafnframt í fyrrnefndri fréttatilkynningu. \ iiœ8* Góð orð ' duga skammt. Gott fordæmi V Z~jl. skiptir mestu máli Á síðastliðnum 5 árum hafa að meðaltali um 50 börn slasast árlega sem farþegar í bílum. Auk þess er vitað um fjölmörg slys á börnum í bílum sem ekki eru tilkynnt til lögreglu. Það þykir því ástæða til að vara fólk við því að börn sitji laus í bílum og sérstaklega að þau séu laus í framsætum. Mikilsvert er að venja börn á að sitja alltaf í barnabílstólum jafnt á stuttum ferðum sem löngum. Slys gera ekki boð á undan sér. Barnið sem vanið er á að sitja í bílstólum/ beltum alltaf veitist auðvelt að nota öryggisbúnað áfram í lífinu. Börn eiga rétt á því að vera örugg í bíl og búnaður til þess að verja þau er fáanlegur. Vestfirðir: Skólafólk fær styrki Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr „Menningarsjóði vestfirskrar æsku“, til vestfirskra ungmenna,til framhaldsnáms, sem þau ekki geta stundað í heima- byggð sinni,segir í fréttatilkynn- ingu frá Vestfirðingafélaginu. For- gang um styrk úr sjóðnum að öðru jöfnu, hafa: 1. Ungmenni, sem misst hafa fyrirvinnu sína(föður eða móður) og einstæðar mæður. 2. Konur meðan ekki er fullt jafnrétti launa. Ef ekki berast umsóknir frá Vest- fjörðum, koma eftir sömu reglum, umsóknir frá Vestfirðingum bú- settum annarsstaðar. Félagssvæði Vestfirðingafélags- ins eru Vestfirðir allir. (ísafjörður, Isafjarðarsýslur, Barðastrandar og Strandasýsla.) Umsóknir skal senda fyrir lok júlí, og þurfa meðmæli að fvlgja umsókn,frá skólastjóra eða öðrum sem þekkja umsækjanda, efni hans og aðstæður. Umsóknir skal senda til „Menn- ingarsjóðs vestfirskrar æsku“,cd Sigríður Valdemarsdóttir Njáls- götu 20 jarðh.101 Reykjavík. Á síðasta ári voru veittar 85 þúsund kr. til fjögurra ungmenna, sem öll eru búsett á Vestfjörðum. í sjóðstjórn eru: Sigríður Valde- marsdóttir, Þorlákur Jónsson og Torfi Guðbrandsson. Þjóðveldisbærinn: Til sýnis alla daga Nú hefur Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal verið opnaður almenn- ingi til sýnis og er hann opinn alla daga vikunnar frá kl. 13.00 til 17.00 Þjóðveldisbærinn er eftirlíking af bæ frá þjóðveldisöld. Hann er hug- arsmíð Harðar Ágústssonar listmál- ara og lagði hann rústirnar á Stöng til grundvallar við hönnun bæjarins sem og aðrar heimildir, bæði skrif- legar og uppistandandi mannvirki í nágrannalöndum (þá aðallega í Nor- egi), sem eiga rætur að rekja aftur til miðalda. Þjóðveldisbærinn hefur vakið at- hygli bæði meðal innlendra og út- lendra gesta. Ásólfur Pálsson er bæjarvörður. Bærinn er eign íslenska ríkisins en rekstur hans og stjórn er í höndum nefndar sem skipuð er af forsæt- isráðuneytinu. Bæklingur um bæinn er til sölu og er hann á íslensku, ensku og þýsku.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.