Tíminn - 16.07.1987, Side 11

Tíminn - 16.07.1987, Side 11
Fimmtudagur 16. júlí 1987 ’Tíminn 1T Sú breyting, sem orðið hefur á kjörum og högum íslensku þjóðar- innar síðustu 80-100 árin er firna- mikil. Fastmótaðar aldagamlar venjur og gróin hefð hafa horfið á furðu skömmum tíma. í félagslegu tilliti hófst almenn vakning með stofnun bindindissam- takanna undir lok síðustu aldar og að marki með tilkomu ungmennafé- lagshreyfingarinnar, sem lyfti undir og örvaði þjóðarvitund íslendinga og sameinaði þá til átaka um varð- veislu alls þess, er íslenskt var og glæddi ást og virðingu fyrir landi og þjóð. I upphafi 20. aldarinnar var mikið að gerast í atvinnumálum þjóðarinn- ar. Iðnbyltingin heldur innreið sína með vélvæðingunni. Gufuknúnir togarar - vélar í róðrarbáta - verk- smiðjur sem byggðu starfsemi sína á vélarafli. Landsmenn lögðu úr léttum sjóði lóð sitt á vogarskál til að stofna skipafélag svo létta mætti þrúgandi ánauð. Það tókst þrátt fyrir fátækt og fámenni. f vitund íslensku þjóð- arinnar varð það óskabarn hennar. Framsókn til menntunar verður markvissari. Sett voru lög um fræðsluskyldu barna, fjölda skóla er komið á fót til að sinna þörfum gróandi þjóðlífs þar á meðal Háskóli íslands. Fast var sótt fram á flestum svið- um af stórhug, björgin færð í grunn framtíðarinnar. Þjóðfélaginu var umbylt, skapað tæknivætt samfélag úr hinni þúsund ára bænda- og höfðingjaþjóð. Aldamótakynslóðin sem lifði þetta tímaskeið öðlaðist sérstaka reynslu og skipar að ég hygg einstak- an sess í sögu íslensku þjóðarinnar. Hún stóð föstum fótum í fortíð og nútíð og hugði að framtíð án þess að ruglast í ríminu. Hugsjónaglóð aldamótaáranna dofnaði ekki þótt árin liðu og tím- arnir breyttust. Hér verður minnst manns, sem lifði þetta breytingaskeið íslenskrar sögu. Pétur Friðriksson var fæddur .í Drangavík á Ströndum 18. junf 1887. Eru því liðin rétt 100 ár frá fæðingu hans. Hann lést 9_ sept. 1979. Foreldrar hans voru Friðrik Jóhannesson bóndi þar, Sigurðsson- ar bónda sama stað, Alexíussonár bónda Dröngum, Grímssonar bónda sama stað, Alexíussonar bónda Reykjanesi og kona hans Guðbjörg Björnsdóttir, Björnssonar hreppstj. Bæ í Trékyllisvtk, Guðmundssonar bónda Stóra-Fjarðarhorni Kolla- firði, Jónssonar hreppstjóra Steinad- al, ættaður úr Skagafirði. Sigríður Jónsdóttir kona Björns á Stóra-Fjarðarhorni var systurdóttir Einars Jónssonar dannebrogsmanns í Kollafjarðarnesi, en sonur hans var Ásgeir kenndur við Þingeyrar í Húnavatnssýslu. Fyrri kona Björns hreppstjóra móðir Guðbjargar var Sigríður Magnúsdóttir, Illugasonar Gestsonar Tungusveit. Guðbjörg Jónsdóttir rithöfundur Broddanesi var systurdóttir Björns hreppstjóra. Hún segir lítillega frá þessum sérkennilega frænda sínum í Gömlum glæðum: Mátti hann muna tímana tvenna, var hann vel bjarg- álna fyrri hluta ævi sinnar, en lenti í mikilli fátækt. Hann tók því hlut- skipti sínu með æðruleysi og kj arki. Hann þótti sérvitur og mun hafa verið á undan samtíð sinni í mörgu. Hann hafnaði t.d. útskúfunarkenn- ingunni, var þó trúmaður. Hann taldi holt að neyta meiri jurtafæðu en þá gerðist, át hrossakjöt í trássi við kristilega siðu og þótti mörgum það athæfi ganga guðlasti næst. Alexíusarættin var á sínum tíma alþekkt um norðanverðar Strandir. Móðurættin átti rætur vítt um innan- verða Strandasýslu. Friðrik og Guð- björg munu hafa átt 11 börn. Sex af þeim komust til fullorðins ára. Pétur var næstyngstur þeirra. Ekki naut hann lengi móður sinnar því hún lést af barnsförum, þegar hann var tveggja ára að aldri. Var það mikill missir eiginmanni og ungum börnum. Guðbjörg var talin merkis- og greindar kona, sem bar andstreymi fátæktar og barnamissis með hug- prýði og stillingu. Drangavík var talin kostagrönn jörð jafnvel á þeirrar tíðar mæli- kvarða og barnahópurinn var stór og fátækt mikil. Þá bjuggu að Dröngum, sem er næsti bær við Drangavík, hjónin Guðmundur Pétursson og Jakobína Eiríksdóttir. Þangað var Pétur tek- Aldarminnmg Pétur Friðriksson inn í fóstur við lát móður sinnar. Drangahjónin gerðu til hans eins og sinna eigin barna. Þar ólst hann upp í hópi glaðra fóstursystkina og naut góðs uppeldis. Er hann fór þaðan var hann fulltíða maður. Drangar voru um margt menning- arheimili. Húsbændurnir nutu virð- ingar. Var þar jafnan margt fólk og efni góð eftir því, sem þá gerðist. Haldinn var heimiliskennari fyrir börnin. Virti Pétur fósturforeldra sína mikils og var þeim þakklátur. Dáði hann mjög fóstra sinn fyrir fordómaleysi hans og réttsýni og hversu athugull hann var um ýmis fyrirbæri í náttúrunni. Á þeim tíma höfðu börn og jafnvel fullorðnir beyg af tilvist huldra vera, sem margir töldu sig verða vara við. Guðmundur fóstri Péturs áleit að skýringar mætti finna á flestum fyrir- bærum náttúrunnar ef eftir væri leitað með skynsemi. Eftir lát fóstra síns 1910 stóð hann fyrir búi fóstru sinnar um hríð uns synir hennar tóku við búsforráðum. Næstu árin eftir að Pétur flutti frá Dröngum var hann búsettur hjá bændahöfðingjanum, Guðmundi Péturssyni í Ófeigsfirði. Á þessum árum réri hann á há- karlaskipinu Ófeigi. Hörð mun vist- in hafa verið á opnu skipi úti á regin hafi og oft var þungur róðurinn einkum ef taka þurfti barninginn utan af miðum á hlöðnu skipi og seglum varð ekki við komið. Vafa- laust hafa hákarlalegurnar verið ungum mönnum góður skóli í sjó- mennsku undir stjórn öruggs og æfðs stjórnanda. Þrátt fyrir vosbúð ogbrfiði minntist Pétur þessara ferða méð Hnægju. Fannst honum mikið til um þá glaðværð, jafnvel gáska, sem ríkti jafnan í þessum sjóferðum, ekki síst hjá hinum eldri. Það var eins og þeir losnuðu undan fargi fátæktar og mótlætis, þegar þeir settust á þóftur Ófeigs og stefndu til hafs - til hins ókunna - albúnir til átaka við rismikla sjói og dimrnu skammdegisins, staðráðnir í að koma að landi færandi hendi. Árið 1915 verða þáttaskil í lífi Péturs. Þá festir hann kaup á Hraundal við ísafjarðardjúp í því skyni að setjast þar að. Þess er að geta að á þessum árum voru veruleg kynni milli byggðanna sitt hvoru megin Drangajökuls. Að vestan var sótt á Strandir til viðarkaupa. Var fengurinn dreginn á hestum fyrir jökulinn þveran eink- um frá Dröngum. Þetta voru langar og erfiðar ferðir mönnum og hestum. En frá Ströndum var farið til verstöðvanna við ísafjarðardjúp eða í verslunarerindum. Margir voru því þaulkunnugir jökulferðum og óx ekki f augum að fara yfir jökulinn. Svo var einnig um Pétur. Þegar vestur kemur ræður hann til sín ráðskonu og fer að búa. Hraun- dalur er daljörð, túnið var lítið og ákaflega þýft, engjavegur langur. Heyskapur var því erfiður. Stað- hættir allir með öðrum hætti en hann var vanur á Ströndum. Veðrabrigði voru oft snögg og veður hörð. Missti hann bústofn sinn að mestu í fárvirði einn veturinn og erfið veikindi sóttu að. Hraundalur var talinn allgóð sauðjörð, vetrarbeit kjarngóð, en vandhæfi á um fjárgæslu á vetrum vegna harðviðra og því óhæg ein- yrkja. Næstu bæir við Hraundal eru Laugaland og Skjaldfönn. Þar bjuggu þá á báðum býlunum ung hjón. Tókust góð kynni milli grann- anna, sem entust ævilangt. Pétur undi ekki fjarri sjó til Iengdar. Hugurinn stefndi norður á Strandir, á æskuslóðir í von um betri afkomu. Þrátt fyrir litla auðsæld í Hraundal sótti hann þangað lífshamingju sína. Árið 1917 gekk hann að eiga ráðs- konu sína, Sigríði Elínu Jónsdóttur frá Bolungavík á Ströndum, glæsi- lega og greinda konu. Þau voru skyld. Afi Sigríðar í móðurætt, Þor- leifur Einarsson hreppsstjóri í Bol- ungavík var albróðir Guðfinnu, ömmu Péturs í föðurætt. Sigríður frá Reykjarfirði reyndist honum traustur lífsföru- nautur í 62 ára farsælu hjónabandi. Stóð hún við hlið manns síns og studdi hann og hvatti til athafna einkum er þrengst var í búi. Árið 1922 fluttu þau búferlum norður yfir Drangajökul að Skjalda- bjarnarvík á Ströndum, sem er nyrsti bær í Strandasýslu. Búferlaflutning- ar þessir urðu all sögulegir og al- kunnir þar um slóðir. Fjárhagur þeirra var það þröngur að þau höfðu ekki ráð á að greiða flutning með skipi. Kostir voru því tveir, að vera kyrr eða leggja í þá tvísýnu að fara jökul með bú og börn. í Skjaldabjarnarvík bjuggu þau í 13 ár. Fyrstu árin í tvíbýli, síðan á allri jörðinni. Átti Pétur Skjald- abjarnarvíkina að hálfu. Þangað komu til þeirra hjón í húsmennsku, Svanfríður Daníelsdóttir og Þor- bergur Samúelsson, gæða manneskj- ur, sem unnu af trúmennsku og tóku ástfóstri við börnin. Þau voru hjá þeim í nokkur ár. Skjaldabjarnarvík er all landstór og fremur góð sauðjörð, snjólétt á vetrum og fjörubeit nokkur, trjáreki mikill og selveiði lítils háttar. Þau komu upp góðu búi miðað við það sem þá gerðist. Hagur þeirra blómgaðist. Byggði Pétur upp flest peningshúsin, gerði upp bæjarhús og byggði við þau. Skjaldabjarnarvík er ein af- skekktasta jörð landins, hömrum girt, langt til næstu bæja og yfir fjöll að fara. Liðu stundum mánuðir að vetrarlagi að ekki bar gest að garði. Leiðir skiptust um Geirhólm. Þar voru sýslumörk. Allar nauðsynjar varð að draga að á sumrin, sjóveg. Aðalverslunarstaðurinn var Norður- fjörður, einnig var farið í verslunar- erindum til lsafjarðar. Tók hvor- tveggja leiðin álíka langan tíma. Eftir að vetur lagðist að varð að bera aðföng á bakinu. Fjallvegir tepptust þegar á haustdögum svo hestum varð ekki við komið. Oft báru menn á bakinu þungar byrðar dögum saman, þegar sækja þrufti björg í kaupstað að vetrarlagi. Ef vel gekk tók slík ferð 6-7 daga. Aðalverslun- arferðirnar voru vor og haust. Farið var til Norðurfjarðar. Var sammælst á tveim þrem nyrstu bæjunum, ef við mátti koma. Þetta voru erfiðar ferðir enda leiðin löng meðfram skerjóttri strönd. Hætt var við töf ef veður versnaði. Sláturfé var rekið. Þótti gott ef komist var á leiðarenda á þrem til fjórum dögum. Oft varð að sundleggja fénu í árnar. Rekstrar- menn voru á stundum lítið þurrari en lömbin úr vatninu. Það þótti ekki tiltökumál. Slík ferð gat tekið allt að hálfum mánuði. Fyrstu ár sín í Skjaldabjarnarvík fór Pétur undir Horn til að afla fugls og eggja. Til þessara ferða notaði hann tveggja rúma jullu og fór fyrir Strandir við annan mann. Engar fréttir var að fá af ferðum þeirra fyrr en þeir komu aftur viku eða hálfum mánuði síðar. Árið 1935 fær Pétur ábúð á Reykjarfirði í sömu sveit og flutti þangað. Mun þar mestu hafa ráðið að börn þeira voru að komast á legg og þau höfðu hug á að afla þeim menntunar. í þetta skipti fékk Pétur stóran bát frá Isafirði (Persíu) til að flytja búslóð og fólk í Reykjarfjörð. Með sauðféð var ýmist farið landleiðina eða flutt sjóveg til að létta reksturinn þar sem komið var nálægt burði. Þegar þau settust að í Reykjarfirði voru að verða tímamót í Árnes- hreppi. Það sama sumar tók til starfa nýtísku síldarverksmiðja í Djúpu- vík, sem er skammt út með Reykjar- firði að sunnan. Síld var þá mikil á Húnaflóa og fyrir Norðurlandi öllu. Hófst nú mikill blómatími í sveit- inni. Atvinna var mikil bæði í verk- smiðjunni og við síldarsöltun. Á vorin kom fjöldi fólks víðs vegar að til að vinna yfir sumarið. Áhrifin urðu margvísleg á þetta afskekkta byggðarlag. Sveitin hafði dregist inn í hringiðu síldarævintýrisins - stóriðjunnar. Umsvifin kölluðu á bættaþjónustu af ýmsu tagi. Flugvél- ar komu þar við, skipakontur verða tíðar, (erlend kaupskip og oft komu annarra þjóða síldveiðiskip svo tug- um skiptu og höfðu samband við land), hafnar voru fastar ferðir um Húnaflóann með fólk og varning, símstöð var reist á Djúpuvík og áhugi vaknaði á vegasambandi inn sýsluna. Afkoma fólks batnaði þrátt fyrir kreppuástand víða um land á fjórða tug aldarinnar. Fljótlega tekur að myndast vísir að þorpi í Djúpuvík. Á veturna var unnið að viðhaldi og ýmis konar undirbúningi mannvirkja fyrir sumarið. Félagsleg áhrif eru einnig greini- leg. Batnandi fjárhagur ýtir undir frekari skólagöngu ungmenna en ella, ungmennafélög eru stofnuð, sem beita sér fyrir fjölþættara skemmtanalífi og iðkun íþrótta svo eitthvað sé nefnt. Enginn vafi er á því að kynnin við aðkomufólkið hvöttu til átaka á sviði félagsmála. í Reykjarfirði bjuggu Pétur og Sigríður í tvíbýli fyrstu árin, en síðan á allri jörðinni. Reykjarfjörð- ur er að mörgu leyti kostajörð. Þar er grasgefið og sumarbeit góð, en snjóþungt á vetrum og því gjafafrek sauðjörð. Pétur byggði upp flest eningshúsin og girti túnið að nýju. Djúpuvík var góður markaður fyrir búsafurðir, einkum var mjólk eftirsótt. Um skeið var mjólkursala aðaltekjulind búsins. Var mjólk flutt daglega til Djúpuvíkur mestan hluta ársins meðan starfsemi síldarstsöðv- arinnar var í sem mestum blóma. Mjólkurflutningarnir voru engan veginn auðveldir að vetrarlagi. Ófært var hestum mikinn hluta vetr- ar vegna snjóa. Mjólkurpósturinn varð þá að draga mjólkina á sleða eða bera þegar verst lét. Reyndi Pétur eftir því sem kostur var að fullnægja eftirspurn. í því skyni keypti hann stundum mjólk- andi kýr að vorinu, þegar sumarfólk- ið kom. Ég hygg að Pétur hafi verið eini bóndinn í Árneshreppi fyrr og síðar, sem rekið hafi kúabú sem aðalbúgrein. Búskapurinn var þó alltaf blandaður, sauðfé og kýr. Búið var arðsamt þó ekki væri það stórt. Silungsveiði var nokkur í Reykja- fjarðará, en hún er fremur lítil bergvatnsá, sem liðast um sléttan dalbotninn. Péturleyfði aldrei ádrátt í ánni né við ósinn. Veiðina tak- markaði hann við það, sem hann taldi að veiða mætti að skaðlausu. Þótti þetta nokkur harka í þá daga. Djúpvíkingar sóttu fast um veiðar fyrir sig og gesti sína. Fiskirækt og ofveiði voru hugtök, sem þá var lítt á lofti haldið. Pétur var alla tíð leiguliði í Reykjarfirði. Mun það hafa dregið úr um að hefjast handa um ræktun. Fljótt var sýnt að ekkert barnanna myndi hyggja á búskap þar. Hluti túnsins var véltækur og engjar að nokkru. Fékk Pétur hestasláttuvél og rakstrarvél, sem munu hafa verið með þeim fyrstu sem notaðar voru í hreppnum. Þær breytingar, sem urðu í Árnes- hreppi um þessar mundir og drepið er á hér að framan bæði hvað snerti efnahag og svið félagsmála, hvöttu hreppsbúa til umræðu um ýmis um- bótamál í byggðarlaginu. Það leiddi til þess að sveitarstjórnin hófst handa um að hrinda ýmsum þeirra í framkvæmd, þótt ekki væri farið mjög geyst af stað. Má í því tilliti nefna sveitarsíma, vegagerð innan sveitar, meiru fé var varið til skóla- mála og félagsheimili var reist. Pétur var félagsmálamaður og tók þátt í þessari vakningu af heilum huga. Hann var fljótlega valinn til trúnaðarstarfa fyrir sveit sína og sveitunga. Sat lengi í hreppsnefnd, skólanefnd, í stjórn Kaupfélags Strandamanna, í stjórn Búnaðarfé- lags Árneshrepps, sótti marga þing- og héraðsmálafundi Strandasýslu, sat stundum aðalfundi SÍS sem full- trúi Kaupfélagsins og var fulltrúi sauðfjárveikivarnanna í sveitnni svo það helsta sé nefnt. Ég hygg að Petur hafi notið þess- ara ára í Reykjarfirði. Erfiðleikar frumbýlisáranna voru að baki, börn- in að vaxa úr grasi og farin að létta undir við bústörfin, betra tóm gafst til að sinna öðru. Eftir átján ára búskap í Reykjar- firði brugðu þau búi og fluttu til Hellissands á Snæfellsnesi, en þar var einn sonur þeirra kaupfélags- . stjóri. Höfðu þau þar nokkrar kind- ur og jafnframt vann Pétur ýmis störf við kaupfélagið. Sigríður vann um tíma við fiskverkun. Til Reykjavíkur fluttu þau 1963, keyptu íbúð í Efstasundi 100. Þar áttu þau rólegt ævikvöld. Síðustu árin var heilsa Péturs þrotin. Kona hans annaðist hann af mikilli alúð og nærgætni. Á sjúkrahús fór hann tveim mánuðum fyrir andlát sitt. Þeim varð sex barna auðið er upp komust: Guðmundur vélstjóri, látinn, var kvæntur Jóhönnu Guðjónsdóttur, Guðbjörg gift Gunnari Guðjónssyni vélstjóra, Jóhannes kennari kvæntur Kristínu Björnsdóttur, Friðrik kenn- ari kvæntur Jóhönnu H. Svein- björnsdóttur, Matthías skrifstofu- stjóri kvæntur Kristínu Þórarins- dóttur, Jón bifvélavirki kvæntur Rósu Sigtryggsdóttur. Pétur taldi sig hafa verið gæfu- mann og nefndi til þess þrennt: f fyrsta lagi að hann fékk góðrar konu. í öðru lagi að þau eignuðust myndarleg börn og í þriðja lagi að hann hlaut trúnað margra sam- ferðamanna sina. Benedikt Benjamínsson Stranda- póstur gisti oft í Reykjarfirði í póstferðum. Hann segir um kynni sín af Pétri og heimili hans í minning- abók sinni: „í Reykjarfirði bjó Pétur Friðriks- son og kona hans, Sigríður Jónsdótt- ir. Þau voru sæmdar hjón og fór ég þar sjaldan hjá garði án þess að hafa viðdvöl. Þau höfðu flutt í Reykiar- fjörð vestan frá Hraundal við Isa-' fjarðardjúp (fluttu frá Skjaldabjarn- arvík ath. mín.) og er um búferla- flutning þeirra norður yfir Dranga- jökul víðkunn saga og er sú ferð talin til afreka. Pétur var í stjórn Kaupfélags Strandamanna og þar af leiðandi að nokkru leyti yfirmaður minn eftir að ég tók við útibúinu á Djúpuvík. Okkur samdi vel, reyndist hann mér sanngjarn og hollur samstarfsmaður enda heils hugar samvinnumaður." Pétur reyndi að fylgja eftir þeim málum, sem hann hafði með hönd- um með festu og sanngirni. Mér er minnisstætt hve drjúgan þátt hann átti í að íbúð fyrir skólastjórann var reist við barnaskólann að Finnboga- stöðum. Með byggingu þessarar íbúðar var bætt úr brýnni þörf og komið á meiri festu í skólastarfi en verið hafði um tíma vegna tíðra kennaraskipta. Bjartsýni og kjarkur aldamótaár- anna settu mark sitt á þessa kynslóð. Seigla og óbilandi sjálfsbjargarvið- leitni ásamt staðfastri trú á guð sinn og landið, fleyttu mörgum yfir sker og boða á leið til betri lífskjara. í kyrrð og ró elliáranna hvarflaði hugur hans þráfaldlega norður f sveitina þar sem vaggan stóð og lífsstarfið var unnið, dvaldi þar við menn og málefni. Harmaði hann mjög örlög byggðanna á norðurslóð- um. Saga þessa mannlífs, sem þar blómgaðist í hans tíð, fer brátt að verða saga genginna kynslóða, sem fáir kunna skil á. En meðan móða fortíðar færist yfir minningu þess fólks, sem háði þar lífsstríð sitt, standa þessar sveitir auðar og yfir- gefnar umvafðar tign stórfenglegs landslags og óravídda úthafsins. Jóhannes Pétursson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.