Fréttablaðið - 19.02.2009, Blaðsíða 14
19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
FÓLK „Við treystum á að veðurguð-
irnir verði góðir við okkur,“ segir
Gunnar Ingi Magnússon, einn af
sjö bekkjarbræðrum í 4. bekk D í
Verslunarskóla Íslands, sem í gær
voru í óða önn að búa sig undir að
fara fótgangandi í skólann í morg-
un, alla leið frá Keflavík. Þessi
uppfærða útgáfa af Keflavíkur-
göngunni er liður í Góðverka-
dögunum sem standa yfir fram á
sunnudag.
Að sögn Gunnars hefur verið
mikið um góðverk og áheit í Versló
í vikunni. „Fólk er að vaxa á sér
bringuna, borða paintball-kúlur,
syngja ABBA-lög í búningum og ég
veit ekki hvað og hvað, allt í þágu
góðs málefnis,“ segir Gunnar, en
allt fé sem safnast í skólanum
rennur rakleiðis til Mæðrastyrks-
nefndar. Gunnar segir algengt að
nemendur heiti fimm hundruð til
þúsund krónum á skólafélaga sína,
auk þess sem leitað er til fyrir-
tækja með von um styrki.
Strákarnir léku svipaðan leik
fyrir ári síðan. Þá gengu þeir frá
Mosfellsbæ niður í Versló í hávað-
aroki og grenjandi rigningu. „Við
vorum ansi hraktir eftir fjögurra
tíma göngu, en mættum þó á rétt-
um tíma í skólann klukkan tíu
mínútur yfir átta,“ segir Gunn-
ar og skellir upp úr. Stefnan hjá
þeim félögum var að leggja af
stað frá heimili vinkonu þeirra
í Keflavík klukkan 22.00 í gær-
kvöldi. „Kannski tökum við okkur
örstutta pásu heima hjá bekkjar-
systur okkar í Garðabænum og
fáum okkur kakó, en bara ef tími
gefst til. Við viljum alls ekki koma
of seint í skólann!“
365 miðlar er eitt margra fyr-
irtækja sem taka þátt í Góðverka-
dögunum, sem eru haldnir í fyrsta
skipti í ár. Þeir byggja á nær alda-
gamalli hefð og loforði skáta um að
gera að minnsta kosti eitt góðverk
á dag, og hvetja þannig landsmenn
til athafna og umhugsunar um að
láta gott af sér leiða, sýna náunga-
kærleik, vináttu, hjálpa öðrum og
gera góðverk.
Góðverkadagarnir hafa hlotið
góðar viðtökur hjá skólum, fyr-
irtækjum og á fleiri vígstöðvum.
Komið hefur verið í gagnið vef-
síðunni godverkin.is, þar sem les-
endum gefst meðal annars færi á
að segja frá hversdagslegum góð-
verkum sem þeir hafa framið eða
orðið vitni að, auk þess að lesa um
nýjustu góðverkin í fyrirtækjum,
skátunum og skólunum.
kjartan@frettabladid.is
Ganga fyrir
gott málefni
Sjö bekkjarbræður í Versló fara fótgangandi í skól-
ann frá Keflavík í tilefni Góðverkadaganna, sem nú
standa yfir. Hvatt er til náungakærleiks og vináttu.
STUNDVÍSIR STÚDENTAR Þeir Sigvaldi, Stefán, Óttar, Ingólfur, Egill, Andri, Baldvin og
Gunnar vilja ólmir safna fé til styrktar þörfu málefni en alls ekki mæta of seint í skól-
ann. Baldvin er bekkjarfélagi göngugarpanna en hugðist ekki leggja á sig Keflavíkur-
gönguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Takmarkað sætaframboð og valdar dagsetningar
á hvern áfangastað. Athugið að flugvallarskattur
getur verið mismunandi á milli áfangastaða.
Flugsæti, verð frá:
12.450 kr.
50%
Börn:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum, fá helmingsafslátt af
verði fyrir skatta og aðrar greiðslur
á völdum áfangastöðum.
Kynntu þér 18 spennandi áfangastaði okkar og frábærar
pakkaferðir Express ferða. Allar nánari upplýsingar og bókanir
á www.icelandexpress.is og www.expressferdir.is
18 áfangastaðir
Alicante
Bologna
Álaborg
Gautaborg
Billund
Stokkhólmur
Kaupmannahöfn
Genf
London
París
Berlín
Reykjavík
Akureyri
Eindhoven Frankfurt Hahn
FriedrichshafenBasel
Kraká
Varsjá
Barcelona
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
8
5
0
5
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti hefur ákveðið
að senda sautján þúsund manna
herlið til Afganistans til aðstoðar
liðsafla Atlantshafsbandalagsins
þar. Ítalir sögðust einnig hugsan-
lega ætla að fjölga í herliði sínu í
Afganistan.
Búist er við að Bandaríkjamenn
muni þrýsta meira á önnur NATO-
ríki um að fjölga í herliði sínu í
Afganistan. Bandaríkjamenn eru
fyrir með 23 þúsund manna her í
Afganistan, sem er partur af 55
þúsund manna herliði NATO. - gb
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fjölgar í herliði:
Sautján þúsund manna
her á leið til Afganistans
SYRGIR BRÓÐUR SINN Afganskur maður
syrgir bróður sinn sem féll eftir loftárás í
Herat á miðvikudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞORRAVAKA Þemadagar hófust í
Menntaskólanum við Sund í gær þar
sem hjálparstarf er í fararbroddi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN