Tíminn - 17.12.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 17. desember 1987
MYKJUDREIFARAR
Ný sending komin til landsins
á sama verksmiðjuverði og áður
Eldri pantanir verða afgreiddar fyrir
miðjan desember
GUFFEN 2600 lítra.
Raunverð kr. 202.000.-
Afsláttur kr. 13.000.-
Tilboðsverð kr. 189.000.-
GUFFEN 4200 lítra
Raunverð kr. 283.300.-
Afsláttur kr. 18.300.-
Tilboðsverð kr. 265.000.-
Tilboð þetta gildir til áramóta, eða meðan
birgðir endast. Mjög hagstæðir greiðslu-
skilmálar.
Látið ekki happ úr hendi sleppa
UMÐOÐSMENN OKKAR -
YKKAR MENN UM LAND ALLT
Vélabær h( Andakílshr. S. 93-51252
Ólafur Guðmundsson, Hrossholti
Engjahr. Hnapp. S. 93-56622
Dalverk hf. Buðardal S. 93-41191
Guðbjartur Björgvinsson, Sveinsstöðum,
Dal. S. 93-41475
Vélsm. Húnv. Blönduósi S. 95-8145
J.R.J. Varmahlið S. 95-6119
Bilav. Pardus Hofsósl S. 95-6380.
Bílav. Dalvíkur, Dalvik S. 96-61122
Dragi Akureyri S. 96-22466
Vélsm. Hornafjarðar hf. Höfn S. 97-8340
Vikurvagnar, Vík S. 99-7134
Ágúst Ólafsson, Stóra Moshvoli,
Hvolsvelli S. 99-8313
Vélav. Sigurðar, Flúðum S. 99-6769
Vélav. Guðm. og Lofts Iðu S. 99-6840
jgs?"
G/ObUSF l.ágmúla 5 Reykjavík Sími 6815S5
TiLBOÐSVERÐ
KVERNELAND
JT
TIL AFGREIÐSLU STRAX
STEVR 8090
OG
STEVR 8070
Jón Stefánsson, stjórnandi Kórs Langholtskirkju, situr hér við gamla orgelið með eintök af fyrsta klassíska
geisladiskinum. Tímamynd: Gunnar
Langholtskirkjukór ríður á vaðið:
Jóhannesarpassían
á fyrsta diskinum
Kór Langholtskirkju hefur nú riðið
á vaðið og gefið út fyrsta íslenska
hljómdiskinn (geisladisk) með
klassískri tónlist. Verkið er Jóhann-
esarpassía og er á tveimur diskum,
auk vandaðrar bókar með texta
passíunnar, umfjöllun um verkið,
höfund þess og flytjendur á íslensku,
þýsku og ensku.
Flytjendur eru þau Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, Sólveig M. Björling,
Michael Goldthorpe, Kristinn Sig-
mundsson, Viðar Gunnarsson, Kór
Langholtskirkju og Kammersveit
kirkjunnar. Stjórnandi er hinn sívin-
sæli Jón Stefánsson.
Upptakan var gerð á tónleikum í
Langholtskirkju þann 17. apríl sl.
fyrir fullu húsi áheyrenda og annað-
ist Ríkisútvarpið hana. Tónleikarnir
voru síðan settir óstyttir á diskana,
nema hvað þagnir voru styttar og
lófaklappið þurrkað út, auk ýmissa
smáhljóða, eins og hósta og skrjáfi í
pappírum. Upptökumaður var Þórir
Steingrímsson og tónmeistari var
Bjarni R. Bjarnason.
Hljómdiskarnir voru gefnir út í
1.000 eintökum og fást í hljómplötu-
verslunum. Hulstrið prýðir mynd úr
íslensku handriti frá 14. öld, sem er
í eigu Árna Magnússonar safnsins í
Kaupmannahöfn. - SÓL
Þorskafli landsmanna:
360.000
tonn á11
mánuðum
Síðari jólamynd Laugarásbíós:
Ævintýri Stórfóts
hjá Hendersonunum
Síðari jólamynd Laugarásbíós,
Stórfótur, eða Bigfoot, verður frum-
sýnd nú á fimmtudaginn. Myndin
greinir frá Henderson fjölskyldunni,
sem á ferðalagi keyrir á ferlíki, sem
reynist vera Stórfótur (sem fyrir þá
sem ekki vita betur, er goðsagna-
skrímsli í Norður-Ameríku, svona
nokkurs konar Jeti, fyrir þá sem
muna kannski eftir Tinna í Tíbet).
í>au ákveða að drösla ferlíkinu með
sér heim á leið, og binda það því á
þakið. Miðja vegu heim uppgötva
þau svo skyndilega að Stórfótur er
alls ekki kominn í annan heim,
heldur sprelllifandi. Og það er allt
annað en auðvelt að hafa 3ja metra
háan apa í húsinu heima hjá sér og
láta eins og ekkert sé. Stórfótur, sem
reynist síðan eftir allt saman vera
besta skinn, er, eins og vera ber,
eltur af vondum gaurum, en allt
hlýtur að bjargast að lokum. Annars
er ég illa svikinn.
í aðalhlutverkum í þessari bíó-
mynd, gerð af fyrirtæki Steven Spiel-
berg, eru John Lithgow, Melinda
Dillon og Don Ameche. Leikstjóri
er William Dear og verður myndin
sýnd jafnhliða hinni frábæru Amer-
ican Tale sem er fyrri jólamynd
Laugarásbíós.
Sjá kvikmynda- og skemmtidóm
síðar. _ SÓL
Frá janúarbyrjun til nóvember-
loka hafa landsmenn veitt 360.000
tonn af þorski, en höfðu á sama tíma
í fyrra veitt 330.000 tonn. í>ar af
voru 22.000 tonn veidd í nóvember,
en í nóvember 1986 voru veidd
23.000 tonn. Mest var samt veitt af
þorski í júlí, en þá var 43.000
tonnum landað, sem var 13,000
tonnum meira en landað var í sama
tíma í fyrra.
Bátar veiddu samtals 202.342 tonn
af físki í síðasta mánuði, togarar
23.857 tonn, eða samtals 226.199
tonn. Mest var veitt af loðnu, eða
145.235 tonn, þá af síld, 37.727 tonn
og loks þorski, 21.811 tonn. Norð-
lendingar veiddu landshluta mest,
eða 68.824 tonn, þar af voru 58.025
tonn af loðnu. Austfirðingar komu
fast á eftir með 60.000 tonn, en afli
þeirra skiptist milli loðnu, 29.173
tonn og sfldar, 27.113 tonn. Aðrir
landshlutar voru langt á eftir.
Fyrstu 11 mánuði ársins voru
veidd 360.000 tonn af þorski,
265.000 tonn af öðrum botnfiski,
61.000 tonn af síld, 670.000 tonn af
loðnu, 33.000 tonn af rækju, 2.600
tonn af humri, 11.344 tonn af hörpu-
diski og 490 tonn af öðrum afla.
Samtals hafa verið veidd 1.401.260
tonn af ölluni tegundum, en á sama
tíma í fyrra var búið að veiða
1.476.853 tonn. Heildaraflinn er því
75.000 tonnum minni, þó búið sé að
veiða 20.000 tonnum meira af
þorski. - SÓL