Tíminn - 29.10.1987, Page 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 29. október 1987
Skoðanakönnun Hagvangs hf.:
SÝNIR RAUNVERULEGA
FYLGISAUKNINGU VID
FRAIUISÓKNARFLOKKINN
Gífurleg uppsveifla er nú á fylgi Framsóknarflokksins og Kvenna-
listi hefur tekið talsvert fy Igi frá Alþýðubandalagi miðað við úrslit síð-
ustu kosninga til Alþingis. Alþýðubandalag hefur tapað tæplega
þriðjungi þeirra sem kusu þá síðast. Einnig kemur fram að fylgi við
stefnu Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, er nær óhaggað
miðað við júlí í fyrra.
Þetta eru helstu niðurstöður úr
skoðanakönnun um fylgi stjórn-
málaflokkanna og viðhorf íslend-
inga til hvalveiða, sem unnin var og
framkvæmd af Hagvangi hf. dagana
16. - 25. október s.l.
Spurt var um það hvaða stjórn-
málaflokki viðkomandi myndi
greiða atkvæði, ef efnt yrði til alþing-
iskosninga á næstu dögum. Ef við-
komandi var óákveðinn, var jafn-
framt spurt: „Hvaða stjórnmála-
flokki eða samtökum er líklegast að
þú myndir greiða atkvæði?" Hag-
vangur birtir í niðurstöðum sínum
samanlagðar niðurstöður þessara
tveggja spurninga.
Niðurstöður á fylgi
Samkvæmt þessu hefur Fram-
sóknarflokkur bætt við sig töluverðu
fylgi og sagði Gunnar Maack, fram-
kvæmdastjóri Hagvangs, að þessar
tölur sýndu raunverulega fylgisaukn-
ingu við flokkinn frá alþingiskosn-
ingunum í vor. Framsóknarflokkur-
inn fengi núna 24,0% atkvæða, en
fékk 18,9% í vor. Framsókn fengi
með öðrum orðum tæplega fjórðung
atkvæða. Kvennalistinn fengi núna
14,5%, en fékk 10,1% í vor.
Alþýðubandalagið fengi ekki nema
8,9%, en fékk 13,3% í vor. Borgara-
flokkurinn fengi líka minna, eða
7,9%, en fékk 10,9% í vor. Þá fengi
sérframboð Stefáns Valgeirssonar
0,4%, en var með 1,2% fylgi í vor.
Aðrir flokkar breyta ekki mjög
mikið fylgi sínu. Sjálfstæðisflokkur
bætir ögn við sig, en hann fengi núna
28,7%, en var með 27,2%. Alþýðu-
flokkur tapar líka ögn af fylgi sínu.
Hannfengi 13,2% en varmeðl5,5%
í vor. Flokkur mannsins fengi 1,4%
en var með 1,6% í vor. Þjóðarflokk-
urinn fengi 1,0% en var með 1,3% í
vor.
Fastheldni kjósenda
í þessari könnun var einnig spurt
um það hvaða stjórnmálaflokk við-
komandi kaus í síðustu alþingiskosn-
ingum og var það borið saman við
niðurstöðurnar sérstaklega. Kom þá
í ljós að aðeins 71,2% þeirra sem
sögðust hafa kosið Alþýðubandalag-
ið, segjast myndu kjósa það aftur
nú. Þetta þýðir að aðeins um tveir af
hverjum þremur myndi kjósa Al-
þýðubandalagið aftur. Þessar niður-
stöður hljóta að teljast afar sláandi
fyrir bandalagið. En hins vegar ber
að hafa í huga að mikil ólga hefur
verið í innanflokksmálum banda-
lagsins núna fyrir landsfund þess.
Þá eru tölurnar einnig afar sláandi
fyrir fylgni við Alþýðuflokkinn, en
aðeins 76,4% segjast myndu kjósa
flokkinn aftur núna. Borgaraflokkur
fer heldur ekki mjög vel út úr
þessum tölum. 86,5% segjast myndu
kjósa Borgaraflokkinn aftur núna
og kemur það vel heim og saman við
fylgistapið.
Það er Framsóknarflokkurinn sem
stendur uppi með pálmann í hönd-
unum í þessum niðurstöðum eins og
öðrum þáttum könnunarinnar.
92,4% þeirra sem kusu Framsókn-
arflokkinn síðast segjast ætla að
kjósa hann aftur. Fylgni kjósenda
við Framsóknarflokkinn er mest
allra flokka í þessum niðurstöðum.
Fast á hæla honum koma Sjálf-
stæðisflokkurinn með 91% fylgni og
Kvennalistinn er með 90,9% fylgni.
Það er einnig athyglisvert við þessar
niðurstöður, að Kvennalistinn virð-
ist vera kominn með skjalfest fasta-
fylgi. Er það því orðið nokkuð ljóst
að Kvennalistanum hefur tekist að
skapa sér varanlegan sess í flokka-
skipan íslenskra stjórnmála.
Tekiðfrá
Alþýðubandalagi
Einnig var kannað hvaðan fylgi
flokkanna kom, eins og hægt var að
finna út með vissu. Kemur þar fram
að Framsóknarflokkurinn sækir
92,4% af fylgi sínu til þeirra sem
kusuhann síðast. Sjálfstæðisflokkur
89,1%, Alþýðubandalag86,0%, AI-
þýðuflokkur 85,9%, Borgaraflokkur
80,0% og Kvennalisti 71,4%.
Þá kemur fram í könnuninni að
17,1% þeirra sem kusu Kvennalist-
ann núna kusu áður Alþýðubanda-
lagið. Kvennalistinn sækir m.ö.o.
17,1% fylgi til Alþýðubandalagsins.
Fylgdi með í skýringum Gunnars
Maack, að ekki væri ólíklegt að
þessar tölur ættu eftir að riðlast eftir
landsfund Alþýðubandalagsins. Tók
hann fram í viðtali við Tímann að
svo gæti farið að úrslit kosninga til
formanns í bandalaginu gætu haggað
þessari tölu.
Stuðningur við
ríkisstjórnina
Talsverður stuðningur virðist vera
við ríkisstjórn þá sem nú situr. Það
voru 46,8% sem sögðust styðja ríkis-
stjórnina og er þá miðað við alla þá
sem þátt tóku. Það eru 31,7% sem
segjast ekki styðja stjórnina, 17,6%
sem ekki vissu hverju svara skyldi og
3,8% neituðu að svara.
Ef aðeins þeir eru teknir sem
afstöðu tóku, kemur í ljós að um
60% virðast styðja stjórnina og um
40% virðast ekki styðja hana. Ljóst
er því að stjórnin er studd af örugg-
um meirihluta, ef aðeins eru teknir
þeir sem afstöðu taka.
Hvalamálið
Þeir sem studdu hvalveiðar íslend-
inga í vísindaskyni í júlí í fyrra
virðast standa heilshugar við þá
ákvörðun sína enn í dag. Þetta
kemur fram í síðari hluta skoðana-
könnunar sem Hagvangur gerði. Af
þeim sem afstöðu tóku eru 81,2%
fylgjandi hvalveiðum þessum og þar
með stefnu Halldórs Ásgrímssonar
sjávarútvegsráðherra í málinu. í júlí
í fyrra voru 82,6% fylgjandi hval-
veiðum íslendinga í vísindaskyni, en
þá voru reyndar nokkru færri
óákveðnir.
Niðurstöður þessar sýna m.a. að
þrátt fyrir stofnun hvalavinafélagsins
og talsverðan áróður þeirra sem eru
á móti þessum veiðum okkar, eru
fylgjendur stefnunnar í hvalveiðum
óhagganlegir að kalla.
Ofmat og vanmat
Framkvæmdastjóri Hagvangs hf.
vildi benda á enn önnur nýmæli sem
fram koma í niðurstöðum þessum.
Þannig er að til þessa hefur fylgi
Sjálfstæðisflokksins verið ofmetið í
skoðanakönnunum sem þessum. í
þessari könnun virðist það vera
Framsóknarflokkurinn. Þetta ofmat
er þó ekki það mikið að hagvangs-
menn telji ástæðu til að reikna það
út sérstaklega og því er það ekki gert
núna frekar en áður.
Ofmat og vanmat er fundið út
með því að bera saman hvað við-
komandi segist hafa kosið í síðustu
kosningum. Ef hlutfall fylgjenda við
ákveðinn flokk er hærra en það sem
hann hlaut í síðustu kosningum, er
talið að það gefi ekki alveg rétta
mynd af hlutfalli fylgis í viðkomandi
könnun. Þannig mætti segja að full
margir sjálfstæðismenn hafi að jafn-
aði tekið þátt í skoðanakönnunum
til þessa. Þetta hlutfall sjálfstæðis-
manna virðist vera að ná réttu lagi í
þessari könnun.
KB
Hlutfallslegt fylgi ef eingöngu þeir sem afstöðu tóku er lagðir til grundvallar
1982 Niðurstöður Skekkjufrávik
Fjöldi % um það bil
13,3 Alþýðubandalag 46 8,9 +/- 2,3 %-stig
15,5 Alþýðuflokkur 68 13,2 +/- 2,7 %-stig
18,9 Framsóknarflokkur 124 24,0 +/- 3,4 %-stig
10,1 Samtökumkvennal. 75 14,5 +/- 2,8 %-stig
27,2 Sjálfstæðisflokkur 148 28,7 +/- 3,6 %-stig
1,6 Flokkurmannsins 7 1,4
1,2 Sérfr. Stef. Valg. 2 0,4
1,3 Þjóðarflokkur 5 1,0
10,9 Borgaraflokkur 41 7,9 +/-2,2 %-stig
Samtals 516 100,0
Niðurstöður á fylgi stjórnmálaflokkanna. Skekkjufrávik er hlutfallslega hærra hjá þeim er litlu fylgi fagna. í fremsta
dálki er greint frá fjölda þeirra sem afstöðu tóku. Tafla Hagvangur
Ólafur Björnsson um kæru Péturs Einarssonar:
Sakna annarra ummæla
Eins og Tíminn skýrði frá í fyrra-
dag, hefur Pétur Einarsson, skreið-
arútflytjandi ákveðið að fara í meið-
yrðamál við Ólaf Björnsson skreið-
arútflytjanda vegna ummæla hins
síðarnefnda í viðtali á Stöð 2, þar
sem hann kallaði Pétur Svarta-Pétur
og sagði hann standa í því í Ntgeríu
að eyðileggja fyrir Olafi sölu á
skreið þar ytra. Tíminn bar þessa
frétt um málaferli undir Ólaf.
„Ég sakna þess nú að hann ætli
ekki að kæra mig fyrir að kalla sig
lygalaup, ég held ég hafi örugglega
sagt það,“ voru fyrstu viðbrögð
Ólafs í samtali við blaðamann.
Ólafur sagðist líka geta, kallað
hann ýmislegt annað, og gerði það
og voru þau ummæli í svipuðum dúr
og það sem á undan er gengið. „Og
ég get kallað hann ýmislegt í viðbót,
en ég hef bara ekki komið því í
verk,“ sagði Ólafur einnig.
„Hann segist líka hafa verið að
senda okkur skeyti, en ég held að
hann hafi sent öllum skeyti, nema
okkur. Auk þess segir hann að
pappírarnir hafi komið alltof seint,
en þeir voru komnir út á undan
Hvalvíkinni. Hann segirfiskinn hafa
verið stórgallaðan, og það er einnig
alrangt," sagði Ólafur.
Hann sagði einnig að annað það
sem Pétur hefði látið hafa eftir sér
væri á svipuðum nótum, og álíka
mikið hæft í því og það sem á undan
er rakið.
- SÓL
Glaður ÍS steytti
á skeri við Flatey
Á fimmta tímanum á þriðjudag
strandaði 43 tonna trébátur, Glað-
ur ÍS 28, á skeri við Flatey á
Breiðafirði. Fimm manna áhöfn
var í bátnum og var henni allri
bjargað skömmu síðar um borð í
Halldór Sigurðsson ÍS 14, sem var
í aðeins hálftíma fjarlægð frá
strandstað.
Um leið og fréttist af strandinu
var björgunarbátur hjálparsveitar-
innar Lómfells á Barðaströnd
sendur til aðstoðar, en sveitin eign-
aðist hraðbát fyrir rúmri viku , og
sannaði hann gildi sitt í þessu
tilfelli.
Bátamir tveir, Glaður og Hall-
dór Sigurðsson, eru gerðir út frá
Flóka á Brjánslæk, og er því missir
annars skipsins mikið áfall fyrir
útgerðina. Enn hefur ekki komið í
ljós hvort báturinn er ónýtur eða
ekki.
- SÓL