Tíminn - 03.11.1987, Síða 5

Tíminn - 03.11.1987, Síða 5
Þriðjudagur 3. nóvember 1987 Tíminn 5 Víðtækar hugmyndir um samruna í bankakerfinu: VERDA FIMM BANKAR GERÐIR AÐ TVEIMUR? „Nýjar hugmyndir eru nú komnar fram í sambandi við framkvæmd á stefnu ríkisstjórnar- innar í bankamálum og jafnframt breytingar á bankalögum. Farið gæti svo að Samvinnubanki og Búnaðarbanki yrðu að einum banka og Útvegsbanki, Iðnaðar- banki og Verslunarbanki að öðrum. Sagði Jón Sigurðsson, viðskiptaráherra, í samtali við Tímann, að hinar nýju tillögur hans hefðu þegar verið lagðar fyr- ir ríkisstjórn og þingflokka stjórn- arflokkanna til kynningar og um- ræðu. Þetta gerðist í síðustu viku. Hafa þær verið ræddar á fundum þar, án þess að ákveðnar ályktan- ir hafi komið út úr því. „Þetta eru mörg atriði og Bún- aðarbankinn er m.a. inni í þess- um tillögum. Ég vil ekki tjá mig um einstök atriði eða nefna nein- ar tölur í þessu sambandi. Eitt mikilvægt markmið í stefnu okkar í bankamálum er að stuðla að samruna banka og það er til um- ræðu. Annað megin atriði er að draga úr áhrifum og beinum af- skiptum ríkisins af bankarekstri," sagði Jón Sigurðsson. Sagðist Jón hafa rætt við þá að- ila sem tengdust Útvegsbanka- málinu um margar leiðir til breyt- inga á bankamálum landsins. Auðvitað væru þær tillögur, sem hann væri að ræða við samstarfs- menn sína, ávöxtur af viðtölum við þá og fleiri. Játaði hann að hér væri um víð- tækari tillögur að ræða en til þessa hafa sést í bankamálum landsins. Með þessum tillögum væri verið að reyna að fram- kvæma þá stefnu sem ríkisstjórn- in setti sér í upphafi. Hvað varðaði niðurstöður um- ræðna í þingflokki Alþýðuflokks- ins, sagðist Jón ekki vilja ræða það að öðru leyti en því að hann hefði skilning þingflokksins á því eftir hvaða stefnu hann ætlaði sér að vinna. Talsverðar vangaveltur hafa verið um það hvernig að útboðum verði staðið samkvæmt þessum nýju tillögum Jóns. Getgátur hafa verið uppi um að 25% af hlutafé Útvegsbanka og Búnaðarbanka, hvors um sig, verði boðin erlend- um aðilum til kaups. Þá verði 35% hvors banka í eigu ríkisins fyrst um sinn, en 40% af hlutafé þeirra verði boðin sterkum aðilum sem hafi ítök í öðrum bönkum. Þannig verði tryggt með sölu á 40% hlutanna að þeir aðilar stuðli að samruna annarra banka með kaupum sínum. Þcir aðilar sem hingað til hafa verið með banka- samruna á stefnu sinni eru helst þeir aðilar sem buðu í Útvegs- bankann hf. í sumar. Uppi eru því hugmyndir um að 33-menn- ingarnir undir forystu Kristjáns Ragnarssonar fái keypt 40% í Út- vegsbankanum og sambandsfyrir- tækin fjögur, undir forystu stjórn- ar SÍS, fái keypt 40% af Búnaðar- bankanum. Að baki kauptilboða beggja þessara stóru aðila lágu hugmyndir um sameiningu við aðra banka. Þannig gæti farið svo að Búnaðarbanki og Samvinnu- banki yrðu að einum banka og Útvegsbanki, Iðnaðarbanki og Verslunarbanki að öðrum. Öllu víðtækari breytingar í átt til sam- runa eru vart hugsandi í næstu framtíð. Það er því engin furða þótt málin þurfi að ræða ítarlega innan þingflokkanna og með niestu leynd. KB Jón Sigurðsson. Stefán Valgeirsson, formaður bankaráðs Búnaðarbanka Islands: Þeir munu taka út fjármagn sitt ef breytingar verða „Við óskuðum eftir því að fá fund með bankamálaráðherra og sá fundur verður á fimmtudaginn kemur í hádeginu," sagði Stefán Valgeirsson, alþingismaður og for- maður bankaráðs Búnaðarbanka Islands. Sagðist hann ekki hafa heyrt um málið nema á skotspón- um og ráðherra hefur ekki kynnt honum málið. „Allt þetta banka- mál er orðið alveg kostulegt. Það er t.d. staðreynd að ríkisbanki getur fengið lán með betri kjörum af því að hann er með ríkisábyrgð og getur það munað um 2%. Á stórum fjárhæðum munar það miklu. Það verður auk þess engin trygging fyrir því, ef þetta verður hlutafélagsbanki, að þeir sem eiga fjármagn í Búnaðarbanka lslands, kæri sig um að hafa það áfram,“ sagði Stefán. Sagðist hann strax núna hafa fengið hringingar frá aðilum sem inni ættu stórar fjár- hæðir og hafi það verið heldur hastarleg viðbrögð sem hann mætti frá þeim. Þetta tal um hlutafjár- banka hafi valdið þeim áhyggjum og þessir fjármagnseigendur hafi viljað fá orð hans fyrir því að þeir fengju að fylgjast með gangi málsins. Þeir sem hringt hafa í Stefán vegna þessa segjast ætla að taka út það fé sem þeir eiga, ef bankanum verður breytt úr ríkis- banka. „Þetta gæti þýtt það að erfitt reyndist að standa undir afurðalán- um landbúnaðarins, sem bankinn er með til jafns við Landsbanka íslands. Hins vegar kæmi.það ekki til kasta okkar sem núna sitja í bankastjórn, ef bankinn verður seldur," sagði Stefán. Sagðist hann ekki verða hissa þó að inni í þessum hugmyndum væri sú áætlun að hætta að veita afurðalán úr Búnaðarbankanum. Flestar ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar hafi ver- ið þannig að hann ætti erfitt með að sjá hvernig landbúnaðurinn ætti að standa það allt saman af sér. Sagðist hann sjá vegið að land- búnaði úr ýmsum áttum, en ekki síst frá ríkisstjórninni. Ef hann miðaði við það fjárlagafrumvarp sem fyrir lægi, þá muni áburður Stefán Valgeirsson. hækka mjög mikið og fyrirsjáan- legt að bændum væri ætlað að standa undir ýmissi þjónustu, sem ríkið hefur til þessa veitt. „Ég tel að þessar hugmyndir um Búnaðarbankann sé liður í þessari heildarstefnu gegn landbúnaði. Þetta er kratastefnan, sem fyrst og fremst virðist ráða ferðinni, að því er mér sýnist í flestum hlutum. Hinir ráðherrarnir virðast gera flest til að halda stólunum," sagði Stefán. Sagðist hann ekki vilja líta á þetta mál nema frá sjónarhóli landsbyggðarinnar og þessar hug- myndir gætu verið alveg stórkost- lega varasamar. T.d. hafi hlutafél- agsbankar til þessa verið á undan öðrum bönkum til að hækka vexti. Auk þess væri hinn grái fjármagns- markaður, þar sem ekki þyrfti að bjóða bindiskyldu eða neitt, að bjóða í fé landsmanna og sprengja allt upp. Afleiðingar þessa eru þær að aðrir bankar neyðast til að bjóða í ráðstöfunarfé fólksins eða að missa það öðrum kosti. „Þetta er orðin hrein mafíustarfsemi. Ég segi ekki annað. Ég lít á þetta fyrst og fremst og einvörðungu frá sjón- arhóli þeirra sem skipta við bankann, hvort sem þeir eru í strjálbýli eða þéttbýli," sagði Stef- án Valgeirsson. KB Jón Adolf Guðjónsson, bankastjóri Búnaðarbankans: Engir fundir enn með bankastjórum „Við vitum afskaplega lítið um þessar hugmyndir og ég held að þetta mál hafi bara verið að koma uppá borð hjá ríkisstjórninni," sagði Jón Adolf Guðjónsson, bankastjóri Búnaðarbankans, vegna nýjustu frétta af bankasölu- máli viðskiptaráðuneytis. Sagðist hann ekki kannast við málið, enda hafi ekkert borið að í Búnaðar- bankanum enn sem komið er. Vissulega kæmi þetta einkennilega fyrir en þeir væru nú orðnir ýmsu vanir. Sagði hann að þeir bankastjór- arnir hafi rætt málið en ekki væri annað að gera en að bíða þess að viðskiptaráðherra kynnti það fyrir yfirstjórn bankans. Sagði Jón Adolf ennfremur að fréttir Moggans af fundi með ráð- herra á mánudag, væru einfaldlega ekki réttar. Hins vegar hafi staðið til að koma slíkum fundi á. Vildi hann ekki ræða það opinberlega hvernig honum litist á málið, vegna þess að það hafi ekki enn verið skýrt út fyrir bankanum. Gerði hann síðan góðlátlegt grín að því að nær undantekningarlaust hafi þeir verið að lesa þessar hugmyndir í blöðunum sem vaknað hafa varð- andi ráðstafanir með bankann. KB Jón Adolf Guðjónsson

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.