Tíminn - 15.09.1987, Side 20

Tíminn - 15.09.1987, Side 20
Pétur og Rúnar fengu bikarana Sjá íþróttir bls.10-13 SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. HRESSA KÆTA 1917 70 X D A 1987 Aukafjárveiting upp á 21 milljon til Viðeyjar Borgarráð ákvað 21 milljón króna aukafjárvcitingu til stand- sctningar á Viðeyjarstofu á fundi sínum í síðustu viku, en fram- kvaemdir við þetta virðulega 18.; aldar hús standa nú yfir. Ætlunin cr að gera Viðeyjarstofu upp í sína upphaflcgu mynd og nýta hana undir ráðstcfnur, fundi og veisl- uhöld. Til að koma nauðsynlegri aðstöðu fyrir vcrða byggð tvö jarð- hýsi fyrir norðan Viðcyjarstofu þar ' sem m.a. verður komið fyrir tækni- rými, matargcymslum og snyrtiað- stöðu. Ætlunin er að Viðcyjarstofa verði tilbúin 18. ágúst á næsta ári, tveimur árum eftir að Rcykjavík-' urborg fckk stofuna í gjöf frá, ríkinu í tilcfni 200 ára afmælis Reykjavíkur. Við gcrð fjárhagsáætlunar fyrir þctta ár lá kostnaðaráætlun við uppbyggingu Viðcyjarstofu ekki fyrir, en ákvcðið var að veita 20 milljónum króna til framkvæmda við Viðcyjarstofu og Viðcyjar- kirkju. Að sögn Björns Friöfinns- sonar framkvæmdastjóra lögfræði- og stjórnsýsludeildar Reykjavíkur- borgar var löngu Ijóst að fjárveit- ingin dugði engan veginn til þeirra framkvæmda sem áætlaðar voru á þessu ári. Því voru tvær lciðir, annars vegar að frcsta framkvæmd- um fram yfir áramót eða veita auknu fjármagni í endurbygging- una á þessu ári og hefði borgarráð valið síðari kostinn. í tengslum við framkvæmdirnar norðan við Viðeyjarstofu hefur farið fram mcrkur fornleifagröftur og meðal annars fundist suður- vcggur þess sem mcnn álíta hina gömlu klausturbyggingu í Viðey. Þar fannst til dæmis forn leðuraskja sem hefur að geynta vaxplötur sem menn notuöu í stað pappírs sem var mjög dýr á þeim tíma. Leðuras- kja þessi bíður nú þcss að vera rannsökuð frekar. Þá hefur því verið fleygt að grafið hafi verið niður í vínkjallara ábótans í Viðey og leðuraskjan geymi uppskriftir að hinum ýmsu kokteilum uppáhaldi voru. Séð til Viðeyjar þar sem unnið er að endurbyggingu Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju. MMWMM ■■m Kaupin á Útvegsbankanum: Sameiginlegt eignar- hald í uppsiglingu? „Ég tel að þetta hafi verið gagnleg- ur fundur og miði heldur í þá átt að hugsanlegt sé að ná sameiginlegri lausn á málinu," sagði Jón Sigurðs- son, viðskiptaráðhcrra í samtali við Tímann í gær, er hann var inntur eftir tíðindum af fundi sínum með fulltrúum SÍS og KR-inganna svok- ölluðu um kaup á Útvegsbankanum. Sagði Jón að fundurinn hefði verið vinsamlegur og að hann kanriaðist alls ekki við „þann stríða tón sem DV væri að reyna að búa til. Það kcmur mér mjög á óvart“. Fundinn sátu auk viðskiptaráð- hcrra, Þórhallur Ásgeirsson ráðu- neytisstjóri og tveir ntenn úr ráðu- neytinu. Fyrir hönd „KR-inganna“ mættu þeir Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskipsog Friðrik Pálsson forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna. Fyrir hönd Sambandsins mættu þeir Guðjón B. Ólafsson forstjóri, Axel Gíslason aðstoðar- framkvæmdastjóri, Geir Magnússon bankastjóri Samvinnubankans og Kjartan P. Kjartansson fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs. Á fundinunt bentu forráðamenn Sambandsins viðskiptaráðherra á að hreinn meirihluti yrði að vera fyrir hendi til að tryggja eðlilega starfs- háttu bankans. Greinilegt var á máli fulltrúa Sambandsins að þeir eru farnir að þreytast á biðstöðunni sem verið hefur í málinu og heldur áfram eftir fundinn í gær, því það var siður en svo að línur skýrðust eftir hann. Aðspurður um hvaða lausn gæti fengist á þessum máli, önnur en að annar hvor aðili hætti við kaup eða þá að aðilar sameinist á einhvcrn hátt um kaupin á hlutabréfum Út- vegsbankans, sagði viðskiptaráð- herra: „ Já, ætli að það sé ekki þetta síðara, sem þú nefndir." Ekki vildi Jón ræða nánar hvort annar aðilinn væri tilbúinn að eiga minnihluta í bankanum, en sagði að hans skilningur væri sá að enn hefðu viðræðuaðilar ekki lokað neinum leiðum. Næsti fundur hefur verið boðaður að viku liðinni. - phh Vigdís í Japan í gær hófst heintsókn forseta íslands Vigdísar Finnbogadóttur. til Japans þar sem luin mun opna norræna vörusýningu „Scandin- avia today" fyrir Itönd Norður- landaþjóöanna. í ferðinni mun Vigdís meðal annars hitta hinn aldna keisara Japans að máli auk þess sem hún mun heimsækja fjölda þekktra safna. kastala og hofa. Á morgun, miðvikudag, heldur Vigdís blaðamannafundi í tilefni sýningarinnar „Scandinavia to- day“ og verður auk þess viðstödd móttöku fimm norrænna sendi- herra í danska sendiráðinu. Heimsókn forseta íslands til Japans stendur í átta daga- og lýkur 20. september.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.