Tíminn - 29.10.1987, Side 12
Fimmtudagur 29. október 1987
12 Tíminn
FRÉTTAYFIRLIT
LUNDÚNIR - Hlutabréf
lækkuðu í verði á verðbréfa-
mörkuðum í Evrópu og Asíu
og dollarinn hafði ekki verið
lægri gagnvart vestur-þýska
markinu í nokkur ár. Verð á
gulli fór hins vegar hækkandi
enda gull alltaf örugg höfn
þegar órói er á gjaldeyris-
mörkuðum. Dollarinn fór niður
í 1,75 vestur-þýsk mörk og
139 japönsk yen. Seðlabankar
í Bandaríkjunum, Japan, Vest-
ur-Þýskalandi, Bretlandi, Sviss
og (talíu komu þó í veg fyrir að
dollarinn lækkaði enn með því
að kaupa mikið af gjaldmiðlin-
um.
MANILA — Þrír Bandaríkja-
menn, þar á meðal tveir menn
úr flughernum, og einn Filipps-
eyingur voru skotnir til bana
nálægt bandarískri herstöð
vesturaf höfuðborginni Manilu.
Sjónvarpsstöðin á Clark flug-
herstöðinni varaði íbúa
svæðisins við að fara í burt
nema slíkt væri algjörlega
nauðsynlegt.
NIKÓSÍA — Stjórnvöld í
íran sögðu að ef víðtækt við-
skiptabann yrði sett á Iran gæti
svo farið að þau lokuðu Horm-
úzsundi, einu siglingaleiðinni
inn í Persaflóann. Utvarpið í
Teheran hafði eftir Ali Kham-
enei forseta að íranar væru
ekki hræddir við hótanir Vest-
urlanda um viðskiptabann og
þeir myndu auðveldlega geta
lokað Hormúzsundi ef þeim
dytti það í hug.
BETHLEHEM - Israelskar
hersveitir á Vesturbakkanum
skutu palestínskan námsmann
og særðu hann lífshættulega.
Námsmaður þessi var við nám
í háskólanum í Bethlehem,
sem Vatíkanið heldur uppi, og
var í hópi mótmælenda sem
henti bensínsprengjum að ís-
raelsku hermönnunum.
KUALA LUMPUR -
Stjómvöld í Malajsíu handtóku
63 menn, þar á meðal háttsetta
stjórnmálamenn, og bönnuðu
alla útifundi. Þetta var gert til
að reyna að koma í veg fyrir
kynþáttaátök svipuð þeim og
urðu árið 1969 þegar mörg
hundruð manns létu lifið.
Spennan í samskiptum malaja!
og þeirra sem eru að kínversku i
bergi brotnir hefur farið vax-
andi að undanförnu.
MOSKVA — Mikhail Gorbat-
sjov Sovétleiðtogi segir í bók;
sinni sem kemur út innan tíðar
að samyrkjubúskapur sá sem
Jósef Stalin stóð fyrir á fjórða
áratugnum hafi verið nauðsyn- ■
legur fyrir framfarir í Sovétríkj-
unum.
Illllllllllllllllllllllllll ÚTLÖND ............................................................................. .......................... ...........................................' .................... ........- ........................... .................... T!'1' .......................... ................... ................. .;;::liii!;'j-T,;:ilí!l!":'
Blöð í Sovétríkjunum
gagnrýna spillingu í búðum
sem þrælkunarbúðum:
Shultz og Gorbatsjov hittust í Moskvu í síðustu viku. Nú bíða ráðamenn í Hvíta húsinu eftir bréfberanum
Shevardnadze.
Bréfberinn
Shevardnadze
Eduard Shevardnadze utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna mun koma
með bréf frá Mikhail Gorbatsjov
Sovétleiðtoga þegar hann kemur til
Washington á föstudaginn. Þetta
kom fram í tilkynningu frá Hvíta
húsinu í gær.
í tilkynningunni var sagt að She-
vardnadze myndi hitta bæði Reagan
Bandaríkjaforseta og utanríkisráð-
herra hans George Shultz þegar
hann kæmi til Bandaríkjanna á
föstudaginn.
Shevardnadze er nú í Prag í
Tékkóslóvakíu þar sem hann á fund
með utanríkisráðherrum annarra
ríkja Varsjárbandalagsins.
Víst er að margir bíða spenntir
eftir innihaldi bréfsins sem Shevar-
dnadze kemur með til Washington
en stjórnmálaskýrendur telja að með
heimsókn hans hafi á ný aukist
möguleikarnir á að leiðtogafundur
verði haldinn í Bandaríkjunum á
þessu ári.
För utanríkisráðherrans sovéska
kemur í kjölfar viðræðna sem Shultz
átti í Moskvu í síðustu viku. Þar
ræddi hann meðal annars við Gor-
batsjov Sovétleiðtoga sem þá setti
sig á móti leiðtogafundi nema stór-
veldin tvö kæmust að einhverju
grunnsamkomulagi um langdræg
kjarnorkuvopn og geimvopn.
Tass fréttastofan sagði einnig frá
bréfburði Shevardnadze í gær og
bætti við að utanríkisráðherrann
sovéski myndi halda áfram að ræða
við bandaríska ráðamenn um lykil-
atriði í samskiptum ríkjanna
tveggja. Eitt þessara atriða er sam-
komulag um eyðingu meðaldrægra
og skammdrægari kjarnorkuflauga,
samkomulag sem er komið langt á
leið en hefur enn ekki verið undirrit-
að. Reuter/hb
Fangar í þrælkunarbúðum í Sov-
étlýðveldinu Kirgizia hafa það ekki
sem verst ef marka má skrif Kom-
somolyets Kirgizii, dagblaðs ungra
kommúnista í þessu Asíulýðveldi.
Blaðið sagði í frétt að föngum væri
leyft að gista á hótelum og slappa af
á baðhúsum. Síðan drykkju þeir te
með spilltum yfirmönnum fangabúð-
anna.
Blaðið sagði að sumir hefðu það
jafnvel svo gott að þeir færu heim til
sín á milli þess sem þeir mættu í
vinnu. Það eina sem þeir þyrftu að
hugsa um væri að senda fangabúða-
stjóranum peninga.
Það er ekki oft sem sovésk dag-
blöð fjalla um þrælkunarbúðir, og
það er sannarlega ekki oft sem um
þær er fjallað á þennan hátt. Blaðið
fordæmdi harðlega spillinguna í
ónefndum búðum í Kirgizia sem það
sagði að stjórnað væri af höfuðs-
manni er ætti ágætis samstarf við
hóp fanga sem fengi að njóta ótrú-
legra forréttinda en að vísu ekki sér
að kostnaðarlausu.
Glæpamenn og pólitískir andófs-
menn hafa löngum verið settir í
þrælkunarbúðir sem reyndar ná aft-
ur til daga keisaradæmisins. Venju-
lega eru aðstæður þar hinar hörmu-
legustu, kuldinn mikill og aðbúnað-
ur nær enginn. Svo virðist sem
fangar í Kirgizia búi því við óvenju-
legar aðstæður.
Það mátti lesa fleiri gagnrýnis-
raddir í blöðum þar eystra í gær.
Vikublaðið Literaturnaya Gazeta
fór t.d. hörðum orðum um hinar
svokölluðu Beriozka sem eru sér-
stakar búðir þar sem fólk getur
keypt innfluttan varning fyrir gjald-
eyri sem það kemur með til landsins.
Blaðið sagði að búðir þessar væru
dæmi um þjóðfélagslegt óréttlæti og
allir ættu að eiga möguleika á að
geta keypt sömu vöru eða líða sama
skortinn. Reuter/hb
Bvssusali á Flórída mundar sölu-
vaming: Viðskiptin blómstra.
Flórídafylki í Bandaríkjunum:
Er hægt að fækka
glæpum með vopnum?
UMSJÓN:
Heimir
Ný byssulög gengu í gildi í Flórída í Bandaríkjunum nú fyrr í
haust. Giæpir eru tíðir í Flórída eins og reyndar á fleiri stöðum í
landinu en nýju lögin beinast þó ekki að því að draga úr byssueign
á svæðinu, þvert á móti, nú er allt í einu orðið miklu auðveldara
að bera vopn en áður.
Nýju lögin gera nánast öllum
kleift að fela inn á sér byssu, hnífa
eða táragasbyssu - og hafa til þess
fullt leyfi frá yfirvöldum.
„Fórnarlömb glæpa verða einnig
að hafa sinn rétt,“ segir einn full-
trúa fylkisstjórnarinnar og lýsir þar
röksemd sem hefur helst verið
notuð þegar lögin hafa verið
réttlætt. Aukið ofbeldi hefur sann-
fært marga fylgjendur laganna um
að fleiri verði að ráða yfir vopnum
til að verja sig.
Það var hins vegar fjölmennur
hópur sem mótmælti lögunum
harðlega, þar á meðal saksóknari
ríkisins og margir lögreglustjórar í
bæjum á Suður-Flórída. Þeir telja
að Flórídafylki eigi ekki að vasast
í byssuleyfum yfir höfuð heldur
eigi yfirvöld í bæjum, héruðum og
borgarhverfum að sjá um að veita
byssuleyfi, þannig sé hægt að fylgj-
ast mun betur með hverjir beri
vopn og hverjir ekki.
Það er víst að fylgst verður vel
nteð hvaða áhrif þessi frjálsu lög í
Flórída munu hafa á glæpatíðni í
fylkinu og þær tölur geta síðan átt
éftir að hafa áhrif á lög og reglu-
gerðir um byssuleyfi í öðrum
fylkjum. Glæpir eru reyndar það
sem málið snýst um og tíðni þeirra
er mikil í Flórída. Árið 1985 urðu
7.574 af hverjum 100.000 íbúum
fylkisins fórnarlömb ofbeldisglæpa
og á síðasta ári hafði þessi tala
hækkað upp í 8.228. Hér er um að
ræða mun hærri glæpatíðni en t.d.
í New York.
Á sama tíma og umræður um
áhrif laganna hafa staðið yfir sækja
þúsundir Flórídabúa um byssuleyfi
til fylkisstjórnarinnar. Ætti ekkert
að standa í veginum fyrir að flestir
fái slíkt leyfi í hendur og fari síðan
á tveggja tíma náinskeið sem
byssusalar bjóða upp á þegar vopn-
in eru keypt. Skilyrðin eru ekki
niörg, fólk þarf að vera orðið 21 árs
gamalt, með hreint sakavottorð og
hafa lifað í fylkinu síðustu sex
mánuðina. Auk þess þarf að greiða
146 dali og láta taka af sér fingra-
för. Þá er vopnaleyfið fengið.
„Við erum eina siðmenntaða
þjóðin í heiminum sem hefur ekki
góð byssulög og hvergi er ofbeldið
meira á Vesturlöndum en hér,“
segir einn andstæðingur nýju lag-
anna sem telur eins og fleiri að
aukin vopnaeign sé ekki besta
ráðið gegn auknum glæpum.
Það eru aftur á móti aðrir sem
lítinn tíma hafa til að taka þátt í
slíkum rökræðum. Byssusalar
segja söluna hafa aukist verulega
og öryggisnámskeið þeirra séu full-
bókuð. Margt fólk hefur einnig selt
ódýrar byssur sem það hefur átt og
kaupir nú þróaðri vopn.
hb/New York Times
BLAÐAMAÐUR
Fangar
drekka te
með vörðun-
um og gista
á hótelum