Tíminn - 03.12.1987, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 3. desember 1987
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur, Polar Cup - Island-Júgóslavía:
Sjö marka tap
íslendingar töpuðu fyrsta leik sín-
um á Polar Cup, sex landsliða hand-
knattleiksmóti í Noregi, með sjö
marka mun, 17 mörkum gegn 24
gegn Júgóslövum í gærkvöldi. í
leikhléi var jafnt 10-10.
Jafnræði var með liðunum fram-
anaf og fslendingar yfirleitt fyrri til
að skora en í síðari hálfleik gekk
lítið hjá íslenska liðinu og munurinn
varð fljótlega fimm mörk, 11-16.
íslendingum tókst að minnka mun-
inn í tvö mörk, 15-17 um miðjan
síðari hálfleik en allt kom fyrir ekki
og Júgóslavar tryggðu sér sigurinn,
24 mörk gegn 17.
Helstu tölur: 1-0, 1-2, 3-2, 3-3,
4-4, 5-5, 6-6, 7-6, 8-7, 9-8, 9-10,
10-10 - 10-11, 11-11, 11-16, 13-16,
15-17, 15-20, 16-23, 17-23, 17- 24.
Mörk íslands: Páll Ólafsson 4(1),
Atli Hilmarsson 2, Geir Sveinsson 2,
Guðmundur Guðmundsson 2, Sig-
urður Gunnarsson 2, Sigurður
Sveinsson 2, Valdimar Grímsson 2,
Jakob Sigurðsson 1. Einnig léku
Þorgils Óttar Mathiesen, Júlíus Jón-
asson og markverðirnir Einar Þor-
varðarsonogBrynjarKvaran. -HÁ
Handknattleikur,
1. deild kvenna:
Sigur hjá FH
ogStjðmunni
FH vann Víking með 22 mörk-
um gegn 14 í 1. deild kvenna á
íslandsmótinu í handknattleik í
gærkvöldi. Leikið var í Selja-
skóla. Þá sigraði Stjarnan Hauka
20-18 í Hafnarfirði. -HÁ
W NBA
Úrslit leikja í bandaríska
körfuknattleiknum á mánudags
og þriðjudagskvöld:
Atlanta-Boston Celtics . 120-106
Detroit-NJ Nete (íraml.). 124-116
Seattle-NY Knicks....... 112-109
Houston-Denver.......... 106-101
Portland-Phoenix........ 102-100
Chicago-Golden State...... 98-97
LA Lakers-Sacramento.....125-120
(framl.)
Milwaukee-Indiana........ 104-94
Phil. 76ers-Utah Jazz... 106-100
Handknattleiks-
sambandið:
Hópferð
til Seoul
HSÍ og Útsýn munu standa
sameiginlega að hópfcrð ís-
lenskra iþróttaáhugamanna á Ól-
ympíuleikana í Seoul í september
á næsta ári. Endanleg ferðatil-
högun liggur ekki fyrir en verður
Ijós ásamt kostnaði síðar i þessum
mánuði. Skráning farþega er haf-
in hjá Útsýn. Athygli þcirra sem
skráð hafa sig hjá HSÍ er vakin á
að hafa samband við Útsýn sem
fyrst.
I tengslum við samstarfið hefur
Útsýn gerst einn af stuðningsaðil-
um HSI vegna Ólympíuleikanna.
BSÍ-hópferðabiIar hafa einnig
bæst í hóp stuðningsaðila HSI
sem stendur í fjárfrekum undir-
búningi fyrir Ólympíuleikana.
Happdrætti HSÍ er einnig liður í
fjáröfiuninni, sala á lioltabrauð-
um og einnig stórbingó sem verö-
ur í Broadway í kvöld kl. 20.30.
Handknattleikur, 2. flokkur kvenna:
Grótta og FH rekin úr
keppni íslandsmótsins?
- Komust ekki til leiks í Vestmannaeyjum um helgina
Páll Ólafsson var markahæstur tslendinga í leiknum í gærkvöldi, gerði fjögur
mörk, öll í fýrri hálfleik.
Á S G I JL R______J 4 K O B S S Q %
ILUXAIt
IJABUkUt
JAHEÆXX
iciwuis s.u;i
HMNaiSSMiUI
HAFNARFJARÐARJARLIVN
Einars saga Þorgilssonar
Ásgeir Jakobsson
Bókin er ævisaga Einars Þor-
gilssonar im leið og hún er
100 ára útgerðarsaga hans og
fyrirtækis hans. Einar hóf út-
gerð sína 1886 og var því út-
gerðin aldargömul á síðasta
ári og er elzta starfandi út-
gerðarfyrirtæki landsins. Þá er
og verziun Einars Þorgilssonar
einnig elzta starfandi verzlun
landsins, stofnuð 1901. Einar
Þorgilsson var einn af
„feðrum Hafnarfjarðar," bæði
sem atvinnurekandi og bæjar-
fulltrúi og alþingismaður. Þá
er þessi bók jafnframt almenn
sjávarútvegssaga í 100 ár og
um það saltfisklíf, sem þjóðin
lifði á sama tíma.
Handknattlcikslið Gróttu og FH í
2. flokki kvenna geta átt á hættu að
verða rekin úr keppni íslandsmóts-
ins fyrir að komast ekki til leiks í 2.
umferð íslandsmótsins í Vestmann-
aeyjum um síðustu helgi. Flugleiðir
flugu ekki til Vestmannaeyja á föstu-
daginn og þessi tvö lið komust því
ekki til Eyja.
MAGNÚS JÓNSSON
BÆRÍ
BYRJUN ALDAR
Mótið var eigi að síður háð í
Eyjum því önnur lið fóru með Herj-
ólfi og eitt með leiguflugi Sverris
Þóroddssonar sem flýgur í verra
veðri en Flugleiðir. Mörg lið vilja
ekki fara með Herjólfi og má nefna
fjölmörg dæmi þess að kappleikjum
í Eyjum hafi verið frestað vegna
þess að lið hafa ekki komist með
AUÐUNN BRAGISÆINSSON
|§|él | -If-
Ml Kl
flugi. Telja forráðamenn Gróttu og
FH að það sama eigi að gilda í þessu
tilfelli, liðin hafi ekki komist til leiks
vegna samgönguörðugleika.
Mótanefnd HSf mun á næstunni
taka ákvörðun um hvort liðin verði
rekin úr keppni íslandsmótsins eða
hvort veita eigi þeim aðra refsingu.
-HÁ
FANGINN OG DÓMARINN
Þáttur af Sigurði skurdi
og Skúla sýslumanni
Ásgeir Jakobsson
Svonefnd Skurðsmál hófust
með því, að 22. des. 1891
fannst lík manns á skafli á
Klofningsdal í Önundarfirði.
Mönnum þótti ekki einleikið
um dauða mannsins og féll
grunur á Sigurð Jóhannsson,
sem kallaður var skurdur, en
hann hafði verið á ferð með
þeim látna daginn áður á
Klofningsheiði. Skúla sýslu-
manni fórst rannsókn málsins
með þeim hætti, að af hlauzt
5 ára rimma, svo nefnd Skúla-
mál, og Sigurður skurður, sak-
laus, hefur verið talinn morð-
ingi í nær 100 ár. Skurðsmál
hafa aldrei verið rannsökuð
sérstaklega eftir frumgögnum
og aðstæðum á vettvangi fyrr
en hér.
BÆR I BYRJUN ALDAR
HAFNARFJÖRÐUR
Magnús Jónsson
Bær íbyrjun aldar — Hafnar-
fjördur, sem Magnús Jónsson
minjavörður tók saman, er
yfirlit yfir íbúa og hús í Hafn-
arfirði árið 1902. Getið er hvar
húsin voru staðsett í bænum,
hvort þau standa enn o.s.frv.
Síðan er getið íbúanna. Og þar
er gífurlega mikill fróðleikur
samankominn. Ljósmyndir
eru af fjölda fólks í bókinni.
Allur aðaltexti bókarinnar er
handskrifaður af Magnúsi, en
aftast í bókinni er nafnaskrá
yfir þá sem í bókinni eru
nefndir, alls 1355 nöfn.
MEÐ MÖRGU FÓLKI
Audunn Bragi Sveinsson
Auðunn Bragi Sveinsson, fyrr-
verandi kennari og skólastjóri,
hefur ritað margt sem birst
hefur í blöðum og tímaritum í
gegnum árin í ljóðum og
lausu máli, og einnig hefur
hann ritstýrt nokkrum bók-
um. Bók sú sem hér birtist
fjallar fyrst og fremst um fólk
við ólík skilyrði og í mismun-
andi umhverfi, — frá afdal til
Austurstrætis, ef svo má að
orði komast. Með mörgu fólki
er heitið, sem höfundur hefur
valið þessu greinasafni sínu.
Mun það vera réttnefni.
ÖSPIN OG ÝLUSTRÁIÐ
Haraldur Magnússon
Haraldur Magnússon fæddist
á Árskógsströnd við Eyjafjörð
1931. Hann ólst upp í Eyja-
firði og Skagafirði fram að
tvítugsaldri. Nú býr hann í
Hafnarfirði. Þetta smásagna-
safn er fyrsta bók Haraldar, en
þessar sögur og fleiri til hefur
hann skrifað í frístundum sín-
um undanfarin ár. Sögurnar
eru að ýmsu.leyti óvenjulegar
og flestar fela þær í sér boð-
skap. Þetta eru myndrænar og
hugmyndaauðugar sögur, sem
höfða til allra aldurshópa.
SKVGGSJA - BOKABVÐ OUVERS STEINS SF