Tíminn - 03.12.1987, Qupperneq 9

Tíminn - 03.12.1987, Qupperneq 9
Fimmtudagur 3. desember 1987 Tíminn 9 VETTVANGUR Páll Pétursson: Fjárveitingar til iandbúnaðarmáia 1988 Vegna missagna í blöðum og útvarpi og manna á meðal varðandi þátt landbúnaðarmála við gerð fjárlaga er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram. Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1988 var lagt fram í þingbyrjun sem ákvörðun ríkisstjórnar. Stefnumark frumvarpsins var að afgreiða fjárlög án halla, það er skynsamlegt stefnumark, með tiUiti til aðstæðna. Hinsvegar má Ijóst vera að þetta verður ekki gert án stóraukinnar skattbyrði, nema aðhalds sé gætt í hvívetna og ekki verðihægt að taka allar óskir til greina. Ríkisstjórnin lagði frumvarpið fram og var það samþykkt af ráðherrum öUum. Landbúnaðarráðherra hafði þó fyrirvara um þau atriði þar sem ekki hafði verið hlustað á óskir hans í ríkisstjóminni. Bað hann um að stjórnarflokkarnir settu nefnd til að athuga ladbúnaðarþátt- inn og var orðið við því. í nefndina völdust Eiður Guðnason, EgUl Jónsson og undirritaður sem var formaður hennar. Ytarleg nefndarstörf Það eru skynsamleg vinnubrögð að setja fámennar nefndir til þess að athuga ýtarlega fjárveitingar til ákveðinna málaflokka. Við lögð- um mikla vinnu í að leysa verkefni okkar, ræddum við fjölda manna og kynntum okkur rekstur stofn- ana og fyrirtækja. Mér varð það fljótlega ljóst að Egill Jónsson hefði ekki áhuga á því að ná árangri um leiðréttingar. Ég sá að hann mundi, þegar til úrslita drægi, heimta að orðið yrði við öllum óskum hvaðanæva úr landbúnaðargeiranum og þegar á það yrði ekki fallist, og það lá fyrir að hvorki Eiður né ég teldum það fært, mundi hann kljúfa nefndina og reyna að slá sig til riddara í augum þeirra sem óskalistana sömdu. Þetta gekk allt eftir. Egill skrifaði niður óskalistana og gerði að tillögu sinni og sperrir sig síðan í Morgunblaðinu. Mismunandi fjárþörf Þeim fjárbeiðnum sem fyrir liggja má skipta í fjóra flokka. 1. Verkefni sem ættu að koma til greiðslu á þessu ári. Sumstaðar fara lögbundin framlög fram úr fjárlögum og það væri eðlilegast að leysa með aukafjárveitingum. 2. Verkefni sem þegar eru unnin og lögbundið er framlag til á árinu 1988, svo sem framlag til jarðrækt- ar fyrra sumars, minkahúsa sem þegar eru risin og bóta vegna förgunar riðufjár. 3. Vinnulaun á árinu 1988 og kostnaður vegna áframhaldandi rekstrar. 4. Áform um útþenslu á næsta ári, nýbyggingar, nýjar stöður, bíla- og tækjakaup og aukin starf- semi. Við Eiður Guðnason urðum sammála um það að óhjákvæmilegt væri að gera tillögur um hækkun á nokkrum liðum fyrirliggjandi fjár- lagafrumvarps. Einkum töldum við óhjákvæmilegt að sinna ýmsu úr fyrstu flokkunum þremur en láta þann fjórða fremur sitja á hakan- um. Við teljum óhjákvæmilegt að standa við skuldbindingar og tryggja að nauðsynlegri starfsemi verði haldið gangandi, áður en orðið verði við óskum um nýja útþenslu. Höfundar fjárlagafrum- varpsins hafa raunar verið einstak- lega rausnarlegir í nokkrum grein- um landbúnaðarmála. Aðalskrif- stofa ráðuneytisins hækkar um 79%, Skógræktin hækkar um 56% og Landgræðslan hækkar um 55%. Við Eiður gerum þó ekki tillögur um lækkun á þessum liðum, þótt hækkun þeirra sé gífurleg. Það er skilmerkilegast að birta skýrslu um nokkur þau atriði sem við athuguðum og bera saman við gildandi fjárlög, þannig að glögg mynd fáist af ráðstöfun fjármun- anna nái tillögur okkar fram að ganga. Á þessari skýrslu sést að allt tal um svik við landbúnaðinn er út í hött. Kosti landbúnaðar er ekki þrengt með óeðlilegum hætti eins og Egill heldur fram. Heppilegra hefði verið að ljúka reikningsskil- um vegna ársins 1987 með auka- fjárveitingum, en á það hefur fjármálaráðherra ekki viljað fallast að öðru leyti en því að hann mun samþykkja aukafjárveitingar til gjaldfallinna jarðræktarframlaga og umsamdra afurðatjónsbóta vegna riðuniðurskurðar á undan- förnum árum, sem lið í samkomu- lagi okkar Eiðs. Hinsvegar stendur eftir fram yfir áramót að bæta úr ríkissjóði riðufé sem grafið var á síðasta hausti. Eins og fram kemur af skýrslunni gerum við tillögu um 300 milljón króna hækkun á fjárlagafrumvarpi 1988. Við losuðum um 53ja milljón króna aukafjárveitingu sem verið hefur föst. Þá fengum við viður- kennda gjaldskyldu á 85 milljónum á árinu 1989 sem tilheyra ættu árinu 1988. Fjármálaráðherra handsalaði mér samkomulagi okk- ar Eiðs enda næði það fram að ganga og þingflokkur Framsókn- armanna samþykkti það mótat- kvæðalaust að landbúnaðarráð- herra viðstöddum. Sjálfsafgreiðsla í ríkissjóði? Það á ekki og má ekki vera sjálfsafgreiðsla í ríkissjóði og því tel ég þessa niðurstöðu vera ásætt- anlega. Mikilvægustu lagfæringar á frumvarpinu væru með þessu komnar í höfn. Greiðslur vegna riðuniðurskurðar dragast að vísu nokkuð, að hluta, en á það má benda að ekki var ætlað fyrir þeim í fjárlögum yfirstandandi árs. Samningar um niðurskurð voru gerðir á síðari hluta þessa árs og urðu miklu víðtækari en áætlað var. Upphaflega var áætlað að slátra um 20 þúsund kindum og koma kjötinu í verð, en slátrað var 28 þúsundum og kjötið grafið að boði yfirdýralæknis. Þá er þess að geta að þeir bændur sem förguðu ám sínum í október hefðu ekki fengið peninga fyrir ærnar fyrir áramót liefðu þeir sett þær á í haust. Slæmt er ef ekki verður staðið við þá samninga sem land- búnaðarráðherra gerði, en lánsfé ætti hann að geta útvegað Fram- leiðnisjóði eða einstökum kaupfé- lögum til þess að gera upp við þá bændur sem samninga hafa í hönd- um þar sem greiðsla er trygg í byrjun janúar næstkomandi. Framlög samkvæmt jarðræktar- lögum, sem gjaldfalla ættu 1988 eru miklu hærri en ætla mætti, vegna þess að miklu fleiri hafa reist minkahús í ár, en nokkru sinni fyrr, en til þeirra er veitt framlag samkvæmt jarðræktarlögum árið eftir að þau eru tekin út. Hin hefðbundna jarðrækt hefur hins- vegar dregist mjög saman. Á þess- um fjárlagalið er ríkishlutinn í launum héraðsráðunauta, það er 65% launa þeirra. Þeir voru úti samkvæmt frumvarpinu en það hefur nú verið leiðrétt. Það er réttmætt og óhjákvæmi- legt, eigi fjárlagagerð að geta verið raunhæf, að bændur sæki um fram- lag áður en framlagsskyld fram- kvæmd er gerð. Það er eðlilegt að þörfin fyrir framkvæmdina og fjár- hagsgrundvöllur hennar sé metinn. Þessvegna er óhjákvæmilegt að breyta jarðræktarlögum að þessu leyti. Hluti framlags vegna jarð- ræktar, sem gjaldfalla ætti 1988 verður að bíða fyrstu daga árs 1989, en greiðsluskyldan er viður- kennd af fjármálaráðherra. Þá er sjálfsagt að búnaðarsamböndin gæti hagsýni hvað varðar ráðu- nautaþjónustuna eins og þau gera raunar flest. Samvinna á milli bún- aðarsambanda þarf að færast í vöxt þannig að starfskraftar hæfra ráðu- nauta nýtist sem best. Hlutverk héraðsráðunauta á að vera að styrkja búsetu í sveitum en ekki að koma þeim í eyði. Rannsóknarstofnun landbúnað- arins var samkvæmt fjárlagafrum- varpi gert að leggja niður allar tilraunastöðvar nema eina, en hún var í kjördæmi þeirra forsætisráð- herra og landbúnaðarráðherra. Samkvæmt tillögum okkar Eiðs á ekki að þurfa til þess að koma. Hin mikilvæga starfsemi tilraunastöðv- anna er tryggð næsta ár. Augljós- lega þarf að hagræða og endur- skipuleggja tilraunastarfsemina þannig að hún verði markvissari. Óþarfi ætti að vera að vinna að hliðstæðum tilraunum á mörgum stöðvum. Sæmilega ætti að vera séð fyrir starfsemi RALA þar sem stofnunin fær samkv. tillögu okkar hækkun um 21,6% á meðan reikni- tala fjárlaga er 18%, það er meðal- talshækkun á milli ára. Ennþá betur er gert við Búnaðarfélag íslands. Að samþykktum tillögum okkar Eiðs hækkar fjárveiting til Búnaðarfélags íslands úr 48 millj- ónum og fimmhundruð og ellefu þúsundum í gildandi fjárlögum og upp í 61 milljón 522 þúsund 1988 LANDBÚNAÐARMÁL Hækkun Fjárlög Frumvarp Aukafjárv. Till. Páls Fjárlög '88 Hækkun Gfeymt til % •87 ‘87 og Eiðs samkv. P .& E. % '89 Aóalskrifstofa 79% 37.805.000 Búnaðarfél. ísl. 48.511.000 55.211.000 6.000.000 61.211.000 - 26,2% Rala 74.921.000 83.078.000 8.000.000 91.078.000 - 21 6% Veióistjóri 3.437.000 4.248.000 Jarðasjóður 4.000.000 15.000.000 Skógræktin 56% 39.219.000 61.108.000 Landgræóslan 55% 34.863.000 54.083.000 Sauófjárvarnir 31.095.000 96.923 .000 20.000.000 145.000.000 241.923.000 43.000.000 Veióimálastofnun 22.571.000 36.390.000 Yfirdýralæknir 26% 32.476.000 40.850.000 Stóóhestastöð 1.000.000 Stofnlánadeild 22.200.000 34.620.000 Einangrunarstöð 1.150.000 1.000.000 2.150.000 ' Jaróræktarlög 152.810.000 121.258.000 33.000.000 50.000.000 171.258.000- 42.000.000 Búf járrækt 12.000.000 26.000.000 \ 42.711.000' Sæðingarmenn 37% 16.711.000 / Útflutningsbætur 480.000.000 63.000.000 549.000.000 53.000.000 300.000.000 85.000.000 Landbúnaðar- ráóuneyti alls 1644 .039.000 1774.222.000 2074.322.000 = 26.2% eða um 26,2% á meðan verðlags- forsendur fjárlaga eru eins og áður sagði 18%. Búnaðarfélag íslands hefur unn- ið heilladrjúgt starf fyrir bænda- stéttina og þjóðina alla. Þar er mikilvægt að stjórnað sé af hagsýni og festu eins og lengst af hefur verið gert. Þá er samkvæmt tillögum okkar Eiðs tryggður viðgangur hinnar merkilegu starfsemi Einangrunar- stöðvarinnar í Hrísey og Stóð- hestastöðvarinnar í Gunnarsholti. Yfirboð Egils Agli Jónssyni þótti sér sæma að yfirbjóða okkur Eið. Munaði þar mest um tillögu um 80 milljóna framlag til Áburðarverksmiðjunn- ar. Málefni Áburðarverksmiðj- unnar hafa tekið miklum stakka- skiptum frá því sem var fyrir nokkrum árum, en þá var verk- smiðjan í skuldafeni. Ef enginn ríkisstyrkur kemur til, telur fram- kvæmdastjóri að áburður til bænda þyrfti að hækka um 31% frá maí 1987 til maí 1988. Þetta er bundið því að laun hækki ekki nema hóflega. MetnaðarfuII áform eru á meðal forráðamanna verksmiðj- unnar um mjög hraða endur- greiðslu erlendra lána. Ef dregið yrði úr þeim hraða þyrfti áburður- inn ekki að hækka svona mikið til bænda. Þá lagði Egill til að fjárþörf Búnaðarfélags íslands yrði mætt með 0,2% gjaldi af heildsöluverði búvara, Búnaðarsamböndin fengju 0,3% af heildsöluverði búvara og stofnalánadeildargjald yrði 0,5%. Þetta tel ég mjög óskynsamlega ráðagerð Þá vildi Egill færa útgjöld vegna forfalla og afleysingaþjónustu yfir á fj árlög, en hún hefur veríð kostuð af stofnlánadeildargjaldi undanfar- ið. Þá vildi Egill einnig verða við öðrum óskum. Þegar ekki var fall- ist á hinar fráleitu hugmyndir hans, talar hann um að við Eiður höfum gert „Sáttmála um siðleysi" (Mbl. 29. nóv.). Þess má geta til upprifjunar að Egill Jónsson var einn aðalhöfund- ur búvörulaganna og ber stóran hluta ábyrgðar vegna þeirrar sárs- aukafullu samdráttarstefnu sem í kjölfar þeirra kom. Skynsamlegt og hófsamt samkomulag Samkomulag okkar Eiðs er ekki „Sáttmáli um siðleysi“ eins og Egill heldur fram, það er skynsam- leg og hófsöm málamiðlun, sem við getum verið stoltir af. Framlög til landbúnaðarráðu- neytis hækka úr 1.644.039.000 í gildandi fjárlögum, í 2.074.322.000 árið 1988 samkvæmt tillögum okkar, eða um 26,2%. Þrátt fyrir að verðlagsforsendur fjárlaga séu 18% teljum við þessa hækkun nauðsynlega og réttmæta og það er mikill ábyrgðarhluti að koma í veg fyrir að samkomulag okkar nái fram að ganga með óraunsæjum yfirboðum eða ástæðulausu tuði sem vonlaust er að fái nokkurs staðar hljómgrunn. Páll Pétursson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.