Tíminn - 16.07.1987, Page 8

Tíminn - 16.07.1987, Page 8
8 Tíminn Timirm MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason NíelsÁrni Lund OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550.- Ofþensla og verðbólga Á það hefur verið bent í forystugreinum hér í blaðinu að málefnasamningur ríkisstjórnarinnar sé svo viðamik- ill og fjölbreyttur að augljóst sé að hann verði ekki framkvæmdur á stuttum tíma. Málefnasamningurinn er það ítarlegur að hann verður ekki framkvæmdur nema a.m.k. á heilu kjörtímabili. Petta er að sjálfsögðu kostur á samningnum, en ekki galli eins og einstöku maður hefur ýjað að. Frá almennu sjónarmiði er það mikilvægt að stjórnarstefna sé sem skýrust og að málefnasamningur sé ávallt leiðbeinandi fyrir einstaka ráðherra og Alþingi um hvernig haga skuli verkum í undirbúningi löggjafar og framlagningu frum- varpa á Alþingi. Hefur það iðulega leitt til óeðlilegrar ákvarðanatöku og vafasamra umsvifa ráðherra, ef þeir höfðu lítið við að styðjast um hver vera skyldu áherslumál á stjórnartímabilinu. Það gefur sjaldnast góða raun þegar misvitrir ráðherrar fara að spila stefnumálin af fingrum fram. Þessarar ríkisstjórnar bíða mikil verkefni, og ljóst er að ef góð samvinna og heilindi haldast í stjórnarsam- starfinu þá þarf þessi ríkisstjórn ekki að kvíða verkefna- skorti. Flokkarnir sem tekist hafa á hendur þetta stjórnarsamstarf hafa jafnframt tekið á sig mikla ábyrgð, sem þeir verða að vera færir um að standa undir að því er varðar skynsamlega efnahags- og stjórnmála- þróun næsta kjörtímabil. Hin nýja ríkisstjórn tekur við góðum arfi úr hendi ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar. Á stjórnar- tíma hennar skilaði mörgum mikilvægustu málum þjóðarinnar í rétta átt, ástand efnahagsmála batnaði á þessu árabili og hagur launþega var betri í lok stjórnartímans en hann hafði áður verið, ekki síst að því leyti að kaupmáttur ráðstöfunartekna var mjög mikill og sjaldan eða aldrei verið meiri eftir þeim mælikvarða sem á slíkt erjagður. Framsóknarmenn leggja höfuðáherslu á að haldið verði fyrri stefnu um baráttuna gegn verðbólgunni. Því aðeins er hægt að tryggja velferð almennings og trausta afkomu atvinnuveganna að verðbólgu sé haldið niðri. Um þetta markmið ríkisstjórnarinnar, sem Framsóknarmenn leggja mest upp úr, verður ekki einungis að nást góð samstaða milli stjórnarflokkanna, heldur er nauðsynlegt að önnur áhrifaöfl í þjóðfélaginú leggi sitt lið fram í þessu efni. Það er til lítils að ríkisstjórnin setji sér markmið og leiti leiða til að ná slíkum markmiðum ef áhrifamikil öfl í þjóðfélaginu hindra með einum eða öðrum hætti framgang efnahagsaðgerða eða ráðstafana í ríkisfjármálum og peningamálum. Það er í rauninni ekki annað en pólitískur óvani að heilsa nýrri ríkisstjórn með fyrirframdómum um niður- stöður af verkum hennar, ef ekki hótunum um gagnað- gerðir, þótt mönnum kunni að mislíka eitthvað í einstökum ákvörðunum hennar eða fyrirætlunum. Má þar sem dæmi taka síendurteknar upphrópanir for- ystumanna Félags ísl. iðnrekenda sem virðast líta á sig sem einhvers konar yfirbjóðendur ríkisvaldsins og eins og þeir tali máli allrar þjóðarinnar og geti sagt landsstjórninni fyrir verkum. Nær væri að íslenskir iðnrekendur, bygginga- verktakar, byggingarvörusalar, steinsteypufram- leiðendur og aðrir sem nú taka af alefli þátt í þensluaukandi atvinnustarfsemi, ættu hlut að því að stilla framkvæmdum í hóf og varast það kapphlaup í framkvæmdum sem veldur þenslu og verðbólgu. Fimmtudagur 16. júlí 1987 60 króna kaffibolli Garri hitti á dögunum mann sem var nýlega búinn að nota góða veðrið til þess að ferðast dálítið um á bíl sínum hér innanlands. Sá hafði eins og gengur stöðvað bifreið sína, af og til við þjóðveginn, skotist inn á sölustaði og veitingasölur og fengið sér snarl í gogginn, svona rétt eins og gerist og gengur um ferðalanga. Þessi málvinur Garra er líkt og fleiri landar hans töluverður kaffi- maður, og hann veit fátt betri hress- ingu en að fá sér kaffibolla til að örva einbeitinguna við aksturinn á þjóð- vegakerfinu. Þess vegna hafði hann af og til leyft sér þann munað i ferðinni að kaupa sér bolla af kaffi þar sem hann kom við. Garri þorir að fullyrða að þessi vinur hans er síður en svo sínkari á fé en almennt gengur og geríst. En þegar talið barst að verðinu, sem hann hafði þurft að greiða fyrir kaffibollana, þá varð Garra fljótt Ijóst að gengið hafði verið fram af vini hans. Eftir því sem hann sagði þá er algengt gangverð á kaffibolla um scxtíu krónur á þessum stöðum, og gildir þá nokkurn veginn einu hvar stansað er, til dæmLs á hringvegin- um. Og þetta þótti Garravini dýrt, þótt hann setti það í sjálfu sér ekki fyrirsig að verða af með þessa aura. Hann benti á að ætti að reikna álagninguna í þessu dæmi þá yrði prósentan svo hrikaleg að engu tali tæki. Að því er hann sagði kostar kaffipakki nálægt hundrað krónum út úr búð. Úr honum má fá á að giska fjörutíu bolla, og sé margfald- að saman fjörutíu og sextíu þá er útkoman heilar tvö þúsund og fjögur hundruð krónur. Og breytir þá litlu þó að veitingasalar bjóði kannski upp á ábót ofan á þennan eina sextíu króna bolla, þvt að þeir eru víst fæstir sem notfæra sér slíkt. Eitt sterlingspund bollinn En Garravinur hafði í sjálfu sér ekki mestar áhyggjur út af því þótt smurt væri með þessum hætti ofan á kaffisopann fyrír íslendinga sem eru akandi á leið um landið. Það sem hann benti á var hitt að með verðlagningu á borð við þessa væri þjóðin beiniínis að ávinna sér óorð erlendis fyrir hátt verð. Erlendir ferðamenn sækja nú orðið hingað stórhópum saman, og það sem Garravinur benti á var að gagnvart Bretum til dæmis þýðir þetta að einn lítill kaffidreitill kost- ar hvorki meira né minna en hcilt stcrlingspund. Gagnvart Banda- ríkjamanni er verðið umreiknað hvorki meira né minna en einn og hálfur dollar. Því fer fjarri að allir þeir erlendu ferðamenn, sem sækja okkur heim. séu efnafólk með fullar hendur fjár. Ætli stærsti hlutinn af þessu fólki sé ekki launamenn, svona rétt eins og við hinir, sem leyfa sér svo sem eins og eina góða sumarleyfisferð á ári, og þurfa þá vitaskuld að halda utan um aurana sína rétt eins og við. Að brjóta niður álitið Við íslendingar höfum unnið markvisst að því á liðnum árum að byggja hér upp arðbæra ferðaþjón- ustu, og með býsna góðum árangrí. Hins vegar verðum við að gæta þess vel í þessu efni eins og öðru að blóðmjólka ekki kúna. Með verðlagningu á borð við þessa erum við að ganga fram af stærstum hluta þess fóiks sem hingað kemur erlendis frá, og slíkt getur reynst okkur dýrkeypt. Á þriöja þúsund prósenta álagn- ing á kaffibolla kann að viðgangast á rándýrum hótelum, þar sem hald- ið er uppi fyrsta flokks þjónustu með tilheyrandi kostnaði. En í litlum söluskála einhvers staðar úti í sveit, þar sem tilkostnaðurinn er ekki annar en ein kaffivéi, örlítið af rafmagni, og einn starfsmaður til að hella upp á könnuna og þvo upp bollana, nær slík verðlagning ekki nokkurri átt. Hvað sem upp- hæðinni líður þá er háttalag á borð við þetta grciðasta leiðin til þess að skapa okkur óorð meðai erlendra ferðamanna og væntanlegra gesta okkar erlendis frá. Garri. lllllllllllllllllllllll VÍTT OG BREITT llllllllllllllllllllllllllllllll IllIIIRIIIIllllllllIlliIiIIlllÍllll^ Með aðra hönd á stýri... Að deyja með stígvélin á fótun- um þótti hetjubragur í villta vestr- inu þegar það var og hét. Þá er gengið út frá því að þeir sem ekki söfnuðust berfættir til feðra sinna urðu ekki sóttdauðir. Svipaðra við- horfa gætti hjá norrænum mönnum, þar sem vopnadauði var aðgöngumiði að Valhöll. Enn eru á meðal vor hetjur sem fyrirlíta berfættan dauðdaga. Um þá verður einhvern tíma hægt að segja: Þeir dóu með farsímann í höndunum. Einhver fáfengilegasti hégóma- skapur sem rekið hefur á fjörur stöðutáknasýkinnar eru bílasím- arnir sem bægja allri minnimáttar- kennd frá og veita eigendunum upphafna fróun með því að láta aðra sjá að þeir hafi efni á að kaupa og reka svona síma og að sjálfir séu þeir svo mikilvægir og tími þeirra svo dýrmætur, að þeir aka eins og Bjössi á mjólkurbíinum með aðra hönd á stýri. í hinni hendinni er farsíminn. Bjössi mjólkurbílstjóri varð að láta sér nægja holdbetri handfylli. Kjaftaglöð sýndarmennska Nú hefur komið fram tillaga um að banna bílstjórum notkun far- síma í akstri. Það virðist full ástæða til að hafa vit fyrir þeim, því það er orðin algeng sjón að sjá menn burðast við að aka og kjafta í tólin samtímis. Þetta gengur ekki upp, síst þegar umferð er mikil, og auka þessir talglöðu símamenn á hættur í umferðinni, sem er ærin fyrir. í sjálfu sér er engin ástæða til að amast við farsímum. Þeir eru ágæt- ir þar sem þeir eiga við og margir hafa af þeim góð not. En að þörf sé fyrir allan þann fjölda sem búið er að hrúga í bíla síðustu mánuðina er fráleitt. Það er líka erfitt að sjá hvaða nauðsyn ber til þess að vera að tala í síma í taugaveiklaðri Reykjavíkurum- ferð. Þetta er ekkert annað en sýndar- mennska, sem því miður er ekki hættulaus, hvorki fyrir hina talandi bílstjóra eða aðra vegfarendur. Það er hægur vandinn að stöðva bíl ef bráðliggur á að tala í síma. Það er því sjálfsagt að banna allt kjaft- æði í farsíma á meðan á akstri stendur. Það þjónar hvort sem er engum öðrum tilgangi en að flagga kjánalegu stöðutákni. Sjálfvirk hreinsunardeild Sóðarnir mörgu og alræmdu dreifa áldósum og öðrum drykkjar- vöruumbúðum út um öll foldarból og var ekki á óþrifnaðinn aukandi. Þó eru áldósirnar illskárri en glerið sem liggur brotið um götur og vegi og er sums staðar að verða eins og hluti af náttúrunni. Dósirnar eru að vísu meira áberandi og Ijótari, en hættuminni. Stutt er síðan farið var að nota áldósir utan um gosdrykki hér á landi og eins og fyrri daginn kemur nýjungin aftan að löggjafanum, sem aldrei tekur við sér fyrr en í óefni er komið. Reynslan er samt næg í öðrum löndum. Tómar glerflöskur er hægt að selja þótt ekki sé verðmætið mikið. Því er nokkru af þeim skilað þótt illvirkjar brjóti mikið. Við áldósunum vill enginn taka nema ruslatunnumar. Það er því enginn fjárhagslegur ávinningur að halda dollunum til haga. I Bandaríkjunum t.d. fellur til einhver ósköp af tómum áldósum. Óvíða sjást þær samt á almanna- færi. Við því er m. a. séð með því að þeir aðilar sem selja drykkjar- vörur í dósum eru skyldugir að kaupa umbúðirnar aftur. Fara þær í endurvinnslu. En það er ekki allt málið. Krakkar og aðrir þeir sem munar um að vinna sér inn fáeina dollara eru naskir að safna dósunum sam- an og þannig sér sjálfvirkt hreins- unarlið um að bjór- og gosdrykkja- þambarar skilja ekki eftir sig slóð- ina og að borgir og bæir fari ekki á kaf í áldósir. Manni skilst að hugmyndir séu uppi um einhvem slfkan dósaskatt og því fyrr sem hann verður lagður á því betra. Bann við dósanotkun er fráleitt, því álumbúðimar em miklu skárri en fjandans glerið í höndunum á skaðræðisgripum. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.