Tíminn - 29.10.1987, Blaðsíða 11

Tíminn - 29.10.1987, Blaðsíða 11
10 Tíminn Fimmtudagur 29. október 1987 Fimmtudagur 29. október 1987 Tíminn 11 VETTVANGUR ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR með annað kvðld segir Atli Hilmarsson handknatt- leiksmaður úr Fram - Höndin reyndist óbrotin Atli Hilraarsson handknattleiks- maður mun að öliura líkindum leika mcð Fram þegar liðið keppir við Þór frá Akureyri í l. deildinni annað kvöld. Atli meiddist sem kunnugt er í fyrsta leik og var talinn handarbrotinn en í Ijós hefur kömið að svo var ekki heldur var um slsenta tognun að ræða. Atli sagðist í samtali við Tímann í gærkvöldi vonast til að verða ldár í slaginn annað kvöld, það kæmi endanlega í Ijós eftir æfingu í kvöld. Verið er að útbúa spelku á höndina og ætlar Atli að láta reyna á það á æfingunni t kvöld hvort hún stenst átökin. Fari svo leikur hann nteð „en ég ætla ekki að fara að taka neina sénsa,“ sagði Atli. Hann sagði að kontið hcfði í Ijós eftir að gifsið var tekið af að höndin hefði verið óbrotin en togn- unin hefði verið það slæm að hún hefði hvort eð er verið meðhöndl- uð eins. Það verður réttor mánuður ann- að kvöid frá því Atli meiddist og síðan hefur Framliðið ekki fengið stig í deildinni. Flciri af leikmönn- um liðsins hafa einnig verið meidd- ir og þarf vart að fjölyrða um hver styrkur það verður Frant að fá Atla aftur t liðið. -HÁ Gunnar Sigurösson yfirlæknir Lyflækningadeildar Borgarspítalans „Fowarnir ið fé til heilsu- gæslustöðva“ Svar til borgarlæknis og formanns Heilbrigöismálaráös Reykjavíkur Skúli Johnsen borgarlæknir og Katrín Fjeldsted formaður Heil- brigðismálaráðs Reykjavíkur skrifa langa grein í Tímann þann 24. október sl. þar sem þau saka undirritaðan um að skilja ekki gildi forvarnastarfs. Ég vil því leyfa mér að leiðrétta nokkurn misskiln- ing sem kemur fram í grein þeirra. í fyrsta Iagi tel ég mig alls ekki hafa Iagst á móti forvörnum gegn sjúkdómum, nema síður sé, enda hefur það verið hluti af mínu starfi undanfarin ár að sinna forvarna- starfi. En megininntak orða minna í Tímanum þann 28. júlí sl., sem þau voru að vitna í, var að mót- mæla þeirri klisju að nauðsyn beri til að veita auknu fé til heilsugæslu- stöðva til að forvarnastarfi verði sinnt. Lítum aðeins nánar á í hverju forvarnastarf er fólgið og tökum sem dæmi forvarnir gegn krans- æðasjúkdómum sem er algengasta dánarorsök miðaldra og eldra fólks hér á landi. lagervagnar Burðargeta 400 kg Burðargeta 200 kg Rúmmál 150 lítra LEIJKÖ HF. Umboðs- og heildverslun Smiðjuvegi 1 - 200 Kópavogi • Síml 46365 Helstu þættir í fari og venjum einstaklinga sem taldir eru auka líkur á því að viðkomandi fái kransæðasjúkdóm í framtíðinni (svokallaðir áhættuþættir) eru; a) Vindlingareykingar. b) Hækkuð blóðfita (kólesteról). c) Hækkaður blóðþrýstingur. d) Sykursýki. e) Mikil offita og samfara því oft lítil líkamshreyfing. f) ? Streita í starfi. í hverju eru þá forvarnir gegn þessum áhættuþáttum kransæða- sjúkdóms fólgnar; a) Reykja ekki; varað er við reyk- ingum með því að fræða almenning um skaðsemi þeirra, sem best verð- ur gert í skólum og fjölmiðlum ásamt víðtæku starfi lærðra og leikra og þarf engar auknar fjár- veitingar til heilsugæslustöðva til þessa. b) Varnir gegn óæskilega hárri blóðfitu eru almenns eðlis og fólgn- ar í ráðleggingum til almennings um að gæta hófsemdar í mataræði, einkanlega varðandi neyslu feitra dýraafurða. Fyrir allan fjöldann er eðlilegast að slík fræðsla sé veitt í gegnum skólakerfið og fjölmiðla. þcim einstaklingum sem mælst hafa með háa blóðfitu (sjálf mæl- ingin er reyndar ekki gerð á heilsu- gæslustöðvum að jafnaði) getur þurft að gefa frekari matarráðlegg- ingar og lyf undir eftirliti læknis. Fagna ber því ef heilsugæslulæknar hafa fengið meiri áhuga á þessum þætti en til þessa, en þar hafa sjúkrahúsin haft frumkvæði eins og reyndar á mörgum öðrum svið- um forvarnastarfs. Eftirlit þessara einstaklinga yrði þá aðeins eðlileg- ur hluti af starfi heilsugæslulækna sem og annarra lækna og þyrfti ekki aukafjárveitingu til að þessu hlutverki yrði sinnt. c) Hár blóðþrýstingur er greindur með einfaldri blóðþrýstingsmæl- ingu sem er hluti af venjulegri læknisskoðun og haldið niðri ef með þarf með viðeigandi lyfjagjöf. Ef frekari rannsókna er talin þörf í þessu tilliti eru þær framkvæmdar á rannsóknarstofum eða sjúkra- húsunum. Rannsókn Hjarta- vemdar hefur sýnt að nú vita mun fleiri en áður um hvort þeir hafa háan blóðþrýsting, bæði vegna frumkvæðis Hjartavemdar á þessu sviði svo og stofnunar Göngudeild- ar háþrýstings á Landspítala fyrir meira en áratug. Heilsugæslulækn- ar hafa einnig á síðustu ámm sýnt þessu hlutverki vaxandi áhuga og er það lofsvert. Hins vegar þarf ekki aukið fé til heilsugæslustöðva til þess að læknar mæli blóðþrýst- ing sem á að vera hluti af venjulegri læknisskoðun. d) Á sviði eftirlits sykursjúkra hefur fmmkvæðið verið á vegum sjúkrahúsa, einkanlega Göngu- deildar sykursjúkra á Landspítala, svo og sérfræðinga á þessu sviði, þótt allir læknar með áhuga og TVO FALT S/F Ódýrari hús Betri hús Varanleg hús Sumar-hús og geta verið gróðurhús um leið. TVÖFALTS/F sími 46672. Gunnar Sigurðsson þekkingu geti að sjálfsögðu litið eftir þessum þætti. e) Það þarf ekki aukið fé til heilsugæsíustöðva til þess að ráð- leggja fólki heilbrigðari lífshætti, svo sem hæfilega líkamsáreynslu, íþróttir og annað. Ekki get ég heldur séð að auknar fjárveitingar til heilsugæslustöðva þurfi til að koma til að segja fólki að varast offitu og afleiðingar hennar. Undirritaður fagnar mjög vax- andi áhuga lækna, þar með talið borgarlæknis og formanns Heil- brigðismálaráðs á forvarnastarfi, og Læknadeild Háskóla íslands hefur vissulega lagt aukna áherslu á þessa þætti í kennslu læknanema. Ég leyfi mér hins vegar að mót- mæla þeim fullyrðingum; 1) Að aukið fé þurfi til heilsugæslu- stöðva til þess að þessu forvarna- starfi verði sinnt. Ég efast ekki um að heilsugæslustöðvar séu í fjár- svelti eins og aðrir hlutar heilbrigð- isgeirans en það á ekki að leita eftir auknum fjárveitingum á fölskum forsendum. 2) Að slíkt forvarnastarf leiði þegar til þess að innlögnum á sjúkrahús fækki og draga megi úr fjárframlögum til heilbrigðiskerfis- ins, þar með talið til sjúkrahús- anna. Áhrif slíkra forvarna, þegar til langs tíma er litið, kæmi fyrst og fremst fram í því að þessir sjúk- dómar kæmu síðar á ævinni og ævilengdin yrði þá væntanlega lengri, en álag þessara sjúkdóma á sjúkrahúsin yrði að öllum líkindum alls ekki minna en nú. Ég óttast að áhrifa þessarar klisju „forvarnir = aukið fé til heilsugæslustöðva“ sé þegar farið að gæta og stjómmálamenn séu farnir að trúa því að sjúkrarúm séu of mörg og að óhóflega miklu sé varið til reksturs sjúkrahúsanna í dag. Þetta kemur m.a. fram í naumum fjárframlögum til þessara stofnana, svo naumum að eina leiðin til þess að endar nái saman á þessu ári er að loka deildum á sjúkrahúsunum og þá ekki vegna skorts á hjúkrunarfólki, heldur ein- göngu í sparnaðarskyni. Það er kominn tími til að almenningur geri sér grein fyrir þessu áður en í hreint óefni er komið. Ég efast um að þetta hafi verið meining stjórn- málamannanna en það er full ástæða til að þeir kafi dýpra í þessi mál og það var eitt megininntak orða minna í Tímanum 28. júlí sl. sem þau Skúli Johnsen og Katrín Fjeldsted, vísvitandi eður ei, hafa mistúlkað. Reykjavík 27.10.’87 Virðingarfyllst Gunnar Sigurðsson Tveggja marka tap - íslendingar héldu fjóröa sæti í riðlinum sem er besti árangur landsliðsins í Evrópukeppni fslenska landsliðið ■ knattspyrnu lék í gær síðasta leik sinn í 3. riði Evrópukeppninnar í knattspyrnu. Leikið var gegn Sovétmönnum í Simferopol á Krímskaga og lauk leiknum með 2-0 sigri Sovétmanna. Það verður að segjast eins og er að ekki var búist við hagstæðari úrslit- um og raunar óttuðust menn að enn verr færi. Sovéska liðið varð með þessum sigri fyrst liða til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í V-Þýskalandi á næsta ári og íslenska liðið hafnaði í fjórða sæti í riðlinum en þeim árangri hefur ís- lenska landsliðið aldrei fyrr náð. Fyrra mark Sovétmannanna í leiknum í gær kom á 15. mínútu, Vladimir Bessonov skaut þrumu- skoti að íslenska markinu, Bjarni Sigurðsson varði en hélt ekki boltan- um og Igor Belanov fylgdi vel á eftir og skoraði. Staðan í hálfleik var 1-0 en Oleg Prostasov bætti öðru marki við fimm mínútum eftir leikhlé. Eftir seinna markið siökuðu Sovét- menn nokkuð á enda sætið í úrslita- keppninni tryggt, þeim nægði jafn- tefli. Varð leikurinn í lokin nokkuð daufari fyrir bragðið. (slenska liðið átti nokkur þokka- leg færi í leiknum og var Guðmundur Torfason þar oftast að verki, skaut m.a. tvívegis í hliðarnetið og einu sinni bjargaði Dasayev markvörður með góðu úthlaupi eftir að Guð- mundur komst í færi. Rúnar Kristinsson og Þorvaldur Örlygsson komu inná sem varamenn í leiknum og var það í fyrsta skipti sem þeir leika A-landsleik. Sá árangur íslenska liðsins að| komast upp úr botnsætinu í riðlinum er góður og þýðir m.a. að þá stendur liðið betur að vígi þegar dregið verður í riðla fyrir næstu Evrópu- keppni, Iiðunum er raðað í styrk- leikaflokka eftir röðinni í riðlunum og fá íslendingar því eitt „botnsætis- lið“ í sinn riðil næst. Liðin sem léku í gærkvöldi: ísland: Bjarni Sigurðsson, Gunnar Gíslason (Þorvaldur Örlygsson 80.), Atli Eðvaldsson, Ómar Torfason, Halldór Áskelsson, Sævar Jónsson, Guðni Bergsson, Ólafur Þórðarson, Ragnar Margeirsson, Guðmundur Torfason, Lárus Guðmundsson (Rúnar Kristinsson 70.) Sovétríkin: Dasayev, Bessonov, Demyanenko, Khidiatullin, Bubnov, Rats (Yakovenko 80.), Yaremchuk (Blokhin 72.), Litovc- henko, Aleinikov, Belanov, Protas- ov. A-Þjóðverjar unnu Norðmenn Austur-Þjóðverjar og Norðmenn léku einnig í gærkvöldi og fóru leikar svo að A-Þjóðverjar gerðu 2 mörk gegn einu marki Norðmanna í Magdeburg. Ulf Kirsten skoraði bæði mörk heimamanna en Jan Fjærestad svaraði fyrir Norðmenn. Einn leikur er eftir í 3. riðli, leikur Frakka og A-Þjóðverja en hann breytir engu um stöðuna í riðlinum. -HÁ/Reuter Staðan í 3. riðli Sovétríkin ................ 8 5 3 0 14-3 13 A-Þýskaiand ................ 7 3 3 1 12-4 9 Frakkland ................... 7 1 4 2 4-6 6 ísland....................... 8 2 2 4 4-14 6 Noregur...................... 8 1 2 5 5-12 4 - ÍS sigraði HK í bæði karla og kvennaflokki Víkingur vann Fram dapra hrinu. Urslitin urðu 3-1 og hrinurnar 15-9,15-2, 3-15 og 15-8. ÍS vann auðveldan sigur á HK sem lék án eins af lykilmönnunum, Skjöldur Vatnar fingurbrotnaði á móti HSK. Leikurinn fór 3-0 (15-7, 15-13 og 15-5. í kvennaflokki urðu sömu úrslit sömu liða, ÍS vann HK 3-0 (15-1, 15-8 og 15-11). -HÁ Stjörnukonurnar Guðný Gunnsteinsdóttir og Erla Rafnsdóttir taka Magneu Friðriksdóttur föstum tÖkum. Tímamynd: Pjetur. Þrír leikir voru í gærkvöld á íslandsmótinu í blaki. f 1. deild karla voru það Víkingar og Stúdent- ar sem stóðu uppi sem sigurvegarar en Stúdínur unnu eina leikinn í fyrstu deild kvenna. Víkingar og Framarar léku fyrsta leikinn og var sigur þeirra fyrrnefndu öruggur þó þeir ættu eina mjög Guðmundur Torfason var aðgangsharðastur fslendinganna við sovéska markið en átti við ofurefli að etja. Hörkuviðureign - Valur vann Stjörnuna í jöfnum og spennandi léik - Fjóla varði fjögur víti Valur vann Stjörnuna með 15 mörkum gegn 14 í leik liðanna í 1. deild kvenna á íslandsmót- inu í handknattleik í gærkvöldi. Leikurinn var bæði jafn og spennandi og börðust leikmenn beggja liða af hörku. Valur hafði eins marks forskot í leikhléi, 9-8, en jafnt var á flestum tölum í leiknum. Valsstúlkur áttu fyrsta og síðasta markið í leiknum en nákvæmlega þangað og ekki lengra náði forskot þeirra, leikurinn var gífurlega jafn og hefði getað endað á hvorn veginn sem var. Jafnt var á öllum tölum í fyrri hálfleik, Valur yfirleitt á undan að skora. Þær voru yfir 9-8 í hálfleik og bættu við tíunda markinu strax eftir hlé en Stjarnan skoraði næstu fjögur mörk og breytti stöðunni í 10-12. Munaði þar mestu um frammistöðu Fjólu Þórisdóttur í marki Stjömunnar en hún varði hvorki meira né minna en þrjú vítaköst á þessum kafla. Aftur var jafnt 13-13 og 14-14 en eftir nokkrar sviftingar tókst Valsstúlkum að skora 15. markið hálfri mínútu fyrir leikslok. Stjörnu- konur fóru í sókn en tíminn rann út án þess að þeim tækist að skapa hættu. Mikil barátta var f leikmönnum beggja liða og leikurinn á köflum ágætlega leikinn. Erla Rafnsdóttir átti margar gullfallegar sendingar í fyrri hálfleiknum, þar af tvær þar sem henni var haldið úti á velli í hraðaupphlaupum. Henni tókst í bæði skiptin að senda boltann beint á frían samherja sem þurfti ekkert annað en að skora. Erla er yfirburðamanneskja í Stjörnuliðinu og lék best útileikmanna liðsins þrátt fyrir að minna sæist til hennar í síðari hálfleik. Fjóla Þórisdóttir átti einnig stórgóðan leik í markinu, varði m.a. fjögur vítaskot. Hjá Val átti Arnheiður Hreggviðsdóttir ágætan leik í markinu og Kristín Arnþórsdóttir sýndi sitt rétta andlit í seinni hálfleiknum en hún hefur verið meidd og leikur með spelku á hnénu. Mörkin, Valur: Kristín Arnþórsdóttir 5, Guörún Kristjáns- dóttir 4, Katrín Friðriksen 3, Erna Lúðvíksdóttir 2, Magnea Friðriksdóttir 1. Amheiður Hreggviðsdóttir varði 8(1) skot. Stjaman: Erla Rafnsdóttir 6(2), Drífa Gunnarsdóttir 2, Hrund Grétarsdóttir 2, Guðný Gunnsteinsdóttir 2, Ingibjörg Andrésdóttir 1, Ragnheiður Stephensen 1. Fjóla Þórisdóttir varði 8(4) skot. - HÁ Sannkölluð reyfamímup - meðan biryðir endast 70 srn *os^o srri 99 65 \Q^° feiö° 895 \asV-° (.7 Ö70 00 KF. HERAÐSBUA . EGILSSTÖÐUM SEYÐISFIRÐI REYÐARFIRÐI öl VÖRUHÚS VESTURLANDS BORGARNESI ^ Undankeppni Evrópukeppninnar í knattspyrnu, 3. riðill: íslandsmótið í handknattleik, 1. deiid kvenna: íslandsmótiö í blaki:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.