Tíminn - 29.10.1987, Blaðsíða 7

Tíminn - 29.10.1987, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 29. október 1987 Fúskið kostar tugi milljóna Gífurlegir fjármunir fara í súginn vegna þess að byggingarmennn og verktakar hafa staðið rangt að við steypuvinnu og steypublöndun. T.d. nema viðgerðir við Gerðuberg í Breiðholti vart undir þremur milljónum, eða íbúðarverði, en skemmdir þess húss má rekja rak- leitt tU þess hvernig staðið var að uppsteypu. Þar var vetrarsteypa helsta orsökin. Vetrarsteypa er notað yfir það þegar frystir ofan í nýja steypu áður en hún nær að harðna nægilega. Gerðuberg er ekki nema um þriggja ára gamalt hús. En frostskemmdir eru líka í gömlum húsum og er nánast hægt að ganga upp að næsta húsi og sjá hvernig múrinn er sprunginn utan af veggjum. Myndirnar frá Ár- múlaskóla í Reykjavík eru teknar af handahófi, en þar liggur ein byggingarálman undir skemmdum vegna lélegrar hönnunar og lítils viðhalds. Þegar skýrslan um alkalí- skemmdir í íslenskri steypu var lögð fram, 1977, var talað um milljarða í viðgerðarkostnað. Nú er talað um tugi eða hundruð milljóna í viðhaldskostnað vegna frostskemmda, en það er ein helsta hrörnunarmeinsemd íslenskra húsa allra tíma. Tíminn leitaði því til hönnunarskrifstofu sem m.a. vinnur við að gera úttekt á steypu- skemmdum fyrir Reykjavíkurborg og Innkaupastofnun ríkisins, auk fjölda aðila annarra. „Mér finnst steypuskemmda- tíðni vera óþægilega há, almennt í steinhúsum á Islandi. Þetta ætti ekki að þurfa að vera svona,“ sagði Ríkharður Kristjánsson, verkf- ræðingur og framkvæmdastjóri Línuhönnunar hf. Sagði hann að margir þættir lægju að baki þessum miklu og víðtæku skemmdum í steinhúsum á íslandi. Sprungur „Ef við erum að tala um sprungur, þá hafa menn ekki áttað sig á eðli þessara húsagerða sem við byggjum. Þ.e. stífum húsum með einangrun að innan. Menn hafa ekki byggt rétt eða hannað rétt. Það þyrfti að byggja þessi hús öðruvísi ef þau eiga að vera slag- regnsþétt. Við vitum t.d. ekki ennþá hvað við þurfum að benda útveggi til þess að þeir séu slag- regnsþéttir. Það er heldur ekki víst að hægt sé að benda þá nógu mikið til að þeir verði slagregnsþéttir," sagði Ríkharður. Frostskemmdir „Ef við lítum á frostskemmdir, þá vitum við líka hvað er að þar. Það eru aðallega tveir þættir sem valda þeim. Það er annars vegar of há vatns- sementstala, þ.e. of mikið vatn er í steypunni miðað við sements- magnið. Hins vegar er um of lítið loft að ræða. Með því að breyta þessu má ná upp mun betra frost- þoli en verið hefur. Ef maður sparar mikið sement þarf að spara mikið vatn. Gallinn er bara sá að það gerist yfirleitt ekki samtímis. Nú hefur bygging- arfulltrúi gefið út nýja reglugerð sem er ætlað að koma í veg fyrir þetta. Á síðustu mánuðum hafa kröfurnar verið hertar til steypunn- ar,“ sagði Ríkharður ennfremur. Járnryðgun „Hvað varðar járnryðgunina, þá liggja þessi steypujárn bara of utarlega. Það stafar af fúski í staðsetningu járna í mótunum," sagði Ríkharður. Benti hann á að það væru múrarameistararnir sem eiga að sjá um þann þátt í bygging- unni. Oftast væri þó um að ræða ófaglærða menn í þessari vinnu, þó að hún væri í flestum tilvikum undir eftirliti múrarameistara eða ætti að vera það. Engin sérstök iðngrein er til í járnabindingum. KB Eitt hornið á Ármúlaskóla í Reykjavík, en einn hluti skólahússins er frekar illa farinn af frostskemmdum. Tímamynd Pjetur Styrkir til bifreiðakaupa til hreyfihamlaðra Umsóknarfrestur er framlengdur til 15. nóvember Aðalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu verður haldinn í Hlégarði laugardaginn 31.10. kl. 17.00. Dagskrá • Skýrsla stjórnar • Lagðir fram reikningar • Stjórnarkjör • Kosning fulltrúa á kjördæmisþing • Önnur mál Að loknum aðalfundi verður snæddur kvöldverður í Hlégarði. Þingmenn flokksins í kjördæminu Steingrímur Hermannsson og Jóhann Einvarðsson munu mæta á fundinn ásamt mökum. Matseðill- inn hefur þegar verið ákveðinn. Borið verður fram rjómalöguð sveppasúpa ásamt piparkrydduðum lambavöðva. Á eftir verður síðan borið fram kaffi. Verð fyrir veitingarnar er 1030 kr. fyrir manninn og eru þátttakendur vinsamlegast beðnir um að tilkynna um þátttöku í síðasta lagi 29.10 til Gylfa í síma 666442 eða til Helga í síma 666911. Stjórnin Austfirðingar - Árshátíð Árshátíð KSFA veröur haldin á Hótel Höfn laugardaginn 31. október og hefst kl. 20. Fjölbreytt skemmtiatriði. Meðal þeirra er fram koma eru Jóhann Már Jóhannsson, Jóhannes Kristjánsson og Karlakórinn Jökull, auk ýmiss ■ konar heimalagaðra atriða. Borðapantanir á Höfn í sima 81446 - Kristín - og i síma 81787 - Sverrir - eða á skrifstofu KSFA, Egilsstöðum í síma 11584. KSFA Selfoss Aðalfundur framsóknarfélags Selfoss verður haldinn að Eyrarvegi 15, Selfossi fimmtudaginn 29. október kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing 3. Önnur mál Stjórnin Framsóknarfólk Suðurlandi 28. Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna á Suðurlandi verður haldið helgina 7.-8. nóv. n.k. á Kirkjubæjarklaustri og hefst kl. 14 laugardag. Nánar auglýst síðar. KSFS Suðurland Skrifstofa Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna á Suðurlandi, Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13-17 sími 2547. Heimasími starfsmanns er 6388. Framsóknarmenn eru hvattir til að líta inn eða hafp samband. Árnesingar Hin árlega framsóknarvist Framsóknarfélags Árnessýslu hefst föstu- daginn 23. október kl. 21.00 í Arátungu, föstudaginn 30. okt. í Félagslundi og lýkur 13. nóvember að Fluðum. Aðalvinningur er ferðavinningur frá Samvinnuferðum-Landsýn. Heild- arverðmæti vinnjnga 75.000 kr. Allir velkomnir Stjórnin Kopavogsbúar Skrifstofa Framsóknarfélaganna, Hamraborg 5, 3. hæð er opin alla virka daga kl. 10-12, sími 41590. Opið hús alla miðvikudaga kl. 17-19. Starfsmaður: Einar Bollason Tökum höndum saman og hefjum öflugt vetrarstarf. Heitt á könnunni. Framsóknarfélögin. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Tryggingastofnun ríkisins og hjá umboðsmönnum hennar um allt land. Afgreiðslunefnd Freyja Kópavogi Aðalfundur Freyju félags framsóknarkvenna í Kópavogi verður haldinn að Hamraborg 5, þriðjudaginn 3. nóvember kl. 20.30. Að aðalfundarstörfum loknum mun Guðrún Jóhannsdóttir segja frá landsþingi LFK. Stjórnin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.