Tíminn - 29.10.1987, Page 20
Þjónusta
í þína þágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Námskeiö um val vítamína, viku-
lega í október og nóvember.
Upplýsingar í síma 91-76807.
Rannsóknarstofnun vitundarinnar
Nnr. 7264-8382, Pósth. 8109,128 R.
Getraunir 1x2 og Lottó í einn kassa?
Sögulegarviðræður um
samnýtingu lottókassa
að frádregnum sölulaunum var á
síðasta reiknisári um 5,7 milljónir
og var hann allur greiddur út til
félaganna.
í dag, fimmtudag, fer fram fyrsti
óformlegi viðræðufundurinn sem
framkvæmdastjórarnir eiga saman
og eftir hann er búist við að hægt
verði að fara af stað með raunveru-
legar viðræður á rnilli stjórnar-'
manna aðilanna. Þetta eru nokkuð
söguleg tíðindi þar sem kunnugir
telja að ekki hafi verið of mikill
samgangur á milli húsanna síðan
Lottóið hófst. Liggur það m.a. í
þeim leynda ágreiningi er hlaust af
því að Lottóið kaus laugardaga
sem útdráttardaga, en þeir eru
einu dagarnir sem getraunir geta
miðað við af eðlilegum ástæðum.
En framkvæmdastjórarnir hafa nú
tekið höndum saman um að fá sem
allra besta nýtingu út úr báðum
getleikjunum, og ætti spennan því
að magnast um ailan hetming á
heimilum landsmanna á laugardög-
um.
KB
Framkvæmdastjórar íslenskra getrauna, 1x2, og íslenskrar getspár,
Lottó, eru nú farnir að hittast til óformlegra viðræðna um samnýtingu á
sölubúnaði. Í gær var nokkuð söguleg stund í íþróttamiðstöðinni í Lau-
gardal, en þá hittust þeir Hákon Gunnarsson frá Getraunum 1x2 og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson frá Lottó til fyrsta fundar um hugsanlega samnýt-
ingu. Að sögn þeirra beggja er ekki nokkur leið að segja til um það hvað
slíkar viðræður geta tekið langan tíma, þar sem málið yrði frekar flókið í
framkvæmd. Það sem ýtt hefur á eftir þessum viðræðum um samnýtingu
á tækjabúnaði, er fyrst og fremst sú staðrcynd að aðstandendur fyrirtækj-
anna eru að hluta til hinir sömu.
Sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóri Lottósins, að
þeir hefðu verið að ræða það sín á
iTiilli hvernig að þessu megi standa.
Ætlunin er að kaupendur
getraunaseðla geti notað lottókass-
ana og komist þannig í beinlínu-
samband við móðurstöðina. Með
því móti verði hægt að selja get-
raunaseðla til klukkan tvö á laugar-
dögum og er talið að þannig megi
auka söluna verulega. Til þessa
hafa sölumenn getraunaseðla þurft
að skila inn miðum og uppgjöri á
sama tíma og er því verið að keppa
að því að geta selt getraunascðla
allt fram á síðustu og arðvænleg-
ustu mínúturnar.
Hákon Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Getrauna 1x2 sagði
að ekkert í þessari samnýtingu
virtist vera óframkvæmanlegt.
Varðandi fjárhagsstöðu fyrirtækis-
ins sagði hann að íslenskar get-
raunir hafi á síðasta reiknisári
skilað íþróttafélögum um 40 mill-
jónum í hreinum hagnaði og sölu-
launum, en þau renna beint til
félaganna. Ekki væri hægt að gefa
upp stöðu getrauna í dag, því að
reiknisárið hæfist á vorin og enn
sem komið er liggur aðeins fyrir
fastur rekstrarkostnaður eftir
sumarmánuðina. Hreinn hagnaður
Verður hægt að „tippa“ á þá?
Flugleiðir við upphaf vetraráætlunar:
Ný aðstaða til
björgunaræfinga
Aðstaða til björgunaræfinga fyrir starfsfólk Flugleiða batnaði til muna þegar
svokallað flugvélarlíki var sett upp í öryggisþjálfunarhúsi fyrirtækisins við
Flugvallarvcg nú nýverið. Þar gefst starfsfólki kostur á að kynnast
öryggistækjum af eigin raun, þegar líkt er eftir flugslysi.
Á kynningarfundi Flugleiða í gær
var sett á svið nauðlending. Farþegar
voru spenntir niður í ólunum þegar
há sprenging kvað við og flugfreyja
skipaði viðstöddum að grúfa sig
niður. Skömmu síðar fylltist flugvél-
in af reyk og óðar opnaði flugfreyjan
útgöngudyr og hvatti farþega að
flýta sér út. Við útgönguna tók við
rennibraut niður u.þ.b. fimm metra
hátt fall.
Áður varð starfsfólk Flugleiða að
æfa sig í flugvélum sem lagt var um
nótt á Keflavíkurflugvelli, en með
tíðari ferðum milli landa var þetta
orðin ófær leið.
Um miðjan nóvember verða nýir
einkennisbúningar flugþjónustuf-
ólks teknir í notkun og er um
alíslenska framleiðslu að ræða.
Einkennisbúninganefnd starfar
innan flugfélagsins og í henni á sæti
flugfreyja sem jafnframt er
fatahönnuður og hefur haldið vök-
ulu auga á framleiðslu hinna nýju
búninga. Þeir eru úr 100% ullarefni,
dökkbláir að lit og heldur dekkri en
sá búningur sem hann leysir af
hólmi.
Nýr matseðill fyrir SAGA farrými
á flugleiðum til Evrópu að Lúxem-
borg undanskilinni hefur verið
saminn. Hann er lagaður í nýju
flugeldhúsi í Leifsstöð og er uppi-
staðan að mestu íslenskt hráefni. Er
hægt að velja um ljúffenga kalda
fisk- eða kjötrétti.
Langferðabifreiðir á vegum Kynn-
isferða hf. sem aka farþegum frá
Hótel Loftleiðum til Leifsstöðvar
munu frá 1. nóvember nk. leggja af
stað stundarfjórðungi fyrr en áður
var vegna þess að leiðin er nú lengri
með tilkomu nýju flugstöðvarinnar
og flugfélaginu hefur sýnst farþegar
vilja rýmri tíma í flugstöðinni en
áður hefur verið. Verður framvegis
lagt af stað frá hótelinu nákvæmlega
tveimur klukkustundum fyrir brott-
för flugvéla.
Hinn 25. október sl. gekk í gildi
vetraráætlun Flugleiða í millilanda-
flugi sem gildir til 26. mars. Flogið
verður áætlunarflug til 16 borga í
Evrópu og Ameríku og leitast er við
að tengja það sem best áætlunarflugi
annarra flugfélaga. Flogið verður
reglulega til Kaupmannahafnar,
London, Glasgow, Lúxemborgar,
Osló, Stokkhólms, Færeyja og
Grænlands. Til Gautaborgar og
Salzburg er flogið einu sinni í viku.
Ekki verður flogið til Parísar og
Frankfurt í vetur.
{ Norður-Ameríku verður flogið
til fimm staða með samtals 13 við-
komum í hverri viku. Flogið er til
New York, Chicago, Boston, Balti-
more og Orlando, en Orlando á
vaxandi vinsældum að fagna með
íslendingum. Þá eru ónefndar flug-
ferðir til Kanaríeyja.
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, kynnti nýjungarnar í stuttu
máli og lét þess getið að félagið hefði
beint tilmælum til Leifsstöðvar að
aukið yrði við bílastæðin við flug-
stöðina fyrir næsta sumar. Þau hefðu
reynst ófullnægjandi á liðnu sumri.
Þi
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, lýkur salibunu sinni úr flugvélarlíkinu
sem „brotlenti“ í öryggisþjálfunarbúðum félagsins. (Tíminn: Brein)