Fréttablaðið - 19.02.2009, Blaðsíða 4
4 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
STJÓRNMÁL „Þetta var óskýrt af
hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
en ég hafði rétt fyrir mér eins
langt og það náði. Ég skildi póst-
inn eins og hann kom til mín. Nú er
komið fram að hann var ekki nægi-
lega skýr og það dugar mér,“ segir
Geir H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra, um tölvupóst sem
Poul Thomsen, formaður sendi-
nefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(AGS) fyrir Ísland, sendi honum á
mánudagskvöld. Þar tekur Thoms-
en af allan vafa um það að stjórn-
völd voru beðin um að birta ekki
bráðabirgðaathugasemdir AGS
við frumvarp um Seðlabanka
Íslands.
Fyrr um daginn fullyrti Geir í
óundirbúnum fyrirspurnartíma
á Alþingi að farið hafi verið með
rangt mál, þegar Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra sagði
að AGS hefði beðið stjórnvöld um
að birta ekki bráðabirgðaumsögn
sjóðsins.
Í tölvupóstinum, sem Frétta-
blaðið hefur undir höndum, segist
Thomsen hafa heyrt að fyrri tölvu-
póstssamskipti þeirra Geirs um
málið hefðu valdið misskilningi.
„Við sendum bráðabirgðaumsögn
til að flýta vinnu við lagasetning-
una,“ segir Thomsen í tölvupóstin-
um til Geirs. „Ég hefði átt að taka
það sérstaklega fram að ég átti við
lokaumsögnina; við báðum ríkis-
stjórnina um að birta ekki bráða-
birgðaumsögnina. Ég vona að þetta
skýri málið,“ segir Thomsen í nið-
urlagi tölvupóstsins.
Spurður um orðaskipti sín og for-
sætisráðherra á þinginu á mánudag
segir Geir að til greina hafi komið
að segja frá því að Thomsen hafi
sent fyrrnefndan tölvupóst, þar
sem útskýrt er hvernig í málum
lá. „En Thomsen er maður sem ég
ætla mér að vinna með, þótt ég sé
kominn í annað hlutverk. Ég ætlaði
ekki að gera honum lífið erfiðara
en efni standa til. Þetta eru mistök
og hann segir það sjálfur að þetta
hafi ekki verið nægilega skýrt.“
Geir telur ekki að hann hafi látið
of þung orð falla þegar hann sagði
Jóhönnu hafa sagt ósatt. „Hún og
aðrir sem sitja í ríkisstjórninni
hafa látið þyngri orð falla og það
stendur ekki upp á mig að biðj-
ast afsökunar. Það er alveg af og
frá.“
Geir segir að burtséð frá þess-
um augljósa misskilningi hafi
aðalatriði málsins ekki komið
fram. „Í viðskiptanefnd þingsins,
er mér tjáð, hefur komið fram að
í þessu fyrra áliti sjóðsins standi
að hæfiskröfurnar séu of þröng-
ar. Álitið tók breytingum frá því
það var sent sem bráðabirgða-
álit og þar til það kom í endan-
legri útgáfu, sem var birt. Þetta
var veigamikil efnisbreyting sem
ekki átti að leyna fólki,“ segir Geir
sem hvetur stjórnvöld til að birta
skjalið.
Jóhanna Sigurðardóttir ætlar
ekki að tjá sig um málið.
svavar@frettabladid.is
ERLENTP ÓFKJÖR
REYKJAVÍK Reykjavíkurborg eyddi 26
milljónum í móttökur á árinu 2008.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um
hve margar móttökur voru haldnar
á því ári. Frá 21. ágúst í fyrra til 5.
febrúar í ár voru hins vegar haldn-
ar 35 móttökur á vegum borgarinn-
ar; ýmist í Ráðhúsinu eða í Höfða.
Móttaka sem Óskar Bergsson,
formaður borgarráðs, hélt kollegum
sínum í Framsóknarflokknum 14.
nóvember kostaði 87 þúsund krón-
ur. Ólafur F. Magnússon, fyrrum
borgarstjóri, hefur gagnrýnt mót-
tökuna, sagt hana dæmi um spill-
ingu og krafist afsagnar Óskars.
Sem dæmi um móttökur hjá
borginni má nefna að um 400 gest-
ir voru í móttöku vegna ADHD-
ráðstefnu. Þá komu um 200 gestir
í salinn vegna fornbílaralls og um
250 vegna ferðaráðstefnu. Þá var 25
gestum boðið í Ráðhúsið í nóvember
vegna móttöku fyrir Oddfellowstúk-
una Hallveigu.
Ársuppgjöri fyrir árið 2008 er
ekki að fullu lokið þannig að mögu-
lega var kostnaður meiri en 26
milljónir. Innifalið í kostnaði eru
laun, veitingar, blóm og annað sem
til fellur. - kóp
Móttaka framsóknarmanna í Ráðhúsinu kostaði tæpar 90 þúsund krónur:
26 milljónir í móttökur í fyrra
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Reykjavíkurborg
eyddi að minnsta kosti 26 milljónum
króna í móttökur á árinu 2008.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Ferðaskrifstofa
25. febrúar - 4. mars. Vika m/v 2 saman í íbúð, stúdíó
eða herbergi. Innifalið er flug, gisting í 7 nætur,
flugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
JAPAN, AP Shoichi Nakagawa,
fjármálaráðherra Japans, sagði
skyndilega af sér vegna ásakana
um að hann hefði verið ölvaður á
blaðamannafundi á ráðstefnu sjö
helstu iðnríkja heims, sem haldin
var á Ítalíu um síðustu helgi.
Nakagawa segist þó ekki hafa
verið drukkinn, heldur illa fyr-
irkallaður vegna kvefmeðals og
flugþreytu.
Afsögnin þykir áfall fyrir Taro
Aso forsætisráðherra, sem hefur
aðeins verið í embætti í tæpa
fjóra mánuði. Einnig er þetta
áfall fyrir efnahagslíf Japans,
sem stefnir inn í alvarlegt sam-
dráttarskeið. - gb
Japanskur ráðherra:
Kveðst saklaus
en segir af sér
VINSTRI GRÆN
Steinunn Þóra
Árnadóttir gefur
kost á sér í 4. sæti í
sameiginlegu forvali
Vinstri grænna fyrir
Reykjavíkurkjör-
dæmin.
Jórunn Einarsdóttir býður sig fram
í 2. sæti á lista Vinstri grænna í
forvali í Suðurkjördæmi.
Álfheiður Ingadóttir
gefur kost á sér í 1.
til 2. sæti í forvali
Vinstri grænna í
Reykjavík.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
Ásbjörn Óttarsson sækist eftir 1. til
2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðvesturkjördæmi.
Sigríður Á. Andersen
sækist eftir einu af
efstu sætunum í
prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
Eydís Aðalbjörnsdóttir býður sig
fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Norðvesturkjördæmi.
SAMFYLKING
Björgvin G. Sigurðs-
son gefur kost á sér
í 1. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi.
Jónína Rós Guðmundsdóttir
býður sig fram í 1. til 2. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Norðausturkjör-
dæmi.
Helga Valfells aðstoðar Gylfa
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra
hefur ráðið Helgu Valfells sem
aðstoðarmann sinn. Helga er með
BA-gráðu í bókmenntum og hagfræði
frá Harvard-háskóla og MBA frá Lond-
on Business School.
STJÓRNMÁL
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
5
16°
7°
2°
1°
3°
7°
1°
2°
1°
1°
19°
9°
8°
22°
5°
10°
9°
-4°
1
1
0
0
2
4
5
6
4
3
-2
13
13
8
10
5
8
15
5
8
6
9 13
0 -1
2
6
Á MORGUN
Hæg breytileg átt
LAUGARDAGUR
Hvassviðri á annesj-
um nyrðra og syðra
annars 5-10 m/s
6
4 5
5
6
RYSJÓTT TÍÐARFAR
Í dag má búast við
skúrum eða éljum á
landinu sunnan- og
vestanverðu. Þegar
líður á kvöldið kemur
ný lægð í spilið með
myndarlegt úrkomu-
loft og hlýindi. Í kvöld
verður því komin
nokkuð þétt rigning
eða slydda á suður-
helmingi landsins
með snjókomu á
fjöllum. Á morgun
verða él nyrðra og
eystra en rigning syðra
og á laugardag verður
milt. Síðan frystir á
sunnudag.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
STJÓRNMÁL Þingmaðurinn Jón
Magnússon er genginn til liðs
við Sjálfstæðisflokkinn og hefur
tekið sæti í þingflokki hans. Þetta
var tilkynnt á þingflokksfundi
flokksins í gær.
Jón var á sínum tíma virkur í
Sjálfstæðisflokknum, gekk síðan
til liðs við Nýtt afl og síðan í
Frjálslynda flokkinn. Hann sagði
sig úr Frjálslynda flokknum fyrir
skemmstu.
Jón segist ekki vera búinn að
taka endanlega ákvörðun um
hvort hann hyggst bjóða sig fram
til þings fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn. Margir hafi skorað á hann og
málið skýrist á næstu dögum. - sh
Hugar að þingframboði á ný:
Jón til liðs við
Sjálfstæðisflokk
EFNAHAGSMÁL Sé allt lagt saman
er brúttóskuldastaða landsins
á þriðja þúsund milljarða, sam-
kvæmt svartsýnustu spám, segir
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra. Þetta segi þó ekki allt.
Með bjartsýnni spám um nettó-
skuldastöðu hins opinbera megi
komast nálægt því sem Tryggvi
Þór Herbertsson, fyrrverandi
efnahagsráðgjafi forsætisráð-
herra, hefur talað um, undir 500
milljörðum. Þetta kunni þó að
vera of mikil bjartsýni, eins og
fyrri talan, 2.200 milljarðar, beri
of mikilli svartsýni vitni.
Nákvæmari tölur eigi að fást
á næstunni. Unnið sé að úttekt á
skuldum þjóðarbúsins. - kóþ
Fjármálaráðherra:
Brúttóskuldir
segja ekki allt
Átök um frumvarp
byggð á misskilningi
Geir H. Haarde fékk tölvupóst frá AGS um að átök um frumvarp um Seðla-
bankann væru byggð á misskilningi. Geir íhugaði að segja frá bréfinu en vildi
ekki koma fulltrúa sjóðsins í vanda. Hann segir málið enn óuppgert.
JÓHANNA OG GEIR Formað-
ur sendinefnar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins
sendi fyrrverandi
forsætisráðherra
bréf þar sem hann
tók af allan vafa um
að stjórnvöld voru
beðin um að birta ekki
bráðabirgðaathugasemdir
AGS við frumvarp um Seðla-
bankann.
GENGIÐ 18.02.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
177,5871
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,92 114,46
161,42 162,20
143,23 144,03
19,222 19,334
16,185 16,281
12,870 12,946
1,2292 1,2364
167,85 168,85
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR