Tíminn - 29.10.1987, Blaðsíða 8

Tíminn - 29.10.1987, Blaðsíða 8
8 Tíminn Fimmtudagur 29. október 1987 Tjmirin MÁLSVARIFRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriöi G. Forsteinsson ábm. IngvarGíslason Aöstoöarritstjóri: OddurÓlafsson Fréttastjórar: BirgirGuömundsson EggertSkúlason Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskr’ift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir '686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550.- Ræða Steingríms Hermannssonar í umræðum á Alþingi um stefnuræðu forsætis- ráðherra lagði Steingrímur Hermannsson utanrík- isráðherra mikla áherslu á þá frumskyldu ríkis- stjórnarinnar að vinna gegn vaxandi verðbólgu og viðskiptahalla. Utanríkisráðherra sagði að verðbólga hefði auk- ist að undanförnu, hættumerki á því sviði væru augljós. Ráðherrann benti á að þenslan í efnahags- lífinu væri undirrót verðbólgunnar, þ.á m. útlána- þenslan í bankakerfinu, en ekki síst erlendar lán- tökur sem farið hefðu meira en fjóra milljarða fram úr áætlun. Sagði Steingrímur að helminginn af þessari umframlántöku erlendis mætti rekja til fjármögnunarleiganna, svo segja mætti að sú starf- semi hefði farið úr böndunum. Dró Steingrímur Hermannsson ekkert úr því að fjármagn einkaaðila hefði leikið lausum hala á þessu ári og að til þess mætti ekki síst rekja þá miklu þenslu sem ógnar efnahagslífinu. Orðrétt sagði ráðherrann: „Frelsið er gott, en því aðeins verður það til heilla að efnahagslífið sé nógu þróað til þess að þola það og einstaklingarnir nógu þroskaðir til að beita því. Frelsi í viðskiptum verður einnig að vera undir eftirliti ríkisvaldsins og þeirra stofnana sem til þess eru settar.“ Steingrímur taldi að vextir hér á landi væru alltof háir og miklu hærri en gerðist í öðrum löndum. Hvatti hann til þess að Seðlabankinn hefði strang- ara eftirlit með vaxtaákvörðunum en raun bæri vitni. Lét ráðherrann einnig svo um mælt að eftirlit með verðbréfasölu, fjármögnunarleigu og erlend- um lántökum bankanna hefði brugðist. Þá lagði Steingrímur Hermannsson höfuðá- herslu á að til þessa stjórnarsamstarfs hefði verið efnt til þess að sporna við því að ný holskefla verð- bólgu skylli yfir. Sagði hann að Framsóknarflokk- urinn hafi gengið til stjórnarsamstarfsins með því ófrávíkjanlega skilyrði, að gerðar yrðu viðhlítandi ráðstafanir í efnahagsmálum. M.a. yrði að stefna að því að afgreiða hallalaus fjárlög, ekki með því einu að draga úr útgjöldum, heldur einnig með því að skattar yrðu eitthvað hækkaðir. Tók hann sérstaklega fram, að mikil- vægast væri að auka tekjur ríkissjóðs með aðgerð- um gegn skattsvikurum. Steingrímur lagði einnig sérstaka áherslu á að framsóknarmenn gætu aldrei fallist á að beita fjár- lagastefnu sem hefði í för með sér samdrátt í vel- ferðarmálum, félags- og menningarmálum. Hann minnti á að átak í byggðamálum væri forgangsverk- efni, sem sinna yrði á kjörtímabilinu. í lok ræðu sinnar lét Steingrímur Hermannsson í ljós von um að stjórnarflokkarnir ynnu vel saman, enda sé þjóðinni fátt nauðsynlegra en stöðugleiki í stjórnmálum. Illllllllllllllllll! GARRI lllllllllllllllllllllllll „VI ALENE VIDE“ Félagsmálaráðherra: Veit ekki aleinn allt. Það var einu sinni Danakóngur sein sagan segir að hafi haft það að orðtaki, þegar ráðgjafar hans vildu bera hann ráðum, að segja „Vi al- ene vidc“, eða „Vér einir vitum“. Þetta var á þcim tíma þegar kóngar voru einvaldir og orð þeirra lög. Þá þýddi ekki fyrir einfalda assistanta að vera með múður þegar hans hágöfgi hafði talað. Hann einn vissi. Garra verður vonandi ckki lagt það út til verri vegar þótt hann segi eins og er að þessi orð kóngsins sóttu töluvert á hann á mánudags- kvöld. Það var á meðan hann var að fylgjast með fréttunum í sjón- varpinu af málflutningi Jóhönnu Sigurðardóttur á þingi, þar sem hún talaði fyrir frumvarpinu um húsnæðismál. Með fullri virðingu fyrir hæstvirtum ráðherra í ríkis- stjórn, sem framsóknarmenn eiga aðild að, þá þótti Garra að þanþol stjórnarsamstarfsins væri þar teygt til hins ýtrasta. Það er ciginlega nokkuð langt gengið þcgar ekki verður séð að ráðherra vilji lengur láta einstökum þingmönnum í sam- starfsflokkunum haldast uppi að hafa skoðanir á þeim málum sem ráðherrann vill koma áfram. Það eru vissulega ýmsar sögur til í þingsögunni um sterka leiðtoga sem eiga að hafa haldið flokks- mönnum sínum í járngreipum og undir sterkum flokksaga. En um hitt munu vandfundin dæmi að leiðtogar hafi líka reynt að láta slík- an flokksaga ná til þingmanna í samstarfsflokkum. Samstarfsvilji Lýðræðiskcrflð hjá okkur er byggt á því að menn með mismun- andi skoðanir geti unnið saman. Samstarf um ríkisstjórn stendur og fellur með því að flokkarnir semji um ntálin. Þar rcynir á að fólk með ólík viðhorf til mála geti slakað til á víxl, komið til móts við hvert annað og reynt með lagni að þoka áhuga- málum sínum álciðis. í húsnæðismálum gildir það sama og í öðrum málaflokkum að menn hafa þar mismunandi skoð- anir og leggja misjafnar áherslur á einstaka þætti þcirra. Húsnæðis- málin eru raunar viðkvæmari en ýmsir aðrir ntálaflokkar, vegna þess að í þeim er vitað að stjórnar- flokkarnir þrír hafa ekki samstæð- ar skoðanir. Og þess vegna reynir kannski meira þar en annars staðar á sam- starfsvilja og lipurð í samningum, ef ekki á allt að fara í hund og kött. Slíkt væri raunar óskemmtilegt og myndi bitna haröast á þcim sem síst skyldi, fólkinu sem er að byggja í fyrsta skipti og þeim öðrum sem eru í brýnustu þörflnni fyrir þak yflr höfuöið. Og fréttir úr Alþingi síðustu dagana benda satt að segja ekki til þess að félagsmálaráðherra hafl gert sér þetta almennilega Ijóst. Eignarrétturinn Að því er hér að gæta að hús- næðismálin snerta hvem einasta landsmann, en ekki alþýðuflokks- menn eina. Lika er fjármagnið í líf- eyrissjóðunum byggt upp af öllum launþegum þessa lands, en ekki al- þýðuflokksmönnum einum. Þess vegna eru húsnæðismálin þjóðmál, en ekki innanflokksmál í Alþýðu- flokknum. Það er ekki Alþýðu- flokksins eins að ákveða hvernig peningunum er ráðstafað. Húsnæðismálin era líka mikil- vægur þáttur í kjarasamningum, og lífeyrissjóðirnir era vitaskuld eign þess fólks sem árlega greiðir háar upphæðir til þeirra. Þetta fólk á þar sinn eignarrétt sem þýðir ekki að hunsa. Þess vegna er það ekki nema rétt og skylt að allir leggist á eitt til að ná sem víðtækastri sam- stöðu um það hvernig eigi að haga framkvæmd þessara mála. Og vita- skuld ciga launþegasamtökin að koma þar inn ■ umræðu og ákvarð- anatöku sem umbjóðendur fé- lagsmanna sinna. Alþýðuflokkurinn hefur að sjálf- sögðu stefnu í húsnæðismálum, svo sem honum er bæði rétt og skylt. En á sama hátt hafa aðrir flokkar líka sína stefnu, og til þess verður að taka tillit. Ráðherra Alþýðu- flokksins getur ekki ætlast til þess í stjórnarsamstarfl að allir aðrir bugti sig og beygi í fullkominni hlýðni við stefnu hans. Ríkisstjórn- arsamstarf byggist á því að allir hlutaðeigandi hlusti á hina og nái svo samkomulagi. Annars koma brestir í stjórnarsamstarfið. Þar dugir ekki að tala eins og Danakon- ungar forðum. Garrí. Illllllllllllllllllllllllill VÍTT OG BREITT .::!IHIHIIi;' ..................................................................................................................................................... ................................. ............................... ......................... Hreppurinn Suðaustur-Asía Annað slagið berast fréttir af könnunum sem gerðar eru á svo- kallaðri hlustun og horfun ljós- vakafjölmiðlanna. Þeir greina frá niðurstöðum og gerir þar hver sinn fugl eins fagran og velsæmið og áreiðanleg fréttamennska leyfir. Af þessum könnunum er ljóst að þorri landsmanna fylgist með frétt- um ríkishljóðvarps og að mikið er horft á sjónvarp öll kvöld. Sjón- varpsstöðvarnar eru sá miðill sem flestir, væntanlega ungir sem gamlir, þiggja afþreyingu frá og væntanlega einhvern fróðleik. Það er því ekki út í hött þegar haldið er fram að uppeldisgildi sjónvarpsefnis sé mikið og ábyrgð- arhluti að velja það og matbúa. í þessum dálki var imprað á því s.l. þriðjudag að svo virtist sem starfsfólk sjónvarps teldi það fyrst og fremst hlutverk sitt að vera fyndið og skemmtilegt og leiða fram alls kyns skringilegheit á skjáina. Þetta kemur vel heim og saman við þá kenningu að sjónvarp sé í eðli sínu afþreyingarmiðill, og alls ekki eins hentugur til að miðla fróðleik eins og margir vilja vera láta. Hömluleysi Viðtal sem Alþýðublaðið birti við Sigurbjörn Einarsson biskup hefur vakið athygli, en þar er hann ómyrkur í máli um þau áhrif sem sjónvarpsefni hefur á þjóð og ein- staklinga. Hann átelur mjög það hömlulausa frelsi sem ríkir í mál- efnum Ijósvakans þar sem enginn ber ábyrgð á því hlutverki sem sjónvarpsstöðvar hafa tekið að sér við uppeldi þjóðarinnar. Sjónvarp er mjög ágengur og áhrifamikill fjölmiðill og þeim mun mikilvægara að vel sé vandað til þess efnis sem út er sent og óþarfi að láta skemmtanagildið eitt sitja í fyrirrúmi. Eins mætti fróðleikurinn stundum vera staðbetri. Fróðleikur eða aðeins skemmtun Fréttamenn þurfa oft að taka á viðkvæmum málum og málefnum sem þeir hafa takmarkaða þekk- ingu á. Þá reynir á að vera fíjótur að afla sér staðreynda og ef það tekst ekki er oft betra að láta frétta- efnið lönd og leið. Fyrir skemmstu buðu sjónvörp að minnsta kosti þrisvar upp á ein- hvers konar fréttaumfjöllun úm það fyrirbæri að íslenskirkarlmenn sækja sér konur í stórauknum mæli til Filipseyja og Thailands. Listar með myndum af konunum eru aug- lýstir til sölu. Kvennakaup með þessum hætti munu hafa viðgengist um hríð í Evrópu og Bandaríkjun- um. Fróðleikurinn sem sjónvörpin buðu upp á var allur með þeim hætti að engu er iíkara en að Thai- land og Filipseyjar séu hreppur fyr- ir norðan eða vestan, eða þá í Suð- austur-Asíu. Alhæfingar um þjóð- félagsástand, siðvenjur og lyndis- einkunn íbúanna bentu ekki til að um aðskilin lönd sé að ræða eða að þau séu byggð fleiri þjóðum. Leitt var fram fólk sem kemur því málefni sem átti að vera til um- fjöllunar ekkert við. Þar voru m.a. thailenskar konur sem giftar eru ís- lenskum mönnum og íslensk kona sem á thailenskan eiginmann. Fram kom að öll höfðu þau kynnst mökum sínum og fellt hugi saman með allt öðrum hætti og aðrar að- stæður, en þeir sem kvennalistasal- ar bjóða upp á. Enda hafði þetta fólk enga þekkingu á þeim við- skiptaháttum, sem sjónvarpsfólk var að spyrja um. Það dæmi sem hér er tekið vekur þá spurningu hvort sjónvörp telja fréttamennsku útskýringar á stað- reyndum eða hvort einhvers konar forvitnilegt skemmtanagildi ræður umfjöllun. En að minnsta kosti undirrituðum þótti þessar hrað- soðnu og flaustursfullu „frétta- skýringar" ekki skemmtilegar og enn síður fróðlegar. OO

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.