Tíminn - 16.07.1987, Qupperneq 16
16 Tíminn
ÁRNAÐ HEILLA
Sextugur í dag:
Sveinbjörn Dagfinnsson
Á sextugsafmæli Sveinbjarnar
Dagfinnssonar, ráðuneytisstjóra í
landbúnaðarráðuneytinu, hvarflar
hugurinn aftur um 14 ár, þegar við
hittumst fyrst til þess að taka tal
saman í næði. Hann kom austur á
Hérað með ráðherra sínum, Hall-
dóri E. Sigurðssyni, og þeir ætluðu
saman að skoða Hallormsstaðaskóg,
ásamt því að reka önnur erindi.
Þröngt var á gistihúsinu, svo að
þannig skipaðist, að Sveinbjörn gisti
hjá okkur. Þetta hljóðláta kvöld
sátum við framan við arineld og talið
barst m.a. - og líklega mest - að
starfsvettvangi mínum, skógrækt-
inni. Orðin sem töluð voru, eru mér
nú gleymd, en hitt man ég, að
skoðanir okkar fóru undarlega vel
saman. Mér þótti einstaklega nota-
legt að ræða við þennan húsbónda
minn, sem starfaði í svo mikilli
fjarlægð frá mínum vinnustað. Við
höfðum daginn áður farið í nokkurra
klukkutíma skógargöngu með Hall-
dóri E. í yndislegasta veðri, sem
hugsast gat. Skógurinn og skógrækt-
in var því sjálfgefið umræðuefni.
Mér þótti náttúrlega vænt um að
finna áhuga Sveinbjarnar á þessu
verkefni. Hann hafði reyndar fengið
nokkur kynni af skógræktinni frá
tengdaföður sínum, Hermanni
Jónassyni fyrrv. forsætisráðherra,
sem var um langt skeið varaformað-
ur Skógræktarfélags Islands og rækt-
unarmaður af guðs náð, eins og
gróðrarstöð hans í Fossvogi og
skógarreiturinn á Kletti í Reyk-
holtsdal báru gleggst vitni um. En
þennan dag hafði Sveinbjörn fengið
tækifæri til þess að sjá besta árangur-
inn í skógrækt hér á landi á þeim
tíma. Gleði hans yfir því duldist ekki
kvöldið góða.
Ekki óraði mig fyrir því þá, að ég
ætti eftir að hafa við hann náið
samstarf, sem nú hefir staðið í 10 ár
og 16 daga. Samstarf, sem aldrei
hefir borið skugga á og orðið því
nánara sem liðið hefir á, þegar hann
er nú genginn formlega í framvarð-
arsveit áhugafólks um skógrækt.
Fyrir mig hefir þetta verið meiri
styrkur en orð fá lýst. Fyrir „málefn-
ið“ er hann ómetanlegur.
Ekki skulu hér rakin í smáatriðum
æviatriði Sveinbjarnar, en lög-
fræðingur er hann að mennt, stund-
aði framhaldsnám í fræðigrein sinni
í Þýskalandi einn vetur, varð fulltrúi
í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
að loknu embættisprófi 1952, deild-
arstjóri í landbúnaðarráðuneytinu
1958 og ráðuneytisstjóri í sama ráðu-
neyti 1973. Hann starfaði á yngri
ráðuneytisstjóri
árum í ýmsum félagasamtökum en
síðar mest í samtökum hestamanna,
uns hann var á sl. ári kjörinn í stjórn
Skógræktarfélags íslands.
Kvæntur er hann Pálínu Her-
mannsdóttur Jónassonar og eiga þau
4 börn.
Eins og geta má nærri og þegar
hefir verið nefnt, hafa kynni okkar
orðið mest í kringum starf mitt að
skógræktarmálum. Fyrir utan venju-
legan daglegan rekstur, hefir Svein-
björn haft forystu í ýmsum nefndum
og hópum, formlegum og óformleg-
um, þar sem ég hefi verið kvaddur
til þátttöku. Ætíð hefir forysta hans
verið málefnaleg og örugg, þar sem
leitað hefir verið eftir sem flestum
sjónarmiðum. Af slíkum störfum
held ég mér sé minnisstæðast að hafa
fengið að starfa með honum og
öðrum ágætum mönnum að gerð og
framkvæmd tveggja landgræðslu-
áætlana, sem hafa reynst veruleg
lyftistöng fyrir landgræðslu og skóg-
rækt og rannsóknir því tengdar að
endurheimta landgæði og notfæra
sér nýjan gróður í því skyni. Skoðun-
arferðir um landið í sambandi við
þetta starf, sem Sveinbjörn gekkst
fyrir, verða okkur lengi minnisstæð-
ar.
f tengslum við landgræðslumálin
verður að geta um eitt mál, sem
verið hafði í miklum ólestri, en ‘
Sveinbjörn gekk í að koma bættri
skipan á: Gerð grunnkorta, sem
gætu orðið tæki til margvíslegrar
skipulagsvinnu. Ýmsir aðiljar höfðu
um skeið fengist við slíka kortagerð
hver í sínu horni og sumpart í slóð
hver annars. Honum tókst að ná
þessum aðiljum saman og fá þá til
Sumarferð ’87
Sumarferð Framsóknarfélaganna I Reykjavík verður farin laugardag-
inn 18. júlí n.k.
Farin verður Fjallabaksleið syðri.
Aðalleiðsögumaður verður Þórarinn Sigurjónsson frá Laugardaelum.
Meðal leiðsögumanna eru:
Þorsteinn Oddsson á Heiði, Sigurjón Pálsson frá Galtalæk, Hermann
Guðjónsson, Finnur Ingólfsson og Guðni Ágústsson.
Þeir sem vilja koma í rútuna f Hveragerði, Selfossi, Hellu eða
Hvolsvelli eru beðnir um að láta Eirík á skrifstofu Framsóknarflokksins
vita f síma 91-24480 og verður þá stoppað þar.
Framsóknarfélögin í Reykjavík.
Ungt framsóknarfólk!
Við hvetjum ykkur til að fjölmenna í sumarferð Framsóknarfélaganna
í Reykjavík á laugardaginn.
Farin verður Fjallabaksleið syðri sem er stórskemmtileg fjallaleið.
Haldið verður af stað kl. 8.00 og komið í bæinn um kl. 22.00.
Það verður góð stemmning með góðu fólki.
Sjáumst!
Stjórn FUF f Reykjavík.
þess að samræma vinnu sína, svo að
nú blasir við, að í fyrirsjáanlegri
framtíð verði til kort, sem nota má
við gerð skipulags í sveitum landsins.
Gróður- og jarðakortin, sem nú er
verið að gera af öiiu íslandi, eru
fyrsti sýnilegi árangurinn af þessu
framtaki Sveinbjarnar. Útgáfa þess-
ara korta var komin í strand, en er
nú á fullu skriði, og er á okkar
tímum álíka þýðingarmikið verk og
Jarðabók Árna Magnússonar og
Páls Vídalíns var fyrir nær 300 árum.
Ég þakka Sveinbirni á þessum
merkisdegi í ævi hans fyrir samstarf
og hjálp, sem hann hefir ætíð verið
reiðubúinn að veita mér, og holl ráð.
Áhugi hans á því að endurheimta
gróður landsins og auka hann að
fjölbreytni hefir verið okkur, sem að
þeim verkum starfa, ómetanleg
hvatning til þess að gera okkar
besta. Svo ánægjulegt sem það er að
leita til hans á skrifstofunni, sem er
að sjálfsögðu aðalvinnustaður hans,
hefir þó orðið minnistæðast að fara
með honum á vettvang í skóglendun-
um og á nýmörkunum og gleðjast
með honum yfir því, að þar bregður
fyrir sýn, sem niðjar okkar eiga
vonandi eftir að sjá stórum svæðum
á íslandi. í nýmörkunum sér hann
nýjan möguleika fyrir framtíð
margra sveita. Og aldrei þreytist
hann á því að brýna okkur á því að
standa betri vörð en við höfum gert
um birkilendið með blágresinu
blíða, þennan öflugasta varnarmúr
jarðvegsins og annars gróðurs.
Fyrir hönd skógræktarmanna
þakka ég Sveinbirni fyrir „góða
hjástöðu" eins og Goðmundur á
Glæsisvöllum þakkaði Þorsteini
bæjarmagni forðum.
Eftir er þá aðeins að færa Svein-
birni bestu afmælisóskir okkar
Guðrúnar og samgleðjast Pálínu og
börnum þeirra á þessum tímamótum
í ævi hans.
Sigurður Blöndal.
Sviðsmynd:
Ný hljómplata
frá Greifunum
Hljómsveitin Greifarnir varð til er
meðlimir hennar tóku þátt í Músík-
tilraunum 1986. Áður höfðu fjórir af
fimm meðlimum Greifanna starfað
saman í heimabæ sínum Húsavík
undir nafninu Special Treatment.
Greifarnir tóku þátt í hljómsveita-
keppni í Atlavík árið 1985 og í
Músíktilraunum sama ár. Ári síðar
sigruðu þeir Músíktilraunir og var
þá nýr söngvari genginn til iiðs við
hljómsveitina, Felix Bergsson.
Nokkru síðar gáfu Greifarnir út
plötuna Blátt blóð síðasta sumar.
Nú láta Greifarnir frá sér plötuna
Sviðsmynd. Á henni eru lögin
“Ást“,“Framan við sviðið“, „Frysti-
kistulagið" og „Þyrnirós“.
Næsta haust hyggjast Greifarnir
jafnframt hljóðrita efni á nýja stóra
plötu sem kemur á markað fyrir
jólin. Hljómsveitina skipa Felix
Bergsson, Kristján Viðar Haralds-
son, Sveinbjörn Grétarsson, Jón
Ingi Valdimarsson og Gunnar H.
Gunnarsson.
Góð orð duga skammt.
Gott fordæmi
skiptir mestu máli.
UUMFEROAR
I
1 RAD
Fimmtudagur 16. júlí 1987
llllllllllllllllllllllllllll DAGBÓK ~
Manuela Wiesler og Einar Grétar
Sveinbjörnsson leika á Sumartónleikum í
Skálholtskirkju um helgina.
Sumartónleikar
í Skálholtskirkju
Á þriðju tónleikahelgi Sumartónleika t
Skálholti munu Manuela Wiesler og
Einar Grétar Sveinbjörnsson leika bæði
gömul og ný verk fyrir flautu og fiðlu.
A laugardag kl. 15 leika þau eingöngu
verk eftir G. Ph. Telemann. Á laugardag
kl. 17 leika þau blandaða efnisskrá og á
sunnudag kl. 15 verða seinni tónleikar frá
laugardegi endurteknir.
Á sunnudag Id. 17 er messa í
Skálholtskirkju. Dr. Sigurður Örn
Steingrímsson predikar en sr.
Guðmundur Úli Ólafssón þjónar fyrir
altari. Organisti er Ólafur Sigurjónsson.
Manuela Wiesler og Einar G.
Sveinbjörnsson munu einnig leika við
messu.
Áætlunarferðir verða frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík báða
tónleikadagana kl. 13 og til baka frá
Skálholti kl. 18. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis.
Jón Baldvinsson tekur á móti
þingmanninum Daniel K. Akaka frá
Hawaii á sýningu sinni í
Menningárstofnun Bandaríkjanna.
Jón Baldvinsson sýnir
í Menningarstofnun
Jón Baldvinsson málari sýnir verk sín í
Menningarstofnun Bandaríkjanna við
Neshaga 16 þessa dagana. Sýningin er i
opin til kl. 20 í kvöld, á morgun frá hádegi
til kl. 17 og á laugardag kl. 14-22.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opið alla daga nema mánudaga kl.
14-18. Sími 52502.
fna Saldme.
ína Salóme í Nýlistasafninu
fna Salóme heldur einkasýningu á
textilverkum í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg 3 frá 18. júlí til 26. júlí.
ína útskrifaðist frá MHÍ árið 1978 og hélt
síðan til framhaldsnáms í Svíþjóð og
Danmörku. Síðastliðin fjögur ár hefur
ína dvalið í Finnlandi, þar af sex mánuði
í norrænu myndlistarvinnustofunni að
Sveaborg veturinn 1986-87 og eru verkin
sem hún sýnir núna öll unnin þar.
Þetta er önnur einkasýning fnu Salóme,
en hún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga hér á landi og erlendis.
Nýlistasafnið er opið virka daga kl. 16-20
og um helgar kl. 14-20.
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Laugardagur 18. júlí - kl. 08 Hekla.
Gönguferð fram og til baka á Heklutind
(1491 m) tekur 10 klst. Ógleymanleg
gönguferð. Verð kr. 1.200,-
Sunnudagur 19. júlí: Kl. 08 - Þórsmörk -
dagsferð. Verð kr. 1000. Kl. 10.
Dyravcgur - Grafningur. Gengið frá
Kolviðarhóli um Dyraveg (gömul
þjóðleið) í Grafning. Verð kr. 800.
Kl. 13. Illagil - Vegghamrar í Grafningi.
Ekið í Hestvík og gengið þaðan inn Illagil
að Vegghömrum. Verð kr. 800.
Miðvikudagur 22. júlí: Kl. 08 - Þórsmörk
- dagsferð. Verð kr. 1000. kl. 20
Ketilstígur (kvöldferð).
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
börn í fylgd fullorðinna.
Ferðafélag íslands.
Norræna húsið:
Opið hús fyrir norræna ferðamenn
Merkir staðir á Suðurlandi
f kvöld kl. 20.30 verður opið hús fyrir
norræna ferðmenn í Norræna húsinu. Þar
flytur Árni Böðvarsson,
orðabókarritstjóri og málráðunautur,
fyrirlestur, sem nefnist: Merkir staðir á
Suðurlandi. Fyrirlesturínn er á norsku.
Þá verður sýnd kvikmyndin Surtur fer
sunnan með dönsku tali.
Norræna húslð:
Sól, hnífar, skip
Sumarsýning Norræna hússins stendur nú
yfir. Sól, hnífar, skip er yfirskrift
sýningarinnar og er listamaðurinn Jón
Gunnar Árnason, sem sýnir þar
teikningar og skúlptúr.
Helstu vextir við banka og sparisjóði (% á ári)
11. júlf 1987
(Ein * merkir breytingu vaxta frá síðustu skrá og þrjár *”* vísa á banka
og/eða sparisjóði sem breyta vöxtum)
I. Vextir ákveönir af bönkum og sparisjóðum
Lands- banki Utv'égs- banki Búnaðar- banki Iðnaðar- banki Verslunar- banki Samvinnu- banki Alþýöu- banki Spari- Vegin sjóðir meðaltðl
Dagsetning siöustubreytingar 11/7 11/7 11/7 11/7 11/7 21/6 1/7 11/7
Innlánsvextir: Hlaupareikningar 8.00* 6.00 6.00 8.00 6.00* 4.00 6.00 4.00" 6.40*
Avisanareikningar 8.00* 6.00 6.00 6.00 6.00* 7.00 12.00 4.00" 6.80*
Alm.sparisj.bækur 15.00* 12.00 13.00 14.00 14.00* 10.00 12.00 15.00"* 13.80*
Annað óbundiðsparitó" 7-24.50 12-23.90 7-22.00 14-20.00* 11-22.50 12-18.00 3.50
7-22.00
Uppsagnarr.,3mán. 16.00* 15.00 13.00 15.00* 15.00 16.00 16.00* 13.80
Uppsagnan.,6mán. 17.00 14.00 20.00 20.00* 17.00 19.00 17.00* 16.80*
Uppsagnarr., 12mán. 17.00* 19.00 20.00 26.50"° 17,70*
Uppsagnarr., 18mán. 25.00" 27.00 25.50 "31 25.60
Verðtr.reikn3mán. 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00
Verðtr.reikn6mán. 3.50 4.00 3.50 3.00* 3.50 3.00 4.00 3.50 3.50*
Ýmsirreikn." 9.00 5-6.50"
Sórstakarverðbætur 14.0* 12.00 18.00 14.00 12.00 10.00 12.00 12Í29.3"1* 15 90*
Innl.gjaldeyrisreikn.: Bandarikjadofiar 6.00 6.25* 6.00 6.25 6.50 6.00 6.50 6.50* 6.20*
Steriingspund 7.50 8.00 8.00 7.50 9.00 6.00 8.00 7.50 7.80
V-þýskmðrk 2.50 2.75* 2.75 2.75 3.50 3.00 3.00 3.00 2.80
Danskarkrónur 8.50 8.75* 8.50 8.50 10.00 9.00 9.00 8.50 8.60*
Utlánsvextir: VixJar(tocvextir) 27.00* 24.00* 24.00" 28.50 28.50* 24.00" 25.50 26.00"’ 26.30*
Hlaupareikningar 28.50* 25.50* 25.00 30.00 30.00* 25.00 27.00 29.50* 27.70*
þ.a. grurmvextir 12.00 12.00 12.00 11.00 12.00 1Z0O 12.50 12.00 11.90
Alm-skuldabról" 28.00* 25/25.5"* 28.00* 29.50 29.50* 25.00 26.50 29/29.5"* 27.90*
þ.a. gnjrmvextir 10.00 1Z00 12.00 11.00 1Z00 12.00 12.00 12.00 1120
Verölrakbf.að2Sárs 8.00* 7.5Æ.0"* 7.50 9.00* 8.00 7.00 7.50 7.8/B.0"* 7.90*
Verðtr.skbr.>2.5árS| 7.50 6.75/7.0" 7.50 8.00 8.00 7.00 7.50 7.98.0" 7.50
Afurðalán í krónum 23.00 21.00 23.00 23.00 23.00 24.00 23.00
Afurðalán í SDR 7.75 7.75 7.75 7.75 8.00 825 7.90
Afurðalán í USD 8.75 9.00 8.75 8.75 9.25 8.75 8.80
Afurðalán i GBO 10.00 10.50 10.00 10.00 10.75 11.50 10.40
Afurðalán í DEM 525 525 5.25 5.25 5.50 5.50 5.30
II. Varekiavexlír, ákveðnir alSoðlabanka: Frá l.júnl 1987 2.8% (33.6% árári). I.Júll 19873.0% (36.0% áári).
III. MeðaJvextir 21.5.87 (gota gitt I júnj 87): Alm. skbr. 22.9% (102+12.7). ví. lán að 2.5 ánm 6.8% og mrxisl 25 ár 7%. MeðalvexHr 21.6.87 (gela g* I
júll 87): Alm. sktx. 24.6% (10.9+117), vB. lán að 2,5 ánjm 7.2% og mimsl 25 ár 7.3%.
1| Sjá meðfylgjanrí lýsingu. 2) Aðelns hjá Sp. Véist). 3) Aðeris hjá SPRON. Sp. Káp.. Hafna4, Mýras, Atareyrar. ÓlaMl. Svarld. SlgUi, NorM).. Arskðgsstr.
i Eyrar I Kellavlk. 4) Viðsk.vlxlar koypör m.v. 26.0% vext hjá Bún.banka 25.0% hjá Samvianka og 26.5% hjá nokknrm sparisj. 5) Vaxlaálag á skukjatxél
li uppgjöts vanskilalána er 2% á ári. Vertb. beitjr þessu ekki. 6) Aðeins hjá Sp. GeL. Mývem, Reykd. 09 Akureyrar. 7) Lœgri vexímir gida elum tastegnaveð
eraðrœða.8)Uegrilalanervegnainnlána.9)UndanlerSp. IKellav[k:Tékkare<kn.3%,alm.spartókogsét5t.verðbeBtur10%ogSp.V4tún:TNd(ar8i(a7%.