Tíminn - 15.09.1987, Side 7

Tíminn - 15.09.1987, Side 7
Þriðjudagur 15. september 1987 Tíminn 7 KVÓTI - og hvernig þá? Magnús Gunnarsson frkvstj. SIF Tollastefna EBE varasöm Það gefur ckki tilefni til mikill- ar bjartsýni þegar maður veit að yfirlýst stefna Evrópubandalags- ins, sem mótuð er í Briissei, er að hækka tolla a unninn saltfisk og- minnka kvóta okkar í innflutningi1 til bandalagsríkjanna,“ sagði Magnús Gunnarsson - fram- kvæmdastjóri Sölusambands ís- lenskra fiskframloiðenda. „í Brússel hefur fiskveiðistefna allra ríkjanna verið mótuð. Stjórnunin þar miðar fyrst og fremst að því að útvega þeirra eigin fiskvinnslu hráefni.“ Taldi hann því nauð- synlegt að fiskveiðistefna sú sem mótuð vcrður hér hcima, verði mótuð í samræmi við utanríkis- stefnu íslendinga. Hann undir- strikaði að'alls ekki mætti taka þessum viðvörunum st'num sem ofstækisfullum árásum á útflutn- ing á gámafiski. Hann væri að vara við mjög alvarlegri þróun innan EBE, sem hafa mun afger- andi áhrif á allan okkar útflutning áfiski. KB „Það verður að setja reglur sem farið verður eftir," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmda- stjóri Samherja hf. á Akureyri. Þetta sagði hann vera höfuðatriði því nauðsynlegt væri að geta miðað reksturinn við einhverja reglu í stjórnun. Allar geðþóttaákvarðan- ir yrði því að víkja. Ein aðalbreytingin sem hann lagði til var sú að tilfærslur á kvóta yrðu gefnar alveg frjálsar. Til- gangurinn með því væri að opna leið til að minnka flotann. Það myndi hugsanlega leiða til hag- kvæmari útgerðarþátta en í gangi eru í dag. Þorsteinn Már lagði einnig áherslu á að aflahlutdeildinni á milli báta og togara yrði haldið óbreyttri. Sóknarmarkið hefði gef- ið togurunum meiri hlutdeild til þessa, en fyrirhugað var. Þannig verði komið í veg fyrir stóran slag á milli þessara aðila. KB illskárstur? má ekki stækka „Ég er andvígur kvótakerfinu og hef verið það frá upphafi. Þau markmið sem menn settu sér í upphafi hafa líka brugðist," sagði Einar K. Guðfinnsson, útgerðar- stjóri í Bolungarvík. Varðandi framtíðina, sagðist hann vilja leggja áherslu á að tryggja að fiskiskipastóllinn stækki ekki frá því sem nú er. Núverandi kerfi væri ekki líklegt til að minnka flotann og við kom- umst út úr þeirri klemmu að allt of mikið fjármagn er bundið í út- gerðinni á bak við þær veiðar sem fram fara. . Taldi hann að sókrmrmarkið væri sprungið því að ekki gengi til lengdar að togararnir gætu aukið aflahlutdeild sína eins og þeir hafa gert á síðasta ári. Lagði hann einnig áherslu á að inn í væntanlegt kerfi yrði kornið innbyggðri samkeppni, til að tryggja að aflamenn fái að njóta þess að vera aflamenn. Ekki síður fái menn að njóta þess að búa við aflasamsetningu í samræmi við þau mið sem þeir róa á. KB Gúðjón Á. Kristjáns- son, forseti FFÍ: Nýtt kerfi og einfalt „Ég vil líta á allar þessar að- ferðir sem við höfum verið með í gangi, frá því að við fórum að stjórna fiskveiðunum, og reyna að finna það skársta úr öllu,“' sagði Guðjón Á. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiski- mannasambands íslands. Taldi þann að margt gott mætti læra af skrapdagakerfinu eða teg- undamarkinu. Taldi hann að trúarbrögð eipstakra manna yrðu að víkja og fiskveiðistefn- an yrði að vera einföld á heiid- ina litið. Útfærsluna yrði svo að miða við ólíkar skipagerðir, ólíkar aðstæður og ólíka teg- undasamsetningu eftir veiði- svæðum. Lagði hann áherslu á að inn í þessa umræðu kæmist nýtt við- horf er byggði-að stórum hluta á sveigjanleikanum í lífríkinu. KB Þorsteinn Már Baldvinsson, frkvstj. Samherja: Frjálsari tilrærsla á kvóta vegna væri ekki um að ræða að hafa áfram kvóta, ef sóknarmarkið ætti að fylgja. Eitt sjónarmið í umræðunni ber sérstaklega að nefna, en það er viðhorf smábátaeigenda. Það túlk- aði Arthur Bogason, forntaður Landsambands smábátaeigenda. Sagði hann að banndagakerfið á smábáta væri gagnslaust sem frið- unarkerfi. Krókaveiðarnar þyrftu að verða alveg frjálsar, cnda væru þær ekki í þeim mæli að skaðað gætu stofninn. Banndagarnir væru auk þess flestir á þeim tíma er dagarnir eru stuttir og á þeini tíma væru auk þess fáir á skaki eða línu. Þeir fáu væru eingöngu menn sem ekki hefðu að neinu öðru að hverfa. Sagði hann að mönnum hefði almennt blöskrað sú ætlun stjórnvalda að ætla að fara að stjórna veiðum á hverjum krók. Almenn niðurstaða þeirra sem þátt tóku í umræðuþætti Tímans var á þá leið að kvótakerfi það sem Halldór Ásgrímsson hefði komið fram með, væri kerfi sem kæmi til með að vara áfram. Flestir voru þó sammála um að verulegra breyt- inga væri þörf í ljósi þeirrar reynslu sem komin er. Flestir voru á því að fiskveiðistefnuna þyrfti að móta til lengri tíma en gert hefur verið.' Nokkrir lögðu fram þá tillögu að nauðsynlegt væri að móta stefnuna til 4-5 ára hiö minnsta og hafa á henni endurskoðunarákvæði. Þá kom Kristján Ragnarsson, formað- ur LÍÚ, með þá hugmynd að fiskvciðistcfnan yrði ætíð mótuð fimni ár fram í tímann. Þannig hefðu allir aðilar einhvern aðlög- unartíma og hægt yrði að stýra veiðum og útgerð af festu sem mikil þörf væri á í þessari atvinnu- grein. -KB Er hann Samherja hf. á Akureyri, og Einar K. Guðfinnson, útgerðarstjóri á Bolungarvík, tóku mjög í sama streng með það að slík víkkun á ráðstöfun kvótans væri alls ekki líkleg til að leysa þann vanda sem úthlutun kvótans fylgir. Benti Þor- steinn Már jafnframt á að oftast væri um sömu menn að ræða í útgerð og vinnslu. Ef þeir gætu ekki leyst vandann sem útgerðar- menn, gætu þeir enn síður leyst hann sem verkunarmenn. Sóknarmarkið bar mjög á góma í umræðuþætti Tímans undir heit- inu KVÓTI - og hvernig þá? Ýmist var að menn voru alfarið á móti því að sóknarkvótinnfengi yfirleitt að vera áfram til staðar. Hann var sagður hafa eyðilagt með öllu allt kvótakerfið. Þá var skrifað á reikning sóknarmarksins að mönnum hefði verið mismunað eftir skipategundum. Tómas Þor- valdsson, forstjóri Þorbjörns í Grindavík, sagði að leggja þyrfti sóknarmarkið alfarið niður. Sagði hann jafnframt að það væri almenn skoðun allra rólegri manna að Verður reynt að móta nýja fisk- veiðistefnu sem byggja mun á reynslu þeirra ára er stjórnun hefur verið á veiðum okkar íslendinga, eða verður sama kerfið notað á- fram eftir nokkrar breytingar? Ýmsar spurningar hafa vaknað í umræðunni í Tímanum að undan- förnu varðandi þessi mál og er ljóst að sitt sýnist hverjum. Nokkrir þeirra, sem Tíminn hefur leitað til. hafa látið það álit sitt í Ijós að markmið núverandi kvótakerfis hafi ekki náðst. Kvótinn hafi með öðrum orðum brugðist uppahafleg- um tilgangi sínum. Hafa margir bent á að ýmsar skuggalegar hliðar kvótakerfisins hafi komið í ljós. Kerfið sé í raun ekki líklegt til að vernda þorskstofninn sem var þó aðal markmið þess. Það að fiski- fræðingar leggi til stöðugt minni þorskveiðar á hverju ári bendi til að kvótinn hafi ekki reynst nægi- lega skilvirkur. Flestir eru þó sammála um að ef engin stjórnun hefði verið á veið- unum væri ásóknin auðvitað mun meiri í þorskinn. Þess vegna eigi kvótinn hrós skilið sem ekki verði af kerfinu skafið. Björgvin Jónsson forstjóri Glett- ings hf. lagði áherslu á að það væri í raun enginn kostur góður. Erfitt væri að móta fiskveiðistefnu um þessar mundir því smáfiskadrápið væri gífurlegt og stofninn í hættu. Kvótinn væri illskárstur en sóknar- markið hefði verið mistök eins og það var útfært. Þessi mistök þyrfti að leiðrétta því sóknarkvótinn hefði mismunað mönnum eftir Skipa- stóllinn skipategundum. Hugsanlegt væri að vinnslan ætti að fá einhvern hluta af kvótanum. Undir það hefur Guðmundur J. Guðmundsson. formaður Verka- mannasambandsins, tekið og sagt að hann væri á móti því að tak- marka kvótann við skip. Sjómenn eigi ekki miðin. Afleiðing þessarar stefnu væri til dæmis að gömul skip seldust á gífurlegu verði ef á þeim er góður kvóti. Vinnslan hafi þá ekkert að segja um það hvort siglt er með aflann eða honum komið í gáma til útflutnings. Afleiðingarn- ar eru m.a. minnkandi vinna í landi. Á þetta hefur Árni Benedikts- son, framkvæmdarstjóri SAF, ein- nig bent. Taldi hann ekki rétt að veiðiflotinn gæti haft þennan óskerta ráðstöfunarrétt á veiðun- um. M.a. þyrfti að athuga vel hvernig tilfærslan á milli landshluta yrði best takmörkuð. Ekki eru þó allir á sama máli varðandi hlutdeild vinnslunnar í kvótaúthlutun. Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri sóknarmarkið hefði gersamlega eyðilagt kvótann. Sóknarkvóti eyðilegði möguleika sntærri skipa en gilti eingöngu fyrir togara. Þess Einar K. Guðfinnsson, útgerðarstjóri í Bolungarvík:

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.