Tíminn - 27.09.1987, Qupperneq 3

Tíminn - 27.09.1987, Qupperneq 3
Sunnudagur 27. september 1987 Tíminn 3 n í Irkutsk, sem í öðrum eldri borgum Rússlands gnæfa kirkjur rétttrúnaðarins við himin. Þetta er Frelsarakirkjan, en þar hafði í byrjun 18. aldar aðsetur sitt munkaregla er lengi var helsti tengiliður evrópskrar menningar við Kína. Hafnarstemmning við Baikalvatn. geta höggvið helmingi meira timbur, án þess að stefna umhverfi í neina hættu. Þá eru miklar saltnámur norður af borginni, leifar fornra hafa, og er magnið áætlað nema billjónum lesta. Norður frá er svo gnótt af olíu og gasi, járn og kola- námur og helstu gull og demanta- námur Sovétríkjanna. Eru gullnám- urnar við Aldan, en demantanámur í Mirny. Ekki láta menn uppi hve mikið magn t.d. demanta muni unn- ið þarna. Sérfræðingur frá Volvo- verksmiðjunum er starfað hafði í grennd við Mirny og ég átti orðræður við í förinni sagði mér hins vegar að framkvæmdir við demantanámurnar væru svo tröllauknar að óhugsandi væri annað en magnið væri afar mikið. Þá er ónefnd í þessari upptalningu sú auðlegð sem vatnsafl á svæðinu er. Angarafljót er langtum straum- harðara en aðrar mestu ár Rússlands, svo sem Volga og Ob og þar er nú verið að byggja þriðju stórvirkjunina. Hin fyrsta var virkj- unin í Bratsk, sem um hríð var stærsta virkjun heims. Bygging Bratsk stíflunnar var framkvæmd með einskonar múghlaupi æskulýðs úr öllu landinu og var fádæma átak, rekið áfram með miklu fjárstreymi og áróðursherferðum. Sömu aðferð- um var beitt er ráðist var í að leggja BAM járnbrautarlínuna árið 1974, en hún liggur frá Baikalvatni austur til Amurfljóts. Stendur gerð brautar þessarar enn yfir. Með tilkomu hennar hefur mikið batnað aðstaða til nýtingar auðlinda í nórðrinu, en einnig mun brautin hafa stórfellt hernaðarlegt gildi með tilliti til hugs- anlegrar styrjaldar við Kínverja. í Irkutsk er stór tækniháskóli, sem ekki þarf að koma á óvart. Löngum voru þau fræði sem þar voru kennd fyrst og fremst tengd námavinnslu, en í seinni tíð eru greinar orðnar fjölþættari og sögðu ntér forráða- menn skólans að öll áhersla væri nú lögð á betri nýtingu náttúrauðlinda í Síberíu en var, en minna hirt um að fjölga námum og verksmiðjum. Skortur á vinnuafli er mikill. Ver- ið er að reyna að laða ungt fólk til minni bæja og borga með ýmsum fríðindum, verulega hærra kaupi en í stórborgunum og þá ekki síst með því að bjóða upp á betra húsnæði. Einhvern árangur hefur þetta borið en mikið mun á vanta að svari þörfum. Land skóga Síberiski skógurinn, „taiga", eins og heimamenn nefna hann rná vel nefnast frumskógur. Þessi flæmi eru slík að margri sál hefur legið við sturlun sem orðið hefur að ferðast um hann dögum og vikum saman, enda virðist hann endalaus. Það þykir líka sjálfsagt að bjóða ferða- mönnum sem til Irkutsk koma í skógarferð, svo sem til þess að gefa þeim dálítinn forsmekk af þessu og er ekki laust við að menn verði fegnir að komast í borgarmenning- una að slíkri reisu lokinni. Enn á vorum dögum ber Irkutsk merki nágrennisins við „taiguna“. Öll hin eldri íbúðarhús eru reist úr rammauknum trjáviði og getur að líta hér heil hverfi með þessu lagi, sum oröin nokkurra alda gömul. I útjaðri borgarinnar hefur einnig ver- ið reist heilt sveitaþorp í gömlum stíl, sem jafnfram er þjóðháttasafn. Búskapartól og innanstokksmunir gefa góða hugmynd um lifnaðar- háttu á fyrri tíð og svipar sumu af þessu til gamalla íslenskra áhalda, því þarna stóð strokkur með bullu í horni og hefði fullt eins getað verið ættaður úr Flóanum. lrkutsk er óneitanlega hreinleg og falleg borg og umhverfið minnir sums staðar á Rínarhéruð, þar sem snyrtileg hús standa dreifð innan um akurskákir í háum slakka upp af fljótinu. Á síðari árunt hefur ferðamönn- um farið fjölgandi enda enginn endir á því sem náttúra þessa fjarlæga heimshluta hefur eftirtektarvert upp á að bjóða. Til gamans má geta þess að á hótel Intourist rekumst við á enska stórskáldið Graham Green, sem hér er í för með konu sinni í boði sovéska rithöfundasambands- ins, en lengi hefur verið kunnugt að dáleikar hafa verið milli hans og sovéskra. Við eigum stutt kurteis- isspjall saman, og ég gríp auðvitað tækifærið og fæ að smella af honum nokkrum myndum. Hann er nú 83 ára, en bærilega á sig kominn, eins og sést af því að hann skuli leggja á sig að ferðast svo langan veg. AM Bændur - Útgerðarmenn Verktakar - Fiskkaupmenn Á bökkum Angara Irkutsk stendur á bökkum Ang- aratljóts - „fljótsins reiða" eins og nafnið mun þýða. Borgin er aðeins skamman spöl frá Baikalvatni. Þetta er gömul borg, stofnuð árið 1652 og var löngum hernaðarleg og stjórn- sýsluleg miðstöð austursvæða Síber- íu. Hún hefur í aldanna rás mjög tengst sögu rússneskra útlaga og eru þeirra kunnastir hinir svonefndu desembristar, er sendir voru þangað austur eftir uppreisnartilraun sína í St. Pétursborg í desember 1825. Meðal desembrista voru margir há- lærðir menn og telst þeim að þakka að borgin varð snemma hið helsta menntasetur austur Síberíu, sem hún enn er. Mikið er látið með minningu desembrista af ráðstjórn- inni og sér þess víða stað f borginni. Hús helstu forsprakka þeirra hafa verið gerð upp á veglegan hátt og að legstöðum þeirra er stöðugur straumur gesta. Margt er veglegra bygginga í borg- inni og ber þar að vonum mest á kirkjum grísk-róversk kaþólskunn- ar. eins og í öllum eldri borgum Rússlands. Stjórnsýslusvæði Irkutsk er mikið flæmi, 768 þúsund ferkílómetrar að stærð. Það er auðugt að málmum og skóglendi er gífurlega mikið. Kveð- ast menn höggva þarna 65 milljónir kúbikmetra timburs árlega og sér ekki högg á vatni, enda eru 50-55% svæðisins skógar. Telja menn sig Fólki af þjóð Jakúta bregður fyrir í Irkutsk, en það er í miklum minnihluta. Graham Green, sem nú 83 ára. Þetta er vinnuþjarkur á frá- bæru verði sem dugar í flest verk Takmarkað magn á lager IMISSAN PICK-UP 2,3 dísel kr. 680.000,- NISSAN PICK-UP bensín kr. 544.000.- Gerið verðsamanburð ^1957-1987 Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 14.00 - 17.00 Verið velkomin - Alltaf heitt á könnunni % 30 v ara M\ INGVAR HELGASON HF. | Sýmngarsalurinn /Rauðagerði, simi 33560 Nokkrir úr tólf ára bekknum. Einn varð að reka út úr sér tunguna framan í „Ameríkanann," sem þeir félagar töldu víst að ferðamaðurinn væri. I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.