Tíminn - 03.12.1987, Side 5

Tíminn - 03.12.1987, Side 5
Fimmtudagur 3. desember 1987 Tíminn 5 Frá birgðastöð LHS-Flugelda, en þeir eru, sem fyrr, lang stærsti innflytjandi flugelda á íslandi. sama stað tvö ár í röð af eðlilegum ástæðum. Bannað er með öllu að gefa upp staðsetningu birgðastöðvarinnar og er hún aldrei á Ttmamynd Pjetur MESTIINNFLUTNINGURI SÖGU FLUGELDASÖLU? Mun meira er flutt inn af flugeld- um þetta árið, en verið hefur undanfarin ár. Voru skýringar þeirra sem Tíminn ræddi við í birgðastöðvum innflutningsaðil- anna yfirieitt á sömu lund. Vegna góðra veðurskilyrða um síðustu áramót virðast flugeldar hjá flest- um aðilum hafa selst upp og því búa sveitir og flokkar ekki að neinum verulegum eiginbirgðum eins og oftast áður. En söluaðilam- ir eru margir vítt og breitt um landið. Þá taidi einn innflytjandi að verð yrði með lægsta móti í ár, m.a. vegna lítilla hækkana og stöðugs gengis. Þá er einnig talið að stöðugt fleiri aðilar njóti stöðugt minni afraksturs af þessari merki- iegu fjáröflun. Heistu innflytjendur eru þrír, LHS-Flugeldar (Landsamband hjálparsveita skáta), Fiskaklettur (björgunarsveit SVFÍ í Hafnar- firði) og Knattspymudeild KR. Heildarinnflutningur þessara þriggja aðila vegur um 100-120 tonn og kemur hann að mestu frá Kína, V-Þýskalandi, Bretlandi og Hong Kong. f fyrra vóg innflutn- ingur þessi 94 tonn og þá var afmælissýning Reykjavíkurborgar inni í tölunni. Tíminn spjallaði m.a. við Örn Thomsen, hjálparsveitarmann, sem haft hefur yfirumsjón með birgðaflokkun Landsambands hjálparsveita skáta á „ókunnum" stað í Reykjavík. Ekki er hægt að greina frá staðnum af augljósum ástæðum. Búið var að skipta upp kössunum á alla þá aðila sem kaupa af LHS-Flugeldum og voru staflarnir æði háir og langir hjá stærstu sveitum. Talið er að LHS- flugeldar flytji inn um 75-80 tonn og eru þeir lang stærsti aðilinn. Flytja þeir aðallega inn frá Bret- landi, V-Þýskalandi og Kína. Að sögn Einars Sigurjónssonar hjá Fiskakletti í Hafnarfirði, er talið að innflutningur þeirra verði í heild um 20-25 tonn og kemur hann aðallega frá Hong Kong, Kína og V-Þýskalandi. Þeir selja aðallega til annarra björgunar- sveita innan Slysavarnafélags íslands. Hjá knattspymufélaginu KR varð Stefán Haraldsson fyrir svör- um og upplýsti hann Tímann um að erfitt væri að segja um nákvæma þyngd, en það væri á bilinu 10-15 tonn. Þetta staðfesti Lúðvík Ge- orgsson yfirmaður KR-flugelda- markaðsins og taldi reyndar að talan lægi nær 15 tonnum hjáþeim. Hann sagðist halda að verðhækkun yrði með minnsta móti í ár og kæmi það fyrst og fremst til af því hvað gengið hefur verið stöðugt gagn- vart miðlum viðskiptaþjóðanna. KB Vöruskiptajöfnuðurinn 4.500 milljónum slakari en 1986: Aukning innflutnings im 40.000 kr. á mann Vömskiptajöfnuður landsmanna fob/fob var um 540 milljónum slakari í október s.l. en í sama mánuði í fyrra og frá áramótum er munurinn orðinn um 4.500 milljónir króna miðað við fyrstu 10 mánuði ársins 1986, reiknað á sama gengi bæði árin. Ástæðan er sú að þótt útflutn- ingurinn hafi aukist um 14% að raunvirði hefur innflutningur aukist um nær 29% milli ára, eða um 9.675 milljónir kr. Það svarar til um 40.000 króna aukins innflutnings á hvert mannsbam í landinu, reiknað á sama gengi bæði árin. Vöruútflutningur í októbermán- uði var nú um 4.410 millj. kr., en innflutningurinn fob um 4.709 millj. kr. Vantaði því um 300 millj. kr. á að útflutningurinn dygði fyrir því sem inn var flutt í mánuðinum. Frá áramótum til októberloka hafa nú verið fluttar út vörur fyrir um 44.003 milljónir kr., en inn fyrir 43.465 fob (48.286 millj. cif). Vöm- skiptajöfnuðurinn fob/fob er því já- kvæður um 538 milljónir samanborið við um 4.800 milljónir sem eftir vom á sama tíma í fyrra reiknað á sama gengi. Almennur vöminnflutningur að olíu undanskilinni var að vanda með minnsta móti mánuðina janúar og febrúar, eða rösklega 3 milljarðar á mánuði og um 500-700 milljónum meiri en sömu mánuði 1986. f mars rauk hann síðan upp í um 4.200 milljónir og hefur frá maí í vor (með ágúst sem eina undantekningu) verið á milli 4.400 og 4.800 milljónir kr. á mánuði hverjum - eða 900 til 1.500 milljónum króna meiri á mánuði en sömu mánuði 1986, reiknað á sama gengi bæði árin. Heildarinnflutningurinn cif., þessa fyrstu 10 mánuði svarar til tæplega 200 þús. kr. á hvern landsm- ann að meðaltali, hefur aukist um 40 þús. kr. milli ára sem fyrr segir. Sambandsstiórn ASÍ: Ályktar gegn matarskatti f kjaramálaályktun sambandss- tjórnarfundar ASÍ dagana 30. nóv- ember og 1. desember, eru aðildar- félögin hvött til virkrar umræðu og samstöðu um kjaramál. Þar er einnig hvatt til að aðildarfélög og sambönd- in leiti á næstu vikum eftir samning- um, bæði við einstaka atvinnurek- endur og samtök þeirra. Ennfremur segir að verkalýðssamtök verði að taka höndum saman um að koma á kaupmáttartryggingarkerfi að nýju, ekki síst þegar þess sé gætt að hækkanir á nauðsynjavöru og opin- berri þjónustu gefi vísbendingu um kaupmáttarhrap launa á næstunni. í lok kjaramálaályktunar ASf er tekið fram að ef samningar náist ekki fyrri hluta janúarmánaðar, verði boðað til sérstakrar kjaramálaráðstefnu á vettvangi Alþýðusambandsins. í ályktun sambandsstjórnarfundar um matarskatt eru ítrekuð mótmæli ASÍ vegna áforma stjórnvalda um skattlagningu matvara um næstu ára- mót. Þess er krafist að ríkisstjórnin hætti við matarskattinn, og bent á að ef hann verður lagður á muni þrengja frekar en orðið er um sam- komulag á vinnumarkaði. -HEI Guðmundur J. Guðmundsson: Stefnir í hðrkuátök „Það er fyrirsjáanlegur matar- sem janúar væri alltaf veikasti skattur, hækkandi verðbólga og atvinnumánuður ársins. „Það minnkandi kaupmáttur. Þetta er stefnir í annað,“ sagði Guðmund- mjög dimm þróun,“ sagði Guð- Ur, „það stefnir í hörkuátök á mundur J. Guðmundsson þegar vinnumarkaðnum, en ég hef enga Tíminn spurði hann í gær hvort „ trú á verkföllum í janúar vegna hann sæi fram á bjartari daga í þess hve dauft alltaf er yfir atvinnu- samningaviðræðum aðila vinnu- íffi í þeim mánuði. Yfirleitt er markaðarins eftir áramót. tekinn næsti mánuður í þau,“ bætti Hann sagðist ekki vera bj artsýnn Guðmundur við. á samninga upp úr áramótum þar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.