Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 22

Fréttablaðið - 19.02.2009, Page 22
22 19. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 N ýir formenn taka nú við stjórnum bankaráða tveggja ríkisbanka eftir að forverar þeirra ljúka störfum eftir erfiðan tíma. Forsendan fyrir brottför þeirra úr starfi var veik og lýsti mest undrun og uppgjöf yfir hinni nýju stöðu í bankarekstri hér á landi: hún er pólitísk og mun eðlilega dragast inn í umræðu stjórnmála þjóð- arinnar í víðasta skilningi. Tugþúsundir manna hafa tapað hluta- fé í bönkum og fjármálafyrirtækjum og meðan athyglin beinist einkum að stærstu hluthöfunum er það tap hinnar dreifðu eign- ar sem er alvarlegra. Í sparnaði þess fólks var falin vonin um dreifða eignaraðild, ekki bara í fjármálafyrirtækjum heldur í öllum atvinnurekstri. Sama fólk á nú að leggja bönkunum fé með ábyrgð ríkisins og sköttum sínum. Og það á heimtingu á að bankarnir starfi fyrir opnum tjöldum um allar þær ráðstafanir sem lúta að björgun fyr- irtækja sem halda uppi samfélagslegri þjónustu. Efasemdir um tæknilega getu bankanna til að takast á við vandann eru eðlileg- ar: brennt barn forðast eld. Þá eru ekki síður eðlilegar áhyggjur almennings að sérgæðasjónarmið sem hafa ríkt í bönkunum um nokkurt skeið spilli fyrir einföldum lausnum í erfiðleikum fyrir- tækja sem eru á vetur setjandi: bolabrögð í lánanefndum geta á endanum orðið opinber mál ef ekki er vandað til verka, rétt eins hyglun sem er landlægur ósiður hér á landi. Efasemdir hafa komið fram um hæfni skilanefnda bankanna til að standa í sölu eigna á erlendum vettvangi: þar skorti bæði reynslu og þekkingu á erlendum mörkuðum til að koma eignum í verð með hagstæðum árangri. Enginn er annars bróðir í þeim leik og því brýnt að menn hafi varann á og nýti sér alþjóðlega ráðgjöf. Ekki er síður mikilvægt að umsjónarmenn í bönkunum hátt og lágt hafi skýrt umboð, skýra stefnu og komi málum í höfn. Langlundargeð nýrra fjárfesta er takmarkað. Almenningur vill sjá árangur fyrir sinn pening. Stjórnmálamennirnir verða að sjá til þess – fyrir opnum tjöldum. Sú ályktun hefur verið dregin af hinu snögga hruni einkabank- anna að þar hafi ráðið nokkru fyrirhyggjuleysi af menntunarskorti þó svo mikið hafi verið gumað fyrr af menntunarstigi einstaklinga sem þangað voru ráðnir. Ef kunnáttuleysi er nýjum ríkisbönk- um til trafala þá er að ræsa Bankaskólann á ný og endurmennta bankafólk í fornum og sígildum fræðum fjármálastarfsemi. Nú þegar bankar eru orðnir hluti af endurreisnarkerfi ríkisins, svo sárt sem það kann nú að vera hugsjónamönnum einkafram- taksins, er brýnt að síbyljan um gegnsæi verði gerð að raunveru- leika. Það er ekki hægt að ætlast til að samfélagið leggi atvinnu- vegum í landinu til nýjan fjárhagsgrundvöll, endurfjármögnun lána, endurnýjað umboð til rekstrarmanna sem eru enn með allt á hælunum, bæði prívat og á opinberum vettvangi, atvinnustarfsemi sem er í raun gjaldþrota, nema það gerist fyrir opnum tjöldum. Það skulu nýir formenn bankaráða hafa í huga þegar þeir mæta til vinnu. Bankarekstur á Íslandi er ekki lengur neitt prívatmál hinna fáu útvöldu. Hann er mál okkar allra. Eftir klúður einkaframtaksins: Þjóðarbankarnir PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKRIFAR Stjórnvöld hafa mörg undan-gengin ár fóðrað fólkið í land- inu á röngum upplýsingum um sum brýn þjóðmál, í sjálfsvörn að því er virðist. Margir virtust kæra sig kollótta um blekkinga- flóðið meðan allt lék í lyndi. En nú, þegar tjaldið er fallið og efnahag- ur margra heimila og fyrirtækja er í uppnámi fyrir alvarleg mis- tök fyrri eigenda og stjórnenda bankanna og meðvirkra stjórn- málamanna og annarra, er vert að rifja upp tvö atriði, sem stjórnvöld sögðu ósatt um. Réttar upplýsing- ar um þessi atriði skipta máli fyrir skilvirka endurreisn efnahagslífs- ins. Listann mætti lengja. Aukinn ójöfnuður Þrátt fyrir skýrar staðtölur frá ríkisskattstjóra um mjög aukinn ójöfnuð í skiptingu ráðstöfunar- tekna heimilanna ár fram af ári eftir 1993 kannaðist ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsókn- arflokksins ekki við neina slíka þróun. Allt atferli ríkisstjórnar þessara flokka 1995-2007 vitn- aði þó um ójafnaðarstefnu þeirra. Þetta voru flokkarnir, sem bjuggu til nýja stétt auðmanna með lög- festingu kvótakerfisins 1984 og héldu síðan uppteknum hætti við einkavæðingu bankanna 1998- 2002, þegar nokkrir vel tengdir flokksmenn neyttu lags og gerð- ust skyndilega auðmenn í boði stjórnvalda. Þetta voru flokkarn- ir, sem lögðu mun lægri skatt á fjármagnstekjur en launatekjur og lækkuðu skattleysismörk að raungildi og þyngdu með því móti skattbyrði lágtekjufólks. Þrátt fyrir þessar staðreyndir og skilmerkileg gögn og útreikn- inga ríkisskattstjóra og annarra utan stjórnkerfisins, til dæmis Guðmundar Arnar Jónssonar verk- fræðings og Stefáns Ólafssonar prófessors, héldu stjórnvöld og erindrekar þeirra áfram að þræta fyrir aukinn ójöfnuð. Þegar ég lýsti eftir frekari upplýsingum frá ríkisskattstjóra, fékk ég þetta svar 23. apríl 2008: „Þó svo að það felist vissulega hvorki mat né túlkun í útreikningi á gini-tölum þá hefur Gini-talan öðlast ákveðið pólitískt vægi í umræðunni sem einhvers konar einfaldur mælikvarði á rétt- læti í samfélaginu. Með útreikn- ingum á Gini-tölum, í nafni emb- ættisins, teljum við okkur því vera komna óþægilega nærri pólitík- inni, nær en við kærum okkur um.“ Sem sagt: ríkisskattstjóraembætt- ið færðist í fyrra undan að reiða fram réttar upplýsingar um þróun tekjuskiptingar af tillitssemi eða ótta við pólitíska yfirboðara. Þessi boð fólu í sér fráhvarf frá fyrri háttum. Hagstofan skilar auðu. Fiskveiðistjórnin Þeir, sem þrættu fyrir aukinn ójöfnuð í tekjuskiptingu, vegsöm- uðu jafnframt fiskveiðistjórnina og sáu engin tormerki á mismun- uninni í kvótakerfinu. Þeir héldu áfram að þræta fyrir augljóst ranglæti af völdum kvótakerfisins, enda þótt mannréttindanefnd Sam- einuðu þjóðanna hafi fyrir rösku ári úrskurðað, að mismununin við úthlutun aflaheimilda sé mann- réttindabrot, og skorað á stjórn- völd að breyta fiskveiðistjórnar- kerfinu af mannréttindaástæðum. Má ekki bjóða nýrri ríkisstjórn að bregðast við áskorun mann- réttindanefndarinnar? Talsmenn kvótakerfisins þrættu ekki aðeins fyrir ranglætið, heldur einnig fyrir óhagkvæmnina, sem ætti þó að blasa við hverjum manni. Kvótakerfið er reist á þversögn, sem hlýtur fyrr eða síðar að verða kerfinu að falli. Þversögnin felst í að veita útvegsmönnum lagaheim- ild til að höndla með kvóta, sem þeir fengu úthlutað ókeypis úr hendi löggjafans. Frjálst framsal kvóta er að sönnu nauðsynlegt, en það getur ekki gengið til lengdar upp á önnur býti en þau, að allir sitji við sama borð við úthlutun kvótans í upphafi. Útvegsmenn gengu á lagið og veðsettu kvótann í stórum stíl, þótt auðlindin ætti að lögum að heita sameign þjóðarinn- ar. Þeir notuðu lánsféð til að fjár- magna brask með eigur annarra að veði. Skuldir útvegsfyrirtækja eru nú taldar vera um 500 milljarð- ar króna; fjárhæðin nemur rösk- lega þreföldu útflutningsverðmæti sjávarafurða 2008. Skuldirnar voru svipaðar útflutningsverð- mætinu 1995 og hafa því þre- faldazt á þann kvarða frá 1995. Óvíst er, hvort útvegsfyrirtækin geta borið svo þungar skuldir til langframa á eigin spýtur. Bank- arnir veiktu sjávarútveginn með ótæpilegum lánveitingum og stóðu þannig í vegi fyrir þeirri hag- ræðingu, sem var höfuðréttlæt- ing kvótakerfisins. Yfirbygging- in tærði undirstöðuna. Hagkvæm fiskveiðistjórn hefði leitt til eigna- myndunar, en ekki skuldasöfnun- ar. Stjórnvöld halda einnig áfram að þræta fyrir brottkast á veiddum fiski þrátt fyrir ítrekaðan vitnis- burð sjómanna um brottkast og löndun fram hjá vikt. Kvótakerfið hvetur til lögbrota af þessu tagi, en lögreglan og önnur yfirvöld láta málið yfirleitt afskiptalaust. Rangar upplýsingar Í DAG | Rétt skal vera rétt ÞORVALDUR GYLFASON Traustið er grunnurinn UMRÆÐAN Karl Pétur Jónsson skrifar um endur- reisn íslensks samfélags Vorið 2007 var ég í hópi 66.000 Íslend-inga sem treystu loforði Sjálfstæðis- flokksins um áframhaldandi stöðugleika og forystu í baráttunni fyrir athafnafrelsi einstaklingsins. Við tók ríkisstjórn tveggja stærstu flokka landsins sem naut trausts 2/3 hluta þjóðarinnar. Tæpum tveimur árum síðar upplifa grandvarir Íslendingar vanmátt- inn sem fylgir því að geta ekki mætt skuldbinding- um sínum. Lánstraust Íslendinga er horfið, þjóðin er höfð að háði og spotti erlendis og það skásta sem við getum vænst af öðrum þjóðum er meðaumkun. Sjálfstraust er forsenda trausts frá öðrum. Á meðan vantraust ríkir innanlands verður ekki til nauðsynlegur grundvöllur fyrir eðlilegri þátttöku okkar í samfélagi þjóða. Alvarlegastur er skortur á trausti á milli almennings og stjórnvalda. Stjórnvöld hefur skort kjark til að grípa inn í atburðarás sem ljóst mátti vera að leiddi til efnahagslegra þreng- inga. Ýmislegt bendir til að fyrirtæki hafi ekki ein- göngu farið fram af græðgi og bíræfni, heldur líka út fyrir ramma laganna. Margt bendir til að stjórn- völd hafi brugðist eftirlitshlutverki sínu. Uppgjör stjórnmálaflokka við fortíð- ina verður fyrsta skrefið í að endurbyggja traust. Þeir verða að gangast við mistök- um sínum. Sú tregða sem forysta Sjálfstæð- isflokksins hefur sýnt í þessu hefur valdið mér og mörgum öðrum sjálfstæðismönnum vonbrigðum. Erfitt verður að treysta flokkn- um til að endurreisa Ísland, viðurkenni hann ekki að á þeim tæpu átján árum sem flokkur- inn var í ríkisstjórn voru ekki unnar eintóm- ar hetjudáðir. Annað skrefið er að grasrót flokkannna endurmeti gildi þeirra og byggi upp trú- verðuga framtíðarsýn. Þriðja skrefið verður þegar flokkarnir leiða fram hæfan mannskap til að vísa þjóðinni inn í tíma velmegunar, framfara og fagurs mannlífs á Íslandi. Kallað hefur verið eftir endur- nýjun og má heita víst að margt hæfileikafólk svari því kalli. Traustið er grunnurinn. Við munum ekki rísa upp til að byggja nýtt samfélag fyrr en reiðin hopar fyrir trausti. Fyrr munum við hvorki öðlast kjark né getu til athafna. Fyrst þá mun límið í samfélagi okkar harðna á ný, peningar flæða á milli fólks og fyrirtækja í heilbrigðum viðskiptum, atvinna skap- ast og gangverk samfélagsins ná takti á ný. Höfundur er stjórnmálafræðingur og ráðgjafi. KARL PÉTUR JÓNSSON ELDRI BORGARA FERÐIR um fornar byggðir á Suður-Grænlandi. Fimm daga ferðir í júlí og ágúst. Allt innifalið. Allar upplýsingar veitir Emil Guðmundsson í síma 898 9776. Einnig hægt að senda tölvupóst á emil@flugfelag.is REYKJAVÍK Grænland Narsarsuaq ÍS LE N SK A /S IA .I S /F LU 4 50 11 0 2. 20 09 flugfelag.is Þjóðernisbrjálæðingar Varaþingmaðurinn Mörður Árnason olli skammvinnu fjaðrafoki á þingi í gær þegar hann sté í ræðustól í umræðum um Evrópumál og lét heldur óblíð orð falla um samstarfs- flokk Samfylkingarinnar í ríkisstjórn. „VG: íhaldsflokkurinn mikli og þjóðernisbrjálæðingarnir eru mörgum skrefum á undan Sjálfstæðisflokkn- um,“ sagði hann. Við þetta espuðust sjálfstæðismenn upp sem von var, þustu í pontu og lýstu undrun á orðunum. Það væri alveg fáheyrt að svona töluðu menn um samstarfs- flokk sinn. Mörður sá sig tilneydd- an að kveðja sér hljóðs á ný og árétta að þetta væri alls ekki hans skoðun á Vinstri græn- ingjum, heldur einungis lýsingar sem aðrir hefðu oft gripið til. Idolið fallið „Bubbi í áfalli vegna Björns“ stóð í fyrirsögn á Vísi en þar tjáir Bubbi Morthens sig um mál Björns Jörundar Friðbjörnssonar sem flæktist í kókaín- mál þar sem símtöl hans og Þorvarð- ar Davíðs Ólafssonar voru gerð lýðum ljós. Við lestur greinarinnar sannfærist lesandinn um að vissulega sé kóngur- inn í áfalli. „Ég er í áfalli, mér finnst ég eiga svo mikið í Idolinu,” segir hann. Það er því ekki alveg jafn ljóst hvort hann sé í áfalli vegna Björns eða vegna þess að skuggi hafi fallið á Idolið. Bjarnargeiði En kónginum er annt um Björn, segir hann hinn vænsta pilt. Hins vegar segir hann það ekki hægt að ljúga sig út úr þessu, kunnáttumaður í eitur- lyfjaheiminum sjái það strax um hvað er verið að ræða í þessum símtölum Björns og Þorvarðar. Það er ágætt að gera vinum sínum greiða og ef hann heitir nú Björn þá veitir honum kannski ekki af svona dásamlegum bjarnargreiða. stigur@frettabladid.is jse@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.