Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 10
10 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
SKILAFRESTUR
VEIÐISKÝRSLNA
ER 1. APRÍL
VEIÐIKORTHAFAR
ATHUGIÐ!
Ef veiðiskýrslu er skilað eftir
1. apríl hækkar gjald vegna útgáfu
nýs veiðikorts um 1500 krónur.
Breytingar
hafa verið gerðar á
veiðikortagjaldi til þess
að skerpa á skilaskyldu
veiðiskýrslna.
Öllum veiðikorthöfum með
veiðikort fyrir árið 2008 er skylt að
skila inn veiðiskýrslu óháð veiði.
DÓMSMÁL Karl Georg Sigurbjörns-
son lögmaður, sem ákærður er
fyrir að hafa blekkt Sigurð Þórðar-
son, fyrrverandi ríkisendurskoð-
anda, til að selja tíu stofnfjárbréf
í Sparisjóði Hafnarfjarðar, SPH, á
25 milljónir hvert í stað 45 millj-
óna, hafnaði sök fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Hann sagði frá-
leitt að um fjársvik hefði verið að
ræða þegar stofnfjárbréf í SPH
voru keypt á 25 milljónir hvert og
seld áfram á 45 milljónir.
Í ákærunni segir að Karl Georg
hafi hagnýtt sér ranga hugmynd
Sigurðar, sem annaðist sölu á
stofnfjárbréfum fyrir sjálfan sig
og fjóra aðra, um hámarksverð.
Ákærði hafi greitt 25 milljónir
fyrir bréfin og selt svo áfram á 45
milljónir. Hann hafi leynt munin-
um og þannig haft 200 milljónir af
fimmmenningunum.
Karl Georg sagði að hann hefði
sem lögmaður aðstoðað við stjórn-
arskipti SPH og í kjölfarið gengið
frá viðskiptum með stofnfjárbréf í
samræmi við samkomulag nýrrar
stjórnar en ekkert haft með verð-
ið að gera. Hann og Sigurður G.
Guðjónsson hrl. hafi fengið lista
yfir seljendur og gengið frá kaup-
um. Ingólfur Flygenring hafi látið
vita af því haustið 2005 að Sigurð-
ur Þórðarson vildi selja og gengið
hafi verið frá því í febrúar 2006.
Karl Georg sagði að fimmmenn-
ingarnir hefðu verið í minnihluta
í SPH haustið 2005. Stefán Hilm-
arsson, stjórnarmaður í A. Hold-
ing í Lúxemborg, sem er í eigu
Baugs, hafi sagt að allir ættu sitja
við sama borð. Karl Georg sagði
að bréf fimmmenninganna hefðu
verið verðlaus en samt verið keypt.
Það hafi verið hálfgerður greiði
við þá. Verðið hafi verið það sama
og aðrir hafi fengið.
Í vitnaleiðslum kom fram að
Karl Georg og Sigurður G. hafi
fengið fé frá A. Holding inn á
vörslureikning lögmannsstofu
Karls Georgs til að geta greitt selj-
endum. Stofnfjárbréfin hafi síðan
verið seld áfram á 45 milljónir
hvert og reikningurinn síðan gerð-
ur upp og hagnaðurinn farið til A.
Holding. Kom fram að fimmmenn-
ingarnir hafi þurft leyfi stjórnar
fyrir sölunni og því ekki getað selt
hverjum sem var.
Stefán sagði að strax hefði verið
talað um 25 milljónir á bréf í sam-
ræmi við hugmyndir seljenda.
Hann hafi sjálfur reiknað út 45
milljónir sem verðmiða í endur-
sölu út frá bókfærðu eigin fé sjóðs-
ins og upphæðin verið talin nálægt
upplausnarvirði sjóðsins.
ghs@frettabladid.is
Lögmaður
neitar sök í
fjársvikamáli
Lögmaður er ákærður fyrir að hafa blekkt fimm
stofnfjáreigendur til að selja bréf á 25 milljónir
hvert í stað 45 milljóna króna og haldið muninum.
FRÁLEITT AÐ MATI ÁKÆRÐA Karl Georg Sigurbjörnsson hrl. hafnaði því að hafa
blekkt fimm stofnfjáreigendur. Þeir seldu bréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar á 25 milljónir
hvert og þau voru síðan seld áfram á 45 milljónir hvert og þannig hafðar 200 millj-
ónir af seljendunum. Fráleitt sagði Karl Georg fyrir héraðsdómi í gær. Hér sést hann
ásamt verjanda sínum, Ragnari Hall. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL Lífeyrissjóðirnir setja
sig ekki á móti því að lán þeirra
falli undir ákvæði um greiðslu-
aðlögun segir Hrafn Magnússon,
framkvæmdastjóri Landssamtaka
lífeyrissjóða, en Hrafn fundaði með
allsherjarnefnd í gær.
„Ég sé ekki fyrir mér að við
getum sett þetta mál í gegn með
þeim hætti sem lagt er upp með,
þannig að veðskuldir séu ekki
almennt hluti af greiðsluaðlögun,“
segir Árni Páll Árnason, formað-
ur allsherjarnefndar. Hann segir
að breytingar hljóti að verða gerð-
ar á frumvarpinu áður en nefndin
afgreiði málið.
Hrafn segir að skoða þurfi tvö
atriði frekar. Annars vegar þurfi
að vera skýrt ákvæði um hvernig
fasteignamat fari fram. Þá þurfi að
vera ljóst að ákvæði um að veðkröf-
ur skuli ekki eingöngu ná til Íbúða-
lánasjóðs og fjármálafyrirtækja
í eigu ríkisins standist ákvæði
stjórnarskrár um eignarrétt. „Því
var lofað á fundinum að það yrði
skoðað. Síðan er gert ráð fyrir að
ákvæðið yrði endurskoðað fyrir lok
næsta árs og við gerðum kröfu um
að taka þátt í þeirri endurskoðun,“
segir Hrafn. - ss
Rætt um almenn veðlán sem hluta af greiðsluaðlögun hjá allsherjarnefnd:
Lífeyrissjóðirnir jákvæðir
ÁRNI PÁLL ÁRNASON Formaður allsherj-
arnefndar vill að allar veðskuldir verði
hluti af ákvæði um greiðsluaðlögun.
BETLAÐ Í KABÚL Ekki er óalgeng sjón
í Kabúl að sjá nokkrar búrkuklæddar
konur úti á götu að betla. Þær hafa
margar hverjar fáa aðra möguleika til
að framfleyta sér. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Það er orðinn nán-
ast daglegur viðburður að lög-
regla uppræti kannabisræktun.
Lögreglan stöðvaði kannabis-
ræktun í húsi í Hafnarfirði í
fyrrakvöld. Við húsleit fund-
ust allnokkrar kannabisplöntur.
Einnig var lagt hald á gróður-
húsalampa.
Þá stöðvaði lögreglan kanna-
bisræktun í húsi í Laugardals-
hverfinu í fyrradag. Við húsleit
fundust fimmtán kannabisplönt-
ur. Í framhaldinu var farið í hús-
leit á öðrum stað á höfuðborgar-
svæðinu og þar fundust fíkniefni.
Karlmaður á fertugsaldri var
handtekinn vegna málsins. - jss
Höfuðborgarsvæðið:
Kannabisrækt-
un upprætt
Ísland og Evrópusambandið
Opinn fundur um Evrópusambandið á vegum BSRB
föstudaginn 20. febrúar kl. 14 – 16 í BSRB – húsinu Grettisgötu 89
Á fundinum verður fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og
afstöðu sambandsins til landbúnaðarmála
Framsögu hafa
Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands
Sigurður Jóhannesson, sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
Fundarstjóri
Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB
Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR Mikil
styr stóð um söluna á Sparisjóði Hafn-
arfjarðar.