Tíminn - 03.12.1987, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 3. desember 1987
Tíminn 3'
Yfirlit um meðaltekjur fyrirtækja 1986:
Launin í Pylsuvagninum
svipuð og í Háskólanum
Af yfirliti um meðalárslaun í
einstökum fyrirtækjum og starfs-
greinum árið 1986 virðist vandráð-
ið hvort/hvaða hæfileikar, mennt-
un eða aðrir kostir það eru sem
mestu ráða um launagreiðslur á
fslandi. Þannig kemur t.d. í ljós að
Háskóli íslands og Kassagerðin
borguðu starfsmönnum sínum að
segja má nákvæmlega sömu með-
allaun í fyrra - og raunar má bæta
þar við Utgerðarfélagi Akureyrar
og Stálvík. Meðallaun í öllum
þessum fyrirtækjum voru í kring-
um 58 þús. kr. að meðaltali á
mánuði. Segja má að starfsmenn
Ölgerðar Egils Skallagrímssonar,
Mjólkurbús Flóamanna, Pylsu-
vagnsins hafi einnig verið með
mjög svipuð mánaðarlaun og í
Háskólanum og Kassagerðinni.
Starfslið Verslunarskólans og
Dagblaðsins náðu hins vegar ekki
alveg meðallaunum í Pylsuvagnin-
um og Ölgerðinni. Heldur fyrir
neðan kom svo starfsfólk á Ríkis-
spítölunum sem hefur fengið nær
sömu upphæð í launaumslaginu og
starfsmenn í Kóka-kóla verksmiðj-
unni (Vífilfelli). Kóka- kóla hafði
þó aðeins vinninginn yfir (listina)
Leikfélag Reykjavíkur. Leikfélag-
ið var hins vegar aðeins ofanvið
starfsmenn Framkvæmdastofnun-
ar, sem aftur á móti voru nær
hnífjafnir starfsmönnum Álafoss
hf. (Kannski gott dæmi um sam-
ræmi í launum húsbænda og hjúa á
Fróni).
í raun má segja að meðallaun
allra þessara, mjögsvo ólíku, fyrir-
tækja og stofnana hafi verið ákaf-
lega svipuð, eða á bilinu 616-696
þús. krónur á árinu 1986, þ.e. frá
51.300-58 þús. kr. að meðalatali á
mánuði.
Launatölur þær sem hér er vitn-
að til koma fram í nýjasta hefti
Frjálsrar verslunar, þar sem víð-
tækar upplýsingar er að finna um
hundruð íslenskra fyrirtækja, svo
sem um veltu þeirra, hagnað,
starfsmannafjölda og launagreiðsl-
ur og fleira. Meðallaunin eru fund-
in með því að deila unnum ársverk-
um í fyrirtækjunum upp í beinar
launagreiðslur þeirra.
Mun meiri launamunur kemur
vissulega þarna fram heidur en hér
að framan er lýst - en í fljótu
bragði virðist sem 600-700 þús. kr.
á ársverk gætu kallast góð miðl-
ungslaun 1986 ef útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtæki eru ekki talin með
en þau eru mörg langt fyrir ofan
þetta. - HEl
Garðbæingar geta andað léttar:
Malbikunar-
stöð mengar
ekki framar
Á undanförnum árum hefur staðið
mikill styr um rekstur malbikunar-
stöðvar Hvammsvíkur hf. í Garð-
abæ. Hafa íbúar Garðabæjar marg-
sinnis orðið fyrir ónæði og óþægind-
um vegna mengunar, sem stafar af
framleiðslu fyrirtækisins á malbiki.
Samningur fyrirtækisins um afnot
af lóð í Garðabæ rann út 1. desember
og hafa bæjaryfirvöld og fulltrúar
Hvammsvíkur hf. komist að sam-
komulagi um að fyrirtækið fái áfram-
haldandi afnot af lóðinni í Smára-
hvammslandi og að framleiða mal-
bik til 15. desember nk. Síðarverður
hvorki framleitt malbik né olíumöl í
Garðabæ, enda á slík framleiðsla
ekki erindi í íbúðahverfi.
Fyrirtækið mun tína saman föggur
sínar og flytja stöðina á brott fyrir
30. mars 1988. Standi Hvammsvík
hf. við það, munu bæjaryfirvöld
taka til athugunar að ganga til samn-
inga um afnot fyrirtækisins af 5000
m* af lóðinni til desembermánaðar á
næsta ári. í lok næsta árs er búist við
að olíustöðin verði endanlega
horfin.
Þj
Fjöldamargar blaðagreinar og fréttir hafa birst um „ónýtu“ bílana úr Drammenfirði. Þeir teljast ekki nógu góðir fyrir
Norðmenn. Nú eru þeir fluttir inn til íslands og seldir sem „útsöluvarningur“ til manna sem vita um sögu þeirra.
Deilur um innflutning á saltvatnsskemmdum bílum:
Fluttir úr norskum
Frumvarp á Alþingi:
Lögvernd fóstra
Finnur Ingólfsson (F.Rv.) mælti
í gær fyrir lagafrumvarpi, sem
hefur það markmið að koma á
lögverndun á starfsheiti og starfs-
réttindum fóstra.
í framsöguræðunni kom fram að
á undanfömum árum hafa margar
starfstéttir í þjónustu hins opinbera
fengið lögverndun á starfsheitum
sfnum og starfsréttindum. Minnti
Finnur á að kennarastarfið hefði
öðlast lögvemdun á síðasta ári.
Þessi störf, kennarastarfið og fós-
trustarfið, væru um margt mjög
skyld. Báðar stéttirnar gegndu afar
mikilvægu uppeldishlutverki í
þjóðfélaginu.
Meginmarkmiðið með starfsemi
dagvistarheimila er að gefa börn-
um kost á að njóta handleiðslu
sérmenntaðs fólks í uppeldismál-
um og búa þeim uppeldisskilyrði
sem efla persónulegan og félagsleg-
an þroska þeirra.
Uppeldisstörf á dagvistarheimil-
um væru í reynd falin forsjá fóstra
og treyst á menntun þeirra. Þetta
væri viss viðurkenning á fóstru-
menntun og fóstrustéttinni. Hins
vegar hefði fóstrunám ekki verið
eftirsóknarvert og skortur verið á
menntuðum fóstrum.
Finnur Ingólfsson.
Ein ástæða þessarar vöntunar á
fóstrum væri eflaust að starfsheitið
nyti ekki lögverndar. Breytingar
þær í þjóðfélaginu sem fælust í
hraðvaxandi atvinnuþátttöku
kvenna leiddu til aukins mikilvægis
dagvistarheimila í uppeldi barna.
Það er því nauðsynlegt að foreldrar
geti treyst því að þau láti börn sín
í hendurnar á vel menntuðu og
hæfu fólki á dagvistarheimilunum,
sem hefðu fullkomin réttindi til
starfans.
Engar umræður urðu um málið
og athygli vakti að engar konur
kvöddu sér hljóðs um það. ÞÆÓ
firði til íslands
Til fslands er verið að flytja jap-
anskar bifreiðar frá Drammen í
Noregi, sem innflytjendur þar
treysta sér ekki til að markaðssetja
vegna þess að flóðbylgja flæddi yfir
þá í óveðri í Noregi fyrir miðjan
október. Ekki komi til greina að
selja bílana í Noregi nema öruggt sé
að þeir séu í fullkomnu lagi.
Tjónið var metið á 192 milljónir
íslenskra króna og ætlast til að
bílarnir yrðu seldir í brotajárn. Sam-
ið hafði verið um að þeir yrðu ekki
seldir innan Skandínavíu, en til
hennar telst ísland ekki. Jafnvel
hefur verið rætt að selja bifreiðarnar
til þróunarlanda, þar sem enga um-
boðsmenn bifreiðanna er að finna.
Óttast er að saltvatnið hafi ekki
aðeins skemmt innréttingar, hurð-
arspjöld og mottur, heldur geti kom-
ið upp bilanir í rafkerfi, tölvubúnaði
og hemlabúnaði, - jafnvel eftir að
ábyrgð er útrunnin.
Hjá Ingvari Helgasyni hf., sem
flytur inn Subaru, fengust þær upp-
lýsingar að þeir væru harðlega and-
snúnir því að flytja þessa ónýtu bíla
til landsins. Fréttir hefðu borist um
að Subaru bílar, sem staðið höfðu í
sjó í Drammenfirðinum, væru vænt-
anlegir til landsins, en þeir koma
ekki á vegum innflytjenda og fram-
leiðendur hafa sagst gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að koma í veg
fyrir að vatnskemmdar Subaru bif-
reiðar yrðu fluttar til Islands. Þeir
hafi áður haft samband við trygg-
ingafélög í Noregi og farið fram á
bílarnir yrðu ekki seldir úr landi.
Hekla hf. hefur fest kaup á 354
bifreiðum af Mitsubishi gerð úr hópi
bíla sem lentu í sjónum. Þeir bílar
hafa verið seldir á hálfvirði starfs-
mönnum fyrirtækisins, vinum og
ættingjum, en ekki auglýstir á al-
mennum markaði. Tveir starfsmenn
Frá Magnúsi Magnússyni frétlarita Tímans í
Borgarfirði:
Kirkjukór Reykholtskirkju mun
standa fyrir aðventukvöldi í Loga-
landi nk. laugardag, 5. desember.
Að sögn aðstandenda þessa fagnað-
ar er þetta í áttunda sinn sem kórinn
stendur fyrir slíku kvöldi, en Reyk-
holtskirkja fagnaði 100 ára afmæli
sínu í sumar og var þeirra tímamóta
minnst við hátíðlega athöfn sl.
sunnudag.
Kirkjukórinn mun bjóða upp á
Heklu hf. héldu utan til Noregs til
að rannsaka bílana og komust að
þeirri niðurstöðu að engin hætta
væri á ferðum.
Forsvarsmenn Félags íslenskra
bifreiðaeigenda eru mjög uggandi
vegna þessa og telja óeðlilegt að
bifreiðar séu samþykktar hér á göt-
una sem ekki teljast nógu góðar i
Noregi. Þótt Mitsubishi bílarnir hafi
verið seldir starfsmönnum fyrir-
tækisins Heklu hf. verji ekkert rétl
kaupenda séu bílarnir endurseldir.
Þj
ijölbreytta dagskrá á aðventukvöld-
inu. Auk þess sem Kirkjukór Reyk-
holtskirkju mun syngja undir stjórn
Bjarna Guðráðssonar, mun sr. Geir
Waage flytja hugvekju, Pétur Andr-
ésson les jólasögu, Teódóra Þor-
steinsdóttir syngur einsöng, þær Val-
gerður Benediktsdóttir og Steinunn
Arnadóttir leika tvíleik á píanó.
Aðventukvöldið hefst kl. 21 á laug-
ardag og er eins og áður segir haldið
i Logalandi.
Aðventa í Logalandi