Fréttablaðið - 19.02.2009, Side 18
18 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
„Bestu kaupin mín eru í Soda stream-tækinu
mínu,“ segir Eygló Harðardóttir alþingismaður.
„Það er frábært að þurfa ekki lengur að kaupa
sódavatn í miklu magni. Við drekkum líka öll
fjölskyldan miklu meira vatn eftir að við
keyptum þetta tæki. Mér þykir svolítið
vænt um þetta tæki því að við keyptum
það kvöldið eftir að það lá fyrir hvernig
listi Framsóknarflokksins liti út fyrir
síðustu alþingiskosningar. Ég var búin
að eyða miklum peningum í kosninga-
baráttuna og þarna keypti ég Soda
stream-tæki fyrir mig og fjölskylduna.
Kjördæmisþingið okkar, sem ákvað
listann, var á Selfossi og við fórum
hjónin eftir það í Nóatún og keypt-
um tækið. Við erum sammála um
það að þetta sé með betri kaupum
sem við höfum gert. Tækið hefur
verið í mikilli notkun alla tíð síðan. Við höfum
boðað út fagnaðarerindið í fjölskyldunni og það
hafa allir komist að sömu niðurstöðu, eftir að
fólk hefur keypt Soda stream-tæki hefur vatns-
neysla aukist mikið og dregið að sama skapi úr
neyslu á sykruðum gosdrykkjum.“
Verstu kaup sín segir Eygló hafa verið
íbúð sem hún keypti í Kópavoginum efst
í Salahverfinu. „Við bjuggum minna en ár
í henni, fluttum síðan til Vestmannaeyja,
leigðum hana út í um ár og seldum svo á
versta tíma, rétt áður en eftirspurn og
verð fór að hækka á höfuðborgar-
svæðinu. Tilfinningin var alltaf eins
og við ættum ekki heima í þessari
íbúð, húsgögnin og myndirnar
okkar pössuðu engan veginn og
ættingjar okkar villtust alltaf þegar
þeir ætluðu að koma í heimsókn.“
NEYTANDINN: EYGLÓ HARÐARDÓTTIR ALÞINGISMAÐUR:
Alltaf eins og við ættum ekki heima þarna
„Ég get látið ryk hverfa eins og hendi
sé veifað. Maður dregur fyrir alla
glugga, kveikir á
kertum og málið
er steindautt, allt
ryk á bak og burt,“
segir Stefán Máni.
Myrkur hefur einmitt
verið talið einkenna
skrif glæpasagna-
höfundarins sem
hefur gefið út bækur
á borð við Svartur á leik, Skipið og
Ódáðahraun. „Svo er það rúsínan
í pylsuendanum, húsráð beint úr
undirheimunum: Maður þrífur blóð
með köldu vatni en ekki heitu,“ segir
Stefán Máni.
GÓÐ HÚSRÁÐ
BEINT ÚR UNDIRHEIMUM
■ Rithöfundurinn Stefán Máni lumar
á fjölmörgum karlmannlegum hús-
ráðum.
Útgjöldin
>Vikuútgjöld meðalheimilis í mat og drykkjarvörur
Heimild: Hagstofa Íslands
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
10
.6
15
10
.1
92
10
.8
90
10
.7
68
2004 2005 2006 2007
Kreppan hefur haft sín
áhrif á fiskisölu í landinu.
En það þurfa ekki að vera
neikvæð áhrif. Landinn er
ekki hættur að kaupa fisk
en neyslumynstrið hefur
breyst. Fréttablaðið fór í
verslunarleiðangur og tók
fisksala tali.
Inni í verslun Gallerýs Fisks útlist-
ar Kristófer Ásmundsson eigandi
fyrir blaðamanni girnilega rétti
og suma hverja framandi. „Þetta
er allt unnið hér á staðnum,“ segir
hann stoltur. En neytendur hafa
ekki leyft sér mikinn munað hjá
fisksalanum í febrúar frekar en
annars staðar, allir finna fyrir því.
Hann segir að mikið sé keypt af
hrognum og lifur meðan fiskrétt-
irnir fá oftar að vera freistingin
ein. Meðan hann er að sýna blaða-
manni norður-afrískan fiskrétt
kemur inn kona og kaupir hákarl.
Svipaða sögu er að segja í Fiski-
sögu. Davíð Steingrímsson fisk-
sali segir að tilraunamennskan
og girndaraugað sem áður fengu
að ráða för hjá neytendum láta nú
í minni pokann fyrir hagsýninni.
„Fólk veit akkúrat hvað það vill og
hversu mikið það vill og það kaupir
ekkert umfram það,“ segir hann.
Pálmi Karlsson, fisksali í Nóa-
túni, segir að á veturna vilji fólk
frekar einfaldari vörur. „Síðan
þegar vorið kemur förum við að
bjóða upp á fiskrétti á grillið og
það hefur alltaf farið vel í fólk,“
segir hann.
Látleysi í stað lúxuss
En þessar breyttu áherslur virð-
ast vatn á myllu Jóns Garðars Haf-
steinssonar, eiganda Litlu fiskbúð-
arinnar, og Lindu Jörundsdóttur,
í fiskbúðinni Freyju. „Við gerum
bara út á það að hafa þetta sem
ódýrast og erum ekki með neinn
óþarfa lúxus til að afvegaleiða
okkur frá því,“ segir Jón Garðar.
Þegar blaðamann bar að var Sig-
urjón Þór Hafsteinsson að kaupa
í soðið og greinilega ekki í fyrsta
sinn sem hann kom í Litlu fiskbúð-
ina. „Hann er með bestu ýsuna í
bænum,“ segir hann
þegar hann er
spurður af hverju
hann versli þarna.
Það reyndist rétt,
að minnsta kosti
eru roð- og bein-
lausu ýsuflökin
ódýrust hjá honum
í þessum verslunar-
leiðangri.
Ýsuflökin
með roði kosta 690 krónur kílóið
sem er sama verð og í Freyju.
Ýsa var það heillin
Í Freyju er boðið upp á heila ýsu
og heilan þorsk. Guðmundur Gísli
Geirdal rær að morgni dags, ef
brælu er ekki fyrir að fara, og
kemur með aflann beint í búð. Það
geta því liðið örfáar klukkustund-
ir þar til fiskurinn er tekinn af
línunni uns hann er kominn í inn-
kaupapokann. „Okkur
Vestfirðingum
þyk i r a lveg
ótækt að fisk-
urinn þurfi að
fara óravegu
og um hundr-
að hendur áður
en hann kemst í
inn-
kaupapokann,“ segir
Linda.
jse@frettabladid.is
Fiskur á gamla mátann
KEYPT Í SOÐIÐ Sigurjón kann vel að meta látleysið og lága verðið hjá Jóni Garðari í
Litlu fiskbúðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HVERJU MÆLIR FISKSALINN MEÐ?
Verslun vara verð
Nóatún Laxafiðrildi í mangó-chutney 1.698
Fiskbúðin Freyjugötu Ýsa í sinneps- og graslauksósu 1.090
Litla fiskbúðin Sjósiginn fiskur 1.190
Gallerý Fiskur Blandaður fiskur með norður-afrískum brag 1.690
Fiskisaga Ýsa í karríi og kóríander 1.460
Fiskbúðin Freyja Heil ýsa 290
Allt er kílóverð
VERÐ Á ROÐ- OG BEINLAUSUM ÝSUFLÖKUM
Verslun Verð
Nóatún 1.298
Fiskbúðin Freyjugötu 1.195/1.290*
Litla fiskbúðin 890
Gallerý Fiskur 1.390
Fiskisaga 1.490
Fiskbúðin Freyja selur öll flökin með roði, kílóverðið er 690 sem er það
sama og í Litlu fiskbúðinni
TÖLURNAR STANDA FYRIR KÍLÓVERÐ
* FER EFTIR ÞVÍ HVERNIG FLÖKIN ERU
DAVÍÐ Í FISKISÖGU
PÁLMI Í
NÓATÚNI
KRIST-
ÓFER
GALLERÝ
FISKUR
LINDA MEÐ HEILA ÝSU
Neytendur hafa vanist því að stærri umbúðir séu
hlutfallslega ódýrari en minni. Tveggja lítra flaska
af kóki ætti til dæmis að vera ódýrari – hlutfalls-
lega séð – en lítil kók í gleri. Þessa dagana, þegar
íslenska krónan er sem í rússíbana, og allt er í rugli,
er þetta engin regla. Því borgar sig að vera stöðugt á
varðbergi. Flestar stærri búðir birta lítra/kílóaverð
með litlum stöfum á (rafrænu) verðmiðunum sínum
og því er bara að skoða þessi verð vandlega og láta
ekki blekkjast.
Mér berast mörg dæmi um að stærri umbúðir séu
hlutfallslega dýrari en minni, öfugt við það sem þær
ættu að vera. Húsmóðir rak augun í að lítraverðið á
stórri flösku af grænni Filippo Berio olíuflösku væri
óhagstæðara en á lítilli í Bónus. Stærri kassar af
Cheerios hafa verið dýrari – sé litið á verð kílósins
– en minni í Krónunni.
Ævar Guðmundsson skrifar: „Rakst á svolítið sér-
kennilegt í dag þegar ég kom við í 10-11 að kaupa
mér Snickers. Eitt kostar 159 kr. Stórt, sem er ekk-
ert annað en tvö lítil saman í bréfi, kostar 219 kr.,
sem er skiljanlegur díll. En fjögur saman, sem eru
þá tvö stór, kosta 559 kr., sem er
töluvert dýrara en að kaupa
sér tvö „stór“. Sérkennilegt!“
Svona ójafnvægi munu
kaupmenn útskýra með því
að varan hafi verið keypt inn
á mismunandi tíma, og að krónan
hafi hrunið í millitíðinni.
Sem sé: Verum á varðbergi!
Neytendur: Verum á varðbergi!
Gengisrugl úti í búð
Frá og með 12. febrúar þurfa notendur 3G frelsis hjá símafyrir-
tækinu Nova að greiða 19 krónur fyrir hver fimm MB sem notuð
eru á netinu í símanum. Enn er hægt að skoða upphafssíðuna
gjaldfrjálst en um leið og farið er inn á aðrar vefsíður eru, eins og
áður sagði, rukkaðar 19 krónur fyrir hver fimm notuð MB. Netið
fylgir sem fyrr frítt með 3G áskrift hjá Nova.
■ Verðlag
Ekki lengur frítt á netið í Nova-frelsi
GLÆNÝR RAUÐMAGI
(FRÁ ÓLAFSVÍK)
Stór humar frá Hornafi rði
Óbarinn harðfi skur, ýsa og steinbítur frá Ísafi rði
...Strákar: Konudagurinn er á sunnudag !!!
Fiskikóngurinn er...
Fiskverslun sem gaman er að koma í :)
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki