Tíminn - 29.10.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 29.10.1987, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 29. október 1987 Tíminn 3 Þrettánda þing Verkamannasambands íslands hefst í dag í Alþýðuhúsinu á Akureyri og stendur fram á laugardag. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandsins sagði í samtali við Tímann, að stærsta mál þingsins yrði vitanlega kjaramálin og jafnframt að hann byggist við skiptum skoðunum manna um þau. Hann bjóst við að í kjaramálaályktun þingsins yrðu aðaláherslurnar lagðar á þá sem sömdu í desember því þeir sem sömdu eftir það hefðu fengið meiri hækkanir. Fiskvinnslufólk sem væri á bilinu 6 til 10 þúsund í Verkamannasambandinu þekkti ekki yfirborganir og það væri ákaflega mikil gremja í fólki yfír því, ekki síst á landsbyggðinni. „Við teljum að meðal okkar sé stærsti hópur þess fólks sem ekki hefur notið launaskriðs. Við lækkum meðaltölin og við viljum fá leiðrétt- ingar þar á. Við viljum því fá viðræður strax. Ég er þeirrar skoðunar að náist ekki samningar í nóvember, þá stefni hér allt í alls- herjarátök í mars. Ef það skeður, hef ég minni von um að hægt verði að leiðrétta þetta almenna verkafólk sem hefur margt orðið ansi mikið útundan. Þá yrðu málin væntanlega leyst með því að einhver ákveðin prósenta gengi yfir alla, sem aftur hefði í för með sér að hún gengi til hvers einasta manns í þjóðfélaginu. f svoleiðis samningafloti eru ekki þeir leiðréttir sem við teljum að þurfi mest á leiðréttingu að halda,“ sagði Guðmundur. Guðmundur sagðist því vilja reyna til þrautar að ná samningum í nóvember og ríkisstjórnin yrði að koma inn í þá samninga. Matarskatt- ur kæmi t.d. hart niður á verkafólki en það væri urgur í fólki út af fleiru en honum. Fiskvinnslufólki fyndist ákaflega skrýtið að búið væri að hækka fiskverð til útgerðar um svona 15 til 25% og öll þjónusta við frystihúsin hefði stórhækkað. Svo þegar fiskvinnslufólk athugaði sín kjör, væri það spurt hvort það væri að heimta gengislækkun. „Hins vegar hefur spenna og eftir- spurn eftir vinnuafli aldrei verið meiri. Það er öll fjölskyldan sem er farin að vinna úti. Það er ekki lengur langur vinnutími hjá einni fyrirvinnu á heimili, það er maðurinn, konan og unglingarnir sem vinna langan vinnudag. Ætli það sé ekki t.d. um þriðjungur allra framhaldsskóla- nema sem vinnur með náminu. Þær kauptölur sem verið er að auglýsa gilda því alis ekki um stærstan hóp félaga í Verkamannasambandinu. Sannleikurinn er sá, að þeir sem eru á hæstu laununum eru orðnir lang- samlega kröfuhæstir. Almenn verka- lýðsfélög eru sauðmeinlaus og eins og spakir hundar á móti sérfræðinga- félögum ýmis konar sem eru harð- íLíimHF Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk. Pósthólf 10180 svíraðir kröfuklúbbar,“ sagði 'Guð- mundur. Karl Steinar Gunnlaugsson vara- formaður Verkamannasambands fs- lands hefur sagt að hann gefi ekki kost á sér svo að öllum líkindum verður nýr varaformaður kosinn á þinginu, svo framarlega sem Karl Steinar stendur fast á því að gefa ekki kost á sér. Guðmundur sagði að það yrði lagt ákaflega hart að honum að gefa kost á sér og um hann myndi verða samstaða, því mikill skaði yrði að missa hann. Um aðra kandídata vildi Guðmundur ekki mikið segja, en nefndir hafa verið Karvel Pálma- son alþingismaður, Jón Karlsson á Sauðárkróki, Jón Kjartansson í Vestmannaeyjum, og Sigrún Clausen frá Akranesi. Þing Verkamannasambandsins hefst kl.9.30 með hljóðfæraleik, setningu og ávörpum gesta. Síðan fer fram fyrri umræða um kjaramál, fjárhagsáætlun og lagabreytingar ásamt nefndastörfum. Fyrir hádegi á föstudag fer fram síðari umræða um kjaramál en eftir hádegi síðafi um- ræða um lagabreytingar og fjárhags- áætlun. Á laugardeginum verður Guðmundur J. Guðmundsson segir verkalýðshreyfinguna vera sem spakir hundar. síðan kosning nýrrar stjórnar Verka- mannasambandsins fyrir næsta kjörtímabil og áframhald umræðna um þau mál sem eftir kunna að vera. ABS Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar 150 REYKJAVÍK SÍMI 686095 V erkstj óranámskeið fískvinnslunnar eru nú í fullum gangi. Starfsfræðslunefnd fisk- vinnslunnar hefur skiþu- lagt námskeið fyrir verk- stjóra í fiskvinnslu og verða þau haldin nú í haust og í vetur. Námskeiðin verða haldin í Borgarnesi og standa samtals í sex kennslu- daga sem skiptast í tvær þriggja daga annir. Þátt- takendur mæta í Reykja- vík á miðvikudagskvöldi og eftir stuttan kynning- arfund er ekið þaðan með rútu í Borgarnes. Á laugardagseftirmiðdegi er ekið til Reykjavíkur og lýkur námskeiðs- önnunum þar með kvöldverði í boði sj ávarútvegsráðherra Meðal leiðbein- enda á námskeið- unum verða: Álfheiður Steinþórs- dóttir sálfræðingur, 40 verkstjórar í tveim 20 manna hópum geta set- ið hverja námskeiðsönn. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvora önn. Inni- falið í gjaldinu er greiðsla á öllum kostnaði, þar með töldum ferðum til og frá Borgamesi ásamt öll- um uppihaldskostnáðí í Borgamesi. Námskeiðin verða haldin á eftirfarandi tímum: 1. önn, nr. 2: 4.-7. nóvember 1987 og vikulega eftir það, eftir þörfum. 2. önn, nr. 1: 20.-23. janúar 1988 og vikulega eftir það, eftir þörfum. Ekki verður bókað á seinni námskeið fyrr en fullbókað er á hin fyrri. Fram til þessa hefur framboð á námskeiðum fyrir verkstjóra fisk- vinnslunnar verið lítið en þau námskeið sem nú er boðið upp á eru gerð sérstaklega fyrir þá. Guðfinna Eydal sálfræðingur, G.unnar Aspar verkstjóri, Magnús Ólafsson sjúkraþjálfi, Þórður M. Þórðarson tæknifræðingur, Á fyrri önn verður lögð megináhersla á samstarf og samvinnu á vinnu- stað, líkamsbeitingu og stjórnun og skipulagn- ingu starfsþjálfunar. Magnús H. Ólafsson mun fjalla um líkamsbeit- ingu við vinnu og þá möguleika sem verk- stjórar hafa í dag til að viðhalda góðri heilsu starfsfólks. Guðfinna Eydal og Álf- heiður Steinþórsdóttir munu kenna verstjór- um markvissa sam- skiptatækni og fjalla um samstarf og samvinnu á vinnustað. Þórður M. Þórðarson og Gunnar Aspar munu síðan fjalla um starfs- þjálfun og skipulagningu hennar, en í dag, með aukinni tækni í fiskiðnaði og takmörkuðu framboði af starfsfólki, er þe6si þáttur mikilvægari en nokkru sinni áður. Á seinni önn verður áfram fjallað um sam- starf og samvinnu á vinnustað, en einnig um stjórnunarhlutverk verk- stjórans, túlkun kjara- samninga og ýmsa aðra þætti tengda verkstjóra- starfinu. Á kvöldin á báðum önn- um verður Ieitast við að fá sérfræðinga til að halda fyrirlestra og stjóma umræðum um nútíma verkstjórn, fram- leiðnimál, tækniþróun í fiskiðnaði, markaðsmál o.fl. Verkstjórar eru hvattir til að skrá sig hið fyrsta á skrifstofu starfsfræðslunefndar fiskvinnslunnar. Guðmundur J. Guðmundsson, form. Verkamannasambands (slands um verkalýðshreyfinguna: „Ýmist kröfuklúbbar eða spakir hundar“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.