Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 6
6 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
Thermalrúllur
8x8cm8x8c , 5stk í pakka.
199kr
stykkið
Fyrirtækja
þjónusta
PÖNTUNARSÍMI
550 4111
Ti
lb
oð
ið
g
ild
ir
út
fe
br
úa
r 2
00
9
VM Stórhöfða 25 110 Reykjavík sími 575 9800 www.vm.is
EFNAHAGSMÁL Innan Seðlabankans
er vonast til að fyrstu niðurstöð-
ur úr viðamikilli greiningu á efna-
hagsstöðu allra Íslendinga verði
hægt að senda til ríkisstjórnar í
næstu viku.
Fjármálaráðherra hefur sagt að
gagnanna sé beðið með óþreyju,
og í forsætisráðuneyti er þeirra
vænst fyrir helgi, enda séu þær
undirstaða þess að hægt sé að
vinna skynsamlega áætlun um
efnahag heimilanna.
Um er að ræða grundvallarupp-
lýsingar frá flestum fjármála-
stofnunum landsins um eigna- og
skuldastöðu heimilanna, greiðslu-
byrði og aukningu hennar í
kreppunni.
Í minnisblaði Seðlabanka frá
18. desember er rætt um að bráða-
birgðaniðurstöður verði tilbúnar
um miðjan febrúar eða fyrr. Arnór
Sighvatsson, aðalhagfræðingur
bankans, sagði svo hér í blaðinu
14. febrúar að vinnan hefði taf-
ist um nokkrar vikur og vísaði til
þess að ákveðið hefði verið að afla
leyfa hjá Persónuvernd og fylgja
skilyrðum hennar. Þetta var gert
samkvæmt beiðni fjármálafyr-
irtækja frá 12. janúar, segir Þor-
varður Tjörvi Ólafsson, sem fer
fyrir starfshópnum sem meta á
upplýsingarnar í Seðlabankanum.
„Það var engin seinkun hér,“
segir Sigrún Jóhannesdóttir, for-
stjóri Persónuverndar. Í tilkynn-
ingu frá stofnuninni kemur fram
að Seðlabanki sótti um leyfið 21.
janúar og síðasta umsókn frá fjár-
málastofnun vegna verkefnisins
barst föstudaginn 6. febrúar. Leyf-
ið var síðan veitt mánudaginn 9.
febrúar.
Spurður um tafirnar segir Arnór
Sighvatsson að talsverð umræða
hafi farið í það í upphafi að ákveða
hvaða leiðir ætti að fara. Ekki hafi
verið sjálfgefið að leita til Persónu-
verndar. Einnig hafi undirbúning-
ur í bönkunum tekið sinn tíma.
„Þetta er ekki einfalt mál og er
talsvert mikil vinna í bönkunum
[...] og hér innanhúss, sem ekki
er gott að sjá fyrir hversu langan
tíma tekur,“ segir hann. Þorvarð-
ur Tjörvi segir að gagnaöflunin
hafi tafist um minnst þrjár vikur
af ýmsum ástæðum. Bráðabirgða-
niðurstöður verði sendar út jafn-
óðum. Vonandi fari þær fyrstu til
ríkisstjórnar í næstu viku.
klemens@frettabladid.is
Greining Seðlabanka
kemur ekki í vikunni
Forsætisráðherra býst við fyrstu niðurstöðum úr viðamikilli rannsókn á fjárhag
landsmanna fyrir helgi, en þær koma ekki þá. Persónuvernd afgreiddi beiðni
um hana á fáeinum dögum. Seðlabankinn hafði þá verið í mánuð að verki.
ARNÓR
SIGHVATSSON
SIGRÚN
JÓHANNESDÓTTIR
ÞORVARÐUR TJÖRVI
ÓLAFSSON
Til stóð að senda upplýsingarnar yfir
netið og í miðlara hjá Decode, en
Persónuvernd taldi sig kunna örugg-
ari og ódýrari leið. Eftir sem áður er
notast við dulkóðun Decode.
Gagnavinnsla persónuupplýsinga
fer fram undir eftirliti tilsjónarmanns
Persónuverndar, en Seðlabankinn
greiðir kostnað vegna hans.
Fjármálastofnanir skrá persónu-
upplýsingarnar á geisladiska og
afhenda þá Seðlabankanum.
Bankinn leggur til fartölvu sem
uppfyllir kröfur tilsjónarmanns.
Vinnsla persónugreinanlegra
upplýsinga fer fram í þessari tölvu
og þar skal dulkóða kennitölur.
Þegar upplýsingarnar eru komnar
í fartölvuna eru upprunalegu geisla-
diskarnir brotnir.
Seðlabankinn fær svo dulkóðaðar
upplýsingar úr tölvunni á öðrum
geisladiskum.
Þegar verkefninu lýkur verður
hörðum diski fartölvunnar fargað.
Þannig eiga starfsmenn Seðlabank-
ans ekki að geta tengt fjárhagsupp-
lýsingar við einstaklinga.
GEISLADISKARNIR BROTNIR Í SUNDUR
Rakel Sveinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Creditinfo, sem heldur meðal
annars utan um vanskilaskrá, hefur
lýst yfir miklum áhyggjum af tíma-
freku ferli greiningar Seðlabankans
hér í blaðinu. Hún telur að hægt
væri að fá sambærilegar tölur með
mun minni tilkostnaði.
Rakel bað á mánudag um viðtal við
fjármálaráðherra vegna þessa og
segist hafa fengið afar kurteislegt og
jákvætt svar.
FUNDAR MEÐ STEINGRÍMI
DÓMSMÁL Maður um tvítugt hefur
verið dæmdur í fimmtán mán-
aða fangelsi fyrir tvær alvarleg-
ar líkamsárásir, fíkniefnasölu,
vörslu fíkniefna, vopnalagabrot
og umferðarlagabrot.
Maðurinn réðist á konu í mið-
borg Reykjavíkur árið 2007. Hann
útskýrði árásina þannig að hann
hefði haldið að konan ætlaði að
ráðast á þáverandi unnustu sína.
Maðurinn sló í andlit konunnar,
sparkaði í síðu hennar og brjóst-
kassa með þeim afleiðingum að
bringubein brotnaði.
Þá réðist maðurinn á annan
mann að tilefnislausu inni í versl-
un í Reykjavík á síðasta ári. Hann
sparkaði í klof hans þannig að úr
honum blæddi. Afleiðingar árás-
arinnar voru þær að þvagrás fórn-
arlambsins klemmdist og rofn-
aði.
Af upptökum símtala sem spil-
aðar voru í dómsal mátti ráða að
maðurinn hafi verið stórtækur
fíkniefnasali.
Maðurinn var, auk ofangreindr-
ar refsingar, sviptur ökurétti ævi-
langt. Um 300 þúsund krónur í
peningum, skotvopn og fíkniefni
voru gerð upptæk, þar á meðal
385 grömm af kókaíni. Loks var
honum gert að greiða konunni,
sem hann réðist á, 324 þúsund
krónur í miskabætur. - jss
Maður um tvítugt dæmdur fyrir fíkniefnamál og líkamsárásir:
Fíkniefnasali í 15 mánaða fangelsi
ALÞINGI „Nefndin mun ekki aðhaf-
ast frekar í þessu máli,“ segir Árni
Þór Sigurðsson, formaður utanríkis-
málanefndar, en nefndin fundaði um
ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar
eins og þau birtust í þýskum fjölmiðl-
um nýverið. Árni segir að utanrík-
isráðuneytið og forsætisráðuneytið
hafi sent áréttingar utan til þýskra
fjölmiðla, og samkvæmt upplýsing-
um frá utanríkismálanefnd hafi ekki
orðið sérstök eftirmál í Þýskalandi
vegna fréttaflutningsins.
Björn Bjarnason, sem óskaði eftir
að nefndin tæki málið fyrir, segir
það einstaklega vandræðalegt fyrir
forsetann. „Ég tel, að það sé hlut-
verk utanríkisráðuneytisins að koma
í veg fyrir atvik af þessu tagi með
því að stjórna heimsóknum erlendra
fjölmiðlamanna á Bessastaði og eiga
fulltrúa á staðnum,“ segir Björn í
tölvupósti til Fréttablaðsins.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í
nefndinni fóru fram á það á fund-
inum að óskað yrði eftir upplýsing-
um frá forsetaembættinu og utan-
ríkisráðuneytinu í tilefni greinar
Eiðs Guðnasonar í Morgunblaðinu á
mánudag, þar sem hann sagði forset-
ann hafa farið á svig við sannleikann
þegar hann sagði frá hádegisverð-
arfundi með erlendum sendiherrum
hér á landi. - ss
Björn Bjarnason vegna misskilnings erlendra fjölmiðla á orðum forseta:
Ráðuneyti stýri heimsóknum fjölmiðla
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Segist mis-
skilinn af erlendum fjölmiðlamönnum,
en sagðist nýlega ekki hyggjast taka upp
á að lesa viðtöl yfir fyrir birtingu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KÓKAÍN Tæp 400 grömm af kókaíni
voru gerð upptæk hjá manninum.
AFGANISTAN, AP Sameinuðu þjóð-
irnar segja að dauðsföllum
almennra borgara í stríðsátökum
í Afganistan hafi fjölgað um 40
prósent á síðasta ári, þegar átök-
in kostuðu 2.118 manns lífið.
Aldrei áður hafa jafn margir
almennir borgarar fallið á einu
ári.
Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna,
sem birt var á þriðjudag, segir
að talibanar og aðrir uppreisnar-
menn beri ábyrgð á 55 prósent-
um þessara dauðsfalla. Hermenn
frá Bandaríkjunum, Atlantshafs-
bandalaginu og Afganistan hafi
hins vegar orðið 928 almennum
borgurum að bana. - gb
Stríðið í Afganistan:
Dauðsföllum
fjölgaði í fyrra
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
Hefur þú áhyggjur af loðnu-
skorti á miðunum?
Já 66%
Nei 34%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var rétt af Steingrími J. Sigfús-
syni að hætta ekki við að leyfa
hvalveiðar?
Segðu skoðun þína á visir.is.
KJÖRKASSINN