Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 10

Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn ÍÞRÓTTIR íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild: Framsigur í Kef lavík - Keflvíkingar gerðu sjálfsmark snemma í leiknum Frá Margréti Sanders á Sudurnesjum: Fram sigraði ÍBK2-0 í 1. deildinni í knattspyrnu í Keflavík í gærkvöldi eftir að staðan hafði verið 1-0 í hálfleik. Framarar byrjuðu af mikl- um krafti og spiluðu oft stór- skemmtilega knattspyrnu án þess að skapa sér afgerandi færi. Það entist þó bara fyrstu fimmtán mínúturnar, þá komu Keflvíkingar meira inn í leikinn. Fyrra markið kom á 10. mín. þegar Viðar Þorkelsson gaf fyrir mark Keflvíkinga, í Guðmund Sig- hvatsson varnarmann og þaðan í markið; sjálfsmark. Engin góð færi eða hætta skapaðist allan hálfleikinn nema þá helst á 30. mín. þegar Peter Farrell skaut rétt framhjá úr auka- spyrnu. í síðari hálfleik átti Sigurður Björgvinsson gott skot á 65. mín. og var það vel varið af Friðrik Friðriks- syni markverði Fram og tveimur mínútum síðar átti Ormar Örlygsson skot rétt framhjá hinu markinu. Pétur Arnþórsson skoraði síðara mark Fram á 70. mín. eftir sendingu frá Kristjáni Jónssyni. Freyr Bragason átti gott skot á 76. mín. og á 81. mín. skaut Gunnar Oddsson rétt framhjá eftir auka- spyrnu af 30 m færi. Leikurinn var nokkuð jafn að undanteknu fyrsta korterinu en Framarar virtust þó örlítið ákveðn- ari. Keflvíkingar fengu snemma á sig sjálfsmark og hafði það slæm áhrif á liðið eins og gefur að skilja. Pétur Arnþórsson átti mjög góðan leik hjá Fram. Jóhann Magnússon Keflvíkingur gætti Ragnars Mar- geirssonar mjög vel og Sigurður Björgvinsson átti einnig góðan leik. íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild kvenna: Valur vann ÍA - Ingibjörg skoraði tvö Frá KrLstni Rcimarssyni á Akranesi: Ingibjörg Jónsdóttir skoraði bæði mörk Vals í 2-1 sigri liðsins á ÍA í 1. deild kvenna á Akranesi í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var jöfn, 1-1 og var það Ragnheiður Jónasdóttir sem skoraði mark ÍA. Fyrri hálfleikur var vægast sagt mjög tíðindalítill. Skagastúlkur fengu tvö færi. í fyrra skiptið var Laufey Sigurðardóttir þar á ferð- inni en Erna Lúðvíksdóttir varði vel. Ingibjörg komst svo ein innfyr- ir illa sofandi vörn ÍA á 28. mín. og skoraði 1-0. Ragnheiður jafnaði á 35. mín. með mjög Iausu skoti cftir góða sókn Skagastúlkna. Seinni hálfleikurinn var hressari og voru Valsstúlkur öllu sterkari. Árný Magnúsdóttir átti skot f stöng strax á 3. mín. og stuttu síðar komst Ingibjörg aftur ein innfyrir og átti ekki í vandræðum með að skora, 2-1 fyrir Val. Skagastúlkur komust meira inn í leikinn er á leið og átti Ragna Lóa Stefánsdóttir m.a. skot í stöng. Þá varði Ema vel frá Guðrúnu Gísladóttur sem kom inná sem varamaður. Ingibjörg og Erna voru sterkast- ar í Valsliðinu en engin ein skaraði framúr í liði ÍA. Leikurinn var á heildina séð nokkuð jafn en ekki vel leikinn, mikið um langspyrnur og minna um spil. Staðan í 1. deild karla á íslands- mótinu í knattspyrnu eftir leikinn í gærkvöldi: ÍBK-Fram 0-2 (0-1) (Sjálfsmark, Pótur Arnþórsson) Valur................ 9531 17-6 18 KR .................. 9441 16-6 16 ÍA.............. 9 5 13 13-11 16 Þór ............ 9 5 0 4 16-15 15 Fram ........... 7 3 2 2 8-7 11 KA ............. 9 3 2 4 7-8 11 ÍBK ............ 8 3 2 3 15-18 11 Völsungur....... 8 2 3 3 9-10 9 Víðir........... 9063 4-12 6 FH ............. 9 117 7-19 4 Staðan í 2. deild karla á ís- landsmótinu í knattspyrnu að loknum 9 umferðum: UBK-Einherji 2-0 (1-0) (Ólafur Bjömsson 2) Selfoss-Víkingur 2-1 (1-0) (Jón Birgir Kristjánsson, Jón Gunnar Bergs)-(Jón Bjarni Guðmundsson) Leiftur-Þróttur 3-0 (2-0) (Óskar Ingimundarson, Sigurbjörn Jakobsson, Halldór Guðmundsson) Sjálfsmark Keflvíkinga að verða staðreynd, boltinn hrökk af Guðmundi Sighvatssyni sem liggur lengst til hægri og yfir línuna fór boltinn án þess að Þorsteinn Bjarnason markvörður fengi nokkuð að gert. Tímamynd Pjetur. Víkingur........ 9 6 12 18-12 19 Leiftur.......... 95 13 12-6 16 ÍR ............. 9 4 2 3 18-14 14 Þróttur............... 9414 18-17 13 UBK .................. 9414 10-9 13 ÍBV ............ 9 3 4 2 15-15 13 Selfoss......... 9 3 3 3 17-19 12 Einherji........ 9333 10-14 12 KS ............. 9 3 2 4 13-17 11 ÍBÍ ............ 9 10 8 10-18 3 Islandsmótið í knattspyrnu, 2. deild: Víkingar lágu á Selfossi Leiftursmenn nálgast toppsætið eftir sigur á Þrótturum íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild kvenna: Rautt í leikhléi - ÍBK vann KA með tveimur mörkum gegn engu Frá Margréti Sanders á Suðurnesjum: VEISLA í HVERRI DÓS KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA AKUREYRI SÍMI: 96-21400 Þrír leikir voru í 2. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Á Selfossi lögðu heimamenn efsta liðið, Vík- inga, með tveimur mörkum gegn einu. Bæði lið börðust vel í leiknum en sigur Selfyssinga var fyllilega sanngjarn. Fyrsta markið kom strax á upp- hafsmínútu leiksins, Jón Birgir Kristjánsson batt enda á fallega sókn Selfyssinga með góðu marki. Víkingar svöruðu um miðjan síðari hálfleik með marki Jóns Bjarna Guðmundssonar. Eftir það tóku Selfyssingar leikinn í sínar hendur. Jón Gunnar Bergs skallaði í stöng í fyrri hálfleik en bætti unt betur í þeim síðari er hann komst einn innfyrir og skoraði örugglega og tryggði Selfyssingum sigur. Leiftur sigraði Þrótt 3-0 á Ólafs- firði. Mörk Leifturs skoruðu Óskar Ingimundarson og Sigurbjörn Jak- obsson í fyrri hálfleik og Halldór Guðmundsson í síðari hálfleik. Sigurinn var sanngjarn en markatal- aan gefur ekki rétta mynd af gangi leiksins. Þróttarar voru mikið með boltann í síðari hálfleik en náðu ekki að skapa sér afgerandi færi. Hver stórleikurinn rekur nú annan á Ólafsfirði, næstkomandi laugardag kemur efsta lið 2. deildar, Víkingúr, í heimsókn og á miðvikudagskvöld kemur 1. deildarlið Fram og leikur við heimamenn í Mjólkurbikarnum. Breiðablik vann Einherja 2-0 í döprum leik á Kópavogsvellinum. Ólafur Björnsson fyrirliði Blikanna skoraði bæði mörkin, það fyrra með góðum skalla aftur fyrir sig en það síðara úr vítaspyrnu. Ólafur og Þor- steinn Geirsson voru bestir í liði Blikanna en Hreggviður markvörð- ur Ágústsson var bestur hjá Vopn- firðingunum. Lítið sást af spili í leiknuin og var hann afskaplega daufur á að horfa. Blikarnir voru sterkari og var sigur þeirra sanngjarn en heldur stór. Þeir misnotuðu vítaspyrnu snemma í leiknum, Jón Þórir Jónsson lét verja frá sér. Næsta umferð í 2. deild verður á laugardaginn. -HÁ/hb/öþ Keflvíkingar sigruðu KA-stúlk- urnar 2-1 í 1. deild kvenna á þriðju- dagskvöld. Jafnræði var í fyrri hálf- leik en þó má segja að KA hafi verið meira með boltann en ÍBK bj&itti hættulegum skyndisóknum^Á 13. mín. var aukaspyrna fyrir íitan teig, Guðný markvörður sló boltann frá. KA- stúlkur áttu skot sem varnar- maður Keflvíkinga varði með hendi og dómarinn dæmdi réttilega víti sem Hjördís Úlvarsdóttir skoraði úr. Um miðjan hálfleik átti Guðný skot í slá úr aukaspyrnu og á síðustu mínútu fyrri hálfleiks fékk Svandís stungusendingu innfyrir en var brugðið og fengu Keflavíkurstúlk- urnar víti sem Anna María tók. Skot hennar fór yfir en markmaður hafði hreyft sig og fékk hún að endurtaka vítið. Þá skoraði hún örugglega og staðan 1-1 í hálfleik. Til tíðinda dró í hálfleiknum, Hjördís Úlvarsdóttir var ósátt við endurtekninguna á vítinu og fékk að sjá rauða spjaldið í hálfleiknum! KA stúlkur spiluðu því 10 það sem eftir var. KA sótti mun meira í seinni hálfleik. Á 50. mín. skaut Stellt Hjaltadóttir rétt yfir úr aukaspymu og 10 mín. síðar varði Guðný vel eftir hornspyrnu. Valgerður komst innfyrir vörnina á 62. mín. og átti gott skot en Guðný varði. Þegar 10 mín. voru til leiksloka náði ÍBK yfirhöndinni en þær skoruðu þó ekki fyrr en á lokamínútunni. Inga Birna skaut góðu skoti, markvörður KA varði vel en hélt ekki boltanum og Kristín Blöndal nýtti sér það og skoraði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.